Tíminn - 18.07.1972, Page 5
Þriöjudagur. 18. júli. 1972
3. skákin.
Hv.: Boris Spasski
S<c: Robert Fischer.
Ben-Oni
1. d4
2. c4
:i. Rf:i
Rf6
e6
c5
Fram að þessu hefur skákin
teflzt á sama hátt og 1. ein-
vigisskákin, en hér breytir
Fischer út af. Siðasti leikur
hans leiðir til svonefndrar
Ben-Oni varnar, sem hann
hefur jafnan beitt með góðum
árangri.
4. d5
4. Rc3, cxd4 5. Rx d 4, Bb4
skapar svarti engin vanda-
mál.
5. cxd5
6. Rc:s
exd5
d6
g6
Hér koma fjöldamargar
leiðir til greina fyrir hvit, svo
sem 7. e4, Bf4, Bg5, g3 o.s.frv.
— Leik Spasski var fyrst beitt i
frægri skák milli Nimzovitsch
og Marshall i New York 1924.
7. Rd2
8. e4
Rbd7
Sovézki stórmeistarinn
Boleslafpky álitur þetta bezta
leik hvits i bók sinni um kóngs-
indverska vörn. Nimzovitch
lék 8. Rc4, sem var svarað
með —, Rb6.
8. —
9. Be2
Bg7
9. Rc4, Rb6 10. Re3 kemur
mjög sterklega til greina hér
9. —
10. o-o
11. Dc2
0-0
He8
1 skák milli Gligoric og
Fischers á millisvæðamótinu
á Mallorca 1970 lék hvitur hér
11. a4, sem virðist rökrétt
II. —
Rh5! ?
12. —
13. Rc4
14. Re3
gxh5
Re5
Skákskýrandi er i þeirri
þægilegu aðstöðu að geta
dæmt út frá gangi skákarinn-
ar i heild. Hér á t.d. eftir að
koma i ljós, að hvitur hefði átt
að fara i riddarakaupin strax.
14. —
15. Bd2
Dh4
Eftir 15. Rb5 lægi beinast við
að leika —, De7.
15.
Rg4
TÍMINN
Mannsfórnin 15—, Rf3+ er
mjög freistandi, en stenzt ekki
gagnvart beztu taflmennsku.
Eftir 16. gxf3, Be5 leikur hvit-
ur bezt 17. Hfcl og hviti kóng-
urinn virðist komast i öruggt
skjól, hvernig sem svartur fer
að. Fischer þarf ekki að beita
W
Friðrik Olafsson skrifar
um þriðju skákina
framhald. Leikur Spasski er
eðlilegur, en e.t.v. ekki ná-
kvæmur.
Fischer verður að bregðast
hart við til að fyrirbyggja að
heimsmeistarinn fái byggt
upp hagstætt tafl. bessi djarf-
legi leikur hleypir heilmiklu
lifi i skákina. Fischer tekur
fúslega á sig tvipeð á h-lin-
unni, en öðlast þess i stað góð
sóknarfæri. Framvinda skák-
arinnar sýnir, að hann hefur
metið stöðuna rétt.
12. Bxh5 (?)
Heimsmeistarinn virðist
staðráðinn i þvi að hegna
Fischer fyrir ósvifnina, en
sannleikurinn er sá, að þessi
uppskipti reynast áskorand-
anum hagstæð.
12. Hel kom mjög sterklega til
greina með það fyrir augum
að leika 13. Bfl. Framvinda
skákarinnar ber það með sér
hversu nauðsynlegur varnar-
maður hviti biskupinn er.
slikum brögðum til að tryggja
sér gott tafl.
16. Rxg4
17. Bfl
Iixg4
Spasski viröist i fljótu
bragði hafa ágæta stöðu, en
næsti leikur Fischers leiöir i
ljós hið gagnstæða.
Df6!
18. gS?
18. Bg3 er að sjálfsögðu eðli-
legri leikur, en Spasski hefur
sennilega óttast framhaldið 18
—, Bd7 ásamt 19. — h5, sem
gerir stöðu biskupsins
ótrygga. 18. g3 er hins vegar,
mjög afdrifarik veiking á
hvitu kóngsstöðunni, sbr. aths.
við 12. leik hvits, og sviptir
hvit auk þess öllum gagnsókn-
armöguleikum. Betra var ör-
ugglega 18. Bg3 ásamt 19. f3 og
hvitur hefur sitthvað til mál-
anna að leggja. — Nú tekur
F'ischer öll völd i sinar hendur.
18. —
19. a4
Bd7
Sóknaraðgerðir svarts á
drottningarvængnum verða
ekki stöðvaðar, en þessi leikur
hindrar þær um stund.
19.
b6
19. —, a6 væri ónákvæmt
vegna 20. Db3, auk þess sem
hvitur gæti neglt niður drottn-
ingarvænginn með a4 — a5.
20. Ilfel
21. H e 2
ad
Hvitur getur litið aöhafzt og
reynir að tryggja aðstöðu sina
á miðborðinu sem bezt.
21. — b5
Fischer hefur nú atburða -
rásina i sinni hendi og Spasski
getur aðeins beðið og reynt að
búa sig sem bezt undir loka-
átökin.
22. Ilael
Spassky
1 fljótu bragði gæti virzt sem
hvitur rétti úr kútnum með 22.
axb5, cxb5 23. HxH, HxH 24.
e5, en þetta er missýning.
Eftir 24. —, Hal+ 25. Kg2 (eini
leikurinn) dxe5 26. Hxe5, b4
steðja ótal hættur að hviti. Td.
27. Re4, Da6 og vinnur.
Hótunin var 23. e5.
23. b:i
DgO
He7
brýstingurinn á e — peðið
fer nú að verða óþægilegur og
ljóst er að það verður ekki
varið til lengdar.
24. l)d:t
Ilb8
24. —, b4, væri ónákvæmt
vegna 25. Rbl ásamt Rd2.
Hins vegar kom til greina 24.
—, bxa4 25. bxa4, Hb8 og hvit-
ur á úr vöndu að ráða.
25. axh5
26. bl!
axb5
Eini leikurinn, sem gerir
hviti kleift að halda i horfinu.
Svartur hótaði illilega —, b4
ásamt —, Bb5.
26.
C4
Svartur græðir ekkert á 26.
—, cxb4 vegna 27. Ra2. T.d. —,
Hc8 28. Rxb4, Hc4 29. Rc6!
o.s.frv.
27. Dd2
Ilbe8
Meö þessum leik hefst loka-
kafli skákarinnar. Fischer
beinir skeytum sinum að hvita
e — peðinu, sem er dæmt til að
falla.
28. IIc3
h 5
Fischer vill tryggja
kóngsstööu sina sem bezt áður
en lokaatlagan hefst.
29. Il3c2
Kh7
Friðrik
30. He3
Fischer
Kg8
Fischer hefur sannfærzt um,
að kóngurinn stendur þrátt
fyrir allt betur á g8.
31. H3e2
32. Dxc3
33. IIxe4
34. Ilxel (?)
Bxc3
Hxel
Ilxe4
34. Hal hefði áreiðanlega
gefið betri raun.
34.
35.
I)xe4
Bh6
Stæði svarti kóngurinn á h7
hefði hvitur bjargað sér með
35. Df6. Nú dugar sá leikur
ekki einfaldlega vegna —
Dbl+ 36. Kg2, Bf5 37. Dg5+,
Bg(i og hvitur ræður ekki við
hinar margvislegu hótanir,
sem á honum standa.
35.
36.
Bcl
Dg6
Dhl!
Kemur i veg lyrir Bcl — b2
hjá hviti og undirbýr að koma
svarla biskupnum i spilið.
37. Kfl
Kóngurinn er óþægilega
innilokaður á gl og Spasski
reynir að linna honum„heilsu-
samlegri” vettvang.
37. —. Bf5
38. Ke2 De4 +
39. De3 Dc2+
40. I)d2 l)l>3!
41. Ddt
Biðstaðan. Fischer lék
biðleiknum, sem reyndist
vera:
II. — . Bd3
Spasský gefst upp án þess að
tefla i'rekar, enda staða hans
algjörlega vonlaus. Eftir 42.
Ke3 er -Ddl, bezta framhaldið
og hvitur hjarir ekki lengi (43.
Db2, c3!)
Askorandinn hefur teflt
þessa skák lýtalaust. F.ó.
Útlit fyrir áframhald einvígisins eftir Fjórða skákin tefld í dag
Sigur Fischers í þriðju skákinni
ET-Reykjavik.
Framhald skákein vigisins
hefur hangið á bláþræði um
helgina, allt frá þvi Fischer
mætti ekki til leiks á fimmtu-
dag á 2ra einvigisskákina. Nú
virðist þráðurinn hins vegar
hafa styrkzt nokkuð við fyrsta
vinning Fischers i 3ju ein-
vigisskákinni. Jafnframt er
þetta fyrsti sigur hans yfir
Spasski. Þess vegna má telja
öruggt, að Fischer haldi kyrru
fyrir og tefli ótrauður áfram.
bó eru veðrabrigði tið i skák-
heiminum, svo að vissara er
að slá engu föstu um framhald
„skákeinvigis aldarinnar” —
eða „vitleysu aldarinnar”,
eins og sumir vilja nefna það.
Á sunnudag horfði i fyrstu
illa um framhaldið. Fischer
hafði pantað flugfar til New
York um daginn og sagðist
ekki tefla frekar — nema teflt
yrði i lokuðum sal, án
nokkurra kvikmyndatöku-
véla. Lothar Schmid, aðal-
dómari, tók þess vegna þá
ákvörðun stuttu áður en skák-
in átti að hefjast, að hún færi
fram i lokuðum sal i Laugar-
dalshöllinni. Áður hafði
Spasski fallist á þá lausn
mála. bessi ákvörðun
Schmids varð svo til þess að
Fischer mætti uppi 1
Laugardalshöll 2 min. fyrir
fimm og byrjaði 3ja einvigis-
skákin stuttu seinna. Fischer
virtist nokkuð taugaóstyrkur,
þegar hann kom og eins i upp-
hafi skákarinnar. En strax
eftir 11. leik (sjá skýringar
Friðriks ólafssonar) róaðist
hann og eftir þvi, sem lengra
leið, virtist hann æ öruggari.
Hins vegar raskaðist hin
„sifellda rósemi” Spasskis
nokkuð undir lokin, enda stað-
an ekki upp á það bezta!
1 gær kl. 5, þ.egar tefla átti
biðskákina gaf Spasski eftir að
hafa séð biðleik andstæðings-
ins: B d3. Heimsmeistarinn
gat þó ekki tekið i hönd áskor-
andans, þvi að sá siðarnefndi
var ókominn.
Fischer kom og spurði:
Er hann búinn
að gefa skákina?
Það var heldur betur asi á
Fischer, þegar hann kom inn á
sviöið tæpum fimmtán minút-
um siðar en hann átti að
koma. Lothar Schmid aðal-
dómari stóð við skákboröiö á
tali við þrjá blaðamenn. Jafn-
skjótt og F"ischer birtist,
spuröi hann, hvað gerzt hefði:
„Er hann búinn að gefa skák-
ina?” sagði hann.
Aöaldómarinn kinkaði kolli
til samþykkis. Fischer leit á
skákborðið, flóttalegur og
óttaslcginn að þvi, er virtist,
undirritaði leiktöfluna og
spurði: „Er þetta i lagi?”
Aftur kinkaði aðaldómarinn
kolli. Fischer rauk eins og
byssubrenndur út með afritið
af skákinni i hendinni. Nokkrir
áhorfcndur voru i salnum, er
þetta gerðist, og klöppuðu
þeir, þegar Fischer birtist.
Aðaldómarinn ætlaöi að hafa
tal af Fischer og hljóp á eftir
honum. En hann varð of seinn,
Fischer var kominn út og
horfinn á braut i bil sinum.
Biðskákina átti að tefla á
sviði Laugardalshallarinnar,
eins og einvigisskákirnar
framvegis. Spasski gaf aðeins
leyfi til, að skákin á sunnudag
yrði tefld annnars staðar, en
skv. einvigisreglunum skal
aðeins tefla i lokuðum
sal, ef truflana gætir að
einhverju ráði i aðal-
sal. Guðmundur Arnlaugsson,
aðstoöardómari, sagði, að
samþykki Fischer skipti engu
máli i þessu sambandi. Fram-
vegis yrði teflt i aðalsalnum —
Fischer réði þvi hins vegar
hvort hann mætti til leiks.
Blaðamaður Timans náði
tali af Sæmundi Pálssyni, lög-
regluþjóni, sem er einkavinur
Fischer. Sæmundur kvað
Fischer vera i fullkomlega
andlegu jafnvægi og reiðubú-
inn að tefla áfram á sviði
Laugardalshallarinnar. Sagði
hann, að ýmsir aðilar hefðu
hvað eftir annað farið á bak
við Fischer, t.d. i sambandi
við myndatöku. 1 gær höfðu
verið settar upp tvær mynda-
véiar i trássi við gefin loforð,
en þær voru fjarlægðar, um
leið og Guðmundi G. Þórarins-
syni, forseta Sl, barst vit-
neskja um það.
Þá sagði Chester Fox, kvik-
myndatökustjóri, að vanda-
málið varðandi töku mynda i
einvigissalnum væri enn
óleyst. Það væri i verkahring
Guðmundar G. Þórarinssonar
og yrði ákvörðun væntanlega
tekin i dag, þriðjudag. Að-
spurður kvaðst Fox dvelja
hér, þar til einviginu lyki, hve-
nær sem það svo yrði. Hann
sagðist mundu fá einhverjar
upphæðir fyrir þær myndir,
sem hann hefði þegar tekið, —
hve mikið, vissi hann ekki.
Þess má geta, að hetjurnar,
Fischer og Spasski, höfðust
misjafnt að yfir helgina.
Áskorandinn hélt kyrru fyrir á
Loftleiðahótelinu, meðan
heimsmeistarinn brá sér upp i
Borgarfjörð á laxveiðar.
Spasski var þó alls ekki að
bregðast skyldum sinum á
nokkurn hátt, þvi að hann
hafði ekki yfir neinu að
kvarta, þegar keppendum var
boðið að koma i Laugardals-
höllina á laugardag og koma
fram með aðfinnslur sinar.
Fjórða einvigisskákin hefst
þá kl. 5 i dag (undanskilið: að
öllu forfallalausu).
Hringdi
Kissinger ?
i bandariskum hlöðum var
svo frá sagt i gær, að Henry
Kissinger, ráðgjafi Nixons,
liafi hringt á Fischer, er
hann iét i veðri vaka á
sunnudaginn, að hann væri á
förum heim og beðið hann að
tefla þriðju skákina.
Samkvæmt heimildum
Timans cr hitt þó réttara, aö
Ilenry Kissinger hafi beitt
áhrifum sinum til þess að
koma Fischer til islands, er
hann beið i New York, svo að
framkoma hans ylli Banda-
rikjunnm ekki frekari álits-
hnekki en orðið var.