Tíminn - 18.07.1972, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.07.1972, Blaðsíða 1
IGNIS UPPPVOTTAVÉLAR SIMI: 19294 SÍMI.: 26660 - 159. tölublað — Þriðjudagur 18. júii 1972 — 56. árgangur. kæli- skápar 2?a« ««4yé£tt/t A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Simar 18395 & 86500 Það lá viö, að Fischer væri brosandi, þegar hann kom æðandi út úr Laugardalshöllinni i gær, er hann hafði frétt, að Spasski hefði gefið upp vörn í þriðju skákinni. Sjá bls. 5. Tfmamynd: Gunnar. Tveir menn í 40 daga gæzlu vegna kynmaka við barn OÓ-Reykjavik. Tveir menn i Hafnarfirði voru úrskurðaðir i 40 daga gæzluvarð- hald hvor, s.l. föstudag. Leikur grunur á, að þeir hafi haft kyn- mök við 7 ára gamalt stúlkubarn. Hefur annar maðurinn játað verknaðinn, en játning liggur ekki fyn hjá hinum.en verknaður- inn för fram á heimili hans. Hefur sá grunur legið á að ekki væri allt með felldu með heimilisbraginn og fór barnaverndarnefnd i Hafnarfirði l'ram á við fógeta- embættið, að rannsaka málið. Stúlkan bar að mennirnir hefðu haft kynferðislega tilburði i l'rammi við sig. Á heimilinu fundust mikið af erlendum kynningarritum og alls kyns klámi. Kynningarrit þessi munu gefin út i Bretlandi þar sem fólk auglýsir eftir skyndikynnum við annað l'ólk og fylgir með hvers konar náttúru eða ónáttúru við- komandi þarf að vera haldinn til að kynni megi takast. Hafa þessi „sambönd” verið auglýst i is- lenzku dagblaði og áttu þeir sem áhuga höfðu, að senda eftir kynn- ingarritunum i tiltekið pósthólf og láta peningaupphæð fylgja með. 1 einhverju af þessum ritum aug- lýsir þessi maður að hann hafi á sinum snærum þúsundir af kyn- svallsþyrstum körlum og konum, sem hann geti komið þurfandi fólki i samband við. Bara að skrifa i pósthólfið og borga. Frúin á heimilinu mun hafa starfað nokkuð að þvi að koma á kynnum milli fólks með þvi að dreifa kynningarbæklingunum, en mun hins vegar hafa verið grunlaus um að fram hafi farið kynmök við barn þar. En i ná- grenni við heimilið hefur verið al- talað að þar færu fram atburðir sem þessir og undanfarið hefur fólk vart þorað að láta dætur sin- ar vera gæzlulausar úti við. Rannsókn málsins er á byrjunar- stigi, en þeir sem til þekkja segja, að ekki komi á óvart þótt fleira eigi enn eftir að koma i ljós. 40 daga gæzluvarðhaldsúr- skurður er óvenju langur, sem bendir til að um alvarleg brot séu að ræða og að rannsóknin kunni að verða timal'rek. Sjálfsagt verða mennirnir báðir látnir sæta geðrannsókn. Tvö banaslys um sömu helgina Tvö dauðaslys urðu af völdum umferðar um helgina. Aðfaranótt laugardags fórst 35 ára gamall maöur á Keflavikurflugvelli er hann lenti i árekstri, og á sunnu- dag dó fimm ára gamall drengur i Neskaupstað, er biíl, sem hann var i valt. Slysið á Keflavikurflugvelli varð kl. 3,35. Þá lenti Moskovitsbill á oliubil á mótum Flugvallarvegar og Vesturbraul- ar. Oliubillinn dró stóran bensin- tank, sem valt yfir litla bilinn við áreksturinn. Billinn lagðist sam- an og lézt ökumaðurinn sam- stundis. Hann hét Eirikur Hall- dórsson og var lrá Húsavik, en siðast búsettur að Ásbraut 11 i Kópavogi. Klukkan eitt á sunnudaginn valt fólksbill utanvert i Neskaup- stað. t bilnum voru þrir bræður. Hinn yngsti þeirra, 5 ára gamall, lézt samstundis, en hina eldri sakaöi ekki. Drengurinn, sem lézt hét Stefán Haraldsson. Foreldrar hans eru Haraldur Bergvinsson og Unnur Marteinsdóttir, Melagötu 4. RAFVIRKJAR STOFNA SAM- VINNUFÉLAG OG HAFNA MEISTARAFYRIRKOMULAGI OÓ-Reykjavík. Verkfall rafvirkja hefur nú staðið i réttan mánuð, en það hófst 17. júni. Nokkrir samninga- fundir liafa verið haldnir en árangurslaust. Sáttasemjari boð- aði nýjan samningafund i gær- kvöldi og hófst hann kl. 9. t gær hófu rafvirkjar hjá nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins samúðarverkfall. Eru það raf- virkjar, sem starfa hjá Sements- ver ksmiðjunni, Aburðarverk- smiðjunni, Alverinu, Landsvirkj- un, Kafveitur rikisins og Rafveitu Reykjavikur. i gær samþykkti fundur i Félagi islenzkra raf- virkja, aö stofna Samvinnufélag rafvirkja til að félagsmenn hafi aðgang aö vinnumarkaði raf- virkja, án tengsla við meistara. Tillagan, sem samþykkt var er svohljóðandi: „Vegna einstakrar stifni samn- inganefnda F.L.R.R. i yfirstand- andi kjaradeilu, telur fundurinn eðlileg viðbrögð að stofna Sam vinnufélag rafvirkja. I þeim til- gangi að opna félagsmönnum F.l.R. leið inn á vinnumarkað stéttarinnar, án tengsla við F.L.R.R. Fundurinn vekur athygli félagsmanna F.l.R. á yfirburða samkeppnisaðstöðu Samvinnu- félags rafvirkjasveina gagnvart núverandi meistarafyrirkomu- lagi.” Sjö manna nefnd hefur verið falið framkvæmd og undirbúning málsins. Áhrifa verkfallsins gætir nú mjög i byggingariðnaði og hefur húsbyggingum i sumar seinkað mjög. Ef verkfallið dregst enn á langinn má búast við verulegri röskun á starfsemi þeirra fyrir- tækja og stofnana, sem rafvirkj- arnir, sem hófu samúðarverkfall i gær, starfa hjá. Áhrif samúðar- verkfallsins verður sennilega ekki mikil fyrstu dagana, en fljót- lega kemur þó að þvi. Ef tæki eða rafleiðslur bila i fyrrgreindum verksmiðjum verður ekki gert við þær, og telja rafvirkjar, að ekki sé hægt að reka verksmiðjurnar nema i takmarkaðan tima, leysist verkfallið ekki bráðlega. Deilan stendur einkum um ákvæðisvinnuna, en rafvirkjar vilja vinna eingöngu eftir slikum taxta, en ekki á timakaupi, og kaup nema, sem búið er að semja um i flestum öðrum iðngreinum. Litið hefur verið um verkfalls- brot, en góðum vöktum er haldið uppi. Þeir meistarar, sem unnið hafa að raflögnum fá að halda þvi áfram, en aðrir ekki. Biblíusafnarinn hlýðir á guðspjallalestur á ókennilegri mállýzku Ragnar Þorsteinsson kennari, bibliusafnarinn i Reykjaskóia i Hrútafirði, hefur brugðið sér heim úr vegavinnunni vestan Laxárdalsheiðar til þess að ræða við blaöamann frá Timanum, og hér situr hann og hlýðir á bibliu- lestur á grammófónplötunni, sem honum var send frá Fairbanks i vor. Eins og lesendurnir sjá hlustar hann vandlega, þótt hann skilji tæpast meira en aðrir Islendingar i eskimóskum mállýzkum, þvi að annað veifið bregður fyrir kunn- uglegum eiginnöfnum og staðar- heitum úr guðspjöllunum, og þau má þó greina, ef vel er fylgzt með. Jafnvelkunna aðkoma fyrir bibliugreinar, sem þeir geta getið sér til um, er nógu eru bibliufróð- ir. Á morgun mun birtast i blaðinu frásögn Sólveigar Jónsdóttur um heimsókn hennar til Ragnars og hið fágæta bibliusafn hans. Myndina tók Guðjón Einarsson, ljósmyndari Timans.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.