Tíminn - 09.07.1972, Page 1

Tíminn - 09.07.1972, Page 1
IGNIS UPPÞVOTTAVÉLAR RAFIÐJAN RAFTORG SlMI: 19294 SÍMI: 26660 ClERA kæli- skápar X?A« A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Simar 18395 & 86500 v Hamarshögg glymja og sagir hvína í Aðalvík A föstudaginn kom til landsins bátur, sem Sjómælingar fslands hafa fengiö frá Sjómælingum Banda- rikjanna. Enn hefur þó ekki endanlega veriö gengiö frá leigusamningum, en samkvæmt upplýsingum Gunnars Bergstcinssonar hjá Sjómælingum, þá hafa Islendingar leigt bátinn til S ára. Nánar veröur greint frá þessum bát, þegar gengiö hefur veriö endaniega frá öllum málum. (Tlmamynd: Róbert.) Heppilegast að láta hálendislínuna liggja niður í Bárðardal KJ— Reykjavik. t erindi, sem Jakob Björnsson deildarvcrkfræöingur hélt fyrir nokkru á aðalfundi Sambands isl. rafveitna, gerði hann m.a. grein fyrir hugsanlegum linulögnum yfir hálendið, og benti þá m.a. annars á, aö nú er talið hag- kvæmara aö leggja linu frá Sig- öldu niöur i Bárðardal, heldur en að leggja linuna niður i Eyjafjörö. Astæðuna fyrir þessu kvaö Jakob vera þá, að linan niður i Bárðardal liggur betur við helztu orkuvinnslumöguleikum á austanverðu Norðurlandi, fyrst og fremst Dettifossi. ,,1 annan stað má með þvi móti losna við linulögin um hálendið suður af Eyjafirði, sem linusérfræðingar telja hættulegasta kaflann i linu, sem lægi beint milli Sigöldu og Akureyrar. Linu niður Bárðardal ætti miklu siður að vera hætta búin. Þá sagði Jakob i erindi sinu, að af þeim virkjunarstöðum, sem vitað væri um á Norðurlandi, væru tveir taldir skera sig úr, en það er Laxá III, annar áfangi, og Dettifoss. „Fullyrða má, að enginn val kostur gefur eins ódýra raforku og þetta framhald fyrri mann- virkja”, sagði Jakob um hugsan- legan annan áfanga Laxár III. „Ódýrasti virkjunarstaðurinn (miðað við fullnýtingu, vel að merkja) eftir að Laxá III, 2 sleppir, virðist ótvirætt vera Dettifoss.”. Vænlegasta leiðin til öflunar ódýrrar raforku fyrir Norðurland i framtiðinni (ef ekki fæst leyfi fyrir áframhaldandi virkjunum i Laxá) er þvi virkjun Dettifoss, og svo siðar liklega Blöndu, segja sérfræðingar, en skilyrði er að full nýting þessara virkjana verði tryggð fljótlega eftir að þær kom- ast i gagnið. Ef gert er ráð fyrir að bæði Dettifoss og Blanda yrðu virkjuö, þarf tvær tengilinur suður yfir hálendið, svo að sem bezt nýting fáist úr þessum virkjunum, og einnig samtengingu á Norður- landi. Linan frá Sigöldu myndi eins og að framan greinir liggja niður i Bárðardal og tengjast þar linum frá Laxá, Dettifossi og jarö- gufuvirkjunum við Námafjall og Kröflu. A Norðurlandi myndi linan liggja frá Bárðardal, vestur um til Akureyrar og Varmahliðar og siðan til Blönduóss, og þaðan til virkjunar við Blöndu. Frá Blönduvirkjun myndu línur liggja suður yfir heiðar beinustu linu niður i Borgarfjörð, og að fjalla- baki niður i Hvalfjörð og að Geit- hálsi, þar sem hringnum yrði lok- að. Langt er síðan nokkur maöur hefur haft heimilisfestu og búsetu I Sléttuhreppi, þar sem fyrrum var eitt af fjölmennari sveitar- félögum landsins. Eigi aö siöur er þar talsvert af fólki suma tima árs, og þar eru meira aö segja reist ný hús. Þótt torleiði sé meira noröur I Sléttuhrepp heldur en á flesta aðra staði, þar eö sjóveg veröur aö fara yfir ísafjarðardjúp, virð- ist einsýnt, aö þeim muni fremur fjölga en fækka er þangað leggja leið sina á komandi árum. — Það hefur verið mikill fólks-' straumur norður yfir, sagði Guð- mundur Sveinsson, fréttaritara Timans á Isafirði, i simtali i gær. Margir hinir fyrri Ibúar byggðar- lagsins vitja áttahaga sinna, hóp- ar ferðamanna leita þangað og visindamenn koma þangað til rannsókna. Nú fyrir skömmu voru til dæmis fimmtán Eng- lendingar vikutima á Hesteyri. By ggingarfra mkvæmdir i Aðalvík Mestum tiðindum þykir kannski sæta, aö nýbyggingar eru hafnar i Aðalvik. Nokkrir hafa haldið húsum, sem þeir eiga þar, prýðilega við öll þau ár, sem liðin eru siðan Aöalvik fór i eyði, og ýmsir hafa verið að dytta að hús- um i sumar. Auk þess er verið að reisa tvö ný hús, sem einna helzt mega heita gistiheimili. Börn Jóns Hermannssonar eru að reisa vandaðan bústað á Sæbóli, sunn- an vikurinnar, þar sem tuttugu til þrjátiu manns eiga aö geta gist, og niðjar Friðriks Finnbogason- ar og Þórunnar Þorbergsdóttur — þeir munu nú orðnir nálægt tveim hundruðum — ætla að koma upp stóru húsi að Látrum, norðan vik- ur gegnt Sæbóli. Er það byggt á sama stað og hús Friðriks og Þór- unnar var áður. Átthagatryggð og ættrækni Þarna vestra voru margir barnmargir, og það var ótrautt fólk og áræðið, sem þar ólst upp. Ferðir þess á heimaslóðir og um- svif þar bera þvi lika vitni, hve djúpum rótum það stendur i jarö- vegi heimahaganna, og fer þar saman átthagatryggð og sam- heldni ættmenna jafnvel þótt nú sé oröiö langt á milli þeirra. Þannig munu þeir, sem standa fyrir nýbyggingunum I Aðalvik, ýmist eiga heima á Vestfjöröum eöa við Faxaflóa. Silfurlampinn afhentur i' dag A aðalfundi F.I.L., sem haldinn var um mánaöamótin siðustu, m.a. til aö velja viötakanda silfurlampans 1972, kom fram til- laga um að breyta reglugerð um afhendingu silfurlampans, þess efnis, aö þegar ástæöa þætti til, listam. sem starfa aö öörum leikurum einum, en þó aðeins listamönnum, sem starfa-öörum greinum leikhúslistarinnar, svo sem leikstjórum, leikritahöfund- um, leikmyndagerðarmönnum, tónskáldum o.s.frv. Hverju sinni skuli tekin ákvörðun um það, hvort veitingin fari fram þannig eða eins og áður til leikara aðal- hlutverks eða aukahlutverks. A fundinum var siðan samþykkt, að i þetta sinn yrði lampinn afhentur samkvæmt hinni nýju tilhögun — og verður það nú gert I fyrsta sinn sunnudaginn 9. júli kl. 17 á Mimisbar á Hótel Sögu, og er allt leikhúsfólk og velunnarar vel- komið að vera viðstatt þá athöfn. Nýtt fólk í Víðinesi SB-Reykjavik Ráðsmanns- og ráðskonuskipti urðu um síðustu mánaðamót á vistheimili Bláa bandsins að Viði- nesi. Pétur Sigurðsson og kona hans Guðriður Kristjánsdóttir, sem gegnt hafa þessum störfum i niu ár, létu af þeim að eigin ósk, Við störfum tóku hjónin Jón Vigfússon og Guðrún Karlsdóttir, en þau hafa bæði starfað hjá rikishælinu á Akurhóli á Rangár- völlum um margra ára skeið. Skákeinvígið: Aðaldómarinn af landi brott Fyrstu skákinni líklega frestað til fimmtudags KJ—Reykjavík Þótt menn hafi varpaö önd- inni léttar, föstudaginn eftir að búið var að draga um lit i skákeinviginu, virðast ekki allar hindranir úr vegi enn, og ekki ljóst hvort einvigiö geti hafist á þriðjudaginn. Astæðan fyrir þessu er sú, að aðaldómari keppninnar Lothar Schmid þurfti að fara af landi brott á laugardags- morguninn, vegna þess að sonur hans hafði lent i um- ferðarslysi i Þýzkalandi á föstudaginn: og meiðzt á höfði. Einnig þjáðist sjálfur aðaldómarinn af tannverk, og var búinn að fara til tann- læknis hér, en mun hafa ætlað að láta tannlækni i Þýzkalandi doktora sig um leiö og hann ferút núna. Dómarinn er ekki væntanlegur aftur fyrr en á fimmtudag, en fyrstu skákina átti að tefla á þriðjudaginn. Aðaldómarinn haföi boðað hei m s m ei s t a r a n n og áskorandann i Laugardals- höllina i dag, en e.t.v. gerir varadómarinn Guðmundur Arnlaugsson það i forföllum aðaldómarans. Aðalverk dómara einvigisins er i raun- inni i upphafi einvigisins, þegar velja á skákmenn og stóla, og ákveða hvort borðið góða verður notað eða ekki. Þá þarf dómarinn lika að ákveða lýsinguna, en i laugar- dalshöllinni má breyta henni eða hafa hana ýmist bjartari eða daufari. 1 gærmorgun útilokuðu Bandarikjamennirnir sem eru fulltrúar Fischers ekki þann möguleika, að einviginu yrði enn estað, og þá vegna fjarveru aðalúómarans. Eins og dæmið stendur nú,eru þvi eins miklar likur fyrir þvi að einviginu verði enn frestað, eins og að það hef jist á þriðju- daginn. Spasský í lax Freysteinn Þorbergsson var búinn að bjóða bæði Spasski og Fischer á laxveiöar i Svartá I Skagafirði, og i gærmorgun þáði Spasski boðið. Ætlaði hann að renna fyrir lax þar um helgina. Sabbat Fischers stóð til klukkan sex i gærkvöldi, og hélt hann sig innan dyra frá klukkan sex á föstudags- kvöldið.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.