Tíminn - 25.08.1972, Blaðsíða 5

Tíminn - 25.08.1972, Blaðsíða 5
Föstudagur 25. ágúst 1972 TÍMINN 5 Gefur stórupphæöir Hinn auðugi hótelkóngur, Conrad Hilton hefur gefið 720 milljónir króna til sjúkrahúss nokkurs. Ekki fer sögum af þvi, hvaða sjúkrahúss, en hann hefur óskað eftir þvi, að pening- arnir verði notaðir til heilarann- sókna. -X* Kóngafólk í heimsókn Constantin konungur og Anna Maria drottning hans voru fyrir nokkru i heimsókn hjá trans- keisara i Tehran. Þessi mynd var tekin af þeim hjónum, þegar Farah keisaraynja kvaddi þau við brottför þeirra á flug- vellinum. Voru allir hinir ánægðustu með ferðina, eins og sjá má af svipnum. Range Rover á toppnum Það má með sanni segja, að Range Rover er á toppnum þessa dagana, hvað vinsældir áhrærir. Hér á tslandi hafa skákmeistararnir Spasski og Fischer ekið um á þessum fina og flotta jeppa dagsdaglega, og nú nýverið, þegar Constantin konungur var i Kaupmannahöfn fékk hann einnig tækifærið til þess að aka um á Range Rover. Hann ók meira að segja sjálfur, og þótti það i frásögur færandi þar i landi, en á eftir komu lög- reglumenn, sem gættu konung- sins, og þeir létu sér nægja hversdagslegan fólksbil, sem kannski hefur ekki verið hvers- daglegur, þegar betur var að gáð, en alla vega var ekki getið um tegundina i fréttinni. Dönum þótti nokkuð mikiö haft við konunginn þessa daga i Kaupmannahöfn. Hann fékk að búa i höll Margrétar drottn- ingar, sem sjálf var erlendis með mann, börn og móður sina. Daglega mátti sjá hann i mat á öllum helztu hótelum Kaup- mannahafnar, og á kvöldin skemmti hann sér lika vel. Einn daginn var honum boðið i há- degisverð i bandariska sendi- ráðið, og var sagt, að það boö hefði verið af pólitiskum toga spunnið. Furstadóttir á ferð Þegar Furstafjölskyldan af Mónakó er úti á meðal almenn- ings er svo komið, að athygli manna beinist æ meira að dótt- urinni, hinni 15 ára gömlu Caro- line heldur en að Grace fursta- frú, einsog áður var. Hér er Caroline á baðstað og er greini- legt, að menn keppast um að ná af henni sem beztri mynd. ★ Fín afmælisgjöf Jackie Onassis fékk bærilega afmælisgjöf frá eiginmanni sinum, þegar hún átti afmæli nýlega og varð 43 ára gömul. Hún fékk landsvæði á strönd Costa Smeralda, sem er'eyja, og þar átti Onassis töluverðar landareignir. ★ Sophia í fríi Sophia Loren hefur verið i tveggja vikna frii hjá Tito Júgóslaviu-forseta og konu hans, en kona Titós er mjög hrifin af Sophiu og litur einna hleztá hana sem væri hún dóttir hennar. Næst er það Kaupmanna- höfn Erich Segal, höfundur Love Story varð mjög hrifinn af Kaupmannahöfn og fallegu ljós- hærðu stúlkunum, sem hann sá þar, þegar hann kom þangað fyrir nokkru. — Næsta kvik- mynd min verður tekin i Kaup- mannahöfn, sagði hann, en sú mynd á að fjalla um niður- bældar tilfinningar elskhuga nokkurs. Lengi lifir í gömlum glæðum Verið er að gera kvikmynd i minningu um það, að tiu ár eru liðin frá þvi Marilyn Mbnroe framdi sjálfsmorö Einn eigin- manna hennar, Joe de Maggio man enn eftir þessari eiginkonu sinni.þvi sagt er, að hann sendi daglega blóm, dökkrauðar rósir, á leiði hennar. — Allir eru þeir eins, þessir karlmenn. Þaö eru bara pen- ingarnir manns, sem þeir sækjast eftir. —- Svona áfergjulega hefurðu aldrei horft á mig, Páll! * — Óli minn, þú verður að fara að gera eitthvað við þessu svefn- leysi þinu. ÓVIDKOMANDI <S) BANNAÐUR D)AÐGANGUR ÞÚ MEÐ- TALINN! /1-1 DENNI DÆMALAUSI Ég get ekki lesið þetta, en ég veit samt að það er verið að tala um okkur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.