Tíminn - 17.08.1972, Síða 1
IGNIS
K/ELISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SÍMI: 19294
Geta verið
leifar hvaða
skips
sem er
- ef eitthvað er í
sandinum
„Ég fór á þriöjudaginn
með borinn niður á sand til
mannanna, sem eru að leita
að þessu svokallaða gull-
skipi”, sagði Lárus Sig-
geirsson á Klaustri við
Timann i gær, „og ég kom
aftur við hjá þeim i dag. Þeir
voru byrjaðir að bora, en
sóttist seint, þvi aö þarna eru
leirlög i sandinum, og borinn
varla jafn hentugur og búizt
hafði verið við eins og þarna
hagar til.”
Lárus sagði að staðurinn
væri þrjú til fjögur hundruð
metra frá sjó, og ef eitthvað
væri þarna undir annað en
leir og sandur, myndu vera á
að gizka sex til tiu metrar
niöur á það. En hann kvaðst
ekki úr hófi fram trúaður á,
að þarna væri neitt gullskip.
Þarna gætu verið leifar
hvaða skips sem væri, ef
eitthvað væri. Auk þess
kynni að þurfa að bora
býsnamargar holur áður en
nokkuð fyndist, þótt ein-
hverjar grotnaðar skips-
leifar væru i sandinum. -JH.
Myndin er tekin á þvi augnabliki, sem sprengjan lokaði farvegi Köldukvlslar. Vatnið, sem þarna
myndast, mun ná upp i miðja hliðina, i baksýn og skurðbakkarnir fremst fara á bólakaf. Fleiri myndir
og frétt eru á baksíðu. (Timamynd Kóbert.)
skápar
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Símar 18395 & 86500
V
7
Fischer
enn með
hótanir
KJ-Reykjavik.
Enn mótmælir Fischer hávaða i
höllinni og i gær sendi fulltrúi
hans ljóstæknifræðingurinn
Cramer skeyti til dr. Euwe for-
seta alþjóðaskáksambandsins,
sem býr i Amsterdam. Kvartar
fulltrúi Fischers þar um hávaða i
salnum, og yfir þvi, hve aðaldóm-
arinn Lothar Schmid hafi verið
ósamvinnuþýður siðustu tvær
vikur við að bæta aðstæður i höll-
inni. Dr. Euwe hringdi i aðaldóm-
arann eftir að hann hafði tekið á
móti skeyti Cramers en aðal-
dómarinn sagði, forsetanum, að
aðstæður i höllinni væru allar
samkvæmt einvfgisreglum, og
þar væri enginn verulegur
hávaði. Skriflegt svar við þessum
umkvörtunum Cramers mun
verða sent fyrir hádegi i dag og
undirritað af fulltrúum skáksam-
bandsins og aðaldómaranum.
Þar sem Cramer fer einkum
fram á er, að fremstu sætaraðir-
nar i salnum verði fjarlægðar,
bannað verði að skýra skákirnar i
herbergjum undir salnum, og
komið verði i veg fyrir, að börn
séu að hlaupaum salinn, eins og
komið hefur fyrir, þegar teflt
hefur verið. Ef ekki verður verið
við þessum kröfum hefur Fischer
i hótunum um að tefla i bak-
herberginu, eins og gert var i
þriðju umferðinni.
STEFNT ER AÐ ÞVI AÐ EIN
VlGIÐ BERI SIG
í athugun að smíða 1000 skákborð
og selja þau í Bandaríkjunum
KJ-Reykjavik
Þeir skáksambandsmenn virð-
ast staðráðnir i að iáta heims-
meistaraeinvigiö standa Júndir
sér fjárhagslega — eða meö öðr-
um orðum að gera allt, sem i
þeirra valdi stendur til þess að
svo megi veröa. Hafa þeir uppi
margskonar fyrirætlanir til fjár-
öflunar, en útséð virðist vera um
aö nokkrar verulegar fjárhæðir
komi inn vegna kvikmyndatöku
af taflmennskunni i Laugardals-
höllinni.
Guðmundur G. Þórarinsson
forseti Skáksambands tslands
staðfesti það i viðtali við Timann i
dag, að hugmyndir væru nú uppi
um að láta smiða allt að eitt þús-
und skákborð, eins og það sem
heimsmeistarinn og áskorandinn
hafa setið við i Laugardalshöll-
inni, og selja þau númeruð á
Bandarikjamarkað. Er Skák-
sambandið i viðræðum við iðju-
höld i Bandarikjunum, sem sýnt
hefur máli þessu mikinn áhuga.
Margt þarf þó að athuga og gera
áður en smiði þessara borða
verður að veruleika. T.d. þarf
mjög mikið efni i þessi eitt þús-
und borð, eða um 150 tonn af mag-
hony, og vinnur nú bandariski
iðjuhöldurinn að þvi að útvega til-
boð um sölu á efninu hingað til
lands.
Hugmyndin er að borðin yrðu
smiðuð i „serium” hundrað borð.
i serium.og yröi hvert borð með
áletraðri silfurplötu og númeri.
Gunnar Magnússon húsgagna-
arkitekt hannaði skákborðið i
Laugardalshöllinni, og gaf hann
Skáksambandinu teikningarnar
af borðinu. Gunnar er nú erlendis,
en hann á að sjálfsögðu höfundar-
réttinn, og ekkert verður gert
nema i samráði við hann.
Ragnar Haraldsson húsgagna-
smiðameistari smiðaði borðið
sem heimsmeistarinn og áskor-
andinn hafa setið við, en stein-
platan, sem upphaflega var i
borðinu var srhiðuð hjá S. Helga-
son h.f. steiniðju.
Ekki er gott að segja til um
hvaðborðsem þetta myndi kosta,
en ef tækist að selja 1000 borð af
þessari gerð, myndi það áreiðan-
lega rétta við fjárhag Skáksam-
bandsins.
Guðmundur G. Þórarinsson
sagði, að margar aðrar hug-
myndirværuá lofti um fjáröflun,
og mætti þar nefna skyndihapp-
drætti, þar sem verðlaun yrðu
skákborð áritað af Spasski og
Fischer. Þá sagði hann að Skák-
sambandið hefði sent myntfyrir-
tækinu Lombardo i Bandarikjun-
um skeyti vegna hugsanlegrar út-
gáfu opinbers minnispenings þar
ilandi um heimsmeistaraeinvigið
i Reykjavik. Væri vonast til að
eitthvað yrði af framkvæmdum i
þessu sambandi á næstunni.
Að lokum sagði Guðmundur að
Fischer heföi enn ekki skrifað á
skákborðin tiu, en hann vonaðist
til að af þvi yrði og leggöi Skák-
sambandið mikla áherzlu á það,
enda heföi lögfræðingur Fischers
Paul Marshall tjáð Skáksam-
bandinu aö áskorandinn myndi
rita nafn sitt á borðin. Spasski á
einnig að skrifa á borðin, en búizt
er við að ekki þurfi eins að ganga
á eftir honum með áskriftina og
Fischer.
„Framar björtustu von-
um"
Guðlaugur Guðmundsson, sem
sæti á i stjórn Skáksambandsins,
sér um rekstur minjagripa-
verzlunarinnar i Laugardalshöll-
inni, og sagði hann i viðtali við
Timann i gær, að salan þar hefði
farið fram úr björtustu vonum, og
stundum komizt upp i á þriðja
hundrað þúsund á dag.
Guðlaugur sagði, að mest seld-
ist af kortum og umslögum. T.d.
hefði Skáksambandið gefið út 30
þúsund umslög með mismunandi
myndum, og væri sala um-
slaganna langt komin. Kortin
hans Halldórs Péturssonar hafa
selzt mjög vel, og á þriöjudaginn
kom út litkort sem Halldór hefur
teiknað og Skáksambandið gefur
út i 8 þúsund eintökum, og sagði
Guðlaugur að það hefði selzt mjög
vel fyrsta daginn, enda kostar
það ekki nema 100 krónur
Guðlaugur sagði, að það sem
merkt væri sambandinu og
minnti á einhvern hátt á einvigið
seldist áberandi bezt, og hefði
fólk haft orð á þvi að þaö vildi
styrkja sambandið með þvi að
kaupa það sem þvi er merkt.
Að lokum sagöi Guölaugur að
þeir skáksambandsmenn stefndu
að þvi að ná endunum saman
fjárhagslega, og leggðu nú mikla
vinnu i það að athuga alla mögu-
leika.
Skákboröið ásamt hliöarborðum á sviðinu I Laugardalshöllinni.