Tíminn - 08.07.1972, Qupperneq 6

Tíminn - 08.07.1972, Qupperneq 6
6 TÍMINN Laugardagur 8. júli 1972 Þaö er oftast fjör á barnaleikvöllunum, þvi aö þar er fólk, sem ekki er komiö á þann aldur, aö þaö gefi sér tima til þess aö láta sér leiðast. Dofni áhuginn á einu, þá er alltaf aö einhverju ööru aö hverfa unz kvöld er komið. Og margur fer hálfnauöugur í bóliö eftir daglangt amstur. Gullfoss, Goðafoss og Dettifoss helgi- gripir ísl. náttúru - sagði rafmagnsveitustjóri á fundi á Akureyri KJ-Heykjavik t siöustu viku var haldinn á Akureyri aöalfundur Sambands isl. rafveitna, og var þar m.a. rættum raforkumál Noröurlands. Valgarð Thoroddsen rafmagns- veitustjóri rikisins flutti erindi um þaö efni og sagöi þá m.a.: „Þegar talaö er um vatnsafls- virkjanir, leiöist hugurinn aö fossum, stórum og miklum. Hvaö er þá til af þvi tagi, I myndar- legum stíl, á Noröurlandi? Auðvitað kemur manni þá I hug Goöafoss og Dettifoss. Þeir sem þó hafa upplifað og oröið jafnvel fyrir barðinu á náttúruverndar- sjónarmiöum, ættu vissulega aö flýta sér hægt og með gát i þessum efnum. Ég hef það ein- hvern veginn á tilfinningunni, aö Gullfoss, Goðafoss og Dett’foss, séu eins konar helgigripiir is- lenzkrar náttúru i hugum lands- manna og helgispjöll ber að varast ef þess er nokkur kostur.” Að þessu sögðu taldi ræöu- maður aðeins tvo valkosti i sam- bandi við virkjanir á Norðurlandi, ef fra' er talin i bili jarövarmaorkan. Annars vegar virkjun á vatnssvæði Skaga- fjarðar, norðan Hofsjökuls eða i Jökulsá eystri, og hins vegar linu yfir hálendib til stóru orkuver- anna sunnalands. Taldi ræðu- maöur kostnað við slika linu 2.3 millj. á km án endabúnaðar, eöa meö öðrum orðum að lina frá væntanlegri Sigölduvirkjun niður til Eyjafjarðar til Akureyrar myndi kosta 428 milljónir, en lina um Kjöl til Varmahliöar i Skaga- firöi myndi kosta 390 milljónir. Þá ræddi Valgarð nánar um virkjunarstaðina þrjá i Jökulsá eystri, sem lauslega hafa verið athugaðir, og hvatti til frekari at- hugana á þeim. Vel þegin framtakssemi Svía: Reglur um takmörkun hávaða á dansstöðum SB-Reykjavik. Nýjar reglur hafa verið settar um hávaða á veitingahúsum i Sviþjóð. Má hávaði undir engum kringumstæðum fara yfir 90 decibel. Þá eru einnig nýjar reglur um lýsingu á veitinga- og danshúsum. Ekki má myrkur vera meira en svo að auðvelt sé aö lesa og ekki hætta á að ruglast á peningaseðlum. Nefnd sú, sem setti reglur þessar, segir i greinargerð, að rannsóknir sanni, að hávaði á diskótekum og veitingahúsum, sem sé yfir 85 decibel og vari i fimm stundir eða meira, geti haft veruleg skaðvænleg áhrif á heyrn manna. Viðvikjandi lýsingunni felst ennfremur i reglunum, að hún sé sem jöfnust um allt, þvi skyndileg birta i göngum eða annarsstaðar, geti orsakað timabundna blindu, sem aftur getur valdið slysum. HAFNARGERÐ í GRÍMSEY AÐ RAÐUM HEIMAMANNA Mokafli og allir önnum kafnir við veiðar og verkun I Grimsey er nú þrotlaus önn. Þangaö eru menn komnir til hafnargerðar, sem aö þessu sinni verður hagaö eftir tillögum heimamanna sjálfra, og fiskafli er svo góöur, að allir, sem vett- lingi geta veldiö, hafa meira en nóg aö starfa. Myndatökumenn frá sjón- varpinu hafa tvivegis verið i Grimsey, slðara skiptið i tiu daga, og ætluðu þeir aö taka þar litmynd af mannlifi og náttúru- fari.meöfram meðsölu erlendis I huga. Minna varö þó úr mynda- töku en skyldi vegna dimmviörás, en myndatökumennirnir munu ætla að koma aftur út I eyna i ágústmánuði, ef veöurguðirnir kynnu þá að veröa þeim hlið- hollari. Að hafnargeröinni vinna ein- göngu aðkomumenn, seytján að tölu, þvi að heimamenn eru allir á sjó, en kvenfólk og unglingar og jafnvel börn við verkun aflans, sem allur er saltaður. A Akureyri er verið steypa tvö ker, annað þrettán metra langt, en hitt tiu, og á að sökkva þeim framan við hafnargaröinn gamla og láta þau mynda þar olnboga, og verður siðan hlaðið að þeim grjóti að utan. Talað hefur verið um, að fyrra kerið komi til Grimseyjar i kringum 20. júli. Að undanförnu hafa Grims- eyingar átt i miklu basli með báta sina á vetrum, svo ótrygg sem höfnin hefur verið, og einn þeirra misstú þeir i fyrra- vetur.Eins og allir muna, var allt unnið fyrir gýg, er þar átti að gera til hafnarbóta fyrir nokkrum árum, en nú vona allir, að betur takist til, þótt fullseint finnist kunnugum mönnum hafizt handa, þvi að hætt er við ylgju i sjónum, þegar dregur að hausti, en hafnargerðinni á að ljúka i haust. Aætlað er, að þessi hafnargerð kosti i kring um fjórtán milljónir króna, en um það bil hálfri þeirri fjárhæð mun hafa verið kastað i sjóinn i bókstaflegum skilningi, er ráðizt var i gerð hins mis- heppnaöa hafnargarðs um árið. Samgöngur við eyna eru með ágætum i sumar. Drangur kemur þangað vikulega, og þar að auki eru svo flugferðir, svo að þeim verður ekki skotaskuld úr þvi að bregða sér þangað, er litast vilja um i eynni og fá bréf upp á það, að þeir hafi komizt á heimskauts- bauginn. Sigríður E. Magnús- dóttir hlýtur styrk til söngnáms ÞÓ — Reykjavik. Sigriður E. Magnúsdóttir söng- kona hefur hlotið 25 þús. kr. styrk úr minningarsjóði Kjartans Sig- urjónssonar söngvara. En Sigrið- ur stundar sem kunnugt er söng- nám i Vinarborg. Tilgangur minningarsjóös Kjartans Sigur- jónssonar, sem ættaður var frá Vik i Mýrdal, er að styrkja unga efnilega söngvara til söngnáms. Minningarsjóðurinn aflar tekna með sölu minningarkorta. Minn- ingarkortin fást hjá verzluninni Báru Austurstræti 14 og hjá Ein- ari Erlendssyni Vik i Mýrdal. Skyggnilýsingar meðal íslendinga vestan hafs? Ný uppfinning: Nýrnasteinar fjar. lægðir án uppskurðar NTB — Uppsala Dósent við Uppsalaháskóla hef- ur fundið upp tæki til að fjarlægja nýrna- og blöðrusteina án upp- sicurðar. Aöferðin sem mun vera einsdæmi I heiminum, felst i þvi að steinarnir eru sprengdir i sundur og þeim skolað út. Til- raunir hafa verið gerðar á tveim- ur Bretum með mjög góðum árangri. Uppfinningamaðurinn, Sture Hændel, hefur sjálfur aðeins gert tilraunir með tækiö á dýrum, en i Bretlandi hafa tveir sjúklingar losnað fullkomlega við mein sitt, án nokkurra eftirkasta. Við upp- skurð þurfa sjúklingar að dvelj- ast minnst hálfan mánuð á sjúkrahúsi, en með nýju aðferð- inni nægja fáeinir dagar. FJALLAGRÖS í fyrri daga var farið á grasafjall áöur cn sláttur hófst, jhrnvel langt neðan úr sveitum, þar sem óraleiö var á grasafjall. A grasafjallinu v.ar siðan legiö, við, unz grasaðhafði verið svo, að nægja þótti. Til byggðar var svo haldiö með klyfjaða hesta, jafnvel heilar grasaiestir. Nú fara menn sjaldnast til grasa, nema sér til gamans, þótt sums staðar á landinu þekkist það, að fjallagrös séu tind til sölu, svo að talsverðu nemi, eins og áður hefur verið sagt frá hér I blaðinu. Ljósm. Timinn.— GE Hafsteinn miðill beðinn að koma til New York 1 Sálarrannsóknafélagi tslands eru um tvö þúsund manns og má af þvi ráða,aö áhugi margra á slikum efnum er mikill. Þessi áhugi virðist einnig fylgja ts- lendingum sem dveljast erlendis. Að undanförnu hefur Sálar- rannsóknafélagið styrkt sál- fræðingana Geir Vilhjálmsson og dr. Erlend Haraldsson til rannsókna á dulrænum fyrir- brigöum. Dr. Erlendur er nú staddur I New Ýork og hefur hann sent þaöan beiðni um, að Haf- steinn Björnsson miðill komi til New York og efni til skyggni- lýsinga á fundi Islendinga þar. Þess hefur einnig veriö farið á leit aö hann bregði sér til Kanada I sömu erindageröum. Blaðinu var tjáð i gær, að senni- lega yrði hann við óskum þessum og færi vestur um haf i sumar. Hann hefur einu sinni áður farið utan til skyggnilýsinga á sam- komu. Forseti Sálarrannsóknafélags islands er nú Guðmundur Einarsson verkfærðingur. Þvi má bæta við, að á aðalfundi félagsins, sem haldinn var ný- lega, var séra Jón Auðuns kosinn heiðursfélagi og Elinborg Lárus- dóttir, rithöfundur hefur stofnaö sjóð til minningar um Einar H. Kvaran.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.