Tíminn - 18.07.1972, Side 15

Tíminn - 18.07.1972, Side 15
Þriöjudagur. 18. júli. 1972 TÍMINN 15 Hart er barizt i vitateigi Keflvikinga. Sigurbergur hefur stokkiö upp og skallar aö marki, en Marteinn fylgist með. (TimamyndirGE). 2C0HI voru Framarar mun slappari en i fyrri hálfleik, en þeir urðu að sjá að baki Elmari Geirssyni rétt fyr- ir leikhlé og má hiklaust telja að brottför hans af leikvelli hafi veikt liðið. Elmar lék mjög skemmtilega og áttu varnarmenn Keflavikur i hinum mestu erfið- leikum með hann. Á 25. minútu siðari hálfleiks færðist mikið fjör i leikinn, þegar Grétar Magnússon skoraði gull- fallegt mark. Og 8 mínútum siðar jafnar Steinar Jóhannsson 2:2. A þessum kafla leiksins sýndu Kefl- vikingar hvað i þeim býr, en hins vegar nægðu þessi tvö mörk ekki til að hljóta stig, þvi að nokkrum minútum siðar skoraði Gunnar Guðmundsson sigurmark Fram, beint úr aukaspyrnu, með svif- bolta, sem Reynir i Keflavikur- markinu hefði hiklaust átt að geta varið. Þegar litið er á leikinn i heild, má segja, aðsigur Fram hafi ver- ið sanngjarn, þótt hætt hafi verið kominn. Liðið er sýnilega i góðri Framhald á bls. 19 Skagamenn hafa ekki sagt sitt síðasta orð - unnu sannfærandi sigur gegn Val, 3:0 Þrátt fyrir, að ýmis- legt hafi gengið á aftur- fótunum hjá Skaga- mönnum, tap fyrir Keflavik og Fram, svo og meiðsli góðra leik- manna, eru þeir ekki á þeim buxunum að gefast upp. Og með glæsilegum sigri gegn Valsmönnum á sunnudag, :i:0, eru þeir nú það liö 1. deildar, sem helzt ógnar Fram. M.ö.o. þeir eru enn þá með i baráttunni og hafa áreiðanlega ekki sagt sitt siðasta orð. iö gerði Skagamönnum auö- wiuara fyrir á sunnudaginn, þeg- ar þeir léku gegn Valsmönnum, að Valur saknaði Hermanns Gunnarssonar. Fyrir bragðið var framlina Vals algerlega bitlaus. Teitur Þórðarson skoraði fyrsta mark leiksins strax á 11. minútu eftir mistök i Valsvörninni. Og rétt fyrir leikhlé bætti Eyleifur Hafsteinsson öðru marki við eftir að hafa leikið á bakvörð Vals. Þriðja og siðasta mark leiksins kom úr vitaspyrnu seint i siöari hálfleik, og skoraöi Eyleifur úr henni. Eyleifur Hafsteinsson viröist i mjög góöri æfingu um þessar mundir. Hann var langbezti mað- ur vallarins i leiknum á Akranesi á sunnudaginn. Hann hefur mikla og góða yfirferð, stjórnar spili liðsins á miðjunni, og er stór- hættulegur upp við mark mót- herjanna. Hjá Val var fátt um fina drætti. Liðið er ákaflega mistækt. 1 þess- - um leik virtist þaö gersamlega áhugalaust. Góöurdómari leiksins var Rafn Hjaltalin frá Akureyri. — bfjfl Sigurbergur hvílir sig á knattspyrnunni . Alf-Reykjavik. — Margir spurðu fyrir leik Fram og Kefla vikurá Sunnudaginn, hvort Sigur bergur Sigsteinsson myndi leika með Fram. Astæðan er sú, aö frétzt hafði, að landsliðsnefndin i handknattleik hefði sett knatt- spyrnubann á Sigurberg, en nú liður óðum að Olympiuleiknum. Sigurbergur lék með Fram á sunnudaginn, en það var siðasti knattspyrnuleikur hans i bili. Mun hann sennilega ekkert leika meira með Fram i Islandsmótinu i sumar, en við stöðu Sigurbergs tekur Ómar Arason. Fáum Olympíu- forsmekk í kvöld FRAM - sigraði Keflavík með 3:2 í spennandi leik, þar sem barizt var af mikilli hörku Það rikti sannkölluð úrslita- stemning á áhorfendapöllunum i Keflavik á sunnudaginn, þegar Fram og Keflavik mættust i „stórleik ársins”, eins og auglýst var. Ilér var þó ekki um úrslita- leik að ræða i orðsins fyllstu merkingu, cn engu að siður er Ijóst, að úrslit leiksins geta ráðið verulega um gang mótsins. Fram náði að sigra með eins marks mun, 2:2, og skoraði Gunnar Guð- mundsson úrslitamarkið nokkr- um minútum fyrir leikslok, beint úr aukaspyrnu. Með þessu marki brustu vonir Keflvikinga um sig- ur i mótinu að verulegu leyti, þvi að nú licfur Fram möguleika á 5 stiga forskoti gagnvart þeim, sem virðist heldur stórt bil til að brúa. Leikurinn á sunnudaginn ein- kenndist af hörku, sem Keflvik- ingar áttu meginsök á. Varnar- menn þeirra sýndu enga mis- kunn, þegar sóknarmenn Fram nálguðust markið. Hins vegar högnuðust þeir ekkert á þessari hörku, einfaldlega vegna þess, að leikmenn Fram létu það ekki henda sig að fara að leika á sama „plani”, ef má orða það svo, held- ur lögðu megináherzlu á samleik, sem gaf þeim mörg hættuleg tækifæri. Þeir skoruðu lika tvö mörk i fyrri hálfleik. Fyrra markið skoraði Sigurbergur Sig- steinsson meðskalla á 15. minútu. Fimm minútum fyrir leikhlé bætti svo Erlendur Magnússon öðru marki við. Eggert Stein- grimsson, hinn leikni útherji Fram, tók aukaspyrnu frá vinstri. Marteinn kom aðvifandi og skaut að markinu, en Erlendur sagði siðasta orðið og skaut i mark úr þvögu, sem myndazt hafði við markið. Satt að segja virtist fátt benda til þess, að Keflvikingum myndi takast að jafna metin i siðari hálfleik, a.m.k., ef þeir ætluðu að halda uppteknum hætti, að hugsa eingöngu um likamleg einvigi i stað þess að leika knettinum. Svo fór, að þeir breyttu um taktik. Að visu var talsverð harka ráðandi áfram, en með innákomu Magnúsar Torfasonar breyttist heildarsvipur liðsins. Magnús hefur næmt auga fyrir samleik, og mest fyrir hans tilverknað, fór Keflavikur-liðið að leika knatt- spyrnu. Sóknarlotur liðsins urðu tiðari og þyngri. Að sama skapi Fyrra mark Fram veröur að veruleika. Reynir, markvörður, er heldur seinn niður. Alf-Reykjavik. — Júlimánuður er óvenjulegur mánuður til aö leika handknattleik. Engu að sið- ur er landsleikur i handknattleik á dagskrá i kvöld.ísland leikur þá fyrri leik sinn gegn Bandarikja- mönnum, sem munu, eins og við, taka þátt i lokakeppni OL i hand- knattleik i Múnchen i næsta mán- uði. Leikurinn i kvöld hefst kl. 20.30 i tþróttahúsinu i Hafnarfirði. fallhættu - tapaði fyrir Breiðabliki í gærkvöldi 0:1 Alf-Reykjavik. — Vikingar eru i alvarlegri fallhættu eftir ósigur gegn Breiðabliki i gærkvöldi, en leiknum lauk 1:0 og skoraði Þór Hreiðarsson mark Breiöa: bliks á 7. minútu siðari hálfleiks. Með þessum sigri sinum hafa Breiðabliksmenn hlotið 6 stig og eru komnir af mesta hættusvið- inu, a.m.k. i bili, en Vikingar verða að fara að taka á honum stóra sinum, ef þeir ætla sér að halda sæti sinu i deildinni. Þeir hafa nú leikið sjö leiki, og aðeins hlotið 1 stig, en hafa ekkert mark skorað til þessa i þeim 630 minút- um, sem þeir hafa leikið. Staðan i deildinni er nú þessi: Fram 6 5 1 0 13:4 11 Akranes 7 5 0 2 15:8 10 Keflavik 7 2 4 1 14:11 8 KR 5 3 0 2 8:6 6 Breiöabl. 7 2 2 3 7:13 6 Valur 6 2 1 3 11:11 5 Vestm. 5 1 1 3 9:11 3 Vik. 7 0 1 6 0:13 1 Umsjón Alfreð Þorsteinsson HELDUR STRIKINU Víkingur í alvarlegri

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.