Tíminn - 06.09.1972, Qupperneq 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG 'SÍMI: 26660
RAFIfl JAN SIMI: 19294
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Simar 18395 & 86500
BLÓDBAÐ ENDALOK ÓL?
SJ — SB—Reykjavik,
NTB-Miinchen
— Iiéri Olympiuþorpinu rikir i
dag allt annaö andrúnisloft en
undanfarna daga. Glaðværðin er
horfin, og allir eru alvarlegir i
hragði allir standa i rauninni á
öndinni, sagði Örn Eiðsson í sim-
tali viö Timann á áttunda
timanum i gærkvöldi, en hann var
þá staddur i búðum islending-
anna.
Olympiuleikunum var frestað i
sólarhring frá kl. 2 eftir hádegi i
gær að þýzkum tíma, og hefjast
þeir þvi væntanlega aftur kl. tvö i
dag. Leik islenzka handknatt-
leiksliðsins var einnig frestað um
einn dag, til fimmtudags. — Ég.
býst ekki við, að þessi atburður
muni hafa áhrif á leik fslenzku
handknattleiksmannanna, sagði
örn, en þeir eru þó eins og aðrir
harmi slegnir yfir þessum at-
burði.
Búðir tslendinganna eru í gagn-
stæðum enda ólýmpiuþorpsins
miðað við bústað tsraelsmanna.
En þegar örn, komþangað i gær,
var fjöldi vopnaðra lögreglu-
manna umhverfis húsið, þar sem
skæruliðarnir héldu gíslunum
föngnum.
Fréttamennirnir á ólympiu-
svæðinu voru þarna á ferli, og
utan við hlið svæðisins, sem nú
eru lokuð, voru einnig hundruð, ef
ekki þúsundir fréttamanna.
Þyrlur flugu yfir, og frægar
skyttur Þjóðverja voru á ferli á
svölum bústaðar ísraelsmann-
anna og ■ næstu húsa, en gátu
ekkert að gert.
Kl. 10 i dag verður minningar-
athöfn um tsraelsm. tvo, sem
skæruliðarnir drápu, en ekki var
vitað i gær, hvað þar yrði á dag-
skrá. í gærkvöldi kom Willy
Brandt fram i sjónvarpið og
harmaði atburð þennan Taldi
hann óhæfu, að nokl rum ara-
biskum skæruliðum liðist að
stöðva Olympiuleikana.
Við spurðum Orn, hvort Lára
Sveinsdóttir, eina islenzka konan
á Olympiuleikunum, byggi nær
bústað Israelsmanna en islenzku
karlmennirnir. Heyrði hann ekki
spurninguna vegna slæms tals-
ambands, en sagði, að Lára væri i
ferðalagi utan ðlympiusvæðisins.
Fyrirliði egypzku sveitarinnar
á Olympiuleikunum hefur lýst
harmi sinum yfir þessum atburði
og hefur verið ákveðið, að
Egyptarnir snúi heim. Fáir eru
nú á ferli á götum Olympiu-
þorþsins. Menn halda sig innan-
húss og sorg rikir i stað gleði og
frjálslegs iþróttaanda.
Það var i dögun i gær, að fimm
arabiskir skæruliðar brutust inn i
hús það i Olympiuþorpinu, sem
israelsku iþróttamennirnir og
yfirmenn þeirra héldu til i Skæru
liðarnir voru vopnaðir vélbyssum
og höfðu svert á. sér andlitin.
Moshe Weinberg, 33 ára gamall
þjálfari israelsku glimumann-
anna, særðist til ólifis af skoti i
brjóstið. Arabarnir afhentu hann
lögreglunni utan við húsið, en
hann lézt á leiðinni i sjúkrahús.
Fréttir hafa verið mjög óljósar
um hinn Israelsmanninn, sem
skotinn var, hvort hann var
iþróttamaður eða eitthvað annað.
Þá er heldur ekki ljóst, hvort
allir þeir 14, sem eru i gislingu hjá
Aröbunum, eru Isralesmenn.
Sovézka fréttastofan Tass sagði i
gær, að þarna á meðal væru
einnig menn úr ólympiuliðum
Hong Kong og Uruguay", Eitt
þykir þó fullvist, og það ef,að eng-
inn gislanna er kona.
Kröfurnar
Lögregla umkringdi þegar
bygginguna, sem Arabarnir
halda gislunum i, og allan daginn
i gær reyndu lögreglumenn að
semja við skæruliðana i gegn um
hátalara, en hinir skrifuðu kröfur
sinar á pappirsmiða, sem þeir
fleygðu út um gluggana. Niu
klukkustundum eftir að þeir
höfðu lokað sig inni, sendu þeir út
miða með matarpöntun og fengu
þegar nokkra kassa af mat, sem
settir voru utan við dyrnar.
Smávaxinn maður með hvitan
hatt kom út og sótti matinn,
og siðan gerðist ekkert frekar.
Frh. á bls. 6
Lögreglustjórinn i Miinchen, dr. Schreibcr og innanrikisráðherra Þjóðvcrja, Genscher, leita sarakomu-
lags við arabisku skæruliðanna fyrir utan bækistöð israelsku Ólympiusvcitarinnar i gær. Einn skærulið-
anna gefur féiaga sinuni i glugga á efri hæð hússins bendingu. Timinn — UPI
Síðustu fréttir
Brezka útvarpið skýrði frá
þvi uin ki. 22.30 i gærkvöidi, að
fjöldi þýzkra lögregiumanna
leitaði nú bæði israelsku gisl-
anna og arabisku skærulið-
anna i grennd við herflugvöll
um 20 km. vestan við
Munchen. Um klukkustundu
áður höfðu gíslarnir, skæru-
liðarnir og samninganefnd frá
þýzkum yfirvöldum, verið
flutt i þremur þyrlum til flug-
vallarins frá ólympiuþorpinu.
Ostaðfestar fregnir hermdu,
að samið liefði verið við
skæruiiðana um að þeir fengju
að fara með gistana i flugvél
til Túnis.
Er til flugvallarins kom,
brautzt út skotbardagi milli
skæruliðanna og lögreglu.
Ekki var ljóst, hvort manntjón
liafði orðið i hardaganum, en
að minnsta kosti sumum
skæruliðanna tókst að komast
undan og gislarnir björguðu
sér einhvcrnvcginn i hurtu,
þótt hándjárnaðir væru og
hlekkjaðir. i lok fréttanna
sagði hrczki þulurinn að nú
væri áframhald olýmpiuleik-
anna undir þvi komið, hvort
liigrcglan fyndi israelsku
gislana iieila á húfi.
Klippt aftan úr fyrsta
ómerkingnum
KJ—Reykjavfk
Fánaskip islenzka varðskipa-
flotans var i gær grýtt af brezkum
togarasjómönnum, þcgar v'arð-
skipsmenn voru að klippa sundur
annan togvir flagglauss ómerk-
ings, sem ekki hafði sinnt köllum
varðskipsmanna. Tókst varð-
skipsmönnum að klippa annan
togvirinn i sundur, og er þetta i
fyrsta skipti, sem islenzkt varð-
skip klippir sundur togvir hjá tog-
ara að ólöglegum veiðum innan
fiskveiðilandhelginnar.
Strax og varðskipsmenn bjugg-
ust til að klippa sundur togvira
þessa ómerkings, hröðuðu aðrir
brezkir togarar i áttina að varð-
skipinu og togaranum, og mátti
sýnilega búast við öllu af þeim.
Eftir þess aðgerð varðskipsins
hafði Charles Adams skipherra á
brezka aðstoðarskipinu Miranda,
samband við Guðmund
Kjærnested, skipherra á Ægi, og
bar fram kvartanir vegna þessa
atviks. Adams tjáði Guðmundi,
að aðgerð sem þessi gæti haft
hættu i för meö sér fyrir togara-
mennina, en Guðmundur svaraöi
þvi til, að togvirinn hefði verið
slitinn djúpt undir yfirborði sjáv-
ar, og aðgerðin hefði þvi ekki
stofnað lifi eða limum togara-
manna i hættu.
Fiskibátar varaðir við
I gær fékk Timinn eftirfarandi
upplýsingar hjá Hafsteini Haf-
steinssyni, fulltrúa hjá Land-
helgisgæzlunni:
1 morgun hófust beinar aðgerð-
ir gegn ómerktum togurum norð-
ur aí Horni. Eftir að varðskip
hafði gefið fánalausum og
óþekkjanlegum togara aðvörun,
sem hann sinnti ekki en lék i þess
stað Rule Britannia, var annar af
togvirum togarans skorinn sund-
ur af varðskipinu. Þetta gerðist 22
milur innan fiskveiðitakmark-
anna. Meðan verið var að skera
virinn á togaranum, gerðu togar-
arnir á þessum slóðum tilraun til
að renna flotkaðli i skrúfu varð-
skipsins, en það tókst ekki. Einnig
var grýtt til varðskipsins kola-
molum og járnboltum og endað
með þvi að henda brunaexi i átt til
varðskipsins. Tilhlýðilegur orða-
flaumur fylgdi.
Islenzkir fiskibátar hafa verið
aðvaraðir gegn um Isafjarðar-
radió að vera ekki nálægt brezk-
um togurum næstu daga, þvi þeir
hafa hótað að eyðileggja sex is-
lenzkar vörpur fyrir hvert eina
brezka, sem yrði eyðilagt.
Tvö varðskip eru á þessum
slóðum. Hitt varðskipið gerði til-
raun til að slita togvir annars tog-
ara, en sá togari var fljótari til,
og dró upp áður en það tækist.
Allir togararnir, sem annað
varðskipið sá út af Norðvestur-
landi siðdegis, voru vel merktir.
Fjöldi erlendra togara, sem
voru að veiðum fyrir Vestur- og
Norðurlandi i dag, er sem hér
segir:
Fyrir Suðvesturlandi eru 13
vesturþýzkir togarar um linuna.
Tveir togarar eru norður af Vest-
fjörðum. Fyrir vestanverðu
Norðurlandi, nánar tiltekið út af
Húnaflóa og Skagafiröi, eru 33
brezkir togarar.
Þá voru 17 brezkir togarar austur
af Hvalbak, 2 v-þýzkir s-austur af
Hvalbak 02 12 brezkir togarar
austur af sléttu
Brctar mótinæla
1 gær var Niels P. Sigurðsson,
sendiherra i London, kvaddur
á fund i brezka utanrikisráðuneyt
inu, og brezki sendiherrann i
Reykjavik, John Mckenzie, gekk
á fund Einars Ágústssonar utan-
rikisráðherra.
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra sagði i viðtali við Timann i
gær, að skýrsla um atvikið, þegar
togvir ómerkts togara án fána
var slitinn i gærmorgun, hefði
ekki verið komin i sinar hendur,
þegarbrezki sendiherrann gekk á
fund hans. Sagðist utanrikisráð-
herra myndu ræða þetta mál við
sendiherrann i dag.
Freigáta á leiðinni
Brezka freigátan Aurora er nú
á leið á Islandsmið, og mun hún
verða i námunda við brezku tog-
araflotana hér við land. Um borð i
Auroru eru tvær þyrlur, sem
Bretarnir munu liklega nota,
þegar eitthvað gerist á miðunum.
Iiægt uð hifa
á öðrum virnum
Brezki togarinn, sem ekki gaf
upp nafn og númer i gærmorgun,
fékk holla lexiu, þegar varðskipið
klippti sundur annan togvirinn.
Brezkir togarar nota yfirleitt að-
eins stjórnborðstroll, en ekki bæði
stjórnborðs- og bakborðstroll eins
og t.d. þeir islen^ku. Þegar annar
togvirinn slitnar, fylgja þvi mikl-
ir erfiðleikar að draga vörpuna
inn á öðrum virnum, en það hefst
þó oftast. Þá er eftir að splæsa
saman togvirinn, svo að atvik
sem þetta getur þýtt að minnsta
kosti sólarhrings töf frá veiðum
eða þá hreinleg að viðkomandi
togari verði að leita hafnar.
Næsta höfn brezku togaranna
nú er i 3ja til 4ra sólarhringa sigl-
ingu frá Islandsmiðum.