Tíminn - 28.06.1972, Blaðsíða 11

Tíminn - 28.06.1972, Blaðsíða 11
10 TÍMINN Miövikudagur 28. júni 1972 Miðvikudagur 28. júni 1972 TÍMINN 11 Og vissulega munu margir hafa kunnað Guðmundi þakkir fyrir framtak hans. En hins munu lika hafa verið dæmi, að hann hafi orðið fyrir óþægindum og áreitni, einmitt vegna þess arna, sérstak- lega þegar þeir voru drukknir, er þóttust eiga honum grátt að gjalda fyrir vikið. Það hefur sagt mér maður, sem minnist þessara ára þar eystra. AD SEXTÁN ÁIIUM LIÐNUM Hvað um það - vikjum að fram- haldi þessarar sögu. Austur á Norðfirði var annar maður, sem vissulega er vert að nefna, Björn Björnsson ljósmyndari. Hann er landskunnur maður fyrir af- bragðsgóðar fuglamyndir, frábær fuglavinur eins og að likum lætur og glöggskyggn náttúruskoðari i mörgum greinum. Þvi ma skjóta hér inn, að náttúruverndarráð sem nú er góðu heilli komið á laggirnar og gera má sér góðar vonir um, að starfi af auknum þrótti á næstu árum, ætti að sýna manni eins og Birni Björnssyni einhvern sóma, þótt slikt hafi ef til vill ekki verið meðal þess, sem beinlinis hefur verið gert ráð fyrir, að það sinni. Það getur þá gara bætt þvi á viðfangsefnaskrá sina. Nú, einn daginn á þessu dæmafáa vori 1972 hittust þeir, Axel Túlinius, fyrrverandi bæjar- fógeti i Neskaupstað, og Björn Björnsson. Það hafði lengi staðið til og mátti ekki lengur undan dragast, að minnast þess dags, er Guðmundur Björgúlfsson gerði herför sina gegn skyttunum á Norðfjarðarhöfn, og það varð sammæli þeirra Axels og Björns, að Björn gerði fallegt mynda- spjald til þess að gefa Guðmundi til minja. Þetta spjald árituðu þeir báðir, Axel og Björn, núna 6. júni og færðu Guðmundi. Þetta spjald og þessi saga var það, sem maðurinn, er hringdi til min, var að hvetja mig til að útvega, og hér hafa þessi orð verið skrifuð, áður en tvær klukkustundir voru liðnar frá þvi ábendingin barst, þótt nokkrir dagar kunni að liða, áður en þetta kemst á siður Timans. Til viðbótar má drepa á, að það hefur ekki aðeins verið þyrmt lifi fugla fyrir atbeina Guðmundar Björgúlfssonar á meðan hann gegndi lögregluþjónsstarfi. Hér á landi er þó nokkuð af fólki, sem á það lögregluþjónum að þakka, að það hefur ekki drukknað. Ég hef spurnir af þvi, að Guðmundur bjargaði fimm mönnum úr sjón- um á meðan hann starfaði eystra. Þetta voru tveir bræður ósyndir, sem lent höfðu i sjónum, drengur á kajakk, sem hvolfdi, og flæktist i seglgarnsdræsu og tveir menn, sem féllu niður á milli skips og bryggju. Hafi einhverjir borið kala til Guðmundar á einhverju skeiði vegna þess, að hann gat ekki, þvert gegn skyldu sinni, horft upp á það, að fuglar væru myrtir fyrir augunum á sér i trássi við lög og reglur, ættu allir að hafa kunnað honum þakkir fyrir að bjarga mannslifum. NATTÚRUGRIPASAFN SIDBÓTARSTOFNUN En hverfum ekki alveg strax með hugann burt úr Neskaupstað. Nú er risið þar upp náttúrugripa- safn, sem áhugasamur maður, Hjörleifur Guttormsson, veitir forstöðu - menningarstofnun, sem við skulum vona, að veki marga, unga og aldna, til nýs eða aukins skilnings á náttúrunni umhverfis, til samúðar með öllu, sem lifir og hrærist, og þess skilnings, sem getur varðað lif eða dauða mann- sins, homo sapiens, að hann er aðeins hluti af náttúrunni, peð á mikluskákborði allifsins, og getur ekki skákað öðrum lifsþáttum i hróksvaldi, án þess að gjalda þess sjálfur grimmilega. Slikt ætti fólkið i sjávar- byggðum auðveldlega að skilja - það, sem lifir af nytjum hafsins, og má öllum betur vita, hvað það kostar að búa ekki réttilega við Frh. á bls. 15 Úr nátlúrugripasafninu i Neskaupstað. Myndspjaldið, sem Guðmundi Björgúifssyni var gefið á dögunum. Aftan á þaö hefur Axel Túlinfus rit- að: ,,Til minja um rösklega verndun fugla á Norðfjarðarhöfn”. Ljósmynd: Björn Björnsson. glumdu, og fuglarnir böðuðust blóði sinu, sumir dauðir, aðrir særðir, og það var ekki ævinlega um það spurt, hvort byssunum var lyft á stöðum, þar sem skot voru leyfð, eða þeim beint að fuglum, er vinna mátti grand. Jæja - Guðmundur Björg- úlfsson var lögregluþjónn i Neskaupstað árið 1956, og þar i bæ voru skyttur, sem áttu það til að haga sér bæði ógætilega og óvægilega. Guðmundur Björg- úlfsson var maður, sem unni fuglalifinu og náttúru landsins, og hann var lika maður, sem vildi af trúnaði rækja það starf, sem hann hafði tekið að sér. Hann beindi geiri sinum að skyttunum skot- glöðu, og á einum degi, 25. nóvember 1956, stóð hann ellefu skyttur að ólöglegum fugla- veiðum á Norðfjarðarhöfn. Þessar skyttur voru allar sektaðar. Nú ætti það svo að vera - eða svo finnst þeim, sem þetta skrifar -, að hver, sem rækir starf sitt af samvizkusemi og elju, hlyti heiður og þökk. FUGLAIINIR Sem ég kem þessum orðum á pappirinn, hringir til min maður og segir: „Talaðu við hann Guðmund Björgúlfsson hjá Sam- vinnutryggingum. Hann er ný- búinn að fá dálitið i hendur, sem að visu kemur seint til skila - þér á ekki að vera ofvaxið að grafa upp, hvað ég á við”. Guðmundur Björgúlfsson er maður nálægt miðjum aldri, og i eina tið var hann lögregluþjónn austur i Neskaupstað. Það var löngu áður en menn fóru að tala um náttúruvernd, og satt að segja var náttúruverndin ekki alls staðar á marga fiskana þá (frekar en enn er). 1 bibliunni er mönnum sagt að lita til fugla himinsins og gefa gaum að liljum vallarins. I fjöldamörgum kaup- túnum - ekki aðeins i Neskaup- stað eða þorpunum á Aust- fjörðum, heldur mjög viða um land - litu menn til þeirra með byssu i hönd. Skothvellirnir og halda sina leið yfir Sambands- húsið og iþróttahús Jóns Þor- steinssonar, unz þær hverfa mér við grá hamravirki þjóðleik- hússins. Og þá hvarflar þaö mér i hug, hversu margt gerist i landi okkar undir þessum bláa himini og öllum skýjunum, sem hann tjaldar á ýmsa vegu, svo að okkur skorti nú ekki tilbreytnina. Mér verður hugsað um allan marg- breytileik þess lifs, sem lifað er frá Langanesfonti til Reykjanes- táar, allt amstur mannfólksins, ýmist einfalt i öllum sniðum,rótt og kyrrlátt. undarlega flókið, ýmist þrotlaus sókn ,að settu marki, oft býsna erfið, eða eirðarlaust flökt án stefnumiðs, fálm i myrkri og rek fyrir vindi og veðrum. Og hér sit ég sjálfur á gömlum stól, sem ég get snúið i kring, eftir þvi, hvort égeraö tala i simann eða taltækið eða tek til að lemja á ritvélina, óskandi þess, að himinninn blási mér ein- hverju i brjóst, sem geti fundið Ég horfi út um gluggann minn og stari upp i þennan undurbláa himin, sem hvelfist yfir okkur, og virði fyrir mér skýjadreifarnar, sem koma siglandi úr austri yfir dimmblátt þakið á útvarpshúsinu Guðmundur Björgúlfsson. HUGLEIÐINGAR 0G STAÐREYNDIR náð fyrir augum lesendanna, helzt nokkrum tugum þúsunda. Það er kapphlaupið, sem ég sjálfur þreyti. LÖGREGLUÞJÓNNINN, SKYLDAN O G Þorsteinn AAatthíasson: n BUSKAPUR VEITIR AAEIRI LIFSFYLL- INGU EN NOKKUÐ ANNAÐ STARF Við, fólkið sem hörfað höfum frá þvi, er við köllum harðbýli heimasveitar og leitað á vit fjöldahreyfingarinnar við Faxa- flóa, höfum gjarnan þann sið, að koma saman nokkrum sinnum á ári til þess að eiga orðskipti og rifja upp minningar frá fyrri dög- um. Það var einmitt á einum slikum mánnfundi, sem ég hitti fyrst Viggó Valdimarsson. Hann var þá húsvörður i Hlégarði i Mos- fellssveit, en þar höfðum við fengið inni fyrir þessa gleði okk- ar. Siðan þetta var hefur margt breytzt, meðal annars það, að Viggó er ekki lengur velsæmis- vörður fyrir Mosamenn heldur bóndi austur i ölfusi. Ég er fæddur á Bildudal i Arn- arfirði. Foreldrar minir voru Valdimar Guðbjartsson trésmið- ur, Arnfirðingur að ætt, og Bjarn- friður Tómasdóttir, einnig Arn- firðingur. Móður mina missti ég ungur og fór i fóstur til Guðmundar Jónssonar og Guðriðar Guð- mundsdóttur, þau bjuggu á Sveinseyri i Tálknafirði. Hjá þeim ólst ég upp til átján ára ald- urs, þá fór ég á bændaskólann á Hvanneyri. Eftir dvölina þar var ég heima eitt sumar. Arið 1946 fluttist ég til Reykja- vikur og var þar nokkur ár stræt- isvagnabilstjóri. Eitt sumar vann ég hjá vegagerðinni og annað hjá Búnaðarsambandi Borgarfjarð- ar. Ég mun hafa verið þrjú ár hjá strætisvögnunum og finnst mér sem það sé eitt leiðasta starf, sem ég hef nokkru sinni stundað. En þetta var róleg vinna, vinnutim- inn ekki langur, og gaf þvi mögu- leika á ýmiss konar aukavinnu. Þegar ég hætti hjá strætisvögn- unum fór ég út i Viðey og var þar bóndi eitt ár ásamt öðrum. Þar var skemmtilegt að vera. Þetta er öndvegisjörð, sem gefur mögu- leika til stórbúskapar. Við höfð- um eingöngu kýr. Þá var verið að leggja niður búið i Þorlákshöfn. Skúli Þorleifsson, maóurinn sem átti það, var að hætta. Af honum keyptum við 19 gripi. Þessi búskapur stóð aðeins eitt ár, og hefði þvi mátt búast við stórfelldu tapi, þar sem það hafði mikinn kostnað I för með sér að flytja út i eyjuna. Að betur fór or- sakaðist af þvi, að eigandi jarðar- innar keypti allt búið af okkur um vorið. Við vorum þarna kauplausir þetta ár, öðru töpuðum við ekki, en lærum heilmikið á þessu. Frá Viðey fór ég upp að Ála- fossi og var þar við búskap hjá þeim feðgum Sigurjóni og sonum hans Ásbirni og Pétri, i ein þrjú ár og svo bilstjóri á flutningabil þeirra önnur þrjú. Eftir það fór ég i Hlégarð og var þar fjögur ár. Þar féll mér mjög sæmilega. Það var gaman að kynnast ýmsu fólki, sem þangað sótti og maður hafði samskipti við. Ljósustu punktarnir voru sam- komur ýmissa átthagafélaga. Sérstaklega var það eitt átthaga- félag, sem mér þótt alltaf gaman að taka á móti. Það var Atthaga- félag Sléttuhrepps. 011 dagskrá þeirra var heimatilbúin og mjög vönduð. Ekki yfirgripsmikil, en anzi sniðug og vel gerð. Það leyndi sér ekki, að félagarnir voru prýðilega samhentir. Þegar ég fór frá Hlégarði réðist ég ráðsmaður við barnaheimilið i Skálatúni. Það likaði mér ágæt- lega. Þá gerist það, að litið ný- býli, Hulduhólar, er auglýst til sölu og það kaupi ég. A Hulduhól- um bjó ég i átta ár, frá 1961 til 1969, þá ílyt ég hingað ao Bræöra- býli. Keypti hús og girðingar, en rikið á landiö. Hér hef ég um tutt- ugu mjólkandi kýr. — Hvað þarft þú að eiga mik- inn vélakost á þinu búi?— — Ég þarf nauðsynlega að eiga tvær, væri gott að hafa þrjár. — I þessu er gifurleg fjárfesting og nýting vélanna ekki eins mikil og vera ætti, þegar tillit er tekið til stofnverðsins. Eina vélina nota ég allt árið, en tvær ekki nema fimm til sex mánuði. — — Er hægt að gera ráð fyrir, að neytendur, t.d. mjólkur séu, færir um að greiða hana þvi verði, að framleiðsla á ekki stærra búi beri þennan vélakost og allan annan kostnað rekstrinum viðkomandi? — Til þess að geta rekið svona bú, unnið eins og maður og lifað lifi eins og fólk vill hafa nú á tim- um. verður þetta að ske. — Þyrftir þú að hafa meiri vél- ar, þótt kýrnar á búinu væru fjörutiu? — — Já, en ég þarf tiltölulega litlu að bæta við. Og það er alveg rétt, að sum búin eru óhagstæð vegna þess, hvað þau eru litil miðað við þann vélakost, sem verður að hafa. Hins vegar er það hugsan- legt, að bændur i þéttbýlum hér- uðum geti átt sumar vélar sam- an, þó þvi aðeins að þeir séu sam- starfsfúsir og kunni að laga sig hver eftir öðrum eða sýna tillits- semi. Nú, þegar komnar eru jafn — afkastamiklar vélar og t.d. þyrilsláttuvélar, þá ætti að vera mjög auðvelt fyrir fleiri bændur á meðalbúi — miðað við svona tutt- ugu kýr — að eiga slika vél sam- an, án þess að neinir árekstrar þurfi að verða. — Finnst þér, að þrengt sé að sjálfræði bændastéttarinnar, meðan svo horfir sem nú er, að rikið stendur að nokkru leyti und- ir rekstrinum, þótt það jafnframt hefði hönd I bagga með skipulagi búrekstursins, t.d. þannig, að staðsetningu fjárbúa og kúabúa væri hagað eftir landsháttum og með tilliti til þess, hvar auðveld- ast er að na til markaða með mjólkurframleiðslu? — — Nei, mér finnst það bara al- veg sjálfsagt, þetta er einmitt það, sem þarf að gera. Skipu- leggja kúabúin sem næst fjölbýl- inu, þar sem dagleg neyzluþörf er mest. En aftur sauðfjárbúin þar sem sumarlönd eru viðáttumest og vel gróin fjalllendi. Það er engin ástæða til að segja mér fyr- ir um það hvort ég skuli gefa mig að sauðfjár- eða nautgriparækt. Það á að vera mér i sjálfsvald sett. Ég verð aðeins að haga bú- setu minni eftir þvi. Ég er eigin- lega undrandi á, að þessi mál skyldu ekki vera tekin fastari tök- um þegar verið var að deila um staðsetningu mjólkurbúanna og kostnað við mjólkurflutninga, sem verður oft ótrúlega mikill þegar um litið magn er að ræða frá fjarlægum stöðum. Nú nýlega er komið fram at- hyglisvert sjónarmið, sem ég er i raun og veru hissa að enginn skuli hafa hreyft fyrr, en það er að lög- gilda búskapinn sem iðnað. Eins og nú er, getur hver sem er, ef hann með einhverjum ráðum kemst yfir jarðnæði, hafið þar bú- rekstur. Maðurinn þarf ekki að hafa neina þekkingu til brunns að bera og getur, ef svo vill verkast, veriðalgjör landeyöa. Hann getur komizt yfir öll lögboðin lán og þannig fengið i hendur fé, enda þótt hann hafi ekkert vit á að meðhöndla skepnur svo forsvar- anlegt sé. Þessi dæmi eru til. Það virðist ekki óeðlilegt, þó að þjóðfélagið krefjist einhverrar fagþekkingar af þeim mönnum, sem leggja fyrir sig sjálfstæðan atvinnurekstur á sviði landbún- aðarins og eru þar stjórnendur. Það eru orðnir svo miklir fjár- munir.'sem liggja i einu búi og oftast mikillhluti þeirra tekinn að láni af almannafé, að sjálfsagt sýnist að setja þau skilyrði, að menn þekki eitthvað til þess, sem þeir eru að taka sér fyrir hendur. Það er sjálfsagt ekki hægt að taka fram fyrir hendurnar á pen- ingamanni, sem vill kaupa jörð og hefja búrekstur, enda þótt hann sjálfur kunni engan verks- hátt þar að lútandi. En vilji hann á einhvern hátt njóta fyrir- greiðslu þjóðfélagsins við þessa starfsemi, ætti honum að vera skylt að hafa bústjóra, sem aflað hefði sér þekkingar á þessu sviði og kynni þar full skil á. A sama hátt og útgerðarmaður, sem ekki hefur þekkingu sjálfur, verður að fela öðrum stjórn á skipi sinu og mat á þeim fiski, sem flutt er á land og boðinn til sölu. Yrði landbúnaðurinn rekinn sem iðngrein, þar sem ákveðið þekkingarstig væri gert að skil- yrði fyrir þátttöku, er liklegt að niðurgreiðslur og styrkir féllu út. En ég veit ekki hvort það væri svo óheillavænlegt. Einhverjir mundu vafalaust draga saman seglin og hætta. En ef löng og hagkvæm reksturs- og stofnlán kæmu i stað styrkjanna hygg ég að flestir, sem i raun og veru vilja búa vegna þess að þessi störf kalla á þá öðrum fremur, mundu sæmilega við una. Þessir styrkir hafa nú lika sinar neikvæðu hliðar. T.d. fæst kostn- aður við jarðræktarframkvæmdir ekki dreginn frá skattskyldum tekjum, vegna þess að fram- kvæmdirnar njóta styrks af opin- beru fé, enda þótt sá styrkur sé aðeins litið brot af kostnaðinum. — Hvernig er að búa? — — Já, hvernig er að búa. Ég held það sé nú með þvi lélegra, sem menn leggja fyrir sig. — En svo ég segi þér eins og er, það er ákaflega gott að búa. Það er ekkert betra til en að búa. En þú getur gertallt annað, ef þú ætl- ar að skapa þér og fjölskyldunni þau þægindi, sem fólk nú á dögum vill hafa. — — Heldur þú þá, að það sé hægt að skapa fjölskyldunni meiri hamingju við öll önnur störf? — — Nei, ekki meina ég það. Bú- skapurinn gefur manni þá lifsfyll- ingu, sem ekki fæst i neinu öðru starfi. Á hverju vori, þegar klakaböndin bresta af jörðinni, er maður þátttakandi i sköpunar- starfi guðs. Það er naumast hægt að lýsa með orðum þeim hughrif- um, sem maður verður fyrir á björtum morgni þegar gengið er út til að sá lifsfræi i mjúka gróð- urmold, ellegar þegar fyrsti ný- græðlingurinn skýtur upp koll- inum og réttir varirnar móti morgundögginni. — Heldur þú ekki að þessi frjóa, lifandi náttúra sé sterkur samstarfsaðili við uppeldi barns- ins i sveitinni? Ég er ekki i nokkrum vafa um það. Þetta er alveg sérstök sál, sem hægt er að rækta i börnum sveitarinnar, sem ekki er mögu- legt að borgarbarnið geti tileink- að sér við þau skilyrði, sem þar eru fyrir hendi. Sveitabarnið tekur þátt i og lifir alla þá nýsköpun náttúrunnar, sem á sér stað á hverju vori. Það fylgist með blómunum, fuglunum og dýrunum. Og sé talað við það og þvi sýnt hvað hér er að ske — þau undur, sem gerast, þegar jörðin, sem i vetrarfjötrunum sýndist stirnuð og dauð, lifnar og grær undir ylgeislum risandi sól- ar. Barn, sem hlustar á raddir vorsins og skynjar þá marg- breytilegu tóna, sem þar má heyra, eignast i sinni innri vitund eitthvað það, sem siðan fylgir þvi alla ævi og verður aflvaki á erfið- um augnablikum. Annað er það, að börnin i sveit- inni eru beinir þátttakendur i öll- um störfum heimilisins, fylgjast með daglegri önn, hryggjast þeg- ar miður fer og gleðjast þegar vel gengur. Þessi opni heimur, þar sem allir, bæði ungir og gamlir, eiga aðild að, er mikils virði, ekki hvað sizt fyrir börnin. Hjá mér var sex ára drengur úr Reykjavik. Eftir að hann hafði dvalið hjá mér nokkur tima, var hann orðinn þátttakandi, sem lét sér ekkert óviðkomandi, sem snerti heimilið. Ef misfórst um kú, var hann alveg eyðilagður. — Þetta var svo mikið tap. Hann var næstum eins og fullorðinn maður, ef eitthvað skeði. Þvi vil ég segja það, að þegar við erum komnir það neðarlega á borgarmenningunni, að við eig- um ekki lengur bónda á alþingi eða mann, sem hefur verið i sveit og þekkir lifshætti og lifsviðhorf þess fólks, sem þar kýs að hafa staðfestu, og ekki heldur menn, sem sjálfir hafa sótt út til miða og skynja af eigin raun þarfir þeirra, sem þaðan draga björg i þjóðar- búið, þá má ætla, aö fari aö halla undan fæti. Þegar ráöamenn þjóðarinnar eru ekki lengur valdir úr röðum þess fólks, sem starfað hefur að þessum tveim höfuðatvinnuveg- um þjóðarinnar, þá fer okkur að verða hætt, þvi það er ekki annar meiður, sem ennþá stendur undir þjóðarskútu okkar en sjávarút- vegur og landbúnaður. En að þvi virðist stefnt, að draga áhrifa- og ákvörðunarvald þjóðmálanna úr höndum þeirra, sem standa i fremstu viglinu ábyrgðar og athafna, og færa það i hendur hinna skriftlærðu at- vinnupólitikusa, sem skortir raunþekkingu á flestum sviöum. Þetta kann aö tröllrlða þjóðfélag- inu fyrr en varir, og þvi timabært að þar verði breyting á. WWWH——— groður Viggó Valdimarsson. TANNVERNDAR- SÝNING í Árnagarði 28/6 - 2/7 opin daglega kl. 14-22

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.