Tíminn - 05.09.1972, Qupperneq 1

Tíminn - 05.09.1972, Qupperneq 1
V IGNIS RAFIÐJAN SIMI: 19294 DAwrtw^iétot A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Simar 18395 & 86500 Nafn- og númerslaus brezkur togari aö veiðum viö Austurland um helgina. Brezki fáninn blaktir i skut. en nafn og heimahöfn hefur veriö máö i burtu. Togarinn var á togi, eins og virarnir i sjónum stjórn- borðsmegin sina. (Ljósmynd: Landhelgisgæzlan) Fyrsti heybrun- inn þetta árið 200-300 hestburðir ónýttust á Skeggjastöðum í Flóa Þó—Reykjavik Aö minnsta kosti 200-300 hestar af heyi eyöilögöust, þegar eldur kom upp i hlööunni á Skeggja- stööum i Hraungeröishreppi i Flóa á laugardagskvöldiö. Slökkviliöiö á Selfossi og fólk frá nálægum bæjum kom fljótlega á vettvang, og snemma á sunnu- dagsmorgun haföi tekizt aö komast fyrir eldinn. Bóndinn á Skeggjastöðum, Gunnar Halldórsson, sagði i viö- tali við Timann i gær, að þaö hefði verið um kl. 8 á laugardags- kvöldið sem hann varð var viö aö eldur var laus i hlöðunni. — Ég hringdi strax i slökkvi- liðið á Selfossi og fólk frá nær- liggjandi bæjum dreif að, sagöi Gunnar, Gunnar sagði.að i fyrstu heföi verið erfitt að eiga við slökkvi- starfið, þar sem ákaflega mikill reykur var i heyinu. Byrja þurfti á þvi að rjúfa þakið á hlööunni, og þegar þvi var lokið,var hægt aö moka heyinu út af krafti. Upp úr kl. 6 um morguninn var búið að moka út 500 hestum af heyi, og eru að minnsta kosti 2/3 hlutar af þvi ónýtir. I hlöðunni var ennfremur gamalt hey, en eldurinn komst ekki i þaö og er það þvi heilt Eldurinn viröist hafa komið upp undir súgþurrkunargrindunum, og er súgþurrkunarkerfið með öllu ónýtt. Gunnar sagöist ekki geta sagt um, hve tjónið væri mikiö, sem hann heföi oröið fyrir. Hann sagði, að það ætti eftir aö meta það, en bætti þvi við, að hey- skaðinn væri ekki verstur, þar aðhann ætti mikið hey, og að aukiværu bændur á nærliggjandi bæjum farnir að bjóða honum hey. Heyið var ekki tryggt gegn sjálfsikveikju. ÆGIR HEFUR TVISVAR SÝNT ÞEIM VÍRAHN ÍFANA KJ—• Reykjavik. Tvivegis um helgina sýndu varöskipsmenn á Ægi ómerktum brezkum togurum vfrahnífana um borö, og þaö var ekki aö sökum aö spyrja. I bæöi skiptin drógu togararnir upp vörpuna og stefndu á haf út, áöur en til þess kæmi, aö varöskipsmenn beittu verkfærum sinum. Á sunnudagskvöldið töldust 39 togarar vera innan 50 mflna markanna út af Vestfjöröum og 11 út af Austurlandi. bá hefur landhelgisgæzlan skráð einn vestur-þýzkan togara að veiðum innan nýju linunnar, og var sá 16.3 mflur fyrir innan. Varöskipsmenn kalla togarana upp og tilkynna þeim, að þeir séu fyrir innan, og hafa flest allir tekið þessum tilkynningum kurteislega. Var skipstjórnar- mönnum togaranna jafnframt til- kynnt, aö þetta væri fyrsta og eina viövörunin, sem þeir fengju. Virahnifurinn sýndur Timinn fékk i dag i hendur hluta af skýrslu Guðmundar Kjærnesteds, skipherra á Ægi, um atburð sem átti sér staö um hádegisbilið á laugardaginn, og fer hér hluti úr útdrættinum! „Einn togari, sem haföi algjör- lega hulið nafn og númer og öll önnur einkenni, og hafði ekki einu sinni uppi þjóöfána, var kallaður upp og honum tjáð að hann væri að fiska innan islenzkrar fisk- veiðilögsögu án allra einkenna, sem væri brot á islenzkum lögum og alþjóðareglum um merkingu fiskveiöiskipa. Svaraöi hann þvi með skætingi einum, hann væri á úthafinu og þetta kæmi okkur ekki við. Var honum þá tjáð aö við litum á hann sem hvert annað sjóræningajskip og myndum skera af honum vörpuna, ef hann gæfi ekki upp nafn og þjóðerni. Kvaðst hann sigla undir brezkum fána á úthafinu og væri þetta ekki okkar mál. Var honum bent á aö hann heföi uppi skituga druslu, sem enginn gæti tekiö sem þjóð- fána. Þar sem hann hlýddi ekki fyrir- mælum okkar, var ákveöið að setja út virahnif og gera tilraun til að skera vörpuna burtu. Þegar hann varð þess var, hvaö viö vorum að aðhafast, hiföi hann i snarti inn vörpuna og hélt til hafs”. Veizlan mikla — bls. 8 Reykjavíkurstúlka dansaði við heimsmeistarann á 18 ára afmæli sínu Skipsmenn á aöstoðarskipinu Miranda hafa haft i ýmsu að snúast undanfarna daga, og má gera ráð fyrir, að a.m.k. tveir brezkir togarar heföu leitað hafnar.vegna sjúkra og siasaðra togaramanna um helgina undir eðlilegum kringumstæöum. 1 öðrum tilfellum var um aö ræða togaramann sem var maga- veikur og þegar hann kom um borð i Miranda, taldi skipslækn- irinn þar ráðlegast væri aö senda hann meö fyrstu ferð til Bret- lands. Varð úr, að hann var strax settar um borð i togara, sem var að fara af Islandsmiðum til Hull. Framhald á bls. 19 Dr. Euwe, forseti FIDE, óskar Fischer til hamingju meö heimsmeistaratitilinn f skák, eftir aö hafa sett lárviðarkrans um háls honum. Svo sem sjá má, þá er Fischer glaður I bragöi, enda ekki við öðru að bú- astá þessari stundu. (Ljósm: Skáksamband tslands — Fox)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.