Fréttablaðið - 25.02.2004, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 25. febrúar 2004
KREFJAST AÐSTOÐAR Norður-
Kóreustjórn krefst þess að
Bandaríkin veiti þeim efnahags-
og mannúðaraðstoð gegn því að
kjarnorkuvopnaáætlun landsins
verði lögð til hliðar. Fáist þær
ekki segir talsmaður norður-
kóreska utanríkisráðuneytisins
að þróun kjarnorkuvopna verði
haldið áfram.
PERSSON TIL SUÐUR-KÓREU Gör-
an Persson, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, fer til
Suður-Kóreu í
næsta mánuði til
viðræðna við
Roh Moo-hyun
forseta um
kjarnorkudeil-
una við Norður-
Kóreu. Persson
varð árið 2001
fyrsti vestur-
evrópski stjórnmálamaðurinn til
að fara í opinbera heimsókn til
Norður-Kóreu.
NAGLALAKKIÐ SKOÐAÐ
Aðstæður kvenna í Afganistan hafa skánað
nokkuð eftir fall talíbana þó það sé mjög
misjafnt eftir landsvæðum. Þessar konur
skoðuðu naglalakk í sölubás í Kabúl.
Nýtt leiðakerfi Strætó bs. kynnt sveitarfélögum:
Kringlan verður ekki endastöð
Matvara í framfærslunni
Hefur lækk-
að mikið
NEYTENDUR Hutfall matvæla í
framfærslu íslenskra heimila er
2,6 prósentustigum lægra í fyrra
en árið 1995. Lækkunin nemur
rúmum sextán prósentum. Þetta
kom fram í svari forsætisráð-
herra við fyrirspurn Önnu Krist-
ínar Gunnarsdóttur á Alþingi.
Í svari forsætisráðherra kom
fram að hlutfall matvæla í fram-
færslu heimila var 16,1 prósent
árið 1995 en var 13,5 prósent í
fyrra. Hlutfallið var 14,4 prósent
árið 2002 og hefur því lækkað um
tæpt eitt prósentustig milli ár-
anna 2002 og 2003 eða um 6,25
prósent. ■
18 mánuðir frá upphafi Baugsmálsins:
Lögreglurannsókn sögð í fullum gangi
STRÆTÓ Fyrir ári síðan voru uppi
hugmyndir um að byggja sam-
göngumiðstöð neðanjarðar við
Kringluna sem átti meðal annars
að leysa af hólmi biðstöðvar
Strætó á Hlemmi og við Lækjar-
torg. Ásgeir Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Strætó bs., segir að
fallið hafi verið frá þeim áformum.
Þessa dagana er verið að kynna
nýtt leiðakerfi Strætó fyrir sveit-
arfélögum og hverfisráðum á höf-
uðborgarsvæðinu. Samkvæmt því
verður Lækjartorg lagt af sem
endastöð fyrir strætisvagna og
vægi Hlemms aukið. Lækjartorg
verður samt áfram viðkomustaður.
„Það er verið að breyta leiða-
kerfinu frá grunni,“ segir Ásgeir
Eiríksson, framkvæmdastjóri
Strætó bs. „Það eru 35 leiðir í nú-
verandi kerfi en þeim verður
fækkað í átján.“
Aðspurður segir Ásgeir að
breytingin feli ekki í sér skerðingu
á þjónustu. Þvert á móti sé verið að
auka þjónustuna því tíðni ferða
verði meiri en verið hefur. Þá
verði kerfið einfaldara og skil-
virkara.
„Af þessum átján nýju leiðum
verða sex hraðleiðir frá fjölmenn-
ustu úthverfum Reykjavíkur og
nágrannasveitarfélögunum inn til
borgarinnar. Ekið verður eftir
þeim leiðum með meiri tíðni á
álagstímum en hinum tólf og
stoppað sjaldnar.“
Nýja leiðakerfið verður kynnt
almenningi eftir tvær til þrjár
vikur. ■
BREYTINGAR Á LEIÐAKERFI
Samkvæmt nýju leiðakerfi Strætó verður
Lækjartorg lagt af sem endastöð fyrir stræt-
isvagna. Hluverk Hlemms verður aukið.
LÖGREGLUMÁL „Rannsóknin er í full-
um gangi,“ segir Jón H. Snorrason,
yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar
r í k i s l ö g r e g l u -
stjóra, um Baugs-
málið þar sem til
rannsóknar er
hvort forráða-
menn fyrirtækis-
ins hafi brotið
gegn lögum.
L ö g r e g l a n
gerði húsleit í
h ö f u ð s t ö ð v u m
Baugs í ágúst
árið 2002 þar sem
til rannsóknar
var hvort for-
s v a r s m e n n
Baugs hefðu falsað skjöl og færsl-
ur í því skyni að hagnast með ólög-
mætum hætti. Höfuðvitni lögregl-
unnar og kærandi er Gerald Sullen-
berger sem um árabil átti í við-
skiptum við Baug í nafni fyrirtæk-
is síns, Nordica.
Hálfu öðru ári eftir að rannsókn
hófst bólar ekkert á niðurstöðu. Jón
H. Snorrason segist ekkert geta
sagt um það hvenær rannsókn ljúki.
„Ég vil engu spá,“ segir hann.
Jón Steinar Gunnlaugsson, lög-
maður Geralds Sullenberger, segist
ekki hafa neina skýringu á þeim
langa tíma sem rannsóknin tekur.
Hann segist helst láta sér detta í
hug að fámenni efnahagsbrotadeild-
arinnar væri orsökin.
„Kannski er þessi deild undir-
mönnuð. Það er mjög óheppilegt að
opinber rannsókn skuli taka svo
langan tíma. Þetta er skaðvænlegt
þeim sem rannsóknin beinist að og
óheppilegt fyrir viðskiptalífið,“ seg-
ir Jón Steinar. ■
JÓN STEINAR
GUNNLAUGSSON
Telur að fámenni
efnahagsbrotadeild-
ar geti verið ástæða
þess hve rannsókn
gengur hægt.
HÖFUÐSTÖÐVARNAR
Hálft annað ár er liðið síðan lögreglan gerði húsleit hjá Baugi.
■ Kóreudeilan