Tíminn - 22.07.1972, Qupperneq 11
Laugardagur 22. júli 1972
TÍMINN
11
Synirnir feta í
fótspor foreldranna
Umsjón:Alfreð Þorsteinsson
Erfiðir leikir hjá
Fram og Akranesi
- í 1. deildarkeppninni í dag
Nást OL-
lágmörk
um helgina?
Alf-Reykjavik.
Sundmeistaramót íslands,
sem hófst fyrr i vikunni,
verður haldið áfram um
helgina . Hefstkeppnin í dag i
Laugardalslauginni kl. 16, en
á morgun, sunnudag, hefst
hún kl. 15.
Búast má við mjög
skemmtilegri og spennandi
keppni. Má segja, að þetta
mót sé aðalúrtökumót sund-
manna fyrir Olympiuleikana
— og fróðlegt að vita, hvort
einhverjum þeirra tekst að
ná lámarkstima.
Selfyssingar sigruðu
Færeyjameistarana HB 4:2
- HB lék þrjá leiki á viku og sigraði í tveimur. í liðinu er
uppistaðan í landsliði Færeyja.
Færeyjameistararnir HB i
knattspyrnu, hafa leikið hér á
landi þrjá knattspyrnuleiki að
undanförnu, tvo leiki austur á
fjörðum og einn á Sclfossi. HG
vann báða leikina á Austfjörðum,
fyrst l>rótt frá Neskaupstað 4:2
og svo Austra frá Eskifirði 7:2. Sl.
miðvikudagskvöld léku svo HB
gegn 2. deildarliöi Selfossogniátti
þola tap 2:4. Leikurinn á Selfossi
var hinn fjörugasti og sköpuðust
oft skemmtileg tækifæri hjá báð-
um liöum.
1 byrjun fyrri hálfleiks átti Ósk-
ar Marelsson, hörkuskot, sem
small i stöng. Eftir það ná Færey-
ingarnir tökum á leiknum og
skora sitt fyrsta mark á 25. min.
og var það Heri Nolsöe, sem skor-
aði það. Selfyssingar jafna svo úr
vitaspyrnu á 37. min. Sumarliði
Guðbjartsson, komst inn fyrir
vörn HB, en var skellt við mark-
teig. Á brotið var ekki hægt ann-
að, en að dæma viti sem Sumar-
liði skoraði úr.
Á hinni sigildu 43. min. skora
svo Selfyssingar sitt annað mark
— Sigurður Reynir, einlék i gegn-
um vörn HB og renndi knettinum
örugglega fram hjá markverði og
var staðan þá 2:1 fyrir Selfoss.
Tryggvi Gunnarsson, skoraði
svo þriðja mark Selfyssinga á 18.
min. siðari hálfleiks, með glæsi-
legu skoti. Hann fékk sendingu
fyrir markið frá Kristni, sem
hafði leikið upp kantinn að enda-
mörkum. Stuttu siðar bæta Sel-
fyssingar, sem voru búnir að ná
tökum á leiknum, sitt fjórða
mark. Markið skoraði Sumarliði,
með þrumuskoti — óverjandi —
knötturinn lenti neðst i mark-
horninu. Eiriki Rasmussen, lik-
aði ekki svona ógestrisni hjá
heimamönnum, sem voru að
vinna leikinn og senda gestina
(HG) með tapleik i bakpokanum
heim, heldur skoraöi hann stór-
glæsilegt mark á 30. min. svona
til að minna Selfyssinga á að hann
hafi leikiðá Selfossi. Endaði leik-
urinn þvi 4:2 fyrir heimamenn,
sem hafa ekki tapað á heimavelli
i ár.
Beztu mennirnir i Selfossliðinu,
voru Einar Sigfússson og marka-
kóngurinn i 2. deild, Sumarliði
Guðbjartsson. Annars átti liðið i
heild, ágætis leik.
Bezti leikmaðurinn i færeyska
meistaraliðinu, var miðherji liðs-
ins Heri Nolsöe sem er mjög leik-
inn leikmaður og fljótur. BB/SOS.
Það skortir ekki íþróttaáhuga. i fjölskyldu Þórhalls Einarssonar, lögfræðings. Sjálfur cr Þórhallur
gamalkunnur knattspyrnumaður, varð tslandsmeistari með Fram 1939, 1946 og 1947, og tók auk þess
þátt i fyrsta landsleik islendinga gegn Dönum 1946. Kona hans, Hulda Pétursdóttir, var með snjöllustu
handknattleikskonum landsins og varð tslandsmeistari meöFram i handknattleik, en áður lék hún með
Völsungum á Húsavik og Akureyri.
Og nú fcta synir þeirra hjóna i fótspor foreldranna. Tveir elztu synirnir, Einar og Hinrik, eru báðir
fastir liðsmenn i 1. deildar liði Breiðabliks, og yngsti sonurinn Þórarinn, sem er 12 ára gamall, leikur
með 5. flokki Breiðabliks.
Myndin var tekin eftir sigúrleik Breiðabliks gegn Viking á dögunum. Frá vinstri: Hulda, Einar,
Hinrik, Þórarinn og Þórhallur.
MÍ í frjálsum íþróttum kl. 14 í dag:
Á annað hundrað kepp-
endur frá 14 félögum
ÖE-Reykjavik.
Meistaramót tslands i frjálsum
iþróttum hefst á Laugardalsleik-
vanginum i dag kl. 2 og heldur
áfram á morgun á sama tima. 1
gær birtum við spá um úrslit fyrri
dags mótsins, en i dag koma spá-
dómar um keppni sunnudagsins
og einnig um greinarnar annað-
kvöld, en þá hefst keppni kl. 7.
110 m grindahlaup:
Keppendur eru fjórir og spurn-
ingin er, hvor sigrar Valbjörn
Þorláksson, Á, eða Borgþór
Magnússon, KR? Viö spáum Val-
birni sigri, en mjótt verður á
mununum.
100 m hlaup:
Þrettán keppendur eru skráðir
og Bjarni Stefánsson, KR er
öruggur um sigur, en baráttan
verður hörð um næstu sæti.
1500 m hlaup:
Þessi grein er fjölmennust allra
karlagreinanna, 17 keppendur
skráðir og verður hlaupið i tveim-
ur riðlum. Timinn spáir Ágústi
Ásgeirssyni, 1R sigri, en keppni
verður skemmtileg.
4x400 m boöhlaup:
KR sigrar, en aðeins 3 sveitir
eru skráðar.
Þristökk:
t fjarveru Friðriks Þórs
Óskarssonar, !R verður keppni
hörð. Baráttan stendur milli
Karls Stefánssonar, UMSK og
félaga hans Helga Haukssonar.
Okkar spá er: Karl Stefánsson.
Stangarstökk:
Þetta verður ein af þessum
spennandi greinum. Baráttan
stendur milli Guðmundar
Jóhannessonar, IRog Valbjarnar
Þorlákssonar, Á. Guðmundur
sigraði i fyrra og við spáum Val-
Frh. á bls. 15
Lára Sveinsdóttir verður meðal keppenda i langstökki siöari dag keppn-
innar.
Alf-Reykjavík.
Toppliö 1. deildar utn
þessar mundir, Fram, sem
er i efsta sæti, og Akranes,
sem er i öðru sæti með
tveimur stigum færra,
leika bæði um helgina.
Framarar halda til Vest-
mannaeyja og leika gegn
heimamönnum kl. 16. og á
sama tíma leika Akurnes-
ingar og KR-ingar á
Akranesi.
Báðir leikirnir geta orðið jafnir
og spennandi. Yfirleitt hefur
Fram gengið vel i leikjum sinum i
Vestmannaeyjum, en mæta trú-
lega mjög harðri mótspyrnu nú,
þar sem Vestmannaeyingar eru
enn á fallhættusvæði og reyna
með öllum ráðum að bæta við
hinn fátæklega stigafjölda sinn.
KR-ingar léku vel gegn Fram
fyrr i vikunni og fróðlegt verður
að vita, hvernig þeim vegnar
gegn Akurnesingum, sem sótt
hafa i sig veðrið.
Staðan i deildinni ( fyrir leik
Vals og Breiðabliks i gærkvöldi )
er nú þessi:
Fram 7 5 1 1 15:6 12
IÁ 7 5 0 2 15:8 10
ÍBK 7 2 4 1 14:11 8
KR (i 3 1 2 10:8 7
Breiðabl. 7 2 2 3 7:13 6
Valur 6 2 1 3 11:11 5
ÍBV 5 1 1 3 9:11 3
Vikingur 7 0 l 6 0:13 1
Úrtökukeppni
í 10 greinum
ÖE-Reykja vik.
Á meistaramóti Islands i
frjálsum iþróttum, sem hefst
klukkan 2 i dag verður úr-
tökukeppni i nokkrumgrein-
um vegna landskeppninnar i
MO i Rana i Noregi um
næstu helgi. Þar keppa lið
frá öllum Norðurlöndunum,
nema Danmörku.
Úrtökukeppni verður i eft-
irtöldum greinum karla:
1500 m, 5000 m, hástökki, þri-
stökki, kringlukasti, sleggju-
kasti og spjótkasti. Konun
100 m grindahlaupi, lang-
stökki, kringlukasti og spjót-
kasti.