Tíminn - 28.07.1972, Síða 17

Tíminn - 28.07.1972, Síða 17
Föstudagur. 28. júli 1972 TÍMINN 17 SKIUA VÍKINGAR EYJAMENN EFT- IR Á BOTNINUM? - liðin mætast d Laugardalsvellinum d morgun. Þd mætast klukkuliðin KR og Keflavík Tveir leikir verða leiknir i 1. deild um helgina og fara þeir báð- ir fram á laugardaginn. Vest- manneyingar koma til Revkja- víkur (ef veður leyfir) og leika gegn Viking. Þessi leikur verður mjög þýðingarmikill fyrir bæði liðin, sem eru i fallhættu, Eyja- menn með fjögur stig og Vikingur með þrjú stig. Þá mætast i Kefla- vík, heimamenn og KR-ingar og má búast við spennandi leik. Þessir lcikir verða siðustu 1. deildarleikirnir áður en lands- lcikurinn við Norðmenn fer fram (i. ágúst. Næsti leikur eftir lands- leikinn verður svo 9. ágúst og mætast þá Breiðablik og Akranes á Melavellinum. Við skulum aðeins lita á leikina sem fara fram um helgina. Vikingar og Vestmanneyingar mætast á Laugardalsvellinum á morgun kl. 16.00. Það má búast við að þar verði hart barist og ekkert gefið eftir, þvi að það lið sem tapar leiknum, verður þá neðst i deildinni. Vikingsliðið, sem hefur verið á botninum um , í Keflavík langan tima á möguleika að kom- ast þaðan, ef liðið sigrar Eyja- menn. Eins og flestir vita þá skoraði liðið sitt fyrsta mark i 1. deild gegn Keflavik á þriðjud. og var liðið þá ekki búið að skora mark i 10 leikjum eða 910 minút- ur. Þetta mark varð til þess að Vikingur vann Keflavik, sem á ekki lengur möguleika til að halda Islandsmeistaratitlinum. Ef Vikingsliðið leikur eins og gegn Keflavik, þá eru miklar lik- ur að það sigri Eyjamenn. En róðurinn verður erfiður, þvi að Eyjamenn eru frægir fyrir annað en að gefast upp þegar á hólminn er komið. Hinn leikurinn i 1. deild á morg- um verður svo leikinn suður i Keflavik kl. 16.00. Þar mætast „klukkumálsliðin”, en eins og menn muna þá var leikur liðanna alltof langur, þega- liðin mættust á Laugardalsvellinum. Fyrri hálfleikur stóð i 55 min. en átti með réttu að standa yfir i 45 min. á 10 min. sem voru leiknar fram yfir venjulegan leiktima, skoruðu Þessi mynd var tekin í Keflavik i fyrra, þegar Keflvíkingar og KR mættust I. deild. Liðin skildu jöfn þá 0:0. A myndinni sést Gisli TorfsTson sækja að KRmarkinu, Magnús Guðmundsson, Sigmundur Sigurðs- son og Guðjón Guðmundsson, eru til varnar. Keflvikingar tvö mörk og einum KR-ing var visað af leikvelli. Lokatölur leiksins urðu svo 3:1 fyrir Keflvikinga. Það má fastlega búast við þvi, að dómarinn sem á að dæma leik liðanna á morgun, hafi allan varann á og verði með tvær klukkur, til að taka timann, en ekki með „fermingarúrið” gamla eins og hinn „frábæri” dómari Valur Benediktsson. Ungu ljónin úr KR, taka örugglega á honum stóra sinum i Keflavik annað kvöld þegar að þau mæta Islandsmeisturunum. KR-liðið hefur verið að sækja i sig veðrið i undanförnum leikjum og toppliðin Fram og Akranes, máttu hafa sig öll við gegn KR. Keflavikurliðið er greinilega i öldudal og hefur það leikið mjög lélega knattspyrnu i siðustu leikjum. Verða að veröa miklar breytingar á leikmönnum liðsins, ef þeir ætla sér að standa KR- ingum snúning. 1 fyrra, þegar liðin mættust 1 Keflavík varð jafntefli 0:0. i spennandi leik. Ekkitrúiégað það verði jafntefli á morgun, heldur má búast við að það verði skoruð nokkur mörk. Spurningin er, hvað gerir hin „frábæra” landsliðsvörn úr Keflavik gegn hinum spræku framlinuleikmönnum KR. Tekst henni að stöðva allar sóknarlotur KR-inga meö „skriö- drekahernaði”? SOS VALUR BEN. MEÐ RÉTTA KLUKKU - hann lék aðalhlutverkið í „klukkumálinu" fræga Ekki þýðir að deila við dómarann, það hafa KR-ingar fengið að vita, þvi að þeir töp- uðu „klukkumálinu” fræga. Það er dómarinn (hinn „frá- bæri Valur Ben.), sem ræður þvi, hversu lengi leikur skal standa, segir knattspyrnu- dómstóll KSÍ og þar með er „klukkumálið” úr sögunni, Keflvikingar eru sigurvegarar leiks KR og Keflavikur, sem endaöi 3:1. A þessu sést að tal- ið er að Valur Ben. hafi haft rétta klukku og verða þvi áhorfendur, sem höfðu vonda samvizku, eins og Valur sagði eftir leikinn, að fara með úrin sin i viðgerð og hreinsun. Það nýjasta i þessu máli („klukkumáli) er það að úr- smiður einn hér i borg, er mjög spenntur að fá að vita, hvaða tegund Valur á að úri, þvi að ef þetta er tegund sem hann hefur á boðstólnum, þá má búast við að mikil sala verði á þessari tegund hjá knattspyrnumönnum i fram- tiðinni. SOS FH sigraði Selfyssinga - Helgi Ragnarsson skoraði ,,Hat trick" FH-ingar halda sigurgongu sinni áfram i 2. deild i knatt- spyrnu á miðvikudagskvöldið léku þeir gegn Selfossi og sigruðu 3:0. Helgi Ragnarsson skoraði öll mörk liðsins i leiknum, sem fór fram á Selfossi. Þetta var fyrsta tap hjá Sel- fyssingum á heimavelli i sumar, og þeir áttu mjög lfelegan leik og naðu sér aldrei á strik. Leiðinda veður var, þegar leikurinn fór fram, rigning og rok. FH-ingar taka forustuna á 14. min fyrri hálfleiks. Helgi Ragnarsson komst einn inn fyrir vörn Selfyssinga, og renndi knettinum fram hjá Einari mark- verði. Eftir markið sækja Sel- fyssingar í sig veðrið, en heppnin var ekki með þeim. A 25. min komst Kristinn i opið færi, en skot hans var laust og markmaður varði auðveldlega. Stuttu siðar bjarga Hafnfirðingar skoti frá Sumarliða á linu. FH-ingar skora svo annað mark, sitt rétt fyrir leikshlé, var þar á ferðinni Helgi Ragnarsson, sem skoraði á hinni sigildu 43. min úr þvögu. Helgi var svo aftur á ferðinni á 6. min siðari hálfleiks og skoraði þriðja mark sitt f leiknum. Spyrnti hann í markið beint úr aukaspyrnu sem hann tók rétt fyrir utan vitateig. Það má segja að þetta mark hafi gert út um leikinn. Selfyssingar náðu sér aldrei á strik i leiknum og voru óheppnir með skot t.d. áttu þeir tvö sláarskot i siðari hálfleik. Beztu leikmenn FH, voru Helgi Ragnarsson og Dýri Guðmunds- son annars var FH-liðið með friskasta móti. -BB. Björgvin Hólm er enn i efsta sæti i stigakeppni GSt STIGIN í G0LFI Nú hafa alls 26 menn nælt sér i stig i stigakeppni Golfsambands Islands. Það eru ákveðin opin mót sem gefa stig og fær sigurvegar- inn i hverju móti 10 stig, næsti 9. o.s.frv. Þeir sem verða svo i 10 efstu sætunum að loknu keppnis- timabilinu skipa landsliðshópinn næsta ár, en næsta sumar er m.a. fyrirhugað að taka þátt i Evrópu- meistarmóti áhugamanna, sem fram fer á trlandi. Um siðustu helgi var haldið 5ta opna mótið, sem gefur stig til landsliðsins — Coca Colakeppnin hjá GR i Grafarholti. Litlar breytingar urðu á röðinni eins og hún var fyrir þá keppni, nema að einstaka menn skiptu um sæti. Þó kom eitt nýtt nafn inn á listann, Loftur Ólafsson, GN. En af honum féll Atli Aðalsteinsson, GV, sem fór niður i 11 sæti. 10 efstu menn i Stigakeppninni eru nú þessir: Stig Mót 1. Björgvin Hólm, GK 30,5 4 2. Einar Guðnas. GR 29,5 3 3. Július R. Július. GK 24,5 5 4. Þorb. Kjærbo, GS 23,5 3 5. Jóhann. Ó. Guðm. GR 21 4 6. Gunnl. Ragnarss. GR 20,5 5 7. Sig. Héðinss. GK 18 3 8. Óttar Yngvas. GR 15 3 9. Loftur Ólafss. GN 13 4 10. Jón H. Guðlaugss. GV 10 2 Næsta mót, sem gefur stig til landsliðsins verður Islandsmótið, sem fram fer á velli GR i Grafar- holti i næstu viku- hefst n.k. þriðjudag. Fyrir þá keppni fær fyrsti maður 15 stig næsti 14 o.s.frv. eða i allt 15 menn. Þar verða lika allir beztu golfleikarar landsins meðal keppenda.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.