Tíminn - 06.07.1972, Page 1

Tíminn - 06.07.1972, Page 1
r v. IGNIS FRYSTIKISTUR 1 /• V. kæli- skápar Pact Htt/zAAéZœSL. A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 Spasskí þiggur ekki skákina ÞÖ-OV-Reykjavik Sovézka skáksambandiB fór fram á þaB i gær, aö Bobby Fischer gæfi fyrstu skákina i einviginu viö Spasski Strax og þetta fréttist fóru menn aö ræða það sin á milli. Voru flestir á þvi, að Fischer myndi aldrei samþykkja þessa kröfu. Aðrir sögðu,að Fischer hefði ávallt talað um sjálfan sig sem bezta skákmann heimsins og þess vegna gerði það honum ekkert til, þó að hann gæfi fyrstu skákina. A blaðamannafundi á Hótel Sögu i gær var sovézki stór- meistarinn Geller spurður að þvi, hvort það væri rétt, að fariðhefði verið fram á slikt. Geller kvað það rétt vera, en hann sagði,að Spasski hefði sjálfur aldrei farið fram á slikt, og sagðist hann geta fullvissað viðstadda um,að Spasski myndi aldrei þiggja • það, að Fischer gæfi fyrstu skákina. Euwe: „Biðst afsökunar” ÞÓ-ÓV-Reykjavik. ,,Ég biðst afsökunar. Ég braut reglurnar, og mér þykir það leitt, en fyrir þvi var ástæða. Ef ég heföi ekki gert það, hefði ekkert einvigi verið haldið”, sagði dr. Euwe i gærdag, eftir að Rússar höfðu krafizt þess af honum, að hann bæri fram afsökun - vegna framferðis sins,er einviginu var frestað. Sovézki stórmeistarinn Geller, og fleiri úr hópi aðstoðarmanna Spasskis, héldu fund á Sögu i gær. Þar afhenti Geller mikla yfirlýs- ingu, og i henni var meðal annars farið fram á, að dr. Euwe bæðist afsökunar. Þeir Geller og Euwe voru sam- mála um, að ef einvigið ætti að fara fram, yrðu skákmennirnir að fara að setjast að taflborðinu. Euwe sagði m.a., að 17. septem- ber byrjaði Ölympiumótið i borg- inni Kolpie i Júgóslaviu, og ef þeir Fischer og Spasski væru ekki byrjaðir að tefla fyrir n.k. sunnu- dag, yrði ekkert Ölympiumót. Þá væri lika um annan möguleika að ræða, og hann væri sá, að þeir Fischer og Spasski tefldu 16-18 skákirfyrst, og siðan yrði einvig- inu frestað fram yfir ólympiu- mót, og myndu þeir þá setjast aftur að taflborðinu i Reykjavik. —■ Euwe taldi litlar likur á þvi, að einvigið gæti byrjað i dag, hann efaðist um að Spasski væri i nógu góðu ásigkomulagi. Geller sagði aftur á móti, að einvigið gæti vel byrjað á morgun, það væri allt i lagi með Spasski. Geller var spurður að þvi á fundinum, hvað hann væri hrædd- astur við. Hann svaraði stutt og laggott: ,,Að reglurnar verði brotnar aftur.” Geller tók það fram, að ef þetta mál leystist ekki fljótlega, þá væru Rússarnir farnir heim. Teflt verður í fyrsta lagi á sunnudaginn — sagði Lothar Schmidt í gærkveldi. Sennilega dregið um liti í dag ÞÓ-ÓV-Reykja vik ,,Ég fordæmi Fischer og hver myndi ekki fordæma hann?sagði dr. Euwe eftir aö hann hafði skrifað yfirlýsingu þess efnis og lesið hana upp á fundinum á Hótel Sögu i gær. — I)r. Euwe sagöi: „Fischer lifir i öðrum heimi. Það þýðir samt ckki að hann geti gert það sem honum sýnist." I)r. Max Euwe skrifaöi þessa yfirlýsingu og las hana upp,cr Rússarnir höföu krafizt þess að Alþjóðaskáksambandiö fordæmdi Fischer fyrir liegðun hans mi siðustu daga, eins og t.d að vera ckki viðstaddur setningu einvigisins. Wm'í Tsk-u/ Æ Tr Dr. Max Euwe les upp yfirlýsingu sina á blaðamannafundinum I gær. Þar fordæmdi hann Fischer og viðurkenndi, aö hafa þverbrotið reglur FIDE um framkvæmd heimsmeistaraeinvlgisins. (Tímamynd: G.E.) ÓV-ÞÓ-Iteykjavik i.othar Schmidt, yfirdómarinn I * heimsmeistaraeinviginu i skák, sagði frettamanni Timans á Loftleiðahótelinu i gærkveidi að hann byggist fastlega við, að hægt yrði að draga um liti siðari liluta dags i dag og hefja siðan fyrstu skákina á sunnudaginn. Lothar Schmidt sagði þetta að afloknum blaðamannafundi á Loftleiðahótelinu, en það var Fred Cramer, einn bandarisku fulltrúanna. sem boðaði til þess fundar strax að loknum fundi Gellert á Hótel Sögu. Greinilegt er, að Cramer hafði ekkert merkilegt að segja, og gagnrýndu fréttamennirnir hann harðlega fyrir óábyrga framkomu. A fundinum kom fram,að Cramer hafði ekki haft neitt samband viö Fischer eða aðra úr bandarisku „sendi- nefndinni’’ áöur en hann boðaði til fundarins og þvi varð það eitt ljóst, að Fischer er tilbúinn og bíöur þess eins að teflt verði, en Cramer sagði, að verið væri að pressa fötin, sem Bobby ætlaði að vera i þegar dregið yrði um liti. Lothar Schmidt sagði,að þrátt fyrir að Fischer væri tilbúinn, þá væri Spasski mjög órólegur, og reiður út af öllu stappinu og yröi áreiðanlega ekki fær um að tefla fyrr en i fyrsta lagi á sunnudag. SÍÐUSTU FRÉTTIR Um kl. 10 í gærkvöldi var haldinn fundur sovézku, og islenzku aðilanna að heimsmeistaraeinviginu i skak. A honum voru Sovét- mennirnir, Schmidt, Euwe og fleiri. Bjuggust þeir viö löngum fundi. En þegar blaðið fór i prentun var ekkert af honum að frétta. Biðlund Spasskís „Fischer hefur móðg- að mig og land mitt" nn TTicnhfkrc Snmlív»)mt vPnintT! — sagði Spasskí. Fischer baðst afsökunar og vill gera það á ný ÓV—ÞÓ — Reykjavík Heimsmeistarinn i skák, Boris Spasski, sendi frá sér i fyrradag svohljóðandi yfirlýsingu: „Með þvi að neita að vera við- staddur setningarhátið einvigis- ins, hefur Fischer brotið reglur þess. Þannig hefur hann móðgað mig persónulega og landið, sem ég cr fulltrúi fyrir. Almenningur i Sovétrikjunum, og ég sjálfur, er reiður út af hegð- un Fischers. Samkvæmt venjum, sem viðurkenndar eru af öllum, hefur hann fullkomlega fyrirgert rétti sinum til að tefla. Þannig hefur hann, að minu á- liti, dregið mjög i efa siðferðileg- an rétt sinn til að tefla einvigiö. Ef einhver von á að vera til þess, að einvigiö verði haldiö, verður Fischer að taka út sina refsingu. Aðeins eftir það get ég Frh. á bls. 15 á þrotum ÞÓ-ÓV-Reykjavik. Margir hafa dáðst af þvi undan- farna daga, hve heimsmeistarinn Spasski hefur tekið öllu, sem á hefur gengið, með miklu jafnaðargeði. í gær var hins vegar orðið ljóst, aö biðlund Spasskfs er nú á þrotum. Kom það meöal annars fram á fundi Rússanna á Hótel Sögu, og á Spasskí sjálfum. Spasski á sjálfur að hafa sagt, að hann hafi mætt svo mikilli vin- semd hjá islenzku þjóðinni, að hann hafi ekki getað annað en verið um kyrrt, þó svo að hann hafi haft fulla ástæðu til að snúa heim,.er Fischer mætti ekki.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.