Tíminn - 20.07.1972, Síða 1

Tíminn - 20.07.1972, Síða 1
IGNðS UPPÞVOTTAVÉLAR RAFIÐ JAN RAFTORG SÍMI: 19294 SÍMI.: 26660 kæli- skápar 2>Aáf<<c/tPcfa/t A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 Það var Ijótt um að Iltast á Trésmiðjaverkstæði Björns Ólafssonar i Hafnarfirði eftir brunann i fyrri- nótt. Tjónið er lika metið á um 10 milljónir króna. (Timamynd G.E.) MIKIÐ TJÓN í TRÉSMIÐJU- BRUNA í HAFNARFIRÐI Aðeins einn vatnshani, og þar lítið vatn að hafa í hverfinu, sem er þó stærsta iðnaðarhverfið í bænum Deilan um ákvæðisvinnu leyst með fundarsamþykkt Oó-Heykjavík. Samkomulag það, sem samn- inganefndir Félags ísl. rafvirkja og Félags löggildra rafvirkja- meistara gerðu á þriðjudags- kvöld, var samþykkt á fundum félaganna i gær, og er rúmlega mánaðarlöngu verkfalli rafvirkja þar með lokið. Fundurinn i Félagi isl. raf- virkja var sá fjölmennasti, sem haldinn hefur verið i sögu félags- ins. Stóð hann yfir i þrjá tima og tóku margir til máls og höfðu sitt hvað um samkomulagið að segja, en að lokum var það samþykkt með nokkrum meirihluta at- kvæða. 1 byrjun fundarins var eftirfar- andi samþykkt einróma: Al- mennur félagsfundur i Félagi isl. rafvirkja, haldinn i Félagsheimil- inu miðvikudaginn 19. júli 1972, samþykkti eftirfarandi tillögu. 1 tilefni aðdraganda þeirra samn- inga, sem nú liggja fyrir fundin- um til afgreiðslu, samanber al- gjöra neitun F.L.R.R. og L.l.R. á að verða á nokkurn hátt við kröf- um samkvæmt öðrum kröfulið i sérkröfu Rafiðnaðarsambands Islands og F.I.R. og i framhaldi af yfirlýsingu Rafiðnaðarsam- bands Islands, dagsettri 18. júli 1972, samþykkir fundurinn, að félagsmönnum F.l.R. sé óheimilt, að vinna að nýlögnum eða meiri háttar breytingum á lögnum, nema samkvæmt ákvæðisverð- skrá þar sem þvi verður tækni- lega við komið. I stórum dráttum eru samn- ingarnir þannig, að samið var um aðbúnað og hollustuhætti á vinnu- stöðum. Samið var um aö taka megi upp hvetjandi launakerfi við þau störf, sem ekki veröa unnin i ákvæðisvinnu. Samið var um að þeir rafvirkj- ar, sem lokið hafa framhaldsdeild Tækniskólans fái 25% álag á sitt kaup. Þá var samið um að kjör nema skyldu vera sambærileg við kjör nema i öörum iðngreinum. Klp-Reykjavik. Mikið tjón varö i fyrrinótt, er eldur kom upp i Trésmiðju Björns Ólafssonar i Hafnarfirði. Brann þar mikiö af timbri og einnig til- búnar hurðir og gluggakarmar, sem átti að afhenda i dag. Einnig urðu miklar skemmdir á vélum og á stórum hluta hússins. Maður, sem átti leið um Reykjavikurveg um kl. 3 i fyrri- nótt, var eldsins var og gerði slökkviliðinu i Hafnarfirði við- vart. Þegar þaö kom á staðinn var mikill eldur i annari álmu hússins, sem er nýlegt, og rúður farnar að springa úr gluggunum af hita. Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins, en þó ekki fyrr en hann hafði valdið miklu tjóni. ,,Ég held að svona lauslega reiknað, sé tjóniö ekki undir 10 milljónum króna,” sagði eigandi verkstæðisins Björn Ólafsson, er við hittum hann, þar sem hann var að virða fyrir sér skemmdir- nar. „Það er aðallega efni, unnið og óunnið, sem hefur skemmzt, þ.á.m. yfir 100 svalahurðir fyrir Breiðholt h.f. og gluggakarmar i 13 einbýlishús, sem starfsmenn tsal eru að byggja á Flötunum. Þetta átti að afhenda nú næstu daga, enda svo til tilbúið. Einnig hafa orðið miklar skemmdir á húsinu og á vélum, en þarna var t.d. ein ný vél, sem við tengdum fyrir hálfum mánuði. Eru allar vélarnar hálf ónýtar eða ónýtar meö öllu. Plastklæðning var i loftinu, en ekki var búið aö ganga fullkom- lega frá henni. Plastið hefur allt bráðnað og lekið niöur á efnið og vélarnar og valdið enn meiru tjóni, þvi það hefur sviðið stór göt á tilbúna hluti, sem höföu annárs sloppið frá að verða eldinum að bráð. Ef ekki hefði verið stillilogn þegar eldurinn kom upp, hefði trú lega allt brunnið til kaldra kola þvi nægur var eldiviðurinn bæöi úti og inni. I hverfinu þar sem húsiö er, er enginn vatnshani nema einn, sem er upp við Bila- ver, og þar litiö vatn að hafa. Þetta er þó stærsta iðnaðarhverfi Hafnfirðinga og þar margar verksmiðjur og verkstæöi. Það varð slökkviliöi Hafnarfjarðar til hjálpar i þessum bruna, að tank- bill sá semHafnarfjarðarbærá, og notaður er til að ná úr stiflum úr salernum, var við hendina fullur af vatni. Var hægt að nota hann til að flytja vatn á milli meðan að á slökkvistarfinu stóð. Aburðarverksm iðjan: Nýju tækin reynd fljótlega EB-lteykjavik Stækkun verksmiðjunnar hefur gengið sæmilega, en við höfum orðið fyrir mánaðartöf vcgna veikfalls rafvirkja, sagði Hjálmar Finnsson framkvæmda- stjóri Aburðarverksmiðjunnar i viðtali við Tiinann.Hann sagði, að búi/.l væri við, að liægt yröi að byrja að reyna hin nýju tæki verksmiðjunnar sfðsumars. Hjálmar sagði, að þegar farið yrði að starfrækja hin nýju tæki yrði hægt að framleiða á ári 60-65 þúsund lestir af ýmsum áburðar- efnum á ári,en hámarksfram- leiðsla verksmiðjunnar eins og hún er nú, er um 24 þúsund lestir. Samkvæmt upplýsingum Hjálmars verður kjarnafram- leiðsla verksmiðjunnar eins og hún er nú minnkuð verulega. 1 stað hins fingerða kjarna, kæmi grófkornaður kjarni og blandaður áburður yröi aö sjálfsögöu fram- leiddur í verulegum mæli. Óska eftir bindandi úrskurði Haag-dómstólsins Brezka stjórnin lagði i gær landhelgismálið fyrir Haag-dóm- stólinn með ósk um, að dóm- stóllinn kvæði upp bráðabirgða- úrskurð i málinu. Brezka utan- rikisráðuneytið skýröi frá þvi i gær, að þess væri óskað, að þessi bráöabirgðaúrskurður yrði bind- andi fyrir báða aöila — þ.e. Breta og Islendinga. Stórbagaleg vætutíð um mikinn hluta landsins Heyfengur getur að vísu orðið mikill, en grasið er orðið trénað og fóðurgildið farið að rýrna .. .. Sigrún Magnúsdóttir. K0NA RAÐIN KAUP FÉLAGSSTJÓRI JH-Reykjavik. Heyskapur hefur gengið bág- lega fram að þessu, einkum þó sunnan lands og vestan, þar sem ckki hefur gefizt neinn þerrir aö gagni, sagöi Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri við blaðið i gær. Menn hafa dregið við sig að slá, og óslegin tún eru orðin mjög úr sér sprottin, svo að útséð er um, að af þeim fáist svo gott hey sem skyldi, hvernig sem hey- skapartið veröur siöar i sumar. Norðan lands og austan er bet- ur ástatt, sagöi Halldór — einkum norðaustan lands, þótt þar væri viða votviðrasamt i meira lagi framan af mánuðinum, þvi að góðir dagar hafa komið upp á siðkastið, þó hafa oft skúrir dottið niður hér og þar. — Það er bót i máli, sagði Hall- dór, að allviða hafa menn slegið til votheysverkunar, en samt hafa jafnvel sumir, er geta verkaö vot- hey, ekki notað sér það til hlitar. Orsakirnar eru tvær: Þeir vilja heldur slá há og siðsprottin ný- ræktarlönd til votheysverkunar, og þeim hefur fundizt grasið of blautt til votheysgerðar. Svo er það talsvert misjafnt eftir landshlutum, hversu mikil rækt er lögö við votheysgerö. Vestfirðingar og Strandamenn eru þar fremstir, og þess vegna verður bagi þeirra minni, þótt óþerrasamt sé. Heyfengur getur orðið mikill, en ekki góður Grasspretta er mikil, svo að segja um allt land, þótt sið- sprottnarayrði en liklegt var talið snemma vors, og heyfengur getur vitaskuld orðið mikill, ef vel viðr- ar nú næstu vikur. En grasið er orðiö svo trénað, að heyið verður ekki sem bezt fóður, og þeim mun lakara verður það, sem lengur kann að þurfa aö biða góðs þerris. Getur orðiö mikið tjón þeirra, sem ekki hafa hallað sér aö vot- heysgerðinni. Mikil önn, ef blæs af og birtir til Létti til i þeim landshlutum, þar sem óþerrarnir hafa verið bagalegastir fram að þessu, koma miklir annadagar, og verð- ur þvi þá tjaldað, sem til er, til þess að slá mest og þurrka, og ekki spurt um lengd vinnudags. Þegar svo stendur á, er fólk i sveitum undir sömu lögum og fólk isjóþorpunum i miklum aflahrot- um: Það gildir að koma sem mestu undan sem allra fljótast. ÞÓ-Reykjavík Það hefur gerzt í fyrsta skipti hérlendis, að kona hcfur verið ráðin kaupfélagsstjóri. Það er Sigrún Magnúsdóttir, sem verður kaupfélagsstjóri Kaupfélags Bitrufjarðar á Óspakseyri. Sigrún sagði i viðtali við blaðið i gær, að hun væri búin að starfa i 7-8 ár hjá kaupfélaginu á óspaks- eyri, og sá hún um bókhaldið, ásamt föður sinum, Magnúsi Kristjánssyni á Þambárvöllum. Einar Magnússon, sem veriö hefur kaupfélagsstjóri á Óspaks- eyri hætti störfum nú nýlega ofe tók Sigrún við 1. júli s.l. Sigrún sagði að hún hefði litið hugsaö útiþaö, aö hún væri fyrsti kvenkaupfélagsstjórinn á landinu, en kvað ekki veita af, að kvenfólkið fengi sin tækifæri. Um 30 starfsmenn eru i Kaup- félagi Bitrufjarðar, sem rekur verzlun og sláturhús á Óspaks- eyri.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.