Tíminn - 01.09.1972, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.09.1972, Blaðsíða 1
IGNIS FRYSTIKISTUR RAFIfi JAN SÉMI: 19294 Xtnj&jbUutAsÆULri. hJT RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 „Landhelgin verður varin með öllum tiltækum ráðum” Góðir íslendingar. í dag 1. septem ber gengur i gildi reglu- gerðin um útfærslu fisk- veiðimarkanna. Frá og með deginum i dag verður þvi fiskveiðilög- sagan við ísland 50 sjó- milur út frá grunnlinum. Þessi stækkun fiskveiði- lögsögunnar er byggð á einróma ályktun Alþing- is. Að baki hennar stendur þjóðin öll, hver einasti íslendingur. Slik þjóðarsamstaða er fá- tið. í henni felst mikill styrkur. Hún byggist á þeirri sannfæringu hvers íslendings, að þessi ákvörðun sé rétt- mæt, lögleg og óhjá- kvæmileg vegna fram- tiðartilveru þjóðarinnar og raunar einnig til varðveizlu matvæla- forðabúrs fyrir aðrar þjóðir. Hún byggist á Framhald á bls. 6 - ávarp Ölafs Jóhannessonar forsætisráðherra Frá miönætti i nótt var fiskveiðilögsaga tslendinga fimmtiu sjómilur. —i—|—r~i—|—i—1—j—i—i—|—i—i—|—i—i—[—i—r -|—i—r—|—i—i—j—■—■—■—■—■—■—■——- Fánann að húni! Þess er vænzt, að allir, sem fánastöng eiga, dragi fána að húni í dag, minn- ugir þess, að nú er brotið í blað i sögu þjóðarinnar og spor stigið, er jafnan mun verða talið eitt hið merk- asta i baráttu hennar fyrir lifi sinu og framtiðarvon- um. Viðtal við Einar Agústsson utanríkisráðherra er á bls. 10 Viðtal við Ólaf Jóhannesson forsætisráðherra er á bls. 9 LANDSSÖFNUN HAFIN TIL EFLINGAR LANDHELGISSJÓÐI Frá stofnfundi Landhelgissamtakanna í gærmorgun. Fyrir enda borðsins er Ólafur Jóhannesson for- sætisráðherra. Á myndinni má sjá m.a. biskupinn yfir tslandi herra Sigurbjörn Einarsson, Jón Sigurösson formann Sjómannasambands tslands, Kristján Thorlacius ráöuneytisstjóra, Hjálmar R. Bárðason siglingamáiastjóra, liristján Ragnarsson, formann LttJ, og fieiri. A fundi sinum þriðjudaginn 2!l. ágúst samþykkti rfkis- stjórnin svohljóðandi tillögu forsætisráðherra: „Rikisstjórnin samþykkir að bcita sér fyrir almennri fjársöfnun um allt land til efl- ingar landhelgisgæzlunni — landssöfnun til Landheigis- sjóðs — i þeim átökum, sem framundan kunna að vera við þau skip, sem ekki vilja virða hin nýju fiskveiöimörk. Skal sett á fót nefnd áhugamanna frá stjórnmálaflokkum, hags- munasamtökum og ýmsum félögum til að hafa forgöngu um þessa fjársöfnun.” Til þess að hrinda málinu i framkvæmd boðaði Ólafur Jó- hannesson forsætisráöherra liðlega 40 manns til fundar i dag og gerði þeim grein fyrir hugmyndinni um landssöfnun til landhelgissjóös. Sagði hann m.a., aö með þessu yrði þjóð- inni allri, einstaklingum jafnt sem félögum, fyrirtækjum og stofnunum, gefinn kostur á aö taka þátt i að efla landhelgis- gæzluna og sýna i verki vilja sinn til þess að standa vörö um lifshagsmuni þjóðarinnar i landhelgismálinu. Undirtektir fundarmanna voru mjög góöar og skrifuðu allir fundarmenn undir svo- hljóöandi ávarp: „Islenzka þjóðin hefur lengi gert sér þess fulla grein, að fiskimiðin við landið eru fjör- egg hennar og liftrygging um ókomin ár. Bitur reynsla og glögg visindi sanna ótvirætt, að þessi lifsbjargarvegur er i bráðri hættu, og þvi hlýtur þjóðin nú aö neyta þess lifs- réttar sins að færa fiskveiöi- lögsöguna i fimmtiu sjómilur i þessum áfanga. Um þetta er hún jafn samhuga og i sjálfri þjóðfrelsisbaráttunni, og margir hafa látiö i ljós óskir um, að tækifæri gæfist til þess að sýna þann samhug i áþreifanlegu verki. Landhelgisgæzlan er traust okkar og hald i þeirri baráttu, sem fram undan er, og hlutur hennar mun nú stóraukast að gildi og verkefnum, ekki að- Frh. á bls. 6

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.