Tíminn - 14.07.1972, Blaðsíða 6

Tíminn - 14.07.1972, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Föstudagur. 14. júll 1972 Ráðleggingar frá gömlum vini Opið bréf til íslenzku þjóðarinnar BRETLAND hóf fiskveiðar i hafinu við Island fyrir um 300 árum, og þótt sambúðin hafi ekki ætið verið snurðulaus, hefur eðlilega þróazt vinátta á milli þjóða okkar. Nú hefur þessum vináttutengslum verið stofnað i alvarlega hættu með þeim aðgerðum ykkar, sem felast i þeirri viðleitni að færa út fiskveiðilögsögu Islands i 50 milur. VIÐ ÁLÍTUM, að þið séuð á rangri leið i þessu máli og — sem gömlum vinum — finnst okkur að við höfum rétt til að bregða upp réttri mynd af þvi sem um er að ræða. í FYRSTA LAGI er það ólöglegt sem þið eruð að gera. Við gerum okkur grein fyrir, að þetta er umbúðalaus fullyrð- ing, en sönn engu að siður. Við gerðum bindandi samning, sem kvað svo á, að sérhverjum ágreiningi yrði skotið til Alþjóðadómstólsins i Haag. Við erum fúsir til að gera þetta. Þið eruð það aftur á móti ekki. ENN FREMUR höfum yið beðið ykkur um að biða,þar til væntanleg ráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefur fjallað um allt það er varðar alþjóðalög þessu máli viðkomandi. Þessu hafnið þið lika, jafnvel þótt stungið hafi verið upp á sérstökum ráðstöfunum er myndu ná yfir þann tima sem þetta tæki. ÞIÐ HAFIÐ SAGT að aðgerðir ykkar miðuðu að þvi að vernda fiskistofnana. Er það nú rétt? Og er þetta bezta leiðin til þess? Minna má á, að það var ekki Bretland sem svo að segja tortimdi sildinni ykkar. Og ef loðnunni er hætta búin, stafar þeirri hættu ekki frá okkur. Ekki eru það heldur brezkir fiskimenn, sem ógna þorskinum með veið- um á hrygningarsvæðum hans — svæðum, sem einungis eru nýtt af íslendingum. VIÐ HÖFUM alveg eins mikinn áhuga og þið á að varð- veita þessi stórvægilegu fiskimið. Við erum fúsir til sam- vinnu á tvennan hátt. Við myndum sjálfviljugir takmarka það fiskimagn sem við sækjum hingað, og við höfum boðizt til að halda okkur frá vissum svæðum á vissum árstimum og vissum svæðum á öllum timum, þegar verndunar- sjónarmið krefjast þess, til þess að varðveita fiskistofn- ana. SAMEIGINLEGA gefa þessi tilboð til kynna að við óskum eftir þvi að taka mjög mikið tillit til fiskveiðihagsmuna ís- lendinga, en ekki á kostnað réttinda okkar og lifsviðurvær- is. Að öllu samanlögðu vitum við að málstaður okkar er traustur. Og hjá okkur eru lifshagsmunir i veði. Hjá okkur eru heil bæjarfélög sem eru beint eða óbeint háð fiskveið- um á hefðbundnum fiskimiðum okkar, sérstaklega á miðunum við tsland. En ekki myndu fyrirætlanir ykkar einungis hafa óheillavænleg áhrif á gervallan fiskiiðnað okkar. Þær myndu lika skaða skyldan iðnað og, þegar allt kemur til alls, þjóðarbúskap okkar allan. Þar af leiðandi verðum við að tjá ykkur, að við munum nota öll tiltækileg ráð til þess að sjá til þess að réttindi okkar séu ekki eyði- lögð. SEM gamlir og góðir vinir vildum við tjá ykkur þetta milli- liðalaust. Birt sem upplýsingar fyrir almenning af Hagsmunasamtökum brezka fiskiðnaðarins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.