Tíminn - 16.08.1972, Side 11
Miövikudagur 16. ágúst 1972
TÍMINN
11
Umsjón:fllfreð Þorsteinssor
i&M |%
S - * :
Hér á myndinni sést leikvöllur Real Madrid, Estadio Santiago Bernabeu. Hann tekur 110.000
áhorfendur og er alltaf fullsetinn, þegar Real Madrid leikur I Evrópukeppni. (Tfmamynd).
Hvað gera Keflvfkingar á
Estadio Santiago Bernabeu?
sos
Eftir stórtap Keflvikinga i
Eyjum, eru menn farnir að
velta þvi fyrir sér, hvað Kefl-
vikingar geri á hinum heims-
fræga velli Estadio Santiago
Bernabeu, þegar þeir mæta
Real Madrid i Evrópukeppni
meistaraliða i næsta mánuði.
Það er ekki nema von, að
menn séu farnir að velta þessu
fyrir sér, einmitt þegar
tslandsmeistararnir i Kefla-
vik virðast vera i miklum
öldudal — leikmenn liðsins
hafa ekki staðið sig vel i und-
anförnum leikjum i 1. deild.
Þeir verða að taka á honum
stóra sinum, þegar þeir mæta
hinu heimsfræga liði i Evrópu-
keppninni.
Keflavikurliðið, sem hefur
verið eitt okkar sterkasta
félagslið undanfarin ár, hefur
oft leikið fyrir hönd tslands i
Evrópukeppni og staðið sig
með sóma. Það er þvi ekki að
efa, að leikmenn liðsins reyna
allt.sem þeir geta til að standa
sig sem bezt gegn einu fræg-
asta félagsliði i heimi fyrr og
siðar. Þótt ekki hafi gengið vel
hjá Keflavikurliðinu á yfir-
standandi keppnistimabili,
mega leikmenn liðsins ekki
gefast upp, þótt á móti blási,
heldur hvetja hver annan og
sýna að þeir eru þess verðugir
að keppa fyrir tslands hönd i
Evrópukeppni meistaraliða.
Frjálsíþ rótta-
félag stofnað
í Hafnarfirði
I eina tið áttu Hafnfirðingar
marga góða frjálsiþróttamenn.
Má þar nefna Oliver Stein, Þorkel
Jóhannesson, Sævar Magnússon,
Hallstein Hinriksson, Ingvar
Hallsteinsson, Kristján Stefáns-
son o.f 1., sem of langt yrði upp að
telja.
Undanfarin ár hafa frjáls-
iþróttir litið sem ekkert verið
iðkaðar i Firðinum, og þeir sem
mestan áhuga hafa haft, hafa æft
og keppt með Reykjavikur-
félögunum.
Nú hafa áhugamenn um frjáls-
ar iþróttir i huga að stofna frjáls-
iþróttafélag i Hafnarfirði. Þeir,
sem hug hafa á að gerast stofn-
endur, eru boðaðir á fund að
Austurgötu 10 fimmtudaginn 17.
ágúst kl. 20,30.
Unglingakeppni
FRÍ frestað
Unglingakeppni FRf,
sem fram átti að fara í
Vestmannaey j um um
næstu helgi, hefur verið
frestað um eina viku.
Keppnin fer fram dagana
26. og 27. ágúst.
FRl 25 ára í dag
Frjálsíþróttafólk hefur unnið mjög glæsileg afrek
Afrekaskrá kemur út í dag
t dag er liöinn aldarfjórðungur
siöan Frjálsiþróttasamband
islands var stofnað. Fyrsti for-
maöur sambandsins var Konráö
Gislason kaupmaöur, en núver-
andi formaður FRi er örn Eiös-
son.
Frjálsiþróttafólk hefur staðið i
ýmsum stórræðum i þessi 25 ár.
Það hefur unnið frækileg afrek,
margsinnis eignazt Norðurlanda-
meistara, tvivegis Evrópu-
meistara, og eini Islendingurinn,
sem hlotið hefur Olympiuverð-
I pikiir áreinQ?
KR og Breiðablik gerðu jafntefli
- en leikurinn var ekki upp á marga fiska
Leikur ársins? Já, leikur KR og
Brciöabliks, sem fór fram á
Laugardalsvellinum á mánudag-
inn, er tvimælalaust lélegasti
LEIKUR ARSINS. Svo lélegur og
lciöinlegur var ieikurinn, aö
menn muna varla eftir þeim lé-
legri, þótt þeir renni huganum
mörg ár aftur i timann. Þaö var
ekki knattspyrna, sem iiðin léku,
heldur „fótbolti” eins og þaö er
kallaö hjá 5-7 ára krökkum. Þaö
er hægt að taka undir orö eins
áhorfandans, þegar hann sagði:
„Leikmenn liðanna og dómara-
trióiö ættu aö fá ókeypis „Trimm-
karl” að launum fyrir þetta
„dútl”, sem þeir eru að sýna.”
En snúum okkur þá að gang
leiksins, sem bezt væri að gleyma
sem fyrst:
I fyrri hálfleik geröist ekkert,
sem vert er að minnast á — einna
helzt er hægt að minnast á eina
marktækifærið, sem skapaöist i
hálfleiknum, en það fengu
Breiðabliksmenn á 35. min. Helgi
Helgason, átti skot, sem bjargað
var á marklinu, knötturinn hrökk
til Hreiðars Breiöfjörð, sem skaut
á markið úr vitateig. Enn var
bjargað á linu, og hrökk knöttur
inn þá til Ólafs Friðrikssonar,
sem skaut himinhátt yfir. I siðari
hálfleik skapaðist einnig eitt
marktækifæri, og það fengu
Breiðabliksmenn einnig — á 40.
min. komst Þór Hreiðarsson einn
inn fyrir KR-vörnina, en Magnús
Guðmundsson, markvörður KR,
bjargaði á siðustu stundu með út-
hlaupi.
Breiöabliksfiðið var mun
skárra en KR-liðið i leiknum, og
ef heppnin hefði verið meö liðinu,
hefði það átt að vinna leikinn meö
tveggja marka mun. Beztu menn
liðsins voru framlinuspilararnir
Karl Steingrimsson, Ólafur Frið-
riksson og Hreiðar Breiðfjörö. Þá
áttu þokkalegan leik þeir Einar
Þórhallsson og Þór Hreiöarsson.
Það var varla heil brú i leik KR
i leiknum, og var knötturinn ekki
látinn ganga nógu mikið á milli
manna. Beztu menn liðsins voru:
Þórður Jónsson, Baldvin Eliasson
og Björn Pétursson. Aðrir leik-
menn voru mjög daufir og nær
óþekkjanlegir frá fyrri leikjum.
Ljótan svip á liöiö setti Árni
Steinsson, með frekar grófum
leik.
Þess má aö lokum geta. aö siö-
ustu 20 min. af leiknum voru
leiknar i miklu myrkri, þvi að það
er farið að skyggja spemma, og
mætti láta leikina i 1. deild hefjast
klukkutima fyrr, eða kl. 19.00.
SOS.
I
laun, er Vilhjálmur Einarsson,
sem varð annar i þristökki á
Olympiuleikunum i Melbourne
1956. Þá hafa islenzkir frjáls-
iþróttamenn unnið marga sigra i
landskeppni, en frægastur er sig-
urinn yfir Dönum og Norðmönn-
um i Osló 1951.
1 tilefni afmælisins kemur út i
dag bæklingur um beztu frjáls-
iþróttaafrek tslendinga frá upp-
hafi til 1972, en Ólafur Unnsteins-
son tók skrána saman. Hún er pr-
ydd mörgum myndum. Þessi
bæklingur verður seldur i bóka-
verzlun Isafoldar i Austurstræti,
og auk þess er hægt að panta hann
hjá FRI i pósthólfi 1099, Reykja-
vik. Hann er um 50 bls. og kostar
200 krónur.
Stjórn FRl hefur ákveðið að
efna til afmælisveizlu i haust, og
verður tilkynnt nánar um það
siðar.
Hvað gerist
í kvöld?
- Ármann og Selfoss
mætast á Melavellinum
1 kvöld fer einn leikur fram i 2.
deild, á Melaveilinum mætast Ár-
mann og Selfoss. Siðast þegar lið-
in mættust, var leikur þeirra all
sögulegur, þá voru þrir leikmenn
reknir út af leikvelii og sjö fengu
aö sjá gula spjaldið. Nú er þaö
stóra spurningin, hve margir
verða reknir út af i kvöld. Leikur-
inn hefstá Melavellinum kl. 20.00.
Landskeppni í golfi á Ness-
vellinum i dag
I dag kl. 14,00 fer fram á velli
Golfklúbbs Ness á Seltjarnarnesi,
fyrsta eiginlega landskeppnin i
golfi, sem haldin er hér á landi.
Þá mætast þar „öldungalið” Is-
lands og Tékkóslóvakiu, en tékk-
neska liðið kom hingað i gær á
leið sinni til Bandarikjanna, þar
sem þaö tekur þátt i hinni árlegu
heimsmeistarakeppni Seniora,
sem fram fer á Broadmoor Colo-
rado.
Tékkneska liðið er skipað 5
mönnum, sem allir eru orönir 55
ára gamlir eða meir. Mætir það
liði Islands, sem verður skipað
eftirtöldum mönnum: Helga Ei-
rikssyni, Jóni Thorlacius, Sverri
Guðmundssyni, Magnúsi Guö-
mundssyni og Guðmundi Ófeigs-
syni. Hefst keppnin eins og fyrr
segir kl. 14,00 og er öllum heimill
aðgangur að þessari fyrstu lands-
keppni i golfi, sem hér fer fram.
Leiknar veröa 18 holur og verö-
ur þetta bæöi holukeppni og högg-
leikur.
16 ára piltur fór holu í höggi
Á föstudaginn bættist við nýr
maður i hóp þeirra, sem farið
hafa „holu i höggi.” Þetta var
ungur Akurnesingur, Björn Þór-
hallsson, sem er aöeins 16 ára
gamall, og er þvi yngsti Is-
lendingurinn sem náð hefur þessu
takmarki.
Björn sló þetta draumahögg
allra kylfinga á 8. brautinni á
velli Akurnesinga i móti á föstu-
dagskvöldið en 8. brautin er 130
metra löng. Björn er einn þeirra
milli 20 og 30 unglinga, sem
gengið hafa i Golfklúbbinn Leyni
á þessu ári, en meðal unglinga á
Akranesi er nú orðinn mikill
áhugi á þessari íþróttagrein.
Starfsbræður sigruðu i Max
Factor-keppninni hjá GR
Hin árlega opna tviliðakeppni
hjá GR, sem nefnd hefur verið
Max Factor-keppnin fór fram i
góðu veðri á Grafarholtsvelli á
laugardaginn, en þá kepptu karl-
mennirnir og á sama staö á
sunnudaginn, i heldur verra
veöri, en þá kepptu konurnar.
Þetta er tviliðakeppni —
þ.e.a.s. tveir og tveir eru saman
og er árangur þess sem betur
spilar hverja holu talin og eru
gefin stig eða punktar fyrir
höggafjöldann eftir ákveðnu
kerfi.
1 karlaflokki urðu úrslit þau, að
þeir Gunnlaugur Ragnarsson og '
Jón Þór Ólafsson sem báðir eru
þjónar á Röðli, fóru með sigur af
hólmi, hlutu samtals 34 punkta.
Þrir samherjar urðu svo jafnir
með 32 punkta, þeir Jóhann
Benediktsson / Pétur Antonsson,
Óskar Sæmundsson/Ómar
Kristjánsson og Viöar Þorsteins-
son/Kári Elfasson. Fóru þeir út
afturog léku aukaholur um önnur
verðlaunin og sigruðu þeir
Jóhann og Pétur i þeirri keppni.
Er þetta i fjórða sinn i röð, sem
þeir verða i öðru sæti i þessu
móti.
1 kvennaflokki urðu efstar og
jafnar þær Laufey Karlsdóttir /
Hanna Aðalsteinsdóttir og Ólöf
Geirsdóttir / Elísabet Möller,
með 17 punkta og mátti það
kallast gott i þvi veðri, sem var á
sunnudaginn.
Þessar fjórar urðu að fara út
aftur og keppa um fyrstu verð-
launin og sigruðu þær Elisabet og
ólöf i þeirri keppni. 1 þriðja sæti i
kvennaflokki urðu svo þær Inga
Magnúsdóttir og Jóhanna
Ingólfsdóttir með 15 punktat
Framhaid á bls. 10