Tíminn - 18.07.1972, Blaðsíða 6
6 ___________ _______TÍMINN
Viðskiptasamningur
við EBE undirritaður
á laugardaginn
EBE áskilur sér rétt til að láta tollfríðindi fyrir sjávarafurðir ekki koma til fram-
kvæmda, finnist ekki „viðunandi lausn” á landhelgismálinu - en ísland áskilur
sér rétt til að fullgilda ekki samninginn, ef þessum fyrirvara EBE verður beitt
Þriðjudagur. 18. júli. 1972
/ftf
Yu (Msy. S*
etfrSs* . . .
f A /•
/rýi/Min’ /ÍJ '
" ""
/.S*..S~
cXj*- /,
ý'/. t*
/s. s9fy */ y
'Á,4i jáý*s«r/+jtí</x'
/sa.eL___tj! V. £/.'/.
/— /—./ . S./CS.,../ "/
// /y/ /. /—/. ''
/*0.£L ... /?■
' /CJÍ&’/
/.&./&//,.................
////. /?/./.*/.
*J' /s-~ /' ‘/ ■
' /H.../ /•■■■■■ “
//. ei/. * ' JJ- œp, .,
ÍS./í '/ js/fCcs/..
4.*.(J7 jXp —y-7
/\/.jlr,*~~//!~/*r/
fp /ý?/S
■ /Jf f* -Ó/y
, * /f
V / f/ /■'
. / sr /u-
, / /J-
• / /s
— Z/SJ
J0 , •
. * /X- ■
, vf J0
, / /J //
y S
• /•? /'
/S' sS
' / ■40
7 •
* ■ & ff
' /
. / ss
J Jf
/ j 1«
fQf/
ff.
//ffu./LL .... ^
/*/-. %,/&£..»
7 • </.____ • Jf
y>/—-
4/á~J- SJ/i- . ■*>
74 i7tr.j&/.:
JJfcUr tl*- - -**-/ f
f> S£Mi-- -
f
s JS
• /p
. //>
V. ítf
. s X /J
• f //
- JS —
' s/
' •s
- s/
1' "
. * /rg
- f' /9.
• r JS
T- ^ fj~
I' /f- —
Jfi
j r/
J /S~~/ y/
Illuti siðu úr einni verzlunarbókinni, sem náöist úr stafni Péturs-
borgar. Hún sýnir viðskipti Björns á Syðra-Hóli, föður Magnúsar
rithöfundar, árið 1902.
Hagsöguheimildirnar bak
við þiljur Pétursborgar
Hér i blaðinu hefur ofurlitið
verið sagt frá leyndardómum
þess húss á Blönduósi, sem
kallað er Pétursborg, og þeim
heimildum um hagsögu Húna-
þings, sem með óvenjulegum
hætti hafa varðveitzt i þvi
langt til hálfa öld. Þá sögu
hafa menn væntanlega lesið,
og þess vegna verður hún ekki
rakin hér á ný.
I framhaldi af henni er aftur
á móti ekki úr vegi að vekja
máls á þvi, hvort ekki muni
kominn timi til þess að draga
verzlunarbækurnar fram úr
fylgsnum sinum og vista þær á
aðgengilegri stað. Pétursborg
er gamalt timburhús, og tim-
ans tönn vinnur á þvi smám
saman eins og öðrum slikum
húsum, og þó að bækurnar
kunni að hafa geymzt undra-
vel fram að þessu, er vissu-
lega hætta á, að hver
áratugurinn, sem liður, án
þess að þeim sé bjargað, geti
orðið þeim miður hollur.
Til þess getur enginn ætlazt,
að eigendur hússins taki á sig
þann kostnað, sem það hefði i
för með að ná þeim fram úr
fylgsnum sinum. En er i raun
og sannleika engin stofnun til
eða einhver annar aðili, sem
telur það skyldu sina og ætlun-
arverk að ná þessum bókum,
áður en það er um seinan?
Kostnaður vi’ð að komast að
þeim og einangra húsið á nýj-
an leik með aðferðum, sem nú
tiðkast, getur þó varla verið
svo óskaplegur, að hann úti-
loki framkvæmdina. Sönnu
nær er, að hér þurfi ekki nema
smáræði til, og þó fyrst og
fremst vilja og löngun til þess
að nálgast sögulegar heimild-
ir, sem hvergi er annars að
finna. Sýslusjóður Húnavatns-
sýslu, safnið, sem hreppti
fenginn, og rikið sjálft ættu að
geta aurað saman i þetta, án
þess að ganga allt of nærri
fémunum sinum. Hvað sýnist
ykkur, sem lesið þessi orð?
J.H.
SKÁLHOLTSHÁTIÐ
A SUNNUDAGINN
Samningaviðræöum Islendinga
við Efnahagsbandalagið er lokið
og veröur viðskiptasamningurinn
undirritaður i Brússel laugar-
daginn 22. júli n.k. Er þar með
lokið þætti, sem hófst fyrir
tvcimur árum, þegar EFTA--
löndin þrjú, Bretland, Danmörk
og Noregur, sóttu um aðild að
Efnahagsbandalaginu.
Tilgangurinn með viðræðunum
við Efnahagsbandalagið var að
varöveita þau viöskiptafriðindi,
sem tslandi hlotnaðist i Bret-
landi, Danmörku og Noregi við
inngönguna i EFTA og jafn
framt að bæta viðskiptamögu-
leikana við Efnahagsbandalags-
löndin með afnámi tolla og
annarra viðskiptahindrana.
Hvort tveggja hefur tekist að
mestu leyti og mun betur en á
horfðist i fyrstu.
Meginatriði viðskipta-
samningsins eru eftirfarandi:
1. Undir samninginn falla allar
iðnaðarvörur og þar að auki
flestar islenzkar sjávarafurðir,
sem tollur bandalagsins nær til.
2. Vörur þær, sem samningurinn
tekur til, skulu ekki vera háðar
innflutningsleyfum. Mun
bandalagið yfirleitt afnema
tolla sina á þessum vörum frá
tslandi i fimm jöfnun áföngum
frá 1. april 1973 til 1. júli 1977,
nema á áli verður tollur ekki að
fullu felldur niður fyrr en 1.
janúar 1980. Tollar á ísfiski og
sumum niðursuðuvörum verða
lækkaðir verulega, en ekki
alveg afnumdir.
3. tslenzkir verndartollar verða
felldir niður á innflutningi frá
bandalagslöndum á sömu
vörum og samkvæmt sam-
skonar timaáætlun og gildir nú
gagnvart EFTA-löndum.
Verður fyrsta tollalækkunin
30% 1. april 1973, en sú lækkun
var gerð gagnvart innflutningi
frá Ef’TA-löndum l.marz 1970.
Siðan lækka þessir tollar um 10
prósentustig árlega frá 1.
janúar 1974 og verða þannig að
fullu felldir niður 1. janúar
1980. Fjáröflunartollum þarf
ekki að breyta.
4. Efnahagsbandalagið áskilur
sér rétt til að láta tollfriöindi
fyrir sjávarafurðir ekki koma
til framkvæmda nema
viðunandi lausn fáist fyrir
bandalagsrikin og tsland á
þeim erfiðleikum, sem útfærsla
fiskveiðilögsögunnar veldur. Á
sama hátt áskilur fsland sér
rétt til að fullgilda ekki
samninginn, ef þessum fyrir-
vara bandalagsins verður beitt.
5. Heimilt er að halda áfram
innflutningshöftum á olium og
bensini vegna viðskipta islands
og Sovétrikjanna og á burstum
vegna blindraiðnar.
6. Almenn ákvæði samningsins
um undanþágureglur,
upprunareglur, samkeppnis-
reglur, o.fl. eru svipuð og i
EFTA-samningnum. Þó eru
engin ákvæði um atvinnu-
rekstrarréttindi.
7. Gert er ráð fyrir þvi, að
samningurinn taki gildi 1.
janúar 1973, en þó er heimiltað
fresta gildistöku hans til 1.
janúar 1974. Uppsagnarfrestur
samningsins er 12 mánuðir.
Viðskiptasamningurinn tekur
til rúmlega 70% af útflutningi
Islands, eins og hann var 1970, til
Efnahagsbandalagslanda og
þeirra fjögurra landa, sem samið
hafa um aðild að bandalaginu.
Auk þess eru um 20% útflutnings-
ins tollfrjáls i bandalaginu og er
þar um að ræða saltfisk, skreið
og nýja sild.
Tollalækkun bandalagsins
hefur mismunandi þýðingu fyrir
hinar ýmsu útflutningsgreinar og
fer það bæði eftir tollhæðinni og
ýmsum markaðsaðstæðum. Hér
fer á eftir yfirlit yfir væntanlegar
tollalækkanir á islenzkum
sjávarafurðum á árunum 1973 —
1977.
CO -o - 5 a 'O h-
-O cn
§ u = 3 .S
W) Jjjj tr — C/3 hr
Z2lS H 2,
Fryst fiskflök 15-18% 0
Isaður og heil-
frystur karfi 8% 2%
ísaður og heilfrystur
þorskur, ýsa og ufsi 15% 3.75%
Hrogn og lifur, ný,
frystog söltuð 10-11%. 0
Fryst rækja 12% 0
Lýsi 0-6% 0
Hert lýsi 17-20% 0
Kaviar og niðursoðin
hrogn 30% 0
Niðurlögð sild 20% 10%
Niðursoðin rækja, humar
og hörpudiskur 16-20% 0
Fiskimjöl 2% 0
Hvalkjöt 10% 0
Er hér um að ræða flestar
sjávarafurðir, sem falla undir
EFTA-samninginn en auk þess
lækkar tollur á isfiski og frystum
hrognum. Þá er þess einnig að
gæta, að yrði ekki gerður samn-
ingur við Efnahagsbandalagið,
myndu innflutningstollar á is-
lenzkum sjávarafurðum og
iðnaðarvörum smám saman
hækka i Bretlandi, Danmörku og
Noregi upp i gildandi tolla banda-
lagsins.
Um framkvæmd samningsins
rikir mikil óvissa vegna þess fyr-
irvara, sem bandalagið hefur
gert varðandi tollfriðindi sjávar-
afurða. Af Islands hálfu hefur þvi
alltaf verið mótmælt að tengja
viðskiptafriðindi og fiskveiðirétt-
indi saman. Hefur rikisstjórnin
tilkynnt Efnahagsbandalaginu,
að fullgilding samningsins væri
undir þvi komin, hvort fyrir-
varanum yrði beitt. Mun þessi
skoðun rikisstjórnarinnar verða
staðfest i sérstakri yfirlýsingu,
sem bandalaginu verður afhent i
sambandi við undirskrift samn-
ingsins.
Fyrir hönd tslands mun Einar
Ágústsson utanrikisráðherra
undirrita samninginn, en samn-
ingsgerðina hafa annast Þórhall-
ur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri,
Tómas Á. Tómasson, sendiherra
hjá Efnahagsbandalaginu, Einar
Benediktsson, fastafulltrúi hjá
EFTA, Haukur Helgason,
deildarstjóri, Valgeir Ársælsson,
deildarstjóri og Ölafur Egilsson,
sendiráðunautur.
Hin árlega Skálholtshátið verð-
ur haldin á sunnudaginn kemur,
og mun hún hefjast með klukkna-
hringingu klukkan hálf-tvö. Verð-
ur mjög til hennar vandað.
Klukkan tvö verður guðsþjón-
usta, sem hefst með lúðraþyt úr
Þorlákstiðum, siðan predikar
séra Heimir Steinsson, en
Sigurbjörn Einarsson biskup,
séra Sigurður Pálsson vigslu-
biskup og séra Guðmundur Óli
Ólafsson þjóna fyrir altari. Skál-
holtskórinn syngur, en söngstjóri
verður dr. Róbert A. Ottósson,
söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar.
Klukkan hálf-fimm verður
samkoma i kirkjunni. Þar flytur
SB-Reykjavik
Nú geta bændur fyrir norðan
loks farið að huga að heyjum
sinum, þvi hann virðist hættur að
rigna i bili, að minnsta kosti
austan til og um Miðnorður-
landið. Sverrir Sigurðsson á
Lómatjörn við Grenivik, sagði i
viðtali við blaðið i gær að þar
skini sólin glatt og allir, sem vett-
lingi gætu valdið væru úti við i
heyskap. Þætti ýmsum mál til
samkór undir stjórn Martins
Hungers þrjá forna lofsöngva úr
sálmabók Guðbrands Þorláks-
sonar, raddsetta af Fjölni
Stefánssyni, dr. Björn Sigfússon
flytur ræðu, Ingvar Jónasson
leikur á viólu og kór syngur.
Þessari samkomu lýkur með
ritningarlestri og bæn séra Tóm-
asar Guðmundssonar og að lok-
um verður almennur sálmasöng-
ur.
Mikill viðbúnaður hefur verið
hafður til þess, að þessi Skálholts-
hátið verði sem veglegust, og
verður ekki sizt mikið i tónlistina
borið.
komið, þvi varla hefði komið þurr
dagur i júni og það sem af væri
júli, fyrr en i gær.
Þeir bændur i framanverðum
Eyjafirði, sem snemma byrjuðu
að slá, hafa ekki grætt á þvi. Hey
hefur hrakizt á túnum og það
óslegna sprottið úr sér. Sé nú
loks að birta til i alvöru, má búast
við, að mikið af heyjum náist
upp á skömmum tima.
Minningarsjóður um Þóri Steinþórsson
Þann 10. júni s.l. var Þórir
Steinþórsson fyrrverandi skóla-
stjóri i Reykholti til moldar bor-
inn i Reykholtskirkjugarði. Fjöl-
menni mikið var við útförina, og
rúmaði kirkjan aðeins hluta af
þeim fjölda. Veður var hið bezta
og stóð fólk umhverfis kirkjuna,
en hátalarakerfi hafði verið kom-
ið upp, svo allir gætu fylgst með
athöfninni. Sr. Einar Guðnason
prófastur i Reykholti jarðsöng, en
ásamt honum flutti sr. Þorgrimur
Sigurðsson prófastur á Staðar-
stað likræðu. Eftir jarðarförina
þáðu allir viðstaddir rausnarleg-
ar veitingar, sem fram reiddar
voru i skólanum.
Skólanefnd og skólastjóri
Reykholtsskóla höfðu ákveðið að
stofna minningarsjóð um Þóri
Steinþórsson er varið skyldi til að
verðlauna nemendur, er sköruðu
fram úrihelztu kennslugreinum
Þóris, en það voru stærðfræði,
eðlisfræði og bókfærsla. Strax
jarðarfarardaginn söfnuðust
rúmlega 120 þús. krónur i sjóðinn.
Þar sem margir vinir og velunn-
arar Þóris höfðu ekki tök á þvi að
vera viðstaddir, vilja forráða-
menn skólans vekja athygli á þvi,
að enn er gjöfum i sjóðinn veitt
viðtaka. Þær má senda til sr. Ein-
ars Guðnasonar skólanefndarfor-
manns eða Vilhjálms Einarsson-
ar skólastjóra Reykholti.
L0KSINS STYTT
UPP NYRÐRA