Tíminn - 25.07.1972, Blaðsíða 15
Þriftjudagur. 25. júli 1972
TÍMINN
15
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Stórskotahríð í
Vestmannaeyjum!
Leik ÍBV og Fram lauk með jafntefli, 4:4. -
Fram skoraði fjögur mörk í röð á örstuttum
tíma eftir að Eyjamenn höfðu náð 2:0forustu
Það er ekki of sterkt
til orða tekið, að leikur
Vestmannaeyinga og
Fram, sem háður var i
Eyjum s.l. laugardag,
hafi verið æsispennandi.
Áhorfendur, sem voru
fjölmargir, fengu að sjá
flest af j)ví, sem góður
knattspyrnuleikur hefur
upp á að bjóða, nefni-
lega spennu, hraða,
ógætan samleik á
köílum— og siðast en
ekki sizt mörk, en þau
urðu 8 talsins, en
leiknum lauk með jafn-
tefli, 4:4.
Miðað við gang leiksins voru
þetta sanngjörn úrslit. Til að
byrja með leit út fyrir öruggan
sigur Eyjamanna, sem skoruðu
tvöfyrstu mörkin, en i siðari hálf-
leik tóku Framarar heldur betur
við sér og skoruðu fjögur mörk i
röð. Sennilega hefur flest 1.
deildar lið,önnur en IBV, brotnað
eftir slika stórskotahrið, en
heimamenn létu engan bilbug á
sér finna og tókst að jafna stöð-
una fyrir leikslok.
Leikurinn á laugardaginn var
háður við hin beztu skilyrði,
sólarlausu veðri og logni. Fljót-
lega kom i ljós, að Eyjamenn
ætluðu að selja sig dýrt i leiknum
á móti toppliði 1. deildar. Þeir
gáfu ekkert eftir og gerðu harða
hrið að marki Fram. Fremstur j
flokki var Ásgeir Sigurvinsson,
sem lék stórkostlega vel og var
áberandi bezti leikmaður vallar-
ins. Hann gerði hvort tveggja i
senn — lék samherja sina upp —
og ógnaði markinu. Og það var
einmitt hann, sem skoraði fyrsta
mark tBV á 20. minútu leiksins
eftir fyrirgjöf frá Tómasi Páls-
syni. Þetta var eina markið, sem
skorað var i fyrri hálfleik, en
fljótlega i siðari hálfleik skoraði
Sævar Tryggvason — sem kom
inn á fyrir Harald Júliusson —
laglegt mark með skalla.
Eftir þetta mark var eins og
Fram-liðið vaknaði af vondum
draumi. Erlendur Magnússon var
tvivegis á ferðinni við mark Vest-
mannaeyja með stuttu millibili og
skoraði i bæði skiptin. Og
skömmu siðar skorar Marleinn
Geirsson eitt af sinum frægu
skallamörkum. Þannig var
staðan orðin 3:2 Fram i vil. Og
Framarar höfðu ekki sagt sitt
siðasta orð, þvi að.Kristni
Jörundssyni tókstað skora fjórða
mark Fram rétt á eftir. öll þessi
fjögur mörk Fram komu á tiltölu-
lega skömmum tima, 15-20
minútum.
En það verður að segja liði IBV
til hróss;að leikmenn þess gefast
yfirleitt ekki upp, þótt á móti
blási. Á þeim 15 minútum, sem
eftir voru, tókst þeim að jafna
stöðuna og tryggja sér þar með
annað stigið. Tómas Pálsson
skoraði á 30. minútu — og þremur
minútum siðar skorar Asgeir
Sigurvinsson með föstu skoti
jöfnunarmarkið, 4:4, við mikinn
fögnuð áhorfenda.
Sem fyrr segir, var leikurinn
hinn skemmtilegasti, eins og
oftast, er, þegar mörg mörk eru
skoruð. Af einstökum leik-
mönnum IBV bar Asgeir Sigur-
vinsson af, en Tómas, Sævar og
Ólafur áttu einnig ágætan dag. 1
liði Fram bar einna mest á
Erlendi Magnússyni. Marteinn
Geirsson er alltaf traustur
varnarleikmaður og fékk hann
ágætan stuðning frá Ómar.
Arasyni, staðgengli Sigurbergs.
Hins vegar veikti það vörn Fram
talsvert, hve glannalega Agúst
Guðmundsson, bakvörður lék, og
Þorbergur Atlason hefur oftast
verið öruggari i markinu.
Leikinn dæmdi Kagnar Magnús-
son ágætlega.
—bs.
Nú er
það fyrst
spennandi!
Spennan í i. deildar
keppninni er i hámarki eftir
sigur Akraness gegn KR og
jafnteflisleik Fram i Vest-
mannaeyjum, þvi að nú skilur
aðeins 1 stig á milli Fram og
Akraness, en þessi lið mætast
á Akranesi 12. ágúst n.k. En
næsti leikur i deildinni verður
háður i kvöld á Laugardals-
vellinum milli Vikings og
Keflavikur og hefst kl. 20.
Staðan i deildinni er nú
þessi:
Fram 8 5 3 0 19:10 13
Akranes 8 6 0 2 18:10 12
Keflav. 7 2 4 1 14:11 8
Breiðabl. 8 3 2 3 8:13 8
Valur 7 2 14 11:12 5
Vestm. 6 12 3 13:15 4
Vik. 7016 0:13 1
Markaregn
á Akureyri
Lið Akureyrar átti ekki i nein-
um erfiðleikum með tsfirðinga i
2. deildar keppninni, þegar þessi
lið mættust i leik á Akureyri um
helgina, en leiknum lauk svo, að
Akureyringar skoruðu 7 mörk
gegn engu.
Enn færir Eyleifur Skagamönnum tvö
dyrmæt stig í 1. deildar baráttunni
- skoraði sigurmarkið gegn KR þegar fimm mín. voru til leiksloka
Það var Eyleifur Hafstcinsson,
sem bjargaði tveimur stigum
fyrir Skagamenn, þegar þeir
mættu KIÍ upp á Skaga s.l.
laugardag. Eins og menn muna
þá skoraði Eyleifur sigurmark
Akurnesinga i Eyjum á siðustu
sek. Ilaiin skoraði einnig sigur-
mark Skagamanna gegn KR
þegar 5 min voru til leiksloka og
dugði markið Skagamönnuni til
sigurs 3:2, sama markatalan og
var i Eyjum. Leikur Akurnesinga
og KR var nijög skemmtilegur og
oft á köflum vel leikinn, liðin áttu
mikið af marktækifærum sem
nvttust ekki. KR-ingar sóttu stift
fyrstu minúturnar i fyrri hálfleik
og markið ,,lá i loftinu”, en það
kom ekki fyrr en á 13. minútu.
Hörður Markan lék upp hægri
kantinn, gaf á Björn Pétursson,
sem sendi knöttinn fyrir mark
Skagamanna — Hörður Helgason,
markvörður stökk út og ætlaði að
handsama knöttinn.en hann náði
honum ekki — knötturinn barst til
Atla Héðinssonar, sem átti auð-
velt með að skalla i mannnlaust
markið. Eftir markið ná Skaga-
menn smátt og smátt tökum á
leiknum og þeim tekst að jafna
1:1 á 23. min. Var það Karl „litli”
Þórðarson, sem skoraði markið,
með góðu skoti af 20 metra færi,
knötturinn lenti undir þverslá al-
gjörlega óverjandi fyrir Magnús
Guðmundsson, markvörð KR.
Skagamenn ná svo forustunni á
35. min. Teitur Þórðarson, leikur
á Sigmund Sigurðsson, bakvörð,
þræðir svo á milli þriggja varnar-
manna og gefur laglega sendingu
út i vitateiginn til Jóns Alfreðs-
sonar, sem þrumar knettinum
efst i markhornið. Mjög laglega
unnið að markinu hjá Teiti og
Jóni. Siðustu min fyrri hálf-
leiksins jafnaðist leikurinn og
skiptust liðin á að sækja.
Á 16. min siðari hálfleiks tekst
KR-ingum að jafna 2:2. Hinn efni-
legi og sivaxandi leikmaður
Björn Pétursson tekur eitt af
sinum nákvæmu og hættulegu
hornspyrnum, knötturinn svifur
fyrir markið og beint i hausinn á
Atla Héðinssyni, sem þurfti ekki
annað en að breyta stefnunni á
knettinum og i netið. Eftir að hafa
skorað þetta mark, sækja KR-
ingar i sig veðrið og þeir fara að
sækja. Atli Héðinsson,komst einn
inn fyrir vörn Skagamanna á 21.
min en Hörður markvörður
bjargaði á siðustu stundu. Þarna
var Atli of seinn að skjóta á
markið. Stuttu siðar fá KR-ingar
aftur gullið tækifæri til að ná
forustunni í leiknum. Sigurður
Indriðason spyrnti himin hátt yfir
i dauðafæri. Skagamenn áttu lika
sin marktækifæri, á 26. min
skallar Jón Alfreðsson fram hjá
eftir hornspyrnu og tveimur min
siðar. veður Eyleifur upp
kantinn, alveg upp að enda-
mörkum, gaf fyrir.Teitur skaut
þrumuskoti, sem Magnúsi mark-
verði tekst að slá frá, knötturinn
hrekkur tii Andrésar Ólafssonar,
sem spyrnti viðstöðulausu skoti,
en knötturinn rétt strauk stöng.
Á 30. min kemur fyrir atvik,
sem heiliaði svo ungan Akurnes-
ing, að honum varö að orði við
félaga sinn: „Hann er bezti leik-
maður í heimi”, átti strákurinn
þá við Hörð Helgason, sem
bjargaði meistaral. þrumuskoti
Björns Péturssonar i. horn. Að-
dragandinn var þannig, að Atli
kemst einn inn fyrir vörn Skaga-
manna, lék upp að endamörkum
og gaf þaðan knöttinn út til
Björns, sem kom á fleygiferð og
skaut eitt af sinum hnitmiðuðu
skotum, knötturinn stefndi upp
undir þverslá, en þá var það sem
„Akraneskötturinn” Hörður
Helgason tók undir sig stökk, og
sló knöttinn yfir markið á siðustu
stundu. KR-ingar sækia stift eftir
þetta, en i miðri sókn þeirra ná
Skagamenn knettinum, Teitur
brunar upp kantinn, að enda-
mörkum og sendir góða sendingu
til Eyleifs, sem skaut, en
knötturinn fór rétt fram hjá.
Tveimur minútum siðar (40. min)
ná Skagamenn aftur upp skyndi-
upphlaupi. Teitur nær knettinum,
leikur fram völlinn og sendir
stungubolta til Eyleifs, sem
brunar fram og spyrnir föstu
skoti frá vitateigslinu, Magnús
markvörður KR, kastar sér niður
og reynir að handsama knöttinn,
sem lenti i handleggnum a honum
og inn i markið. Sigur Skaga-
manna var staðreynd, og lið
þeirra var vel að sigrinum komið,
þó má segja að jafntefli hefði
verið sanngjörn úrslit. KR-liðið
tapaði leiknum, fyrir það hvað
liöíð sótti stift siðustu
minúturnar.
Beztu menn Skagamanna voru
Teitur Þórðarson, Eyleifur Haf-
steinsson, Karl Þórðarson og
Hörður Helgason. Þá voru
Þröstur Stefánsson og Jón Al-
freðsson einnig friskir. Samvinna
þeirra Teits og Eyleifs vakti oft
aðdáun áhorfenda þeir léku oft
stórglæsilega sin á milli gegnum
KR-vörnina og það skapaðist
alltaf hætta, þegar þeir voru með
knöttinn. Þá var Karl oft
skemmtilegur i leiknum, fyrir-
gjafir hans skapa mikinn usla og
fáti vörn andstæðingsins. Ekki er
hægt aö tala um Akranesliðið án
þess að minnast á Hörð mark-
vörð. Eftir að hann byrjaði að
leika með liöinu, hefur það
breytzt til batnaðar. Hörður er að
verða okkar bezti markvörður og
má landsliðseinvaldurinn fara að
gefa honum auga. Þröstur og Jón
standa alltaf fyrir sinu, en það má
kannski segja að þeir hafi leikið
full fast i leiknum.
KR-liðið var liflegt i leiknum og
Ieikmenn liðsins gáfust aldrei
upp, þótt að mótherjarnir væru
erfiðir heim að sækja. Beztu
menn liösins voru: Björn Péturs-
son, sem fer vaxandi meö
hverjum leik, Sigurður
Indriðason, sem er mikill
baráttumaður, Atli Héðinsson en
hann vinnur rnikið og er alltaf á
ferðinni, enda einn „mark-
gráðugasti” leikmaður 1. deildar,
það er eins og hann þefi upp góð
tækifæri. Þá var Baldvin Elias-
son nokkuð friskur i vörninni, en
hann er kannski allt of rólegur og
kaldur, að „dútla” með knöttinn
inn i vitateig.
„Gullskallinn”
fór holu f höggi
Haraldur „gullskalii” Júliusson, hinn þekkti knattspyrnumað-
ur tBV, fór holu i höggi á hinum skemmtilega golfvelli Vest-
mannaeyinga um siðustu helgi.
Þetta gerði hann á 4. braut, sem er par 3 hola 150 metra löng og
notaði Haraldur 6. járn i þetta högg. Er hann annar Vestmanna
eyingurinn, sem fer holu i hoggi á pessu ari. Hinn var Hermann
Magnússon, sem það gerði i móti Hafnarfirði i fyrr i sumar.
Leikinn dæmdi Hinrik Lárusson
ágætlega, en hann hefði þó mátt
vera ákveðnari og oft á tiðum
strangari i dómum. SOS.
Æfingabúðir FRI
að Laugarvatni
Frjálsiþróttasambandið hefur
Iþróttamiðstöðina á Laugarvatni
til umráða frá 30. júli til 4. ágúst
n.k.
Þeir,er hug hefðu á þátttöku,
snúi sér til skrifstofu FRI simi
83377, sem allra fyrst.
(Fréttatilkynning frá FRI)