Tíminn - 18.07.1972, Page 3
Ferðalöngunum var fagnað með blómum i heimahöfn. F.v. Guðjón, Kristinn, ólafur, Torfi og Marinó.
(Timamynd HE).
Eyjapiltarnir komnir úr frægðarförinni:
SIGLDU TVÖ ÞÚSUND
MÍLNA LEIÐ EFTIR
VEGAKORTINU
Skiptar skoðanir?
Nokkur ágreiningur virðist
nú rikjandi innan Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna
um það, hvernig-haga beri
„sameiningarviðræðunum"
svonefndu. i þessum pistlum
hefur verið vitnað talsvert i
skrif Nýs iands, aðalmálgagns
SFV, um þessi mál en þar hef-
ur kvcðið við talsvert annan
tón, en i máli og skrifum
Hannibals Valdimarssonar,
formanns SFV. Hannibal og
Björn Jónsson virðast hættir
að skrifa i Nýtt iand og svo brá
við i þessum inánuði að gefið
var út biaðið „Þjóðmál”.
Þetta blað cr prentað i 45 þús.
eintökum og i það skrifa
llannibal. Björn, Magnús og
Steinunn Finnbogadóttir og fl.
ásamt tveimur Sjálfstæðis-
mönnum. Gunnari Thorodd-
sen og Páli I.indal. Þetta blað
er belgað samciningu og ritar
Hannibal forsiðugreinina og
boðar stórtiðindi i samein-
ingarmálinu áður en langt um
liði.
A ýmsu gengur
i „Framsýn”, málgagni
Framsóknarfélaganna i
Kópavogi, cr út kom <>. þ.m. er
einnig fjallað um samein-
ingarmálið. Þar segir m.a.:
„Fyrir nokkrum vikum boð-
uðu fjórir ungir áhugamenn,
um samciningu vinstri afl-
Þriðjudagur. 18. júli. 1972
SBR-Reykjavik
Eyjapiltarnir fimm, sem
undanfarna 34 daga hafa verið á
siglingu umhverfis iandið á
tveimur gúmmibátum, komu
heim til Eyja upp úr hádeginu i
gær og var fagnað með blómum
og lófataki. Siöustu nóttina gistu
fimmmenningarnir i Hrauney,
rétt til að setja skemmtilegan
punkt við ferðalagið, sem gekk
stóráfallalaust.
1 viðtali við Timann i gær, sagði
einn ferðalanganna, Marinó
Sigursteinsson, að þó að ferðalag
sem þetta væri bráðskemmtilegt
myndu þeirliklega hugsa sig tals-
vert um, áður en þeir legðu i slikt
aftur, það væri afskaplega erfitt.
Upphaflega átti ferðin að taka
þrjár vikur, en viða urðu tafir, og
bilanir og bættust þvi 13 dagar
við.
Vegalengdin sem þeir sigldu, er
um 2000 milur og leiðarvisirinn
var vegakort af landinu. Alls hélt
Marinó, að þeir hefðu komið við á
40 stöðum og sumsstaðar var
stanzað um stund og náttúran
skoðuð. Á Akureyri voru þeir um
mánaðamótin og fengu sér þá bil
og óku til Mývatns. Einnig
skoðuðu þeir Skagafjörðinn
nokkuð vandlega. I Flatey bilaði
vél annars bátsins og þá var
TÍMINN
báturinn sendur með bil til
Reykjavikur en ferðinni haldið
fram á hinum. Sóttist fremur
hægt til Reykjavikur, enda veður
ekki alveg upp á það bezta heldur.
Til Reykjavikur var komið á
laugardag og haldið áfram sam-
dægurs á báðum bátunum til
Hraunseyjar. Þess má geta, að
meðan stanzað var i Reykjavik,
fóru piltarnir að Bessastöðum,
færðu forsetafrúnni blóm og þáðu
kaffi i staðinn. Lét Marinó vel af
heimsókninni.
Ekki sagði hann heldur að yfir
neinu hefði verið að kvarta, hvað
gestrisni varöaði, hvar sem þeir
hefðu komið á landinu. Allir hefðu
keppzt við að bera þeim góðgerðir
og aðstoða þá, ef með þurfti.
Um kostnaðarhliðina sagði
Marinó, að lauslega áætlað hefði
ferðin kostað alls um 125 þúsund
krónur, 25 þúsund á mann og væri
það bara vel sloppið.
Auk Marinós fóru i þessa
frægðarför þeir Torfi Haralds-
son, Ólafur Kristinn Tryggvason,
Kristinn Rúnar Ólafsson og
Guðjón Jónsson. Sá siðastnefndi
er elztur þeirra félaga, átti hann
23 ára afmæli á leiðinni og var
veizlan haldin á Bakkafirði.
anna, fund hér i Kópavogi.
Auk fundarboðenda mættu 13
manns á fundinum og þar af 2
bæjarfulltrúar þeir Ásgeir Jó-
hannesson og Guttormur
Sigurbjörnsson. Á þessunt
fundi mætti enginn yfirlýstur
stuðningsmaður Samtakanna
nema ræðumaður þeirra, en
hann er búsettur i Reykjavik.
Þannig speglaðist nú áhuginn i
eina stefnumáli flokksins i það
sinni. Áður greindir bæjar-
fulltrúar, sem báðir tóku til
máls eftir frumræðu fundar-
boðenda gáfu nokkuð merki-
legar upplýsingar, sem spcgla
vel vinstrisameiningaráhuga
Samtakanna i verki. Guttorm-
ur Sigurbjörnsson lýsti þvi yf-
ir að hann ásamt fleiri framá-
mönnum Framsóknarflokks-
ins hér i Kópavogi hefði átt
viðræður við menn úr forustu-
liði Samtakanna um sam-
eiginlcgt framboö flokkanna i
bæjarstjórnarkosninguni. En
samtökin hefðu hafnað þessari
hugmynd á þeim forsendum
að þau þyrftu að kanna fylgi
sitt hér i Kópavogi. — Það var
sem sagt meira atriði, að
þeirra dómi. en sá áfangi sein
hér var boöiö uppá aö stiga i
sanieiningarmálinu. Upplýs-
ingar Asgeirs Jóhannessonar
lulu svo að öðru atriði áhuga-
máls (?) Samtakanna, en
liann upplýsti að eftir bæjar-
stjórnarkosningarnar hefðu
bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins boöaö liann ásamt
fulltrúa Samtakanna til fund-
ar um myndun meirihluta
samstarfs i bæjarstjórn. cn
þessir þrir flokkar höfðu at-
kvæðamagn til þess. Ilann
hvað fulltrúa Samtakanna
hafa lýst þvi yfir að Samtökin
væru tilbúin að ganga til þessa
meirihlutasamstarfs við Al-
þýðuflokkinn og Sjálfstæðis-
flokkinn cn Alþýðuflokkurinn
liafi hafnað hugmyndinni.”
—TK
Leiðrétting
I Timanum á sunnudaginn þar
sem birtar voru myndir af
brúðhjónum, vixluðust myndir af
brúðhjónunum Elisabetu
Halldóru Einarsdóttur og Reyni
Elieserssyni og Itebekku
Ingvarsdóttir og Einari Ágústi
Kristinssyni, auk þess sem
heimilisfang þeirra siðarnefndu
misritaöist. Það er Hallavegur 37,
en ekki Hjallavegur 19, eins og
stóð i myndatextanum. Eru við-
komandi beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
UTANLANDSFERÐIR VK> ALLRA HÆFI
LONDON
frá kr. 14.102,-
iBeint þotuflug báðar leiðir, brottför
Ivikulega. Innifalið: gisting og morg-
lunverður á fyrsta flokks hóteli. 011
I herbergi með baði og sjónvarpi. Ferð-
lir milli hótels og flugvallar og ýmis-
I legt fleira. Þetta verða vinsælar ferðir
Itil milljónaborgarinnar. Leikhús og
I skemmtanalíf það víðfrægasta i ver-
löldinni, en vöruhúsin hættulega
freistandi.
Brottför i hverri viku. Innifalið: beint
þotuflug báðar leiðir, gisting og tvær
máltíðir á dag. Eigin skrifstofa Sunnu
i Kaupmannahöfn með islenzku
starfsfólki. Hægt að velja um dvöl á
mörgum hótelum og fá ódýrar fram-
haldsrerðir til flestra Evrópulanda
með Tjæreborg og Sterling Airwavs.
Nú komast loksins allir ódýrt til Kaup-
mannahafnar. Allra leiðir liggja til
hinnar glaðværu og skemmtilegu
borgar við sundið.
KAUPMANNA
HÖFN
frá kr. 12.500,-
Beint þotuflug báðar leiðir, eða með
viðkomu i London. Brottför hálfs-
mánaðarlega til 15. júni og i hverri
viku eftir það. Frjálst val um dvöl i
ibúðum i Palma og i baðstrandabæj-
unum (Trianon og Granada) eða hin-
um vinsælu hótelum Antillas Barba-
dos, Playa de Palma, Melia Magaluf
og fl. Eigin skrifstofa Sunnu i Palma
með islenzku starfsfólki veitir öryggi
og þjónustu. Mallorka er fjölsóttasta
sólskinsparadís Evrópu.
Fjölskylduafsláttur. j
MALLORCA
COSTADELSOL
frá kr. 12.500,-
Brottför hálfsmánaðarlega, og i
hverri viku eftir 27. júli. Beint þotu
flug báðar leiðir, eða með viðdvöl í
London. Sunna hefir samning um
gistirými á aftirsóttúm hótelum
Torremolinos (Alay og Las Palomas)
og íbúðum, luxusibúðunum Playa
mar i Torremolinos og Soficobygg-
ingunum Perlas og fl. i Fuengirola og
Torremolinos. Islenzkir fararstjórar
Sunnu á Costa del Sol hafa skrifstofu
aðstöðu i Torremolinos, þar sem
alltaf er auðvelt að ná til þeirra. Costa
del Sol er næst fjölsóttasta sólskins-
paradis Evrópu og Sunna getur boðið
upp á beztu hótel og íbúðir á hag-
væmum kjörum.
ÝMSAR FERDIR
Norðurlandaferð 15 dagar, brottför
29. júní.
Kaupmannahöfn, Oslo, Þelamörk og
Sviþjóð.
Kaupmannahöfn - Rinarlönd
15 dagar, brottför 6. júli og 3. ágúst.
Ekið um Þýzkaland til Rinarlanda.
Kaupmannahöfn - Róm - Sorrento
21 dagur, brottför 13. júlí.
Vika i Kaupmannahöfn vika i
Sorrentoiog viku i Rómarborg.
Paris - Rinarlönd - Sviss
16 dagar, brottför 20. ágúst.
Landið helga - Egyptaland - Libanon
20 dagar, brottför 7. október.
Kynnið ykkur verð og gæði Sunnu-
ferðanna með áætlunarflugi eða hinu
ótrúlega ódýra leiguflugi. SUNNA
gerir öllum kleift að ferðast.
Sunna er alþjóðleg IATA
ferðáskrifstofa
FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA BANKASTRETI7 ® 1640012070