Tíminn - 18.07.1972, Síða 17
A-Þjóðverjar
unnn Norðmenn
Austur-Þjóðverjar sigruðu
Norðmenn i handknattleik á
föstudag með 14 mörkum gegn
12, en leikurinn var háður i
Schwerin. Á sunnudag sigruðu A-
Þjóðverjar einnig, en með enn
meiri yfirburðum 17:10. Úrslitin i
leiknum á sunnudag þýða ekki að
Norðmenn hafi leikið tiltakanlega
illa, heldur var markvarzla
Siegfried Voigt aldeilis frábær,
hann varði næstum allt Þess skal
getið, að Islendingar leika gegn
A-Þjóðverjum i Munchen.
Harðjaxl-
ar sjndn
í sér
tennurnar
Harðjaxlar KR, en svo nefnast
old-boys KR, sýndu tennurnar i
leik gegn old boys Fram á laugar-
daginn, en leikurinn var háður á
hinum nýja grasvelli Fram,
Lauk honum sv.o, að KR-ingar-
skoruðu sex möríc, en Fram tókst
aldrei að koma knettinum i netið
hjá KR, og höfðu þeir þó fengið
Rikharð Jónsson til liðs við sig.
Aftur á móti styrkti hinn gamal-
kunni danski Íandsliðsmaður,
Henning Enoksen lið KR og
skoraði tvö markanna.Leikurinn
var hinn skemmtilegasti, þrátt
fyrir, að leikið væri i leiðinlegu
veðri, og skemmtu áhorfendur
sér vel.
Jafnteíli Finna
og Sovétmanna
Finnland og Sovétrikin gerðu
jafntefli i knattspyrnu á sunnu-
daginn 1:1. Leikurinn fór fram i
Vasa. Sovétmenn skoruðu i fyrri
hálfleik, en markið gerði Blotsjin,
en Rissanen jafnaði fyrir Finna i
siðari hálfleik.
Elías Gnðmnndsson
Murlandameistari
í lðð m bringnsnndi
Elías Guðmundsson stóð
sig með miklum ágætum á
Norðurlandamóti unglinga
i sundi, sem fram fór í
Árósum um helgina. Hann
varð Norðurlandameistari í
100 m bringusundi á 1:14,5
min. Næsti maður, Finninn
Kerola, synti á sama tima,
en þriðji varð Svíi, en bæði
nafn hans og tími var
ólæsilegt i fréttaskeytinu.
I 200 m bringusundi varð
Elias þriðji á 2:44,5 min.
Kerola varð meistari í því
sundi á 2:38,1 mín.
Þetta eru langbeztu tim-
ar, sem Elías hefur náð í
þessum greinum.
I)ave Bedford
Nýtt Evrópnmet
Bretinn Dave Bedford setti nýtt
Evrópumet i 5 km hlaupi á brezka
meistaramótinu um helgina.
Hann hljóp á 13:17,2 min. Hann
bætti metið um 5 sek. Heimsmet
Clarkes er 13:16,6 min. t 10 km.
hlaupi sigraði hann einnig en tim-
inn var 27:52,8 min. Dave Hemer-
y sigraði i 400 m. grindahlaupi á
49,7 sek. en Akiee Bua, Uganda
varð annar á sama tima.
RonClarke, heimsmethafinn i 5
og 10 km hlaupi var áhorfandi á
mótinu og hann var þess fullviss
að Bedford myndi sigra i 10 km.
hlaupinu, en hann hafi meiri trú á
Bandarikjamanninum Prefon-
taine i 5 km.
Peningagjafir streyma
til Handknatt-
leikssambandsins
Stöðugt berast peningagjaf-
ir vegna þátttöku islenzkra
handknattleiksmanna á
Olympiuleikunum i sumar.
Það eru bæði fyrirtæki og
starfsmannahópar, sem
styrkt hafa Handknattleiks-
sambandið vegna keppninnar,
og þannig bárust til dæmis ný-
lega gjafir frá starfsmönnum
Trésmiðjunnar Viðis, frá
Starfsmannafélagi Sima-
manna og frá eigendum
Tizkuverzlunarinnar FACO.
— Þá má og geta þess, að
Handknattleiksráð Reykja-
vikur færði stjórn HSt 25 þús-
und króna gjöf i tilefni af 15
ára afmæli sambandsins, sem
var 11. júni. —
Eftir hálfan mánuð heldur
landsliðið utan til Noregs og
Vestur-lJýzkalands, og verða
háðir l'jórir landsleikir i þeirri
ferð, sem verður þáttur i loka-
undirbúningi landsliðsins, áð-
ur en það heldur á Olympiu-
leikana i ágúst. — Auk þess er
von á Bandarikjamönnum
hingað til lands nú um miðjan
mánuðinn, svo alls verða háð-
ir sex landsleikir i handknatt-
leik, áður en liðið fer á
Olympiuleikana i Múnchen. —
Iþróttakennaraskóli íslands mnn staría
eftir njjum lögnm næsta ár
- 29 nemendur brautskráðir
frá skólanum í ár, eða fleiri
en nokkru sinni fyrr
iþróttakennaraskóla islands Keykjavik og Magnúsar
var slitið 30. júni siðastliðinn. Köðvarssonar hreppstjóra,
i upphafi skólaslitaræðu Laugarvatni, er létust á starfs-
minntist Arni Guðmundsson árinu.
skólastjóri, frú Sigrúnar Eiðs- Við skólaslitin mættu, auk að
dóttur iþróttakennara frá standenda nemenda, fjölmargir
iþróttakennarar. Meðal þeirra
voru iþróttakennarar, sem braut-
skráðust fyrir fimm árum og
þrjátiu og fimm árum og á fimm
og tiu árum þar á milli, alls sjö
árgangar. Fulltrúar afmælisár-
Hér á myndinni eru iþróttakennararnir, sem útskrifuðust. Aftasta röðtalið frá vinstri: Ingvar Jónsson, Karl Lúðvíksson, Bragi Vagnsson,
Marias Einarsson, Þórir Jónsson, Jón B. Stefánsson, Magnús Jónatansson, Guðmundur ölafsson, Sverrir Friðþjófsson, Georg V. Janusson,
Birgir Jónasson og Unnar Þ. Böðvarsson. Miðröð fr. v: Friðbjörn ö.Steingrimsson, Emil Björnsson, Pálmi Jakobsson, Halldór
Valdimarsson, Eggert V. Þorkelsson, Niels Á. Lund, Skarphéðinn ölafsson og Sigurður P. Hafsteinsson. Fremsta röð Margrét Gunnarsdóttir,
Laufey Eirksdóttir, Jensína Valdimarsdóttir, Erna Kristjánsdóttir,Guðrún Gisladóttir. Auður Harðardóttir, Ester Hjartardóttir, Sunneva
Filipusdóttir, Björg Kristófersdóttir og Agnes G. Bragadóttir. (Mynd Viðar Á)
ganganna fluttu ávörp og færðu
rausnarlegar gjafir. Skólastjóri
ávarpaði afmælisárgangana og
þakkaði þeim fyrir gjafirnar og
góðan hug til skólans, en á
þessum timamótum var nærvera
svo margra iþróttakennara sér-
staklega ánægjuleg.
Að þessu sinni voru 29 iþrótta-
kennarar brautskráðir frá
skólanum eða fleiri en nokkru
sinni fyrr. Þetta var fertugasti
árgangurinn, sem brautskráður
hefur verið frá Laugarvatni.
Hæstu meðaleinkunn hlaut
Birgir Jónasson, Sólvangi,
Fnjóskadal, 8,81.
Skólastjóri gat þess, að næsta
haust tæki skólinn til starfa sem
tveggja ára skóli, þar sem
samþykkt hafði verið á Alþingi ný
löggjöf um skólann.
Þakkaði skólastjóri mennta-
málaráðherra og Alþingis-
mönnum góðan skilning á mál-
efnum skólans, loks er Alþingi
fékk að fjalla um þau. Einnig
þakkaöi skólastjóri öllum öðrum
velunnurum skólans, er studdu að
þvi að skólinn fengi ný lög til að
starfa eftir.
Þá gat skólastjóri þess, að hin
nýja löggjöf kallaði á stóraukna
fjárveitingu til skólans, þar sem
byggja þyrfti ibúðir fyrir
kennara, iþróttahús, sundlaug og
kennslustofubyggingu. Slikar
byggingar kæmu ekki aðeins að
notum fyrir íþróttakennaraskóla
tslands heldur einnig fyrir aðra
skóla á Laugarvatni svo og
sumarstarfsemina þar.
Aðsókn að tþróttakennaraskóla
tslands er mjög mikil og hefur
ekki minnkað, þrátt fyrir
lengingu námstimans.