Tíminn - 16.08.1972, Page 1

Tíminn - 16.08.1972, Page 1
IGNIS UPPÞVOTTAVÉLAR SIMI: 19294 SlMI: 26660 kæli- skápar TO/tÁHctSjAséJLasi. hJt RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 Þannig er umhorfs á þeim slóöum, sem vatniö mun flæöa yfir. VETRARFORÐABÚRIÐ ER FARIÐ AÐ MYNDAST Bráðabirgðafarvegi Köldukvíslar og flóðgátt stíflugarðsins lokið Landmælingar fá nýja myndavél: Ódýrasta filman kostar 14 þúsund SB-Þórisósi. Vatnsforðabúriö mikla á öræf- unum er tekiö aö myndast. Þegar klukkan var tuttugu mfnútur gengin i fimm í gær var skurði þeim, sem veriö hefur bráöa- birgöafarvegur Köidukvislar lok- að með dýnamitsprengju. Sjö risastórir bitar úr steinsteypu, tuttugu og fimm smálestir hver, settir i flóögátt stiflunnar, er gerö hefur verið. Viðstaddir þennan atburð voru verkfræðingar og verkstjórar verktakafélagsins Hlaðbæjar, sem annars þarna framkvæmdir, auk blaðamanna og blaðaljós- myndara, sem boðið var upp að Þórisósi til þess að fylgjast með þessum sögulega atburði. Fyrsta klukkutimann hækkaði ört ofan stiflunnar, og var komið þrjátiu til fjörutiu sentimetra djúpt vatn við garðinn. En eftir þvi sem vatnið dreifist yfir stærra svæði mun yfirborðið hækka hæg- ar, og er torsagt fyrirfram, hversu lengi hið mikla uppistöðu- lón verður að myndast. Óraflæmi fer þarna undir vatn, og það er háð úrkomu og vatnsrennsli, hversu langan tima þetta tekur. Vatn úr uppistöðulóninu við stifluna mun renna hálfs annars kilómetra veg i bórisvatn, og mun yfirborð þess hækka til ' muna, þar sem það verður stiflað við Þórisós. Tekur það þá sess Þingvallavatns og veröur stærsta vatn landsins, um áttatiu ferkiló- metrar. A vetrum mun þó lækka i þvi um allt að fimmtán metra vegna vatnsmiðlunar i þágu fyrirhug- aðrar Tungnárvirkjunar og orku- versins viö Búrfell. KJ-ReykjavIk. — Nú getum viö tekiö myndir af landinu úr allt aö 25 þúsund feta hæö i staö 18 þúsund feta áöur, sögöu þeir Ágúst Böövarsson og Agúst Guömundsson land- mæiingamenn, er þeir sýndu fréttamanni Timans splunkunýja svissneska myndavél, sem Land- mælingar islands hafa eignazt. Myndavélineraf gerðinni Wild, og veröur hún notuð til að taka loftmyndir úr nýju Fokker Friendship-landhelgisgæzluvél- inni. Myndirnar úr þessari vél eru 23x23 sm á hvora hlið. Hægt er aö nota ferns konar filmur i nýju vél- ina: Venjulegar svarthvitar, infrarauðar filmur litfilmur og infrarauðar litfilmur. Minnsti timi milli mynda er ein og hálf sekúnda, en filmurnar i þessa nýju vél eru allt að 120 metra langar og kostar hver slik filma af ódýrustu gerö um 28 þúsund krónur.en 60 metrarnir 14 þúsund. 120 metra litfilma af ódýrustu gerð kostar um 70 þúsund krónur. Ljósopið á þessari nýju mynda- vél er frá 5,6-22, og venjulega er tekið á hraða 1/300-1/500. Brenni- vidd linsunnar er 15 sm, en til samanburðar má geta þess, aö algeng brennividd 35 mm mynda- véla er um 5 sm. Ágúst Böövarsson, forstööu-. maður Landmælinganna, sagði Timanum, að lengi hefði staðið til að fá nýja myndavél, þvi mikil verkefni biða svona tækis. Hingað komin kostar vélin um 3,3 mill- jónir. Hjá Landmælingum liggur fyr- ir að taka nýjar loftmyndir af öll- um jöröum á landinu, en byggöin er stöðugt að breytast, og þvi verða myndir úreltar eftir nokkur ár. Inn á hverja loftmynd, sem tek- in er kemur dagsetning, tima- setning og hæö flugvélarinnar, auk númers myndarinnar og eru sérstakar litlar myndavélar fyrir hvert þessara atriða. 1 næstu viku koma hingað til lands sérfræöingar frá Fokker- verksmiðjunum, og veröa til ráðuneytis um, hvernig mynda- vélinni skuli komið fyrir I flugvél- inni, en myndavélin vegur um 150 kg, og tekur dálitið pláss. Sauðárkrókur: 2 GÖTUR MALBIKAÐAR ÞM-Reykjavik Nú er unniö aö malbikun gatna á Sauðárkróki. Er verið að mal- bika tvær götur, Aðalgötu og Skagfirðingabraut. Vegalengdin sem malbikuö verður er um 1 1/2 km á lengd og nær i gegnum bæ- inn. Malbikið er keypt á Akur- eyri, og flutt á s.s. 12 bilum, sem hver um sig fer einar tvær feröir á dag. Það eru bilar sem taka 8-12 tonn, sem annast þessa flutninga. Fyrir einum átta árum hafði ver- ið malbikað á Sauðárkróki, en meö ófullkomnum tækjum, svo að þær framkvæmdir heppnuöust ekki mjög vel. Einnig er unnið að nýrri vatns- veitu fyrir staöinn, og er meining- in að hún verði tilbúin i haust. Þá er einnig veriö að vinna að skóla- byggingu á Sauöárkróki. DÝPSTU LEYNDARDÓMAR JARÐ- SKORPUNNAR GÆTU RÁÐIZT HÉR Engin fjarstæða, að rdðizt verði í að bora niður d lag þrjú hérlendis á næstu drum, segir dr. Guðmundur Pdlmason Það er ofarlega á óskaiista nefndar þeirrar, sem skipu- leggur rannsóknir á Mið- Atlantshryggnum, að bora niöur i lag þrjú, fer visinda- menn nefna svo. Það er viöast hvar mjög djúpt I jöröu á þurrlendi, en sums staöar á islandi er tiltölulega grunnt á þvi, og þess vegna getur rekiö aö þvi, jafnvel einhvern tima á næstu árum, að slik borun veröi gerð hérlendis. Þetta lag hefur fundizt við jarðskjálftamælingar, og er einkenni þess, að bylgjuhraði er meiri i þvi, en yfirborðs- bergi. En menn vita ekki, hvernig varið er eðli þess og uppruna, þótt sú kenning hafi verið sett fram, að það hafi upphaflega verið basaltlag, er á einhvern hátt hafi umbreytzt i þéttara form. 1-2 kílómetrar i jöröu niðri á þrem stööum Við ræddum i gær við dr. Guðmund Pálmason, for- stöðumann jarðhitadeildar Orkustofnunar, um þær iikur, sem á þvi kunna að vera, að borað verði niður i þetta lag hérlendis, en doktorsritgerö Guðmundar fjallaði einmitt um gerð jarðskorpunnar undir Islandi og fylgdu henni kort, sem sýndu, hversu djúpt er á þessu lagi á Islandi. Það var einnig hann, sem hreyfði þvi á þingi jarðfræðinga hér- lendis árið 1967, að i þessa bor- un yrði ráðizt. — Það er ákaflega misdjúpt á þessu lagi hér á landi, sagði dr. Guðmundur — sums staðar djúpt, en annars staðar grunnt, þetta einn til tveir kil- ómetrar. Einna grynnst er niður á það á Snæfellsnesi, á allstóru svæði i Húnavatns- sýslu, i Vatnsdal og þar i grennd, og i Hornafirði. Eigi að siður yrði borun af þessu tagi ákaflega kostnaðarsöm. Fyrirsjáanlegt gildi hennar yrði fræðilegt, þó enginn geti á hinn bóginn fullyrt til hvers slikar rannsóknir geta leitt siðar meir. Ofarlega á óskalista í janúar i fyrravetur Menn hafa verið að ná úr jarðskorpunni á hafsbotni bergtegundum, sem getgátur eru um, að séu úr þessu lagi þrjú, sem við köll um, hélt dr. Guðmundur áfram. En ósannað er, að svo sé. Þess vegna er ekki nein fjarstæða, að að þvi geti rekið innan tiltölulega skamms tima, aö i könnunarboranir verði ráðizt hér, þegar visindamenn hafa fengið sig fullreynda á borunum i hafs- botninn. Fyrir tveimur eða þremur árum beindi banda- riskur háskóli til okkar fyrir- spurnum um þetta mál, og á fundi nefndar þeirrar, sem fjallar um rannsóknir á Mið- Atlantshryggnum, i Princeton i Bandarikjunum i janúar- mánuði siöast liðinn, var slik borun sett ofarlega á lista um verkefni, sem æskilegt væri aö leysa. A þessum fundi, sem dr. Guðmundur vitnar til, voru nokkrir islenzkir visinda- menn, þeirra á meðal hann sjálfur, og er skýrsla um þennan fund væntanleg innan skamms. Eins konar uppfylling hugmynda Jules Vernes Þaö er skemmtilegt til þess að hugsa, ef svo kynni aö fara, að einhverjir dýpstu leyndar- dómar jarðskorpunnar i eigin- legustu merkingu yrðu ráðnir hér á landi, hvort sem það yrði nú i Húnaþingi eða Hornafirði eða á Snæfellsnesi, þar sem furöusagnahöfundurinn Jules Verne lét sögupersónur sinar fara ævintýralegt ferðalag niður i iður jarðar. Nú er ekki lengur neinn galdur að fara umhverfis jörö- ina á áttatiu dögum, og þótt ekki væri nema á broti úr þeim tima, og kannski rennur sú stund upp, að undirstaða Snæfellsness veröi könnuð til dýpsturóta. -JH. Dr. Guömundur Pálmason.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.