Tíminn - 08.07.1972, Qupperneq 3
Laugardagur 8. júli 1972
TÍMINN
3
Útflutningur
iðnaðarvara
jókst um 50%
Ársfundur Útflutningsmiö-
stöövar iðnaöarins var haldinn ný
lega. Þar voru samþykktir
reikningar og gengiö frá árs-
skýrslu. Útflutningsmiöstööin var
stofnuö meö lögum á siöasta ári
og hóf starfsemi sina 1. júli siöast
liðinn. Hún tók við allri þeirri
starfsemi, sem áöur haföi fariö
fram á vegum útflutningsskrif-
stofu Félags islenzkra iðnrek-
enda.
Útflutningur iönaöarvara
annarra en áls hefur veriö hag-
stæður fyrstu 5 mánuöi þessa árs.
f fyrra nam verömæti þessa út-
flutnings samtals 287 millj.
króna, en i ár 436 millj. sem jafn-
gildir 50% aukningu.
Listmálararnir Tummas Arge og Sakarias Heinesen. Milli þeirra
Timamynd GE.
stendur kona Heinesens.
FÆREYSK LIST I
NORRÆNA HÚSINU
Sunnudaginn 9. júli verður
opnuð i Norræna húsinu sýn-
ing á verkum fjögurra mynd-
listarmanna frá Færeyjum.
Sýningin er á vegum Lista-
félags Færeyja og Norræna
hússins.
Listamennirnir eru þessir:
Elinborg Liitzen frá Klakks-
vik, Ingálvur av Reyni, Zaka-
rias Heinesen og Tummas
Arge frá Þórshöfn. Elinborg
Liitzen sýnir dúkþrykksmynd-
ir, en karlmennirnir þrir oliu-
málverk.
Sýningin stendur frá 9.-16.
júli og verður opin daglega frá
kl. 15 til 20. Sum verkanna
verða til sölu.
Listafélag Færeyja er bæði
skipað listamönnum og
áhugafólki um myndlist. Það
var stofnað árið 1944 af fær-
eyskum stúdentum -i Kaup-
mannahöfn, og hafa formenn
þess verið úr röðum áhuga-
manna fram að núverandi for-
manni, myndhöggvaranum
Janus Kamban, sem tók við af
Hanus frá Högdalsá á siðast-
liðnu ári. Menningarlif i Fær-
eyjum er i miklum blóma. Og
samsýning myndlistarmanna
er orðin árlegur viðburður á
Ólafsvökunni.
Zakarias Heinesen og
Tummas Arge sjá um upp-
setningu myndanna, og eru
þeir komnir til landsins.
SEXTAN MANNS MED
73 HESTA YFIR KJÖL
Á VINDHEIMAMELA
Bruni í Olfusi:
SLOKKTI ELDINN I
HÚSINU MEÐ TORFI
A fimmtudaginn kom upp eldur
i kyndiklefa i nýlegu ibúðarhúsi
að Hliðarenda i ölfusi, en þar býr
Sigþór Ólafsson ásamt fjölskyldu
sinni. Sigþór brá skjótt við, þegar
eldsins varð vart, reif torf úr torf-
kanti við bæinn og kæfði eldinn
með þvi. Hafði hann næstum al-
veg komizt fyrir eldinn þegar
slökkviliðsmenn úr Hverageröi
og Þorlákshöfn komu á staðinn.
Nokkrar skemmdir urðu á kyndi-
klefa og þaki hússins og kring um
forstofu, en sem betur fór náði
eldurinn aldrei að breiðast neitt
út að ráði.
GG-Vindheimum
Á fimmtudagskvöldið kom á
fjóröungsmótið á Vindheima-
melum 16 manna hópur áhuga
hestamanna, karla og kvenna,
úr Reykjavik, Voru þau með 73
hesta og fylgdi hópnum bill og bil-
stjóri auk ráðskonu.
Lagt var af stað frá Geysi á
mánudagsmorgun, en á sunnu-
dagskvöldið var ferðahest-
unum safnaö þar saman. Fyrsti
gististaður var Hvitárnes, en
þaðan var farið i þremur
áföngum um Kjöl i Skagafjörð.
Fararstjórar eru þeir Gunnar
Tryggvason og Þórarinn Hall-
grimsson úr Reykjavik. Flest
fólkið er einnig þaðan, og meðal
þess er hinn aldni hestamaður
Þorlákur Ottesen, sem verður 78
ára eftir fáeina daga. Yngstu
ferðalangarnir eru tveir 17 ára
piltar.
Fararstjórar létu vel af færi og
lögum fyrir hesta yfir hálendið,
einnig aöstööu á áföngum. Til
dæmis voru allir hestarnir hýstir i
Hvítárnesi.
Ferðafólkið mun dveljast á
fjórðungsmótinu til mánudags, en
halda siðan vestur Húnavatns-
sýslur, Laxárdalsheiöi, Dali,
suður yfir Rauðamelsheiði um
Afli grálúðubáta sæmilegur
en togarar leika þá grátt
ÞÓ-Reykjavik
Afli grálúðubáta hefur verið
mjög misjafn að undanförnu og
hefur tiðarfarið spillt þó nokkuð
fyrir veiðunum. Þó er kannski
annar skaðvaldur enn verri.
Togararnir sem hafa verið á grá-
lúðumiðum hafa sópað upp lóðum
þeirra. Þeir breyta ekki einu sinni
um stefnu þótt þeir sjái baujur
bátanna og i hvaða átt lóðirnar
•iggja.
Gisli Guðmundsson á Súganda-
firði, sagði okkur að Kristján
Guðmundsson hefði verið að
landa 60 tonnum i gær eftir 12
daga útivist. Var þetta önnur
veiðiferð Kristjáns og úr þeirri
fyrri kom hann einnig með 60
tonn. Kristján Guðmundsson
hefur verið á veiðum vestan við
Hala, en þar hefur hann haft litið
næði vegna togara og er báturinn
búinn að missa á annað hundrað
lóðir, en lóðin kostar uppsett með
færum, krökum og baujum um
6000 kr.
Aðrir bátar hafa aflað sæmi-
lega, Ólafur Friðbertsson kom
með 53 tonn úr annarri veiðiferð
sinni. Þá er Sigurvon i sinni
fyrstu grálúðuveiðiferö og á
mánudaginn var báturinn búinn
að fá 50 tonn.
Grálúðan hefur verið mjög mis
jöfn að stærð i sumar, en hún
hefur flokkazt ágætlega.
Hnappadal, Borgarfjörð, Þing-
völl og heim. Þessir ferðalangar
voru flestir staddir á fjórðungs-
móti sunnlenzkra hestamanna á
Rangárbökkum fyrir skömmu.
Eyðilagði
óvart reikni-
vélar í stað..
peningakassa
OÓ-Reykjavík.
Innbrotsþjófur var handtekinn i
fyrrinótt i húsakynnum fimmta
fyrirtækisins, sem hann fór inn i
þá nóttina. Var þar á ferð ung-
iingspiltur, aðeins 15 ára gamail.
Þar sem hann var tekinn áður en
hann komst burt með fenginn,
haföihann ekki erindi sem erfiöi,
en hann olli miklum skemmdum.
Fyrst brauzt hann inn i húsa-
kynni fjögurra fyrirtækja aö
Brautarholti 30. Þar komst hann
inn i trésmiðju, Innkaupasam-
band bóksala, prjónastofu og
prentsmiðju. Sparkaði hann upp
hurðum aö ölfum fyrirtækjunum
og vann skemmdir. A skrifstofu
trésmiöaverkstæðisins eyðilagði
piltur tvær rafmagnsreiknivélar.
Lamdi hann ofan á þær með
hamri — hefur sennilega ekki
þekkt mun á reiknivélum og pen-
ingakössum. Einnig barði hann
húsgögn og fleira með hamrinum.
Maður sem býr i húsinu heyrði
gauraganginn. Hljóp hann til,
náði i strák og hélt honum þar til
lögreglan kom.
á
ií
tam
Í
8 - 10 á stöng
á dag
Þær fréttir höföum við
fengiö frá Þórisvatni að
silungsveiðin i vatninu sé eins
góð og i fyrra, jafnvel betri.
Segja menn að þeir fái 8-10
silunga á stöng dag hvern og
sé hér um fallegan fisk að
ræða.
22 fyrir hádegi úr
bæjarlæknum
Eins og .oft hefur komið
fram hér er nú óvenjumikiö af
laxi i Elliðaánum. Þess vegna
er ekkert furðulegt þótt 22
laxar veiddust i ánum fyrir
hádegi i gær, en samt veröur
að telja það ákaflega góða
veiði. Laxinn veiöist um alla
ána, en að sjálfsögðu mest
neðra.
Eftirspurn eftir veiði-
leyfum svipuð
Samkvæmt upplýsingum frá
Stangaveiðifélagi
Reykjavikur virðist eftirspurn
eftir veiöileyfum í árnar, sem
félagið leigir, vera svipuð nú
og i fyrra, a.m.k. það sem af
er. Um það, hvernig eftir-
spurnin veröur i heild á veiði-
timanum, er nátturlega erfitt
að segja'fyrr en komið er fram
i ágúst. -EB
1
Herskáir
minnihlutahópar
Dr. Björn Sigfússon birti i
Morgunblaöinu i fyrradag
grein, sem hann nefnir ,,Sel
Sæmundar er beint að
Lögbergi og Arnagarði” og
fjallar hún einkum um
stúdentauppþot, sem hafa
viða verið aigeng á siðari
árum. Um þetta efni segir
Björn m.a.:
„Verksviö greinar minnar
cr ekki pólitik, aðeins fyrir-
b r i g ð a a t h u g u n . Nei,
árekstrum er ég ekki
mótfallinn. fyrst það liggur
bæði i karleöli og rauðsokka-
eðli að þurfa útrásar af þeirri
tegund og fyrst saga kennir.að
öll framför er mjög háð stökk-
breytingjum þeim, sem til
skiptis geta verið undirrót eða
afleiðing harðra árekstra. En
norrænt þjóðskipulag sættir
sig aldrei vel við ögranir hinna
hcrskáu minnihlutahópa, auk
þcss oft fjarstýrðra af kölska
og ömmu hans, til að yfirbuga
þjóöarviljann.
Samanburður á verkalýðs-
hreyfingu næstliðinna 70 ára
og þeim þáttum i stúdenta-
óánægju, sem dálítiö almennir
mega kallast um Norðuriönd
(og Bretland, Holland, Þýzka-
land, e.t.v. Frakkland?),
bendir minna til þess en ýmsir
kenndu 1968, að pólitiskt sam-
starf geti nokkru sinni orðið
langvinnt þeirra stétta i milli.
Hagræðing á marxisma 19.
aldar hefur verið eftirsótt
söiuvara i 4 ár, þess efnis að
gylla þetta „samstarf”, þ.e.
valdatöku óbilgjarnra
fámennra menntamanna-
hópa, sem láta skuli launa-
þegastéttirnar steypa fyrirsig
þjóðskipulaginu gegn loforði
um, að nýju drottnararnir
(róttækustu stúdentar) myndu
innleiða frjálslyndi og sósial-
isma á rústir þess. Reyndir
marxistar hrista höfuð yfir
slikum boðskap, hvað þá
aðrir.
Aftur á móti er raunhæft að
benda á ugg ungra mennta-
manna við það, að þeirra biði
atvinnubrestur að loknu námi,
fyrst fjöldinn i þvi sé of mikiil,
i öðru lagi er ungt fólk hrædd-
ara en hið eldra um. að mann-
kynið sálgi sér ýmist með
mengun, offjöigun, hráefnis-
skorti, þarafleiðandi kynþátta-
hatri (ef ekki er nóg af þvi
fyrir), striði og ég man ekki
hverju flcira.”
Viðbrögð fjósamanns
t greinarlokin segir Björn:
„Þess varð Sæmundur
áskynja,að sér væriætlaö sálu-
félag við fjósamanninn, sem
þá var á Iiólum nyrðra, og
vildi þvi kanna geöslag hans.
Sæmundur gerði sér ferð til
Hóla og leyndist i fjósinu, þar
til fjósamaöur gekk frá tii að
leysa hey. Þá 'neytti
Sæmundur hrekks, sem hann
hafði lært af kölska, gekk bás
frá bás og skar helsi af hverju
nauti. Gengu þau \vo iaus úr
básunum, og riðiaði hver
gripur á öðrum, og gerðust af
baul og öskur nóg, en nauta-
maður hljóp til og skildi
ekkert i. En ekki blótaði hann,
heldur bað fyrir sér og kom
öllu i samt lag sem fyrr.
Sæmundur gaf sig þá fram og
þótti sálufélag við þennan
mann gott.
t öllum viöureignum um
þjóðmál á tslandi er einhver
Sæmundurinn i laumi að skera
helsi af nautum fjóssins. Og
hver er sá, sem hefur ekki
gaman af þvi eins og hann að
fyigjast með, hver viðbrögðin
verði i byrjun af þannig
fengnu frelsi? — Og hver
viðbrögð nautamanns verði!”
Þ.Þ.