Tíminn - 18.07.1972, Page 16
16
TÍMINN
Þriðjudagur. 18. júli. 1972
Nú er meira en
hálf millj. að baki
Geysimikil þátttaka í norrænu
sundkeppninni - Akureyringar hafa
forustu í bæjarkeppninni
Norðurlandamót 74
haldið á íslandi?
Frá Kjartani L. Pálssyni í Rungsted:
Nú þegar Norræna sundkeppn-
in hefur’Staðið i þrjá mánuði hafa
tæplega 43.000 landsmenn synt
200 metrana 516.153 sinnum.
1 keppni Akureyrar, Reykja-
vikur og Hafnarfjarðar er staðan
þannig, að Akureyringar leiða
með 4,83 sund á ibúa, Reykjavik i
öðru sæti með 3,14 sund á ibúa og
Hafnfirðingar i þriðja sæti með
2,20 sund á ibúa.
Einnig stendur yfir keppni á
milli Vestmannaeyja og Kefla-
vikur, en Sundsambandinu tókst
ekki að afla sér upplýsinga um
tölur frá þessum stöðum.
Sundsamband tslands vill beina
þeim tilmælum til allra sund-
laugaumsjónarmanna og ann-
arra er hafa umsjón með keppn-
inni á hverjum stað að senda
Sundsambandinu upplýsingar um
Keppnin
fyrst og
fremst
milli FH
og Akur-
eyrar
Akureyri og FH héldu áfram
sigurgöngu sinni i 2. deildar
keppninni i knattspyrnu um
helgina. Fer vart á milli mála að
þessi tvö lið muni berjast um
sætið, sem losnar i 1. deild. Staða
Akureyringa er betri i bili, en FH-
ingar hafa tekið stórstigum fram-
förum undir handleiðslu Skotans
Duncans McDowell.
Akureyringar léku á heimavelli
sínum gegn Haukum. Ekki var
byrjunin gæfuleg, þvi að Haukar
skoruðu fyrsta mark leiksins. En
Akureyringar áttuðu sig fljótlega
á hlutunum. Magnús Jónatansson
jafnaði og Sævar bróðir hans
skoraði 2:1. Aðalsteinn innsiglaði
svo sigurinn fyrir Akureyri, en
ieiknum lauk 3:1.
A Isafirði áttu FH-ingar ekki i
neinum erfiðleikum og sigruðu
heimamenn með 5:1.
óttar — náöi þriöja bezta Þorvaldur landsliösþjálfari, er ekki ailt of ánægöur aö sjá. Vinstra
„skorinu” megin viö hann stendur Einar Guönason.
A Norðurlandamótinu i golfi, sem haldið er hér i Rungsted í
Danmörku, hafa orðið umræður um það, hvar næsta Norður-
landamót verði haldið, en það á að fara fram 1974. Var ísland
oftlega nefnt i þvi sambandi og greinilega mikill áhugi meðal
kylfinga frá hinum Norðurlöndunum á þvi að keppa á íslandi, en
á íslandi hafa þeirekki keppt áður.
En ákvörðun um þetta verður ekki tekin fyrr en siðar, þegar
Skandinavisk Golfforbund kemur saman til fundar. Gæti það
orðið innan fjögurra vikna.
- reynsluleysi og erfiðar aðstæður háðu ísl.
kylfingunum á Norðurlandamótinu, sem
háð var í Danmörku um helgina.
Urðu í neðsta sæti
gang keppninnar a.m.k. um hver
mánaðamót, svo að sem bezt yfir-
lit fáist um gang keppninnar.
Eins og komið hefur fram i
fréttum hefur Island forystuna i
norrænu sundkeppninni með
nokkrum mun. Rétt þykir þó að
taka fram að flestir hinna stærri
útisundstaða á hinum Norður-
löndunum hófu ekki starfsemi
fyrr en 15. mai s.l. Eftir opnun
þeirra má ætla að nokkur kippur
komi i sundiðkanir fólks þar.
islenzku kylfingarnir kynna sér aðstæöur.
(Ljósm. KLP)
P’rá Kjartani L. Pálssyni i Rung-
sted.
Reynsluleysi varð islenzka
landsliðinu i golfi fjötur um fót i
Norðurlandamótinu, sem lauk
hér um helgina, en islenzka liðið
rak lestina i keppninni og er óhætt
að segja að flestir islenzku
keppendurnir hafi leikið talsvert
undir getu. Eini ljósi punkturinn
var frammistaða Óttars Yngva-
sonar, sem lék á pari (72) i högg-
leik á hinum erfiða velli i
Rungsted, og var það þriðja bezta
„skor” i keppninni, en tveimur
öðrum keppendum tókst að fara
völlinn á 70 höggum. Kom þessi
frammistaða Óttars á óvart, enda
var sizt búizt við slikri frammi-
stöðu af hálfu tslendings, en ts-
lendingar eru ekki hátt skrifaðir i
golfheiminum.
Keppnisskilyrði voru öll hin
verstu, ægilegur hiti, milli 28-30
stig, og enn meiri úti á miðjum
velli. tslenzku keppendurnir eru
mjög óvanir slikum skilyrðum.
Sólin var vægðarlaus og kenndu
sumir sólbruna. Og við þessi
skilyrði léku menn eins og
byrjendur, t.d Björgvin Hólm (94
-105) og Gunnlaugur Ragnarsson
(97 - 91). Allt var gert til að reyna
að verjast sólarhitanum, t.d. léku
menn undir regnhlifum, en allt
kom fyrir ekki.
Lokaúrslit i Norðurlandamótinu
uröu þessi:
I.okaúrslit i Norðurlanda-
mótinu uröu þessi:
1. Sviþjóð 1068
2. Danmörk 1076
3. Noregur 1093
4. Finnland 1141
5. tsland 1192.
Árangur islenzku keppendanna
var eins og hér segir. I „forsom”
(árangur tveggja lagður saman):
Þorbjörn Kærbo og
Björgv.Þorsteinsson 79-86 165
Einar Guðnason og
Óttar Yngvason 94-86 180
Gunnlaugur Ragnarsson og
Björgvin Hólm 86-99 185
t höggleiknum var Óttar
Yngasvon beztur Islendinganna,
en árangurinn varð þessi:
Óttar Yngvas 72-86 158
Þorbj. Kærbo 85-80 165
Einar Guðnas 87-83 170
Björgv. Þorst.ss 90-87 177
Gunnl. Ragnars 97-91 188
Björgv. Hólm 94-105 199
Almenn ánægja rikti með það,
að íslendingar skyldu nú mæta til
leiks i Norðurlandamótinu.
Ánægðastir voru þó Finnar, sem
hingað til hafa verið i neðsta sæti.
Þeir afsöluðu sér þvi sæti með
gleði til tslendinga.
Björgvin Hólm — góöur viö islenzkar aöstæöur, en gekk miður
á danskri grund.
LÉKU UNDIR REGNHLÍFUM í
SÓLSKINI 0G 28 STIGA HITA