Tíminn - 25.07.1972, Page 20
Velheppnuð
sumarferð
framsókn-
arfélaganna
Hátt á fjórða hundrað manns
tók þátt i ferð Framsóknarfélag-
anna á sunnudaginn var. Varð
ferðin i alla staði ánægjuleg, enda
veður gott. Eysteinn Jónsson var
fararstjóri og i Hvitárnesi kom
Einar Agústsson, utanrikisráð-
hcrra til móts viö hópinn, nýkom-
inn heim frá undirskrift EBE-
samninganna og fiutti hann ávarp
á Hveravöllum. Verður meira
sagt fr'á ferðinni siðar I vikunni.
Myndina tók Ijósmyndari Tim-
ans, Guðjón Einarsson af ferða-
fólkinu á Hveravöllum.
Skagaströnd:
Veiddi 15
minka á
5 dögum
ÓV—Reykjavik
Jón Jónsson, fréttaritari
Tímans á Skagaströnd, sagði i
viðtali i gær, að á undanförn-
um 5 dögum hefðu veriö unnir
15 minkar á Skagaströnd, þar
af 7 í þorpinu sjálfu, tveir aðr-
ir rétt fyrir utan þorpiö en hin-
ir <> ekki langt frá.
Það var Birgir Arnason,
járnsmiður hjá Skipasmiða-
stöð Guðmundar Lárussonar,
sem i sumarleyfi sinu rölti
meö heimilishundinn um og
þefaði uppi minkana á svæð-
inu frá þorpinu og inn að
Sölvabakka.
— Það var bara meöfram
sjónum hér, sem Birgir leit-
aði, sagði Jón, — svo ekki ber
á öðru, en að þörf sé á, að
kanna þessi svæði betur en
gert hefur verið.
Jón sagði Skagstrendinga
ekki hafa orðið vara við minka
aö undanförnu, en enginn vafi
væri á, að töluvert væri um þá
þar nyrða. Birgir heföi haft
fullan hug áaðleita meira, en
tvennt aðallega kom til,
sumarleyfi hans var á enda og
heimilishundurinn orðinn
heldur sárfættur.
Veröur þvi að telja mjög vel
af sér vikið hjá Birgi, að hafa
unniö 15 minka á 5 dögum —
og ekki á hundurinn siður skil-
iö hrós fyrir frammistöðu sina
og þefvisi.
Jón sagði ennfremur, að
góður þurrkur hefði verið þar
nyrðra i gær og þvi hefði verið
hægt að koma töluverðu heyi i
hlöður og hefði þvi vissulega
lézt brúnin á bændum.
Einnig hafa Skagstrending-
ar nú hug á, að gera út til
rækjuveiða á flóanum og jafn-
vel að koma upp vélum til
rækjuplokkunar.
á* c
Þriðjudagur. 25. júli 1972
J
Ný og góð hörpudisksmið
fundin við Vestfirði
Þó—Reykjavík.
Undanfarnar fjórar vikur hefur
leiðangur frá Hafrannsóknastofn-
uninni leitað að nýjum hörpu-
disksmiöum við Vestfirði. og aö
sögn Hrafnkels Eirikssonar fiski-
fræðings, sem var leiöangurs-
stjóri i þessari ferð, fundust nokk-
ur mjög góö mið. Beztu miöin eru
i Patrcksfiröi, Tálknafirði og i
Arnarfirði.
Hrafnkell Eiriksson — sagði i
viðtali við blaðið, að i febrúar 1971
hefðu þeir fundið ný hörpudisk-
svæöi, sem fiskað hefði verið á
siöan, og núna hefði það verið ætl-
unin að fara yfir það, sem ekki
varð komizt yfir þá.
1 sunnan- og vestanverðum
Patreksfirði fengust upp i 250 kiló
i 10 minútna togi af meðalstórri
skel, en i Tálknafirði fengust allt
að 330 kiló i togi. Er það svæði
fram af Tálkna, og er frekar litið
um sig. Svæðið i Patreksfirði er
aftur á móti mjög stórt. Nær það
allt frá Kvigindisdal og út að
Hænuvik, 6.5 sjómilur. Á þessu
svæði var mest togað á 15-24
faðma dýpi.
Sagði Hrafnkell, að á þessum
slóðum mætti veiða mikið af
hörpudiski og væri svæðið góð
viðbót við það, sem áður hefði
fundizt — Við Langanes i Arnar
firði fannst einnig gott svæði á
fjögurra milna kafla, og þar feng-
ust rúmlega 200 kiló eftir 10 min-
útna tog.
Hrafnkell sagði, að um þessar
mundir væru 10-12 bátar á hörpu-
disksveiðum i Djúpinu og Jökul-
fjöröum, og mættu þeir koma
meö mest 2.5 lestir úr veiöiferð. —
Það er mjög mikið atriði, sagði
Hrafnkell, að bátarnir hafi mörg
svæði til að veiða á, svo að hægt
sé að friða svæðin öðru hverju. En
til þess, að hægt verði að stunda.
þessar veiðar i stórum stil, þá
verða að vera mörg veiðisvæði.
Ef t.d. um eitt svæði væri að
ræða, þá þurrkaðist þau upp
ótrúlega fljótt.
— Allt bendir til þess, að mið-
stöð hörpudisksveiðanna verði á
Vestfjöröum, i Húnaflóa og á
Breiðafirði. Annars staðar við
landið hafa ekki fundizt góð
hörpudisksmið svo nokkru nemi
Chi Chi
er dauð
—verður stoppuð upp
SB—Reykjavik
Chi Chi, pandabirnan stóra i
dýragarði Lundúnaborgar, er
dauð. Ilún lagöi sig á laugardags-
morguninn og vaknaöi ekki aftur.
Talið er að banameiniö hafi verið
hjartaslag. Chi Chi veröur nú
stoppuð upp cg sett á safn.
Eins og menn muna væntan-
lega, olli Chi Chi öllum hinum
vestræna heimi sárum vonbrigð-
um árið 1966 og aftur 1969, þegar
hún harðneitaöi að lita við biðli
sinum, hinum rússneska An An,
sem þá var eini panda-karlinn á
Vesturlöndum. Siðan hefur Nixon
forseti eignast eitt par, sem frægt
er orðið.
Af An An er það að frétta,að
hann eldist lika og liður ekki sem
bezt þessa dagana i Moskvu, þvi
að þar er nú hitabylgja.
Meðalaldur Panda-bjarna er 15-
17 ár. Chi Chi varð 15 ára.
Frumleg popphljómsveitarnöfn:
Táningahljómsveitin
72 kjörin í Húsafelli
Miklar skemmdir unnar
í Breiðholtsskóla
OÓ—Reykjavik.
Miklar skemmdir voru unnar i
Breiðholtsskóla aðfaranótt
sunnudags s.l. Þar var bortizt inn
og vaðið um allt hús og huröir
brotnar upp með járni, sennilega
litlu kúbeini.
Fyrst var rifinn upp opnanlegur
gluggi með járninu, siðan
sprengdar upp þrjár tvibreiðar
vængjahurðir og voru hurðirnar
og karmarnir i tætlum eftir aö-
ganginn. Einnig var reynt að
brjóta upp margar hurðir til við-
bótar og viðurinn spændur upp og
eyðilagður. Nemur tjónið tugum
eða jafnvel hundruðum þúsunda
króna. Ekki er að sjá að neinu
hafi verið stolið úr skólanum.
Reiknað er með, að innbrots-
menn hafi verið að minnsta kosti
tveir og vel að manni. þvi tals-
verð átiik þurfti til aö sprengja
upp hurðirnar og valda öllum
þessum skemmdum.
Brotizt var inn i sumarbústað
við Hómsá og unnar skemmdir.
Sennilegast hafa krakkar verið
þar á ferð. Aður hefur verið brot-
izt inn i sama bústað og haldin
þar samkvæmi, án þess að
eigandinn vissi, fyrr en hann kom
siðar og sá vegsummerki.
Sprengdar voru upp hurðir i
verzluninni Álafossi i Banda-
stræti, en engu var stolið þar.
ÓV—Reykjavik
Á sumarhátiöinni i llúsafelli,
sem haldin verður um verzlunar-
mannahelgina, verður eins og áð-
ur keppni á milli hljómsveita um
titilinn „Táningahljómsveitin
’72”. Hafa margar góðar og vin-
sælar hljómsveitir hafiösinn feril
með þessari keppni og má nefna
þar á meöal Gaddavir. Tatara,
Fi-fi og Fó-fó, Trix, Nafnið og
fleiri.
í ár hafa fimm hljómsveitir til-
kynnt þátttöku og eru nöfnin með
írumlegra móti: „Satan”,
„Nýrækt” og „Skóhljóð” úr
Reykjavik, „Goðgá” frá Grims-
stöðum á Fjöllum og loks hið
magnaðasta, „Námfúsa Fjóla”,
en þeir heiðursmenn eru úr
Reykjavik.
Vafalaust bætast fleiri hljóm-
sveitir i hópinn en verðlaun eru
25.000 krónur. Fyrirkomulag
keppninnar verður með dálitið
öðrum hætti i ár en verið hefur.
Hljómsveitirnar leika á laugar-
dagskvöldinu á dansleik hjá Trú-
brot i Lambhúslind og ætti þannig
að verða minna um tafir en verið
hefur áöur. Nota hljómsveitirnar
þannig hljóðfæri þau, sem fyrir
verða á pallinum að mestu leyti
og fer þvi ekki hálftimi i að „stilla
upp græjunum”, eins og það heit-
ir á fagmálinu.
Stjórnandi og kynnir táninga-
hljómsveitarkeppninnar verður
Alli Rúts.
„Táningahljómsveitin ’72”
kemur siðan fram á hljómleikum
á sunnudeginum með mörgum
hljómsveitum, rótgrónum og vin-
sælum.
Beituvélin komin í gott lag
ÞÓ—Reykjavik.
Nú er langt komið með að
ganga frá beituvélinni i Ásþór
RE, en menn hafa átt við ýmis
vandamál að striða i sambandi
við niðursetningu hennar. Nú um
helgina var vélin reynd úti á
Faxaflóa, og kom i ljós, að kulda-
stigið var ekki allskostar rétt á
sildinni og þar af leiðandi gekk
vélinni ekki vel að beita. — 1
fyrstu var sagt, að það væri
hraðamæli bátsins (logginu) að
kenna að vélin beitti ekki sem
skyldi, en annað kom i ljós eftir
frekari athugun. ,
Nú verða smiðaðir nýir frysti-
skápar i Asþór og er þvi verður
lokið heldur skipið til grálúðu-
veiða. Kuldastigið á sildinni þarf
að vera frekar nákvæmt eða mest
— 5 gráður á celcfus og minnst 2
gráður á celcius.
TUNDURSKEYTIÐ REYND-. ,
IST VERA SLÆÐIFISKUR Mannabein fund-
in eftir 86 ár
SB—Reykjavik
Rannsókn á flaki El Grillo i
Seyðisfiröi gengur nú fremur
hægt. Kafararnir fara aöeins
tvær fcrðir niöur daglega og eru
stutt niðri i einu. Þeir hafa komið
upp með eina djúpsprengju og
annan hlutinn, sem haldið var aö
væri tundurskeyti. Þaö reyndist
hins vegar við athugun vera svo-
kallaður slæðifiskur, en hann er
notaður til að slæða tundurdufl.
Djúpsprengjan var sprengd
meö dýnamiti fyrir utan kaup-
staðinn og varð af mikill hávaði.
Um 10 slikar sprengjur munu
vera um borð i flakinu og eru um
100 kg af sprengjefni i hverri
þeirra. Það mun þó vera eitthvað
farið að dofna.
Fréttaritari Timans á Seyðis-
firði, Ingimundur Hjálmarsson,
sagði i símtali, að bæjarbúum
hefði orðið hverft við spreng-
inguna, sem gerö var klukkan
hálf-tólf að kvöldi, enda minnt
sumt á þá daga, er Þjóðverjar
gerðu loftárásir sinar á striðs-
árunum. Fólki hefði ekki verið
gert viðvart, þar eð hætt þótti
við, að það myndi vekja forvitni
sumra, en varúðarráðstafanir
hefðu verið miklar, sprengjan
sprengd úti á Vestdalseyri,
þrjá kilómetra frá kaupstaðnum
og lögregluvörður hafður á báða
vegu,um 1600 metra frá sprengi-
staðnum.
Jafnframt þvi að sækja
sprengjur niður i flakið hafa kaf-
ararnir athugað, hvort göt eru á
oliugeymum skipsins. Er nú talið
vafasamt, að olia vætli úr
skipinu, þvi að fersk sjávarlykt
og þörungalykt var af köðlum,
sem þeir komu með upp. Kann
þvi orsakanna til oliubrákar-
innar, sem vart varð á firðinum,
að vera annars staðar að leita.
Búizt er við, að kafararnir ljúki
störfum i dag, þriðjudag, og
kemur þá til kasta stjórnarráðs-
ins að ákvarða, hvað næst verður
aðhafzt.
Fyrir skömmu fundust á Fella-
heiði bein stúlku, sem þar varð úti
skömmu fyrir jólin árið 1886. Hún
hét Guðrún Magnúsdóttir, vinnu-
kona til heimilis að Fjallaseli i
Fellum, og var á leið að Hnefils-
dal til fundar viö unnusta sinn, er
þar var. Hermdu sagnir, að hún
hefði haft brennivinskút meðferð-
Árið 1916 gekk bóndinn á Teiga-
seli á Jökuldal fram á mannabein
á heiðinni. En þá var niðaþoka og
tókst honum ekki að finna staðinn
aftur.
Það var ekki fyrr en nú á dög-
unum, að Eirikur bóndi Sigfússon
á Giljum gekk fram á beinin á ný.
Sannaðist þá, að sagnir þær, sem
um hagi stúlkunnar og ferð henn-
ar hafa gengið, voru sannar:
Gullhringur var á fingurkjúku og
gjörð af kút hjá beinunum. Þar
fundust einnig leifar af litlum
broddstaf og utanyfirhöfn mjög
heilleg, svört hempa og vaðmáls-
pils.