Tíminn - 18.07.1972, Qupperneq 20
Þúsundir kaþólskra
yfirgefa heimilin
— í mótmælaskyni við aðgerðir brezka hersins
NTB-Belfast
Þúsundir n-irskra kaþólikka
létu fyrir berast undir berum
himni og sátu i gær i hóp á
iþrótta vclli f Belfast og höfðu i
frammi mótmæli vegna þess aft
Bretar höfðu lagt undir sig
ibúftarhvcrfi þeirra, Lenadoon i
útjaftri borgarinnar aft vestan. Þá
flýftu þúsundir manna yfir landa-
mærin til irska lýðveldisins.
Talsm. brezka hersins sögðu aö
þessi helgi hefði verið blóðug eins
og þær siðustu og hefðu nú átta
manns látið lifiö, fimm óbreyttir
borgarar og þrir hermenn. Þar
með hefur hið bitra strið milli
mótmælenda og kaþólskra orðið
444 mönnum að bana á þremur
árum. Tala látinna siðan IRA af-
lýsti vopnahléi sinu fyrir viku er
nú komin upp i 34.
Að minnsta kosti 6000 kaþólikk-
ar, karlmenn, konur og börn
gengu á sunnudaginn út af heim-
ilum sinum i Lenadoon, og fór ka-
þólskur prestur fyrir göngunni
Tryggvi (iislason
Nýr skóla-
meistari á
Akureyri
Tryggvi Gislason lektor hefur
verið skipaður skólameistari i
menntaskólanum á Akureyri.
Hann verður fimmti skóla-
meistarinn á Akureyri, en hinn
fjórði eftir að skólinn var gerður
að menntaskóla.
Svart: Reykjavfk: Torfi
Stefánsson og Kristján Guð-
mundsson.
ABCDEFGH
A B C D E F-G H
Hvítt: Akureyri: Sveinbjörn
Sigurðssonog Hólmgrimur
Heiðreksson.
35. leikur Reykjavikur: Ha3 — a2
niður á iþróttavöll þar sem fólkið
lét fyrirberast um nóttina. Aðeins
aldrað fólk og sjúkt varð eftir i
hverfinu og gat ekki verið með i
mótmælagöngu þessari.
Tilgangurinn var að mótmæla
þvi, að mörg hundruð brezkir
hermenn komu inn i hverfið á
fimmtudaginn og segja ibúarnir,
að þar með hafi brezki herinn
gert hverfið að vigvelli og að lif
sitt sé i hættu. Fólkið hefur svarið
að snúa ekki heim, fyrr en her-
mennirnir séu farnir með allt sitt
hafurtask.
1 Londonderry lýsti leiðtogi
öfgafyllri arms IRA þar, yfir að
ekki væri að tala um, að samtök
hans samþykktu annað vopnahlé.
Sprengingum og hryðjuverkum
yrði haldið áfram.
SPANDAU-VIST HESS
ER 25 ÁRA í DAG
NTB-Berlin
i dag cru liftin 25 ár síftan Ru-
dolf Hess, mafturinn, sem var
staftgengill llitlers, var fluttur i
Spandau-fangelsift i V-Berlin. 1
Spandau hefur liann siftan setift og
verift eini fanginn þar siðustu sex
árin.
Spandau-fangeisið er rekið i
sameiningu af Bandarikjamönn-
um, Rússum, Bretum og Frökk-
um og kostar um 20 (isl) milljónir
á ári að halda þvi við. Er þar með
óhætt að slá þvi föstu, að Hess sé
dýrasti fangi heims.
Nazistaforinginn fyrrverandi
var handtekinn árið 1941, eftir að
hann tók það upp hjá sjálfum sér
að fljúga til Skotlands til friðar-
viðræðna við Breta. Allir þeir,
sem dæmdir voru til fangelsis-
vistar við réttarhöldin i Núrn-
berg, voru fluttir til Spandau, en
1966 voru tveir þeir siðustu látnir
lausir. Vesturveldin hafa mörg-
um sinnum reynt að fá Hess
náðaðan, en Rússar visað öllum
slikum uppástungum á bug.
GADDAFI HEFUR ENN
TÖGLIN 0G HALDIRNAR
NTB-Kairó
Ný stjórn i Libýu var i gær tekin
i eið af formanni byltingarráðs-
ins, Muammar Gaddafi ofursta.
Tilkynningin um þetta batt endi á
allar sögusagnirnar undanfarna
daga um að Gaddafi, „sterki
maðurinn” i Libýu, hefði verið
settur af og stungið i stofufang-
elsi.
Siðustu fréttir benda eindregið
til þess, að Gaddafi, sem stjórn-
aði byltingunni 1969, hafi enn öll
völd i sinum höndum, þvi tilkynnt
hefur verið, að hann muni verða
formaður sameiginlegs ráðs
stjórnarinnar og byltingarráðs-
ins.
Skattskrá Norðurlandsumdæmis eystra:
Læknar og lyfsalar raða
sér í efstu sætin
SB-Reykjavík
Skattskrá Norftur landsum -
dæmis eystra, sem nær frá Ólafs-
firfti til Langaness, var lögft fram
á Akureyri i gær. Heildarupphæð
gjalda i umdæminu er
581.196.648.00 og er þetta rúmum
200 milljónum hærri tala en i
fyrra. Hallur Sigurbjörnsson
skattstjóri, sagfti Timanum i gær,
aft nú væri kerfift dálitift öftruvisi,
þannig aft nú litu menn á tekju-
skattinn i staft útsvarsins, sem
áftur var hæsta talan.
Tekjuskattur lagður á i um-
dæminu nemur 317.668.992.00 og
eignaskattur 24.015.404.00. Útsvör
Akureyringa einna eru
134.221.300.00 og eru gjaldendur
þeirra 4028 og aðstöðugjöld á
Akureyri eru 25.135.600.00 á 515
gjaldendur.
Eftirtaldir einstaklingar greiða
hæstan tekjuskatt á Akureyri:
Sigurður Ólafsson læknir
597.093.00, Baldur Jónsson læknir
591.981.00 og Baldur Ingimarsson
lyfjafræðingur 470.750.00. Hæst
útsvör á Akureyri bera þessir ein-
staklingar: Baldur Jónsson
læknir 184.200.00, Sigurður Ólason
læknir 180.700.00 og Eirikur
Sveinsson lækr.ir 162.000:00.
Hæstu aðstöðugjöld einstaklinga
bera: Oddur C. Thorarensen lyf-
sali 205.500.00, Frimann
Gunnlaugsson kaupmaöur
143.900.00 og Valdimar
Baldvinsson heildsali 134.700.00
Hæstan tekjuskatt fyrirtækja
greiðir KEA, 3.472.816.00, og Út-
gerðarfélag Akureyringa
2.114.595.00. KEA greiðir einnig
hæst aðstöðugjald félaga,
5.393.300.00, SIS greiðir
3.577.700.00 Og Ú.A. 1.110.400.00
Hæsti gjaldandi tekjuskatts i
umdæminu öllu er Johns Manville
h.l'. á Húsavik með 10.068.672.00
og hæsti einstaklingurinn er
einnigá Húsavik, Ólafur Ólafsson
lyfsali en hann hefur 618.380.00 i
tekjuskatt og 190.700 i útsvar.
Kom með
virkt
tundurdufl
til Eyja
SK-Vestinannaeyjuni.
Togbáturinn lleimaey frá
Vestmannaeyjum fékk tund-
urdnfl i vörpuna i gær. Tund
urduflið var látift á dekkift og
siglt meft þaft til Eyja. Svo
vel vildi til aö varftskipift
óftinn var þar i höfn, og eins
og á öðrum varftskipum, er
þar sprengisérfræftingur um
borft.
Var hann fenginn til aö lita
á gripinn á dekkinu á Heima-
ey og reyndist duflift virkt,
en var þaft ekki lengur þegar
sérfræftingurinn var búinn
aft fara höndum um þaft.
Tundurdufl þetta er frá
striösárunu m.
Okamoto
í lífstíðar-
fangelsi
NTB-Tel Aviv.
Kozo Okamoto, Japaninn,
sem einn lifði af árásina á
Lydda-flugvelli i Israel fyrir
7 vikum, var i gærkvöidi
dæmdur i lifstiðar fangelsi.
Fyrr um daginn hafði hann
íátað sig sekan af öllum
ákæruatriðum. Akærandi fór
þess á Ieit við réttinn, að
hann þyrmdi lifi Okamotos,
en tæpiega mun það vera
greiði við hann, þar sem
hann hefur frá upphafi kraf-
izt þess að fá að deyja sem
fyrst.
Þriftjudagur. 18, júli. 1972 j
Hitabylgja
í N-Svíþjóð
NTB-Stokkhólmi.
Undanfarnar þrjár vikur hefur
gengið yfir Norður-Sviþjóð
lengsta hitabylgja i manna minn-
um. Frá 25. júni til 16. júli hefur
meðaldagshitinn verið kring um
30 stig norðan við heimskauts-
bauginn.og slær þetta öll met i
sögu hitamælinga i Sviþjóð.
Þessu góða veðri hafa þó fylgt
þrumuveður og miklar regnskúr-
ir, sem sums staðar hafa valdið
flóðum.
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR 29.1
bjóðum við MELKA skyrtur
Því MELKA býður mesta úrvalið af litum,
sniðum oq mvnstrum. Einnig fleiri en eina
bolvídd, til þess að ein þeirra hæfi einmitt
yður. Fallegur flibbi svarar einnig kröfum
yðar og ekki sakar að hann haldi alltaf
formi. MELKA skyrta er vel slétt eftir hvern
þvott og frágangur alltaf fyrsta flokks.
VI f) LÆKJARTORG
Við bjóðum yður MELKA skyrtur vegna
þess að þær eru klæðskerahönnuð qæða-
vara á hóflequ verði.