Tíminn - 27.08.1972, Side 1
V.
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFIÐJAN SÍMI: 19294
Kæli-
skápar
3Djt<n A./
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Símar 18395 & 86500
v.
Ljósmyndir: Ragnar Ragnarsson
Væng komiö upp á burðargrind á þaki annars jeppans
BREZKA FLUGVÉLAR-
LEIÐANGRINUM LOKIÐ
Tólf Bretarog einn islendingur,
Ragnar Ragnarsson, fram
kvæmdastjóri Tékkneska bif-
reiðaumboðsins, hafa nú lokið við
að tina saman aiit, sem finnan-
legt er úr enska flugvélarflakinu,
sem legið hefur í grennd við Hofs-
jökul siðan snemma á striðsárun-
um, nú i nær þriðjung aldar. Er
flugvélinni, sem er af torfenginni
gerð, Fairey Battle, ætlaður stað-
ur í flugvélasafni brezka hersins,
sem einmitt verður opnað i haust.
Skýrði Ragnar Timanum frá
þessum leiðangri og fer frásögn
hans hér á eftir i megindráttum.
Þótt Bretarnir hafi orðið feng-
sælli hér,heldur en þeir gerðu sér i
hugarlund að óreyndu, vantar
enn að mestu leyti flugvélar-
skrokk til þess úr samtiningnum
verði alsköpuð flugél, auk þess
sem það mun taka tvö til þrjú ár
setja flugvélina saman. Fréttu
<.eir félagar af flugvélarflaki, sem
sagt var af sömu gerð, i fjöllum á
Snæfellsnesi, en það reyndist
annarrar tegundar, þegar til
kom. Seinna fréttu þeir af flug-
vélarflaki i svonefndum Þverdal i
Esju, þar sem aðeins koma til
greina tvær gerðir, önnur þeirra
sú, sem eftir er sótzt, og átti að
kanna i gær, hvort heldur væri.
En ef allt um þrýtur hérlendis, er
von ef til vill i heillegum skrokki
flugvélar, sem nauðlenti á sinum
tima i skógi i Skotlandi, og nýlega
hafa hafzt spurnir af.
I dag kemur hingað til lands
brezk herflutningaflugvél,til þess
aö sækja Bretana tólf og það af
hlutum úr flugvélarflakinu, sem
hún kemst með, en þaö, sem þá
verður eftir, verður sótt einhvern
næstu daga.
NÖTURLEGIR HAUST-
DAGAR ARIÐ 1940
Þessi flugvél, sem svo fast er
sótt að endurskapa og hafa til
sýnis i safni, fórst 13. september
1940. Hún lagði af stað frá flug-
vellinum i Kaldaðarnesiog átti að
fara með liðsforingja norður á
Akureyri, og voru þeir tveir i
flugvélinni, flugmaðurinn og liðs-
foringinn. Ekki var lendandi á
Akureyri, og var þvi snúið við
suður, en yfir hálendinu bilaði
vélin, og hafnaði hún á grýttum
melum undir Hofsjökli. Flug
maðurinn meiddist á fæti, en far-
ginn slapp óskaddaður. Gengu
ir félagar til byggða, hrepptu
norðanstorm og frost, óöu ár upp
undir hendur og komust mjög
nauðulega til bæja á þriöja sólar-
hring.
FÓLK HVERGI SKILVISARA
OG FÚSARA TIL SAMSTARFS
Siðan hafa íslendingar komið
að flugvélarflakinu stöku sinnum,
eins og áður hefur verið rakið, og
hirt úr þvi eitt og annað, meðal
annars vélina, og er það talið
Framhald á 5. siðu.
Óhugnanlegt nábýli:
ROTTUR Á FERLI
í LOFTHITUNAR-
STOKKUM HÚSS
Það er óneitanlega miöur farið,
þegar rottur komast I stokka
húsa, þar sem lofthitun er. Þær
eru óskemmtilegar i nábýli og
talsverður fyrirgangur I þeim á
köflum, ailk þess sem fæstir kjósa
aö anda aö sér þvi lofti, sem þær
lifa og hrærast i. Timinn veit þó
dæmi þess, að fólk I húsi á höfuð-
borgarsvæðinu á við þetta að
striöa.
Alls konar þrusk og áflog i
stokkunum er daglegt brauö, og
þó færist fyrst lif i tuskurnar, ef
svo má aö orði komast um dýr,
sem ekkert hafa saman viö klæö-
skera aö sælda, þegar eitthvað
það er matreitt, sem megn lykt er
af. Þá er eins og rotturnar tryll-
ist, enda trúlega ekki fjölbreytt
úrval matfanga i stokkunum og
aðdrættir fyrirhafnarsamir.
Húsið, sem fyrir þessum ósköp-
um hefur orðið er nokkurra ára
gamalt, á aö gizka tiu til fimmtán
ára, og hefur þar aldrei borið á
neinu fyrr en i vor, að þessi firn
hófust. Er þvi likast, að þá hafi
rottunum opnast einhver leiö inn i
stokkana, þar sem þær hafa svo
tekið sér bólfestu.
Ýmissa bragða hefur leitað til
þe§s að losna við rotturnar úr
stokkunum. En þrátt fyrir marg-
ar atlögur, hefur þaö ekki tekizt
fram að þessu enda ekki hægt um
vik. Það er til dæmis ekki nema
miölungi þægileg tilhugsun aö
tortima þeim með eitri eöa eitur-
gufum, þar sem þær eru, þvi að
þá myndu skrokkarnir úldna i
stokkunum og verða illlift i hús-
inu, þegar lofti væri blásið i gegn
um þá.
Timinn hefur spurnir af þvi, aö
svipað hefur gerzt i ööru húsi i
næsta nágrenni Reykjavikur, en
þar tókst fljótlega að vinna bug á
rottunum og loka inngönguleið
þeirra.
Stórveldið og kotríkið:
Óþarft að fara að
lögum við ísland
Samband brezkra togaraeig-
enda hcfur gefið fyrirmæli um
það, að setja skuli nöfn og ein-
kennisstafi á ný á alla brezka tog-
ara, sem kennimerki höfðu áður
verið máð af. Skulu þau vera
sýnileg á skipunum, nema á is-
landsmiöum.
Sagt er nú, aö um hundrað
brezkir togarar veröi þar um þaö
bil, er fiskveiðitakmörkin veröa
færð út, og þar virðist gert ráð
fyrir þvi.að þeir breiði yfir nafn
og númer eins og brezkir togara-
skipstjórar létu gera oft og tlöum
fyrr á árum, þegar þeir voru að
veiðum i islenzkri landhelgi, jafn-
vel á fjörðum inni. Þannig var til
dæmis farið að á togaranum
Royalist, sem drekkti þrem Dýr-
firöingum laust fyrir aldamótin,
að aðeins hluti nafns og númers
sást.
Bretar telja sig með öörum orð-
um,ekki þurfa að fara að alþjóöa-
lögum né standa við gerða samn-
inga^á yfirráðasvæði smáþjóðar-
innar islenzku, ef þeim býður svo
viö að horfa.
ALÚÐLEG SAM-
BÚÐ í 17 AR
Galdurinn er sá, að „finna til með bílnum
eins og reiðhestinum sínum”
Klp—Reykjavik.
islendingar hafa lengi verið
orðlagðir fyrir að vera hálfgerðir
draslarar með marga hluti, sér-
staklega þó vélar og vinnutæki
sem komineru til ára sinna. Má
þar t.d. nefna hluti eins og bila,
báta og vinnuvélar, bæði til
sjávar og sveita. Eru þessir
hlutir oft i mikilli niðurnfðslu, og
oft mesta furða, hvernig þeir
hanga sjsrnan.
A þessu eru þó undantekningar
sem betur fer. Við rákumst t.d. á
gott dæmi um hirðusemi bíla-
eiganda hér i borg nú i vikunni, er
við áttum leið framhjá þvotta-
plani vestur á Birkimel. Þar stóð
bifreiðaf ChevroletBel Air-gerð,
smiðuð árið 1955, sem leit óvenju
vel út( svo vel, að jafnvel eig-
endur nýrra bifreiða gætu
ofundað eigandann af henni.
I ljós kom, að sá sem átti þessa
bifreið, var Benedikt Guttorms-
son fyrrverandi bankastjóri.
Hann sagði okkur, að hann hefði
fengið þennan bil i júli 1955 og
hefði átt hann siðan alls i 17 ár.
—Ég lit ekki á hann sem neitt
undratæki, þvi ég hef séð svona
Framhald á 5. siöu.
Benedökt Guttormsson að þvo bilinn sinn, sem nú er einmitt orðinn jafnaldra unglingunum, sem Ijúka
ökuprófi jafnskjótt og lög leyfa. —Tímamynd: Gunnar.