Tíminn - 09.08.1972, Blaðsíða 1
Á skákborðinu á Laugarvatni. Yzt til hægri hvita drottningin, Ingunn Guðmundsdóttir, og svarti kóngurinn, Hannes Jóhannsson. Þvi miður
tókst okkur ekki að spyrja uppi nöfnin á riddaranum og hróknum til hægri. Ljósmynd: A.M.
Stóráfallalaus verzlunarmannahelgi
ÞÓ-Reykjavik
Umferðin um verzlunarmanna-
helgina gekk stórslysalaust að
þessu sinni, þrátt fyrir gifurlega
umferð. Þessi mikla umferðar-
helgi hefur að mestu orðið stór-
slysalaus siðustu árin, og bendir
það til þess, að Islendingar gæti
sin ekki i umferðinni á þjóðveg-
unum fyrr en umferðin er orðin
nógu mikil, og stanzlausum við-
vörunum rignir yfir fólk.
Aðeins er vitað um sex umferð-
aróhöpp um helgina og var ekkert
þeirra alvarlegt.
Aðfaranótt laugardags var bif-
reið ekið út af veginum við Svina-
vatn i Austur-Húnavatnssýslu.
Piltur og stúlka, sem voru i bif-
reiðinni voru flutt i sjúkrahúsið á
Blönduósi. Stúlkan hlaut m.a.
skurð á höfuð og ökla auk heila-
hristings en pilturinn, sem var
ökumaður, marðist.
Aðfaranótt laugardags varð
árekstur milli fólksbifreiðar og
vörubifreiðar i nágrenni Egils-
staða. Tveir menn voru fluttir i
sjúkraskýlið á Egilsstöðum.
Munu þeir báðir hafa sloppið við
alvarleg meiðsli. Þá valt og jeppi
á Jökuldal.
Um hádegi á sunnudag var bif-
reið ekið út af veginum á Mos-
fellsheiði, og valt hún meö þeim
afleiðingum, að karl og kona,
sem voru i bifreiðinni, meiddust
og voru bæði flutt i slysadeild
Borgarspitalans. Bifreiðin var
ekki búin öryggisbeltum. Karl-
maðurinn, sem ók bifreiðinni,
mun hafa hlotið höfuðáverka, en
konan röskun á hálsliðum. Var
konan flutt i sjúkrahús.
Ekki urðu fleiri umferðarslys,
þar sem meiðsli urðu á fólki.
Nokkuð færri umferðaróhöpp
urðu nú en um siðustu verzlunar-
mannahelgi.
Á mánudag varð mjög harður
árekstur á hæð á Norðfjarðarvegi
við Skorrastað. Rákust þar sam-
an tvær bifreiöir, en öryggisbelti
voru notuð i báðum bifreiðunum
og telur lögreglan á Neskaupstað,
að þau hafi bjargað fólkinu frá
mjög alvarlegum meiðslum. Báð-
ar bifreiðarnar voru óökufærar
eftir óhappið.
3D/v& ZiaÁvéZg/fc 4/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Simar 18395 & 86500
-
Hitaveitan
á Hvammstanga:
Framkvæmd-
ir hefjast
í dag
SB—Reykjavik
Framkvæmdir við lagningu
hitaveitu á Hvammstanga hefjast
i dag, og er áætlað að hitaveitan
vcrði komin i um 80% húsa á
staðnum um áramótin, en meira
verður ekki virkjað að sinni.
Leiða þarf vatnið um 8 km leið frá
Laugarbökkum, þar sem nú eru
fyrir hcndi 18 sekúndulitrar af 97
stiga heitu vatni.
Aætlaö er að Hvammstangi
þurfi um 14 sekúndulitra, en af
þessum 16/Sem fyrir hendi eru að
Laugarbökkum, notar skólinn þar
og önnur hús sitt. Afgangurinn
mun vera i knappasta lagi fyrir
Hvammstanga en viöbótarboran-
ir hefjast næstu daga, þegar bor-
inn kemur frá Dalvik.
Búizt er við, að hafin verði
tenging húsa á Hvammstanga viö
hitaveituna i desemberbyrjun.
Þar eru um 120 hús, og fá um 90
þeirra hitaveitu i þessum áfanga.
Úrgangurinn
úr gúrnum
áburður til
uppgræðslu
JI—Reykjahlið.
Úrgangur úr gúrnum i kisilgúr-
verksmiðjunni viröist hafa tals-
vert áburðargildi, og jafnvel
hugsanlegt að nota mætti hann til
áburðar á tún.
Upphaflega var úrganginum
dælt út i hraun, og nú bregður svo
viö, að hraunið er farið að gróa
upp, og grasið einna likast þvi, að
þar hafi verið borið á.
Um tima var úrganginum dælt
aftur i vatnið, en nú er farið að
nota hann til þess að græða upp
þau sár, sem mynduðust þar sem
hrauni var skarað saman i
undirstöðu undir leiðsluna úr
vatninu.
Fjórar flugvélar sækja
slasaðan mann á haf út
Þó—Reykjavik.
Snemma i gærmorgun barst
Slysavarnaféiagi tslands hjálpar-
beiðni frá þýzka togaranum
Bremerhaven, þar sem hann var
sladdur út af Stokksncsi. Einn
skipverja hafði meiözt inikiö á
höföi og þurfti að komast tafar-
laust undir læknishendur. Slysa-
varnafélagið liafði samband við
Varnarliöiö, og fóru varnarliðs-
menn af staö á tveimur risaþyrl-
uin og Herkúles-björgunarvél.
önnur þyrlan lenti ó Stokksnesi
og beið átekta þar, en hin þyrlan
og llerkúlesvélin fóru til móts við
togarann. Maöurinn var dreginn
upp i þyrluna og kom hún með
hann til Reykjavikur rétt eftir há-
degi i gær. Maðurinn var lagður
inn á Borgarsjúkrahúsiö, og er
tvisýnt um lif hans.
Hannes Hafstein, fulltrúi Slysa-
varnafélagsins, sagði, að það
hefði verið um kl. 7.30 i gærmorg-
un sem umboðsmaður þýzkra
togara á tslandi, Ludvig Siemsen,
hafði samband við Slysavarna-
félagið og bað um aðstoð við að
koma stórslösuðum þýzkum sjó-
manni i sjúkrahús. Þegar þetta
gerðist var Bremerhaven staddur
um 75 sjómilur austur af suðri frá
Stokksnesi með stefnu á Nes-
kaupstað, og áætlaði togarinn 7-8
tima siglingu þaðan. Búið var að
hafa samband við sjúkrahúsið á
Neskaupstað, og þar var sagt að
öll hjálp væri til reiðu, en skýrt
tekið fram, að þar sem maðurinn
væri svona mikið slasaður, væri
betra að koma honum i sjúkrahús
i Reykjavik.
Varðskip var á þessum slóðum i
gærmorgun, og lofaði það allri
aðstoð ef önnur hjálpartæki
kæmu ekki að gagni. En veðrið á
þessum slóðum var norðan 3-4
vindstig og ágætt skyggni, þannig
að sýnilegt þótti að ágætar að-
stæður til flugs væru fyrir hendi.
Þá var leitað til Varnarliðsins og
þvi greint frá öllum kringum-
stæðum. Strax kom svar frá
Varnarliðinu, og sögðu Varnar-
liösmenn, aö þeir myndu reyna að
ná sjúklingnum frá borði og koma
honum til Reykjavikur svo fljótt
sem auðið væri.
Skipstjóri togarans var nú beð-
inn að breyta um stefnu og halda i
átt að Stokksnesi. Um leið fór
Herkúles-björgunarvélin af stað
frá Keflavik, og fann hún togar-
ann mjög fljótlega.
Herkúlesvélin hélt sig yfir tog-
aranum, og nú voru báðar Jolly
Green biörgunarþyrlurnar komn-
ar i loftio, og voru sjúkraliðar um
borð i þeim. önnur þyrlan hélt
rakleiöis til móts við togarann, en
Framhald á bls. 19
Er ég dauður eða
er ég ekki dauður?
- Misskilningur í manntafli í Atlavfk
JK.—Egilsstöðum.
Drap ég mann eða drap ég
ekki mann? spyr Jón Hregg-
viðsson i tslandsklukku Hall-
dórs Laxness. Er ég dauður
eða er ég ekki dauður? hefði
einn þeirra, sem tók þátt i
manntaflinu i Atlavik á sum-
arhátiðinni, átt að spyrja
sjálfan sig. En hann gerði
það ekki, heldur fullyrti ein-
faldlega, að hann væri dauður.
Og gekk með það út af skák-
borðinu, svo að setja varð
annan mann i hans stað, þvi að
allir aðrir stóðu fast á þvi, að
hann væri bráðlifandi.
Þarna tefldu þeir Guðjón
Jónsson, skólastjóri á Hall-
ormsstað og Hákon Sófusson
frá Eskifirði. Fólk á taflborðið
var valið á staðnum úr hópi
mótsgesta og skrýtt eins og
vera bar, og fóru leikar svo, að
Guðjón skólastjóri vann.
Nokkurri truflun olli skyn-
villan, sem laust manninn,
sem hélt, að hann væri dauður
og varð ekki ofan af þvi hafð-
ur, þrátt fyrir fortölur og eftir-
gangsmuni. Honum hefur sem
sagt verið talsvert öðru visi
farið en þeim, sem deyja
snögglega og átta sig ekki á
öðru fyrst i stað, að sögn
miðla, en þeir séu enn i sinum
gamla, góða heimi.