Tíminn - 25.08.1972, Page 10

Tíminn - 25.08.1972, Page 10
10 Wolfgang Nordwig, austur-þýzki stangarstökkvarinn, kemst senni lega á verOIaunapall á OL. enda þótt honum sé ekki spáö 1. sæti. Tschishowa, Sovétrlkjunum, er sigurstrangleg I kúluvarpi kvenna. t spjótkasti er Sovétmaöurinn Janis Lusis langllklegastur til aö hljóta sigur. TÍMINN Föstudagur 25. ágúst 1972 Föstudagur 25. ágúst 1972 TÍMINN Frjálsiþróttakeppni 20. Olympíuleikanna, sem hefst 31. ágúst verð- ur vafalust ein sú harð- asta og tvisýnasta i sögu þessarar miklu iþrótta- hátiðar, sem endurvakin var i Aþenu 1896. Frjálsíþróttir er aöalgrein Olympiuleikanna og jafnan sú greinin, sem langmesta athygli vekur hverju sinni. Þegar litiö er á afrekin, sem unnin hafa verið I sumar til þessa sézt bezt á hverju er von i Mílnchen. Sem dæmi um það má nefna, aö um mánaða- mótin siöustu höföu 13 sprett- hlauparar hlaupið 100 metrana á lOsek. eöa betri tíma, þar af tveir á 9,9 sek. 1 stangarstökki er 20. bezta afrekið 5,25 metrar og þannig má halda áfram i öllum öörum greinum. 1 kúluvarpi eru 20 metrar jafn hversdaglegir og 16 metrar á OL I London t.d. Auðvitað stefna iþróttamenn eins og allir kappsfullir menn aö ná lengra, vinna meiri afrek. En aö minu áliti er afrekakapphlaup- ið komið út I öfgar. Sérstaklega er það alvarlegt hvað allar áhuga- mannareglur eru þverbrotnar, raunar bæði ljóst og leynt. Sam- þykktir eru geröar, en stórþjóð- irnar, sem mest hafa völdin i iþróttunum einsog á öðrum svið um mannlifsins vilja gleyma þeim í hinu æðislega kapphlaupi um meistara og methafa.En við skulum nú ekki hafa fleiri orð um þessi mál, þeim verður vart breytt af okkur a.m.k. Islend- ingar eru sennilega ein af fáu þjóðum heims, sem ennþá halda i heiðri reglum um áhugamennsku iþróttum. Nú skulum við gerast spámenn um hverjir hljóta verð- launin i frjáls Iþróttakeppni OL I Milnchen 1972. Hlaupin. Baráttan i spretthlaupunum þ.e. 100 og 200 m. verður fyrst og fremst milli Bandarikjamanna og sovézka spretthlauparans V. Borzow. Bandarikjamennirnir eiga betri tima a.m.k. Hart og Robinson, en hið mikla keppnis- skap Rússans ræöur úrslitum. 100 m hlaup: 1. V. Borzow, Sovét, 2 Hart USA 3. Mennea, Italíu. 200 m. hlaup: 1. V. Borzow, Sovét, 2. Ch, Smith, USA, 3. Mennea, Italiu. 400 m hlaup telzt eiginlega orðið til spretthlaupsins nú á dögum og i þeirri grein veröur baráttan ekki minni. Banda- rikjamenn verða sigursælir. 400 m. hlaup: 1. J. Smith, USA, 2. D. Jenkins, Bretlandi, 3. Collett, USA Wottle, USA jafnaöi heims- metið i 800 m hlaupi i sumar og er að minu áliti sigurstranglegur i þessari grein, en hann fær svo sannarlega harða keppni og jafn- vel þó að Finninn Vasala, sem nýlega setti Evrópumet verði ekki með. 800 m. hlaup: 1. Wottle, USA, 2. Arshanow, Sovét, 3. Fromm, A. Þýzkalandi. Langt er slðan Norðurlandabúi hefur hlotið gullpening i 1500 m. hlaupi en nú eru svo sannarlega möguleikar á þvi. 1500 m. hlaup: 1. Vasala, Finnl. 2. Ryuna, USA, 3. Keino, Kenya. Langhlaupin 5 og 10 km. verða ekki af verri endanum, og þó að margir komi til greina eru flestar spár á þann veg, að baráttan standi milli Finnanna og brezka hlauparans Bedford. Ýmsir fleiri koma þó til greina, sem of langt yrði að telja. 5000 m. hlaup: 1. L. Virén, Finnl. 2. Prefontaine, USA, 3. Bedford, Bretlandi. Afrekin munu ekki láta standa á sér í Miinchen. Þrettán spretthlauparar hafa hlaupið 100 m á 10 sek. eða betri tíma. Tuttugasta bezta afrekið í stangarstökki er nú 5,25 metrar. Og 20 metrar í kúluvarpi eru jafn hversdaglegir og 16 metrar á 0L í London 1948. Af hástökkvurum kemur Sovétmaðurinn Sapka helzt til greina. Hann notar Fosbury-stninn, einsog svo margir. Litið hefur heyrzt frá heims- methafanum I þristökki, Perez frá Kúbu, siðan hann stökk 17,40 m. i fyrra. Hann hefur bezt stokkið 16,80m i ár. Trúlegt er að baráttan veröi milli Evrópubúa. 1. Sanajev, Sovét. 2. Drehmel, A.Þýzkal. 3. Perez, Kúbu. HARÐASTA 0G TVÍSÝNASTA FRJÁLSÍÞRÓTTAKEPPNI OL-LEIKANNA TIL ÞESSA 1. Feuerbach, USA 2. Rotenburg, A. Þýzkal. 3. Woods, USA. Sænski kraftajötuninn Ricky Bruch, sem keppti hér i sumar i kringlukasti hefur veriö nær ósigrandi i sumar og þaö væri hrein óheppni, ef hann yrði ekki ólympiumeistari. 1. R. Bruch, Sviþjóð. 2. Danek. Tékkóslóvakiu. 3. Silvester, USA. Sleggjukastið er hreint uppgjör milli Rússa og Þjóöverja, en þeir eiga 10 beztu menn á heims- skránni. 1. Bondartsjuk. Sovét. 2. Riem, V. Þýzkal. 3. U. Beyer, V. Þýzkal. Lusis, Sovét, nýbakaður heims- methafi i spjótkasti er langbeztur i þessari grein og langliklegastur OL-meistari 1. J. Lusis, Sovét. 2. Siitonen, Finnl. 3. Wolfermann, V. Þýzkal. Robinson, Bandarlkjunum, verður sennilega meðal þriggja á verölaunapalli I langstökki. Baumgartner, Vestur-Þýzka- landi er spáð sigri I langstökkinu. 10000 m. hlaup: 1. Bedford Bretlandi, 2. VSatainen, Finnl. 3. Scharafetdinow, Sovét. Grindahlaupin vera bandarisk en hörkukeppni verður i 3000 m hindrunarhlaupi og erfitt að finna rétta manninn. Viö skulum reyna. 110 m. grindahlaup: 1. Milburn, USA, 2. Davenport, USA, 3. Siebeck, A. Þýzkal. 400 m. grindahlaup: 1. Mann, USA, 2. Koskei, Kenya, 3. Bruggemann, USA. 3000 m. hindrunarhlaup: 1. A. Gá'rderud, Sviþjóð, 2. Kantanen, Finnlandi, 3. Maranda, Póllandi. 4x100 m. boðhlaup: 1. Bandarikin, 2. V. Þýzkaland, 3.Sovétrikin. 4x400 m boðhlaup: 1. Bandarikin 2. Kenya, 3. A. Þýzkaland Stökkgreinar. Fosbury fann upp nýjan stökk- stil fyrir nokkrum árum og Rússinn Sapka, sem stekkur með þessari aðferð er okkar maður. 1. Sapka, Sovét. 2. Tarmak, Sovét, 3. Dahlgren, Sviþjóð. Stangarstökkið verður einvigi milli Bandarikjamanna og Svians Isakssðn. Tvisýn grein, en spennandi. 1. Seagren, USA, 2. Isaksson, Sviþjóð, 3. Nordwig, A. Þýzkal. Langstökkið verður snöggt um lakara en á siðustu leikjum, þegar Beamon stökk sina frægu 8,90 m. 1. Baumgartner, V. Þýzkal. 2. Robinson, USA. 3. Klauss, A. Þýzkal. Kastgreinar. Evrópumenn ógna nú einveldi Bandarikjamanna i kúluvarpi, og gaman verður að sjá þessa beljaka varpa i Miinchen. Stecher, A-Þýzkalandi, þykir likleg til sigurs I spretthlaupum kvenna. Tugþraut: • l.Skowronek, Póllandi. 2. Kirst, A. Þýzkal. 3. Awilow, Sovét. Maraþonhlaup: 1. Phillips. V. Þýzkal. 2. Hill. Bretlandi. 3. Lesse, A. Þýzkal. Keppni kvenna verður einnig spennandi á Olympiuleikunum, en fellur trúlega I einhvern skugga fyrir keppni karla. Sá, sem þessar linur ritar hefur ekki fylgzt eins vel með frjálsum iþróttum kvenna og treystir sér ekki til að spá um nema sigurveg- ara og vonandi taka menn viljann fyrir verkið. 100 m hlaup: Stecher, A. Þýzkal. 200 m hlaup: Stecher, A.Þýzkal. 400 m hlaup: Zehrt, A.Þýzkal. 800 m hlaup: Falck, V. Þýzkal. 1500 m hlaup: Bragina, Sovét. 100 m grindahlaup: Ryan, Ástraliu. Hástökk: Schmidt, A.Þýzkal. Langstökk: Rosendahl, V. Þýzkal. Kúluvarp: Tschishowa, Sovét. Kringlukast: Melnik, Sovét. Spjótkast: Fuchs, A.Þýzkal. Fimmtarþraut: Tichomorowa, Sovét. 4x100 m boöhlaup: Au. Þýzkaland. 4x400 m boöhlaup: Au. Þýzkaland. Fuch, A-Þýzkalandi, er sigurstrangleg I spjótkasti kvenna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.