Tíminn - 23.08.1972, Qupperneq 13
Miðvikudagur 23. ágúst 1972
TÍMINN
13
17. einvígisskdkin fór í bið:
Tekst Spasskí
sér í vinning
ET—Reykjavik.
17. einvigisskákiu för i bið eftir
40 leiki. Veður öll voru válynd i
Eaugardalshöllinni, er hún hófst i
gær. h'ischer hafði sent frá sér
inótmælabréf i fyrrinótt (sjá
haksiöu) og Geller, aðstoðar-
maður Spasskis, sendi annaö slikt
i gærdag (sjá forsiðu).
Skákin sjálf var með fjörlegra
móti. Spasski fékk opnari stöðu i
upphafi, en lengi framan af var
skákstaðan mjög jöfn. Spasski
vann skiptamun i 21. leik og fékk
við það nokkru betra tafl.
Eins og fyrr sagði, fór skákin
svo i bið og stendur Spasski betur
að vigi i biðstöðunni. Hvort þeir
stöðuyfirburðir séu svo miklir, að
þeir nægi til vinnings, eru hins
vegar áhöld um meðai skák-
meistara.
Biðskákin verður tefld kl. 5 i
dag og má búast við langri og
strangri baráttu, þvi að heims-
meistarinn verður skilyrðislaust
að vinna, ætli liann sér að halda
tigninni.
ENN BREGÐUR
FISCHER AF VANA
SÍNUM
Askorandinn mætir „aðeins” 5
minútum of seint til leiks að þessu
sinni. Á skákborðinu blasir við
honum fyrsti leikur heims-
meistarans e4. Fischer svarar að
bragði: d6. Næstu leikir sýna, að
hér er fremur óvenjuleg byrjun á
ferðinni, nefnilega svokölluð
Pirc-vörn. Ég fæ fljótlega þær
upplýsingar, að þetta sé i fyrsta
skipti, sem Fischer beiti vörninni.
Enn einu sinni kemur hann Rúss-
unum i opna skjöldu i byrjunum.
(Annars er Pirc-vörn i miklu
eftirlæti hjá skákmeisturum sem
stendur, einkum i Sovét-
rikjunum).
Leikjunum fjölgar og staðan
verður brátt of flókin fyrir leik-
menn á borð við mig. „Svipuð
staða”, segja spekingarnir, en
nóg um það að sinni.
Þetta er Sverrir V. Bernhöft i matsölunni I Laugardalshöll að reiða
fram hressingu handa skákköppunum — Spasski og Fischer — epla-
safa, lómatasafa og annað þess liáttar, ásamt molum, svo að drykkur-
inn svali þeim.
Einvígið Framhald af bls. 16. Bréf Gellers Farfaísaí
ekki aðeins skoðun min, heldur
lika stórmeistara þeirra, sem ég
talaði við. Jafnvel þér virtuzt á
sömu skoðun, eftir þvi að dæma,
sem mátti sjá til yðar á sviðinu”.
Þá segir Cramer, að fjarlægja
verði fyrstu sjö sætaraðirnar,
lögreglumenn i einkennis-
búningum verði að vera i salnum,
og að biðja verði áhorfendur um
að vera sem minnst á gangi um
salinn og að hætta öllu skrafi. Þá
þurfi að loka götunum, sem eru á
milli salarins og herbergjanna,
þar sem skákirnar eru skýrðar.
Að lokum segir Cramer „að
timi sé til kominn að halda fund,
þar sem málin verði tekin föstum
tökum og reynt að leysa þessi
vandamál, en ekki stöðugt vitnað
i reglur og fjárhagsafkomu
mótsins. Við erum búnir að biða
of lengi. Lothar. Komum þessum
hlutum i lag áður en einviginu er
stefnt i hættu”.
Spasski úr jafnvægi og koma hon-
um úr baráttuskapi.
Mér finnst, að hegðun Roberts
Fischers sé i beinni andstöðu viö
samninga þá, er gérðir voru i
Amsterdam, og fara fram á heið-
arlega framkomu keppenda. Ég
tel ennfremur, að dómarar ein-
vigisins hafi þegar i höndunum
nægileg sönnunargögn til að
krefjast þess, að Robert Fischer
fari eftir settum reglum einvigis-
ins. Þegar verður að taka i taum-
ana, þvi einvigið er að ná há-
marki og dregur að úrslitum.
Við höfum fengið bréf, sem
segja að rafeindatæki og efna-
fræðileg samsetning, sem hægt er
að koma fyrir i keppnissalnum,
séu notaðar til að hafa áhrif á
Roris Spasski. 1 bréfunum er sér-
staklega bent á stól Fischers og
þau áhrif, sem hin sérstaka lýsing
yfir sviðinu, hefur, og sett var upp
að beiðni Bandarikjamanna.
ab krækja
ELDINGU SLÆR
NIDUR
Það er rólegt á yfirborðinu hér i
Höllinni á sjöunda timanum, en
undir niðri ólgar sjór. Eitthvað
stórkostlegt er á seyði! Svo
kemur Freysteinn blaðafulltrúi
hlaupandi með blaðabunka og
byrjar að dreifa plöggum meðal
fréttamanna.
Annað plaggið er frétt frá Sl,
þar sem skýrt er frá fundi með
forráðamönnum Fischers fyrr i
dag (þriðjudag). Niðurstöður
þess fundar voru þær, að 17.
skákin yrði tefld á sviði keppnis-
salarins. Athyglisverður
árangur!
Hitt plaggið vekur öllu meiri
athygli. Það er yfirlýsing Gellers,
aðal aðstoðarmanns Spasskis,
(birt i heild á öðrum stað i
blaðinu). Efni hennar vekur
mikla furðu og sumir trúa ekki
sinum eigin augum.Ég spyr Fred
Ef til vill hljómar þetta ævin-
týralega, en augljós atriði i þessu
sambandi benda til þess, að eitt-
hvað kunni að vera til i þessu.
Af hverju, til dæmis, mótmælir
Fischer allri kvikmyndatöku,
jafnvel þótt hann tapi stórfé á
þvi?
Ein af ástæðunum gæti verið
sú, að hann sé fikinn i að losna
við, að stöðugt sé íylgzt með
hegðun og likamlegu ástandi
keppenda.
Sama gæti manni dottið i hug,
ef teknar eru til athugunar endur-
teknar kröfur hans um að halda
taflinu áfram bak við lokaðar dyr
og fjarlægja áhorfendur úr 7
fyrstu sætaröðunum. Það kemur
spánskt fyrir sjónir, aö Banda-
rikjamennirnir séu i Laugardals-
höllinni, þegar ekki er verið að
tefla, jafnvel að nóttu til. Krafa
Cramers um, að Fischer fái til
umráða og afnota „sinn”
ákveðna stól, þótt báðir stólarnir
liti eins út, kemur einnig spánskt
fyrir sjónir, enda eru stólarnir
gerðir af sama fyrirtæki i Banda-
rikjunum.
Ég vildi lika láta það koma
fram, að eftir að hafa þekkt Boris
Spasski i mörg ár, þá er þetta i
f'yrsta skipti sem eg verð var við
að hann sé fljótfær og eigi erfitt
með að einbeita sér i taflmennsku
sinni. Þetta get ég ekki skýrt með
sérstaklega góðri taflmennsku
Fischers. Þvert á móti hafa
áskorandanum orðið á tæknileg
mistök i nokkrum skákanna og i
mcrgum þeirra notfærði hann sér
alls ekki þá möguleika, sem stað-
an bauð upp á.
t framhaldi af þvi, sem sagt
hefur verið hér að framan, hefur
sendinefnd okkar afhent aðal-
dómaranum og framkvæmdaað-
ilum einvigisins yfirlýsingu varð-
andi þetta efni, þar sem þess er
krafizt, að Laugardalshöllin og
það, sem i henni er, verði rann-
sakað með aðstoð hæfra sérfræð-
inga möguleikar á nærveru óvið-
komandi hluta tengdum keppend-
um verði útilokaðir.
Reykjavik, 22. ágúst, 1972,
E. Geller.”
Þegar Frank Skoff einn af
varaforsetum bandariska skák-
sambandsins fór af landi brott,
kom i hans stað Don Schults,
annar varaforseti, og rafeinda-
verkfræðingur að atvinnu. Skoff
fór til Bandaríkjanna i siðustu
viku, til að vera viðstaddur
útnefningu sina, sem forseti
bandaríska skáksambandsins á
ársþingi sambandsins i Atlanta
nú i vikunni. Schultz er starfandi
hjá IBM-fyrirtækinu, og er einn af
stjórnendum Evrópudeildar þess.
— Þessar fréttir kom mönnum til
að brosa eftir að hafa lesið yfir-
lýsingu Gellers. „Einkennileg
tilviljun eða.?”
— eða heldur
Fischer jöfnu?
Cramer álits, en hann er faldrei
þessu vant) alveg orðlaus. Það er
litið fylgzt með skákinni hér i
blaðamannaherberginu þessar
minútur.
F.JÖR FÆRIST í
LEIKINN
Smám saman beina menn
augum á ný að skákinni. Spasski
hefur fórnað peði fyrir sóknar-
færi. Staðan er annars tvisýn og
sérfræðingur iáta ekkert
uppskátt. Sóknarþungi Spasskis
eykst og Fischer lætur skiptamun
i 21. leik. Frank Brady hristir
höfuðið yfir vini sinum og telur
skákina gjörunna fyrir Spasski.
Bragi Kristjánsson segir heims-
meistarann standa betur, ef
honum takist að knýja fram upp-
skipti. Það heppnast Spasski, þvi
að Fischer þiggur drottninga-
kaup, og leiðin til sigurs virðist nú
opin fyrir heimsmeistarann.
B I D S K AK F II A M
UNDAN — SAGT UM
BIDSTÖDUNA
Nú hefst hatrömm barátta á
skákborðinu. Spasski reynir að
rjúfa varnarvegg andstæðings-
ins, á meðan Fischer leitast við
að halda i horfinu.
Eftir 40 leiki fer skákin i bið. Ég
spyr nokkra skakmeistara um
álit á biðstöðunni og fara svörin
hér á eftir:
Krank Brady: „Þetta endar
liklega með jafntefli. Hins vegar
á Spasski e.t.v. vinningsleið, en
ég kem ekki auga á hana i svip-
inn”.
Harold Schonberg: „Ég er ekki
trúaður á, að Spasski vinni. Það
er a.m.k. mjög erfitt i þessari
stöðu”.
Bragi Krist jánsson: „Þetta
hlýtur að vera unnið fyrir
Spasski, þótt það taki kannski
langan tima fyrir hann að knýja
fram vinning".
Guniiar Guiinarssoii: „Spasski
vinnur skákina að öllum likindum.
Úrvinnslan á stöðunni er eflaust
erfið, en hann hlýtur að hljóta
réttmætan vinning i þessari
skák”.
Dimitrije Bjelica: „Spasski
hefur allgóða vinningsmöguleika
i stöðunni".
Joliu ( ollings: „Hvitur stendur
betur, en erfitt er að spá um
framhaldið. Fischer er snillingur
i vörn, ekki siður en sókn, svo að
ekki er auðvelt að spá neinu um
úrslitin”.
Lazarevic, júgóslavneska skák-
konan: „Spasski á góða mögu-
leika á vinningi."
Jens Eiivoldsen: „Spasski hefur
sáraiilla vinningsmöguieika”.
Jon Þorsleinsson: „Sennilegust
úrslit eru jafntefli”.
Rohert Byrne: „Hvitur á að
minum dómi vinningsmöguleika i
biðstöðunni.”
Svetozar Gligoric: „Hvitur
stendur betur að vigi og hefur
e.t.v. möguleika á vinningi”.
1x2—1 x 2
(20. leikvika —leikir 12. ágúst 1972.)
Úrslitaröð: 212 — 121 — XXI — 1X1
1. vinningur: 11 réttir — kr. 100.500.00 nr. 12513
(Suðureyri)
2. vinningur: 10 réttir — kr. 3.900.00
nr. 2176 nr. 10315 nr. 20144 nr. 29050
nr. 6076 + nr. 13912 nr. 23810 nr. 33912
nr. 18648 nr. 24280 + nr. 34042 +
+ nafnlaus
Kærufrestur er til 4. sept. Vinningsupphæðir geta lækk-
að ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 20.
leikviku verða póstlagðir eftir 5. sept-
llandhafar nafniausra seðla (merktir +) verða að
Iramvísa stofni eða scnda stofninn og fullar upplýsingar
um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag
vinninga.
GETRAUNIR — iþróttamiðstööin — REYKJAVÍK