Tíminn - 03.08.1972, Qupperneq 9
TÍMINN
9
Fimmtudagur :i. ágúst 1972
-------------------------------------------------------------------------------------------------r
„Ágjarn, afbrýðisamur og
eigingjarn meðhöndlar hann
konur sinar eins og úr sér
gengnar brúður” skrifaði
Francoise Gilot vinkona Picassos
eftir að hún yfirgaf hann.
Konur hafa alltaf skipað sess i
list Picassos. Næstum óslitið er
það konan, sem innblæs honum
nýjar aðferðir i túlkun og stil, allt
frá andlitsmyndunum sem hann
málaði i rómantiskum stil, um
aldamótin, og sigaunastúlkunum
á bláa timabilinu, til skældu and-
litsmyndanna, sem eru honum
svo tamar i seinni tið.
Pablo Picasso var og er án efa
veikur fyrir fyrirsætum sinum,
hverri á fætur annari. Og þegar
leiði greip hann visaði hann þeim
frá sér hverri á fætur annarri.
Þær voru gyðjur,en einnig fóta-
þurrkur , sé nokkuð að marka bók
Francoise Gilot, sem vist er að
ekki var skrifuð listamanninum
til dýrðar. Nú er útlit fyrir að
þessi 90 ára gamli málari, þetta
„heilaga skrimsli listarinnar”
ætli að una sér við siðari eigin-
konu sina Jacqueline, sem hann
býr með i Mougins innan um
olifutré og eikur i hliðunum fyrir
ofan Antibes á Rivierunni.
„Hið heilaga skrimsli
listarinnar” er einstætt og án
hliðstæðu, hvaða mat sem lagt er
á hann og list hans eða á hann og
konurnar hans. Frá þvi að hann
hélt sina fyrstu sýningu yfirlætis-
laus i regnhlifaverzlun i La
Coruna á Spáni.er talið að hann
hafi lokið við fimmtán þúsund
málverk, fyrir utan alla keramik
og grafik, og allarþær teikningar
og skúlptúra, sem hann hefur
gert. Hann hefur elskað vinnu
sina umfram allt. Á alþjóðlegum
uppboðum hafa verk hans verið
Picasso (t.v.) cr kominn yfir nirætt, cn starfskraftar hans eru síður en svo á þrotúin. Jaqucline Koque (t.h.) eiginkona meistarans, er 45 árum
yngri en liann.
Piraccn ncr iioiL Ifunin
1 IvdvvU j jVwlP idid wyniu
seld fyrir 18 milljónir króna. Þótt
hann sé enn spænskur rikis-
borgari, er hann álitinn auðugasti
maður Frakklands, en þar hefur
hann eytt miklum hluta ævi
sinnar. Auður hans er talinn
nema um 120 milljöröum króna.
Börn hans skilgetin og óskilgetin
eru fyrir löngu farin að falast
eftir arfi. En Picasso ánafnaði
Listasafninu i Barcelona 800
sinna kunnustu verka fyrir
skemmstu. Aö visu ekki það
frægasta: Heimildarmálverkið,
Guernica frá 1937, andsvar lista-
mannsins gegn valdatöku
Francos, hangir i Museum of
Modern Art i New York.
Þvi fer fjarri að Picasso hafi
lagt frá sér penslana. Starfsorka
hans ergoðsagnarkennd,og hann
hefur litið slakað á og lætur
aldurinn ekkert á sig fá. Sumir
telja hann snillinga, aðrir segja,
að hann sé hæfileikamaður sem
varðveitt hafi ljóma
bernskunnar. Hann skauzt fram
eins og skrattinn úr sauöariegg
viða á sviði listarinnar. Hann
hafði i frammi snjalla tilburði —
ekki alltaf frumsamda sögðu
skæðar tungur. Á löngum starfs
degi. 70 árum, hefur Picasso
verið i fararbroddi eða hrifist
með flestum þeim straumum
listarinnar, sem flætt hafa á
öldinni. Og þeim sem ekki hefur
fallið öll uppátæki hans er ó-
hjákvæmilegt að telja hann með
þegar fjallað er um nútimalist.
Sultarár í Paris
Pablo Picasso fæddist i Malaga
25. október 1881. Hann hlaut
nafnið (andið að ykkur): Pablo
Diego Jósé Francisco de Paula
Nepomuceno Crispin Crispiniano
de la Santissima Trinidad Ruiz
Ficasso. Faðir hans var teikni-
kennari af Baska kyni, José Ruiz
Picasso. Móðir hans Maria
Picasso var frá Mallorka, en fjöl-
skylda hennar var að uppruna frá
Genova. Pablo sýndi snemma ó-
venjulega teiknihæfileika og um
leið og hann haföi lokið námi var
hann sendur til Madrid og
Barcelona til að auka við
þekkingu sina. Arið 1900 kom
hann til Parisar, Mekka lista-
mannsins.
Picasso skar sig ekki úr hópi
annarra listamannsefna á Signu-
bökkum i þá tið. Hann málaði
ungar stúlkur á torgum og breið-
strætum, fólk sem sat og drakk
absint á gangstéttarkaffihúsum.
Sömu fyrirmyndir og hjá öðrum
listamönnum, svo sem Toulouse-
Lautrec. Skommu siðar fór hann
að lýsa olnbogabörnum þjóð-
félagsins betlurum og sigaunum
„Bláa timabilið” var hafið.
Þaðan hvarf hann inn i andrúms-
loft fjölleikahússins, sem átti vel
við hugarflug hans. Hann málaði
fimleikafólk, törfamenn og trúða.
Þaö var nefnt „rauða timabilið.”
Meö heppni og atorku lánaðist
Picasso að komast i kynni við
lykilfólkið að timamótum listar-
innar og menningarinnar á
þessari öld: Skáldin Guillaume
Apollinaire, Jean Cocteau og
málararnir Braque og Juan Gris.
Bateu-Lavoir, gömul timbur-
bygging i hæðum Montemartres,
var samanstaður fátækra lista-
manna og þar bjó Picasso, ineðan
hann var enn ungur og óþekktur.
Bateu-Lavoir er talin vagga
kúbismans. Upp ú.r aldamótunum
barst höggmyndalist frá Afriku
og handan yfir úthöfin til Parisar,
Picasso Braque voru gagnteknir.
Höfugur andblær umlék listina —
Gauguin snéri baki við Paris og
settist að á eyju i Kyrrahafi.
Kúbisminn-listastefnan sem
leitast við að færa öll form i
einfalda fleti, spratt upp úr
þessum frumstæða jarðvegi, sem
gekk öldungis fram af rikjandi
listasmekk. Picasso meðtók jafn-
óðum hinar nýju hugmyndir. Enn
varhannsamtfjarri þvi að marka
stefnuna i hópi málaranna I
Paris. Hann var eftir sem áður
fátækur teiknikennarasonur,
landflótta og án framtiðar i þess
ari haborg andans, sem allir
voru opnir fyrir nýjum hug-
myndum, en viðurkenndu þær
siður ef þær komu ekki frá heima-
mönnum. Picasso var frama-
sjúkur og taugaþjakaður. útstæð
augu ha.is virtust smjúga inni
það, sem hann virti fyrir sér og
hann var gagntekinn hvöt til
sjálfshafningar. Þetta olli þvi, aö
hann var erfiður i umgengni og
haft var i flimtingum að hann
mundi ekki vikjast undan þvi að
láta mynda sig kviknakinn i bað-
kerinu, ef svo bæri undir. Og
gagnvart konum var hann
ákvafur, hvikull, afbrýðissamur
og fullur ofrikis.
Iijónaband og frami
Hann hefur ætiö þjáöst af
nánast sjúklegri afbrýðisemi.
Fyrsta vinkona hans Fernande
Olivier gat varla skotist i búöir,
án þess að á hann rynni afbrýðis-
æði.Picasso hitti hana að kveld-
lagi vorið 1904, þegar hún hafði
forðað sér undan vatnsveðri inn á
gang i Bateau-Lavoir. Hann lagöi
rytjulegan kettling á handlegg
henni og bauð til vinnustofu
sinnar. Ástarævintýrið sem af
þessu hlautzt varð helgisagnar-
kennt og varði i 9 ár, fátæktar og
báginda. Picasso átti ekki einu
sinni fyris skóm á hana, þegar
vetur gekk i garð.
Fernande skipti það ekki miklu
— hún gerði ekki háar kröfur en
henni duldist heldur aldrei að
'elskhugi hennar áynni sér ein-
hverntima nafn. Hún var löþ að
eðlisfari og hugsaði aðeins um
liðandi stund — henni var
bóhemlifnaðurinn aðeins leið til
gleði og afþreyingar. Og þegar
hún einn góðan veðurdag hljópst
brott með itölskummálaratil þess
eins að auka enn meir á afbrýði
aðdáanda sins, var henni ekki
ljóst, að hún hefði þar með brennt
allar brýr að baki sér. Hvað
Picasso áhrærði var hún ekki til
lengur.
Kannski var hann farinn að
finna til leiða á henni, þvi
skömmu siðar tók hann saman
við aðra, Marcelle Humbert, sem
yfirgaf annan málara til að búa
með Pabio. Marcelle er gegnum
gangandi i myndum hans frá
kubiska timabilinu. „Ég elska
hanasvoheitt.að ég má til að lýsa
henni i myndum minum.” sagöi
Picasso. Ef til vill var Marcelli sú
kona sem hann elskaði mest um
ævina, ekki hvað sizt fyrir þá sök,
aö hún dó eftir 10 ára sambúð úr
sjúkdómi, sem mestur var ógn-
valdur i þá daga, berklum.
Aðeins ári siðar kvæntist
Picasso i fyrsta sinn. Kona hans
var rússnesk dansmær, Olga
Kokhlova að nafni. Hjóna-
bandinu fylgdi nýtt timabil i
þróun listar hans. Hann hvarf
aftur til skýrleika og reglu i
myndum sinum. 1 einni kú-
vendingu, sem er svo mjög ein-
kennandi fyrir hann snéri hann
fra kúbisma til nýkiassikur
undir áhrifum frá klassiskri list.
Picasso er siferskur og hefur
ávallt fundið, hvert straumurinn
liggur. Og eftir að hann gekk að
eiga Olgu, var hann kominn i
tizku. En hann kunni lika vel að
meta þessa heims lystisemdir.
Hann komst vel i álnir, varð sér
uti um rikmannlega ibúðog stáss-
leg föt og lifði pragtuglega innan
um samkvæmislýði heims-
borgarinnar.
Kona af konu
Þegar hann hafði stundað sam-
kvæmi hinna „finni” Parisarbúa i
meira en 10 ár varð hann leiður á
þvi og hjónabandinu. Olga hafði
fætt honum soninn Paul, en af-
brýöissemi hennar jókst ár frá ári
og hún varð si ráðrikari. Og það
var ekki að ófyrirsynju, þvi
Picasso var hvorki sérlega trúr
né kærleiksrikur eiginmaður.
Klögumálin gengu á vixl, stundir
mikilla reikningsskila urðu dag-
legur viðburður og lauk með
skilnaði en skilnaðurinn gilti ekki
fyrir Picasso, sem var spænskur
og kaþólskur. En Marie-Thérese
Walter stytti honum stundir og
fæddi honum meybarnið Maya.
Svo rak nýja konu á fjörur
Picassos. Það var ljósmyndarinn
og málarinn Dora Maar. Hann sá
hana fyrst á kaffihúsi, þar sem
hún sat og lék sér að hnifi.
Skyndilega fataðist henni og hún
skar sig á púlsinn. Rauður blóð-
dropi læddist fram og stækkaði á
svörtum knipplingahanzka, og
Picasso brá skjótt við, seiddur af
litadýrðinni og svipmiklu,
þjáningarriku andliti stúlkunnar.
Nýttástarævintýri hófst. Kannski
er Dora sú konan sem bezt skildi
list Picassos. Hún var honum
hjálpleg á umbrotatimum og
studdi hann þegar hörmungar
striðsáranna dundu yfir. En í
myndum sinum er þvi likast sem
bann leggi sig fram um að mis-
pvrma henni og skrum-
s»æla. Um þessar mundir
ma^aöi hann heimildarmálverkið
Guernica, um borgarastriðiö á
Spáni. Dora er i hópi kvennanna,
sem æpa i sprengjuregninu.
Þegar stundir liðu fram fór að
bera á trúargrillum í fari hennar
og einn góðan veðurdag skipaði
hún Picasso og málaranum
Eluard að lúta sér. Hún fór á hæli.
Þegar hún útskrifaðist þaðan, var
hún Picasso gleymd. „Þú hefur
aldrei elskað neinn” hrópaði hann
að henni „þú veizt ekki hvað ást
er.”
1 mai 1943 var Picasso kynntur
fyrir tvitugri stúlku á kaffihúsi í
Paris. Hún var forkunnar frið og
himinbláeyg með fingert andlit.
— Hvað hafið þér fyrir stafni,
spuröi hann.
— Ég mála, svaraöi hún.
— Hver skollinn, sama geri ég,
hrópaði hann.
Francoise Gilot brann i
skinninu eftir að kynnast lista-
manninum og þá með þökkum
heimboð til vinnustofu hans enda
þótt hún vissi ofurvel hverjar af-
leiðingarnar kynnu að veröa. En
Picasso var afar þolinmóður og
nærgætinn við stúlkuna, senni-
lega hefur aldursmunurinn haft
sitt að segja i þá veru (áttina).
Kynni þeirra höfðu staðið alllengi
þegar hann mannaði sig til að
kyssa hana.
Franciose varð „blóma-
stúlkan” i ljóðrænustu myndum
Picassos, og hún varð kveikja og
fyrirmynd margra þeirra leir-
verka, sem hann vann, þegar
hann varð gripin mótunarlöngun
á striðsárunum.
Hið heilaga skrimsli
listarinnar
Þegar striðinu lauk og hugur
Evrópubúa hætti að snúast um
skömmtunarseðla og þrúgandi
nið sprengjuflugvéianna, jókst
frægð Picassos mjög. Friðar-
dúfu plakatið, sem hann gerði i
tilefni af friðarþinginu i Paris
varð tákn, sem þjóðir heims með-
tóku.
Og sú varð líka raunin um hann
sjálfan. Kommúnisminn gerði
hann t.d. að merkisbera sinum.
Ungir listamenn komu úr öllum
áttum til Antibes og tilltu sér við
fótskör meistarans og vildu læra
að mála. Þetta var nánast
farsóttarkennt. Picasso var
álitinn maður hinna nýju við-
horfa, og nú virtist hann hafa
fundiö frið og rósemi hugans með
Frh. á bis. 15