Tíminn - 05.09.1972, Síða 1
V
IGNIS
RAFIÐJAN SIMI: 19294
DAwrtw^iétot A/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Simar 18395 & 86500
Nafn- og númerslaus brezkur togari aö veiðum viö Austurland um helgina. Brezki fáninn blaktir i skut.
en nafn og heimahöfn hefur veriö máö i burtu. Togarinn var á togi, eins og virarnir i sjónum stjórn-
borðsmegin sina. (Ljósmynd: Landhelgisgæzlan)
Fyrsti heybrun-
inn þetta árið
200-300 hestburðir ónýttust á
Skeggjastöðum í Flóa
Þó—Reykjavik
Aö minnsta kosti 200-300 hestar
af heyi eyöilögöust, þegar eldur
kom upp i hlööunni á Skeggja-
stööum i Hraungeröishreppi i
Flóa á laugardagskvöldiö.
Slökkviliöiö á Selfossi og fólk frá
nálægum bæjum kom fljótlega á
vettvang, og snemma á sunnu-
dagsmorgun haföi tekizt aö
komast fyrir eldinn.
Bóndinn á Skeggjastöðum,
Gunnar Halldórsson, sagði i viö-
tali við Timann i gær, að þaö hefði
verið um kl. 8 á laugardags-
kvöldið sem hann varð var viö aö
eldur var laus i hlöðunni.
— Ég hringdi strax i slökkvi-
liðið á Selfossi og fólk frá nær-
liggjandi bæjum dreif að, sagöi
Gunnar,
Gunnar sagði.að i fyrstu heföi
verið erfitt að eiga við slökkvi-
starfið, þar sem ákaflega mikill
reykur var i heyinu. Byrja þurfti
á þvi að rjúfa þakið á hlööunni,
og þegar þvi var lokið,var hægt aö
moka heyinu út af krafti. Upp úr
kl. 6 um morguninn var búið að
moka út 500 hestum af heyi, og
eru að minnsta kosti 2/3 hlutar af
þvi ónýtir.
I hlöðunni var ennfremur
gamalt hey, en eldurinn komst
ekki i þaö og er það þvi heilt
Eldurinn viröist hafa komið upp
undir súgþurrkunargrindunum,
og er súgþurrkunarkerfið með
öllu ónýtt.
Gunnar sagöist ekki geta sagt
um, hve tjónið væri mikiö, sem
hann heföi oröið fyrir. Hann
sagði, að það ætti eftir aö meta
það, en bætti þvi við, að hey-
skaðinn væri ekki verstur, þar
aðhann ætti mikið hey, og að
aukiværu bændur á nærliggjandi
bæjum farnir að bjóða honum
hey. Heyið var ekki tryggt gegn
sjálfsikveikju.
ÆGIR HEFUR TVISVAR
SÝNT ÞEIM VÍRAHN ÍFANA
KJ—• Reykjavik.
Tvivegis um helgina sýndu
varöskipsmenn á Ægi ómerktum
brezkum togurum vfrahnífana
um borö, og þaö var ekki aö
sökum aö spyrja. I bæöi skiptin
drógu togararnir upp vörpuna og
stefndu á haf út, áöur en til þess
kæmi, aö varöskipsmenn beittu
verkfærum sinum.
Á sunnudagskvöldið töldust 39
togarar vera innan 50 mflna
markanna út af Vestfjöröum og
11 út af Austurlandi. bá hefur
landhelgisgæzlan skráð einn
vestur-þýzkan togara að veiðum
innan nýju linunnar, og var sá
16.3 mflur fyrir innan.
Varöskipsmenn kalla togarana
upp og tilkynna þeim, að þeir séu
fyrir innan, og hafa flest allir
tekið þessum tilkynningum
kurteislega. Var skipstjórnar-
mönnum togaranna jafnframt til-
kynnt, aö þetta væri fyrsta og
eina viövörunin, sem þeir fengju.
Virahnifurinn sýndur
Timinn fékk i dag i hendur
hluta af skýrslu Guðmundar
Kjærnesteds, skipherra á Ægi,
um atburð sem átti sér staö um
hádegisbilið á laugardaginn, og
fer hér hluti úr útdrættinum!
„Einn togari, sem haföi algjör-
lega hulið nafn og númer og öll
önnur einkenni, og hafði ekki einu
sinni uppi þjóöfána, var kallaður
upp og honum tjáð að hann væri
að fiska innan islenzkrar fisk-
veiðilögsögu án allra einkenna,
sem væri brot á islenzkum lögum
og alþjóðareglum um merkingu
fiskveiöiskipa. Svaraöi hann þvi
með skætingi einum, hann væri á
úthafinu og þetta kæmi okkur
ekki við.
Var honum þá tjáð aö við litum
á hann sem hvert annað
sjóræningajskip og myndum
skera af honum vörpuna, ef hann
gæfi ekki upp nafn og þjóðerni.
Kvaðst hann sigla undir brezkum
fána á úthafinu og væri þetta ekki
okkar mál. Var honum bent á aö
hann heföi uppi skituga druslu,
sem enginn gæti tekiö sem þjóð-
fána.
Þar sem hann hlýddi ekki fyrir-
mælum okkar, var ákveöið að
setja út virahnif og gera tilraun
til að skera vörpuna burtu. Þegar
hann varð þess var, hvaö viö
vorum að aðhafast, hiföi hann i
snarti inn vörpuna og hélt til
hafs”.
Veizlan mikla — bls. 8
Reykjavíkurstúlka dansaði við
heimsmeistarann á 18 ára
afmæli sínu
Skipsmenn á aöstoðarskipinu
Miranda hafa haft i ýmsu að
snúast undanfarna daga, og má
gera ráð fyrir, að a.m.k. tveir
brezkir togarar heföu leitað
hafnar.vegna sjúkra og siasaðra
togaramanna um helgina undir
eðlilegum kringumstæöum.
1 öðrum tilfellum var um aö
ræða togaramann sem var maga-
veikur og þegar hann kom um
borð i Miranda, taldi skipslækn-
irinn þar ráðlegast væri aö senda
hann meö fyrstu ferð til Bret-
lands. Varð úr, að hann var strax
settar um borð i togara, sem var
að fara af Islandsmiðum til Hull.
Framhald á bls. 19
Dr. Euwe, forseti FIDE, óskar Fischer til hamingju meö heimsmeistaratitilinn f skák, eftir aö hafa sett
lárviðarkrans um háls honum. Svo sem sjá má, þá er Fischer glaður I bragöi, enda ekki við öðru að bú-
astá þessari stundu. (Ljósm: Skáksamband tslands — Fox)