Tíminn - 22.07.1972, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Laugardagur 22. júli 1972
Hmmnf
PflPPlRS
handþurrkur
A.A.PALMASON
Simi :{-4fi-48.
Landsias (fróðnr
- jpAar hróðnr
bCnaðarbanki
ÍSLANDS
Bréf frá
lesendum
FYRIKSPURN
Af gefnu tilefni óska ég ein-
dregið aö fá eftirfarandi fyrir-
spurnir birtar.
Þann 3. mai s.l. varð stórslys
um borð i m/s SÆRÚNU tS 9, þar
sem hún var að veiðum fyrir suö-
austan land, og liggur hinn slas-
aði enn i sjúkrahúsi. Um atburö
þennan hef ég ekki heyrt getið i
útvarpi.eða séð sagt frá honum i
fréttum blaðanna. Mér verður þvi
á að spyrja:
1. Hvers vegna hefur ekki verið
sagt opinberlega frá svona alvar-
legu slysi, ef það gæti orðiö öörum
til viðvörunar?
2. Hvar og hvenær fóru fram
4®
Urvals hjólbaróar
Flestar gerÓir ávallt
fyrirliggjandi
Fljótoggóöþjónusta
KAUPFELAG
RANGÆINGA
HVOLSVELLI
% >V &
Getum útvegað með stuttum fyrirvara
liinar
yinsælu haugsugur frá
Guðbjörn Guðjónsson
IIEILDVERZLUN
Siðumúla 22 — Simar 85694 og 85295
Iffl! lil
if jmuÆ! , Í lllm.lll,,
sjópróf vegna slyssins og hvað
leiddu þau i ljós?
Þess er vænzt, að viðkomandi
aðilar svari þessu tafarlaust.
Þökk fyrir birtinguna.
Sigurður Pálsson,
Þuriðarbraut 5, Bolungarvik.
KKKÐAKOLK
iVANDÆDUM
Margt er talað um ferðamál, en
umhyggjusemin er ekki ævinlega
á marga fiskana. Mér rennur til
rifja að horfa upp á fólkið af
skemmtiferðaskipunum, himandi
undir veggjum Hafnarbúöai roki
og rigningu eins og oft ber við,
komið úr ferðum þeim, sem fariö
hefur verið með það út úr bænum,
biðandi eftir þvi að komast i bát-
ana, sem flytur það milli lands og
skips.
Iðulega er margt af þvi i stand-
andi vandræðum. Það kemst
hvergi á salerni, þótt þörfin kalli
að,hvað þá annað. En Hafnarbúð-
ir standa auðar — eru til einskis
notaðar. Væri ekki vit i þvi að
hafa einhvern sölukrók þar inni?
Lágmarkskrafa er hitt, að þetta
fólk geti einhvers staðar bjargað
brókum sinum, svo að látið sé
lönd og leið, hvort það á að húsa-
skjóli að hverfa að öðru leyti á
meðan það biður.
Þessu ættu borgaryfirvöldin að
geta ráðið fram úr án mikilla
harmkvæla eða vafninga, þar
sem þau standa þarna uppi með
autt og ónotað hús.
F.
„GLKYMDU EKKI GÓÐUM
VIN".
Miðvikudaginn 5. júli s.l., i
sumarvöku hljóðvarpsins, var
meðal annars fluttur visnaþáttur
tekinn saman af Braga Jónssyni
frá Hoftúnum. Þar var visan
„Gleymdu ekki góðum vin” —
eignuð manni, sem ég kannaðist
ekki viö, og festist mér ekki nafn-
ið i minni.
Fyrir meira en 30 árum sá ég
visu þessa i „Poesibók" á bæ
nokkrum i Mýrasýslu. Sá, er-
festi visuna þar á blað þóttist hafa
ort hana sjálfur, að þvi er mér
var tjáð. Nafn hans man ég ekki,
en ég spurðist eitthvað fyrir um
manninn, meðal annars, hversu
gamall hann væri. Um aldurinn
man ég það eitt, að „höfundur-
inn" var fæddur á þessari öld. Nú
er það svo, að þessi visa var al-
kunn á Norðurlandi, fyrir það
fyrsta um Húnavatns- og Skaga-
fjarðarsýslur fyrir s.l. aldamót,
og ég mun hafa lært hana árið
1899, þá á 6. ári. En visa þessi er
eftir föður minn, Jón Ásgeirsson á
Þingeyrum, sem andaðist árið
1898.
t bókinni, Sagnaþættir úr Húna-
þingi, eftir Theodór Arnbjörnsson
ráðunaut frá Ósi, er visan rétti-
lega eignuð föður minum og
hljóðar svo:
„Gleymdu ekki góðum vin,
þó gefist aðrir nýir,
þeir eru eins og skúraskin,
skyndilega hlýir".
Hinsvegar lærði ég siðari helm-
inginn þannig:
—„þeir eru likt og skúraskin,
skammvinnir en hlýir".
Jafnaldri minn og sýslungi,
Guðmundur Jósafatsson frá
Brandsstöðum, kann visuna einn-
ig svo, enda virðist hún liklegri
þannig.
Ég er fyrir löngu hættur að
kippast upp við að heyra visur
föður mins eignaðar öðrum. Hann
á orðið fáar eftir. Ég bið aðeins
eftir að einhverjum öðrum verði
eignuð visan hans um Létti:
„Það er mas úr þér. vinur,
þetta: „Léttir dettur".
®Grwðnm laudið
grcynuini fc
JtíNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Aldrei rasar reiðskjótur
rétt á sprettinn settur".
Ef til vill tekst það með timan-
um?
1 sjálfum sér er ekkert undar-
legt, þó að timans tönn breyti
höfundarrétti lausavisna, sem
ekki eru bókfestar. Til þess geta
legið ýmsar ástæður. Algengust
mun sú, að hagyrðingur kveður
eöa hefur yfir visu, sem
áheyrandi lærir og heldur vera
eftir þann er kvað, þótt svo sé
ekki. — Til er sú mjög sjaldgæfa
tilviljun, að 2 menn geri svo að
segja orði til orðs sömu visuna.
Ég hef heyrt eitt dæmi um heila
visu og annað um hálfa og jafn-
framt efnislega alla. Ekki er það
nú meira eftir hálfrar aldar flakk
um landið.
Já, það er liklega litill skaði
skeður, þótt landsfleygar stökur
veröi föðurleysingjar, eða séu
rangt feðraðar. Þær verða von-
andi hvort eð er varanleg, vel-
metin þjóðareign, þrátt fyrir nú-
verandi óljóðafaraldur orðvana
múgs. — Hins vegar er furðulegt,
að til skuli hafa verið menn, er
gátu lagzt svo lágt, að eigna sér
annarra manna visur, en um það
hef ég heyrt nokkur dæmi.
Asgcir L. Jónsson.
Frá Garðyrkjuskóla
ríkisins
Starf matráðskonu við mötuneyti Garð-
yrkjuskóla rikisins á Reykjum i ölfusi er
laust til umsóknar frá 1. okt. (eða 1. sept.)
n.k. Einnig er laust starf aðstoðarstúlku i
eldhúsifrá 1. október. Umsóknir um störf-
in ásamt upplýsingum um fyrri störf
þurfa að berast til skólastjóra Garðyrkju-
skólans fyrir 10. ágúst n.k. Allar nánari
upplýsingar veittar i sima 99-4248.
Skólastjóri.
HEYÞYRLA OSKAST
Vil kaupa strax notaða 2ja stjörnu hey-
þyrlu. Tilboð og lýsing sendist afgreiðslu
blaðsins fyrir 28. júli merkt „Heyþyrla 2.”
Laus staða
Staða iþróttakennara stúlkna við Mennta-
skólann á Akureyri er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og starfsferil skulu hafa borizt mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja-
vik, fyrir 15. ágúst n.k.
Menntamálaráðuneytið,
17. júli 1972.
Laus staða
Kenarastaða við Menntaskólann á
Laugarvatni er laus til umsóknar.
Kennslugreinar stærðfræði og eðlisfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og starfsferil skulu hafa borizt mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja-
vikjavik, fyr-ir 15. ágúst n.k.
Menntamálaráðuneytið,
17. júli 1972