Tíminn - 25.08.1972, Page 9

Tíminn - 25.08.1972, Page 9
Jón H. Magnússon, nemi er 23 ára gamall. Hann hefur leikið 40 landsleiki og hefur skorað 120 mörk i þeim. Munchen ^0 1972 íslenzku þátttakendurnir GIsli Blöndal, 24 ára gamall, rafvirki að iðn. Hann hefur leikið 20 landsleiki og skorað 45 mörk i þeim. Sigurður Einarsson, skrifstofumaður, er 29 ára gamall. Hann hefur leikið 47 landsleiki og skorað 61 mark í þeim. Agúst ögmundsson, skrifstofumaður, er 25 ára gamall. Hann hefur leikið 24 landsleiki og skorað 15 mörk i þeim. Stefán Gunnarsson, múrari, er 20 ára gamall. Hann hefur leikið 18 landsleiki og skorað 8 mörk i þeim. Axel Axelsson, lögreglu- þjónn, er 20 ára gamall. Hann hefur leikið 11 landsleiki og skorað 30 mörk i þeim. Ólafur Benediktsson, nemi, er 19 ára gamall, og leikur i marki. Hann hefur 11 landsleiki að baki. Geir Hallsteinsson, iþróttakennari, er 26 ára gamall. Hann hefuF leikið 64 landsleiki og skorað 322 mörk i þeim. Lára Sveinsdóttir, nemi, er fædd 22. ágúst 1955, og er h'-.,i yngst islenzku keppendanna á Ólympiu- leikunum. Arangur hennar á þessu ári hefur verið frábær, hún hefur, sjö sinnum sett nýtt Islandsmet i hástökki kvenna. Met hennar nú er 1. 69. Lára Sveinsdóttir er fyrsta islenzka stúlkan, sem tekur þátt i Ólympiu- leikum. Hún keppir i hástökki. Erlendur Valdimarsson, skrifstofumaður, er fæddur 5. nóvember 1947. Hann hefur verið bezti islenzki kringlukastarinn um margra ára skeið. Islandsmet hans er 60.82 m, sett 1972. Erlendur á Islandsmeti sleggjukasti, 58.64, m. og hefur varpað kúlu 17.14 m. Hann tekur nú þátt i ólympiuleikum i fyrsta sinn og keppir i kringlukasti. Þorsteinn Þorsteinsson, nemi, er fæddur 27. júli 1947. Hann hefur verið bezti 800 m, hlaupari okkar i mörg ár og keppir i þeirri grein i MUnchen. Beztu timar hans: 200 m 22,8 sek. 400 m 48.2 sek. og 800 m. 1:50,1 min., sem er met. Þorsteinn er við nám i Bandarikjunum. •Hann var sjöundi i 800 metra hlaupi á Evrópu- meistaramótinu innan- húss, sem haldið var i Grenoble. Timi hans var 1:53,3 min. Finnur Garðarsson, nemi er fæddur 20. marz 1952. Hann hefur verið einn hraöskreiðasti sund- maður okkar i nokkur ár. Hann tekur nú i fyrsta sinn þátt i ólympiu- leikum og keppir i 100 og 200 m frjálsri aðferð. tslandsmet hans i 100 m er 55.8 sek. Hjalti Einarsson, slökkvi- liðsmaður, er 33 ára gamall. Hann hefur 63 landsleiki i handknattleik . að baki, sem mark- vörður. Björgvin Björgvinsson, lögregluþjónn, er 23 ára gamall. Hann hefur leikið 36 landsleiki og skorað 41 mark. Sigurbergur Sigsteinsson, iþróttakennari, er 24 ára gamall. Hann hefur leikið 51 landsleik og skorað 46 mörk i þeim. ólafur H. Jónsson, nemi er 22 ára gamaii. Hann hefur leikið 46 landsleiki og skorað 94 mörk i þeim. Viðar Simonarson,27 ára gamall, iþróttakennari. Hann hefur leikið 41 landsleik og skorað 68 mörk i þeim. Bjarni Stefánsson, nemi, er fæddur 2. desember 1950. Hann hefur um margra ára skeið verið einn af fremstu sprett- hláupurum okkar. Beztu timar hans: 100 m, 10,5 sek. 200 m. 21.7 sek og 400 m. 47.5 sek., en það er Islandsmet. Bjarni tekur þátt i 100 m. og 400 m hlaupum i Miinchen. Guðmundur Gislason er fæddur 19. janúar 1943. Hann hefur verið snjallasti sundmaður Islands um fjölda mörg ár, og hefur sett alls 151 met, i hinum ýmsu greinum. Að atvinnu er Guðmundur deildarstjóri i banka. Hann tekur nú þátt i ólympiuleikum i fjórða sinn, og mun það vera einstakt um sund- mann. Guðmundur á nú öll íslandsmet i baksundi, flugsundi og fjórsundi. Hann keppir i 200 og 400 m. fjórsundi i Miinchen, og met hans i þeim greinum eru 2:19,0 min. og 5:02,1 min. Óskar Sigurpálsson, er bakari að iðn, fæddur 21. desember, 1945. Hann keppir i þungavigt og hefur náð beztum saman- lögðum árangri 482,5 kg, sem er íslandsmet. Hann er fyrsti islenzki lyftingamaðurinn, sem keppt hefur fyrir tsland á Ólympiuleikum, en það var i Mexikó 1968. Guðjón Guðmundsson, rafvirki, er fæddur 6. janúar 1952. Setti sitt fyrsta met á þessu ári og á nú öll íslandsmet i bringusundi. Bezti árangur hans er 1:10,9 min, i 100 m og 2:32.9 i 200 m bringusundi. Hann keppir i hvorutveggja i Múnchen. Friðrik Guðmundsson, nemi, er fæddur 4. marz 1955. Undanfarið ár hefur hann veriö bezti sund- maður okkar á löngu vegalengdunum, og er met hans i 1500 m frjálsri aðferð 17:38,0 min. Hann keppir i 400 og 1500 m frjálsri aðferð i Miinchen. Gunnsteinn Skúlason, framkvæmdastjóri, er 25 ára gamall. Hann er fyrirliði islenzka landsliðsins i handknatt- leik. Hann hefur leikið 26 landsleiki og skorað 34 mörk i þeim. Guðmundur Sigurðsson, verkstjóri, er fæddur 9. júni 1946. Hann á tslands- met i milliþungavigt, pressar 157,5 kg,, snarar 136.0 kg. og jafnhattar 180.0 kg. Samtals 465,0 kg. Met hans eru öll sett á þessu ári. Hann varð tiundi i sinum flokki á Evrópumeistaramótinu i Constanza fyrr á árinu. Birgir Finnbogason, kennari, er 24 ára gamall. Hann er markvörður og hefur leiki 28 landsleiki. Stefán Jónsson, 27 ára gamall. Hann er trésmiður að iðn, hefur leikið 42 landsleiki og skoraö 36 mörk i þeim.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.