Tíminn - 07.09.1972, Side 13
Fimmtudagur 7. september 1972
TÍMINN
13
Framtakssemi í skógrækt á Fljótsdalshéraði
Skógurinn er landinu skjól og prýöi, en stefnir einnig aö þvi aö veröa
bændum arövænleg tekjulind.
Skólastjóra vantar
að gagnfræðaskólanum i Hveragerði,
skólastjóra við barnaskólann og kennara
við gagnfræðaskólann.
Umsóknarfrestur til 10. september.
Umsóknir sendist til skólanefndar ölfus-
skóladæmis i Hveragerði.
Nýtt í
Reykjavík
Dánir menn segja sína sögu
Litmyndir frá stórkostlegum fornleifafundum i
Bibliulöndunum.
Sjáið grafnar borgir, dularfull hof
og eyðimerkurhella i Austurlöndum
Stp—Reykjavfk
Skógrækt er i hávegum höfö á
Fljótsdalshéraöi, og eru menn
stórhuga og framtakssamir
austur þar. Tvær merkar fram-
kvæmdir eiga sér nú stað þarna.
Annars vegar hefur Skógrækt
rikisins unniö aö gróðursetningu i
Mjóanesi við Löginn i nokkur ár,
sem gefið hefur mjög góöan
árangur. Hins vegar er svonefnd
Fljótsdalsáætlun.
Fréttamaöur hafði samband
viö Sigurö Blöndal á Hallorms-
stað og innti hann eftir þessum
framkvæmdum. Sigurður sagði,
aö Skógrækt rikisins heföi keypt
land i Mjóanesi 1963, og væri það i
framhaldi af landareign hennar á
Hafursá, sem er næsti bær viö
Hallormsstaö. Landi þessu var
lokaö 1964, og var byrjaö aö
planta þar sibirulerki 1965. Hefur
verið plantaö þar öll ár siöan. Er
nú búiö að planta i megniö af
þurrlendi i Mjóanesi og hafa alls
verið settar niöur milli 100 og 200
þúsund plöntur. Allmikiö mýr-
lendi er i Mjóanesi, sem ekki
hefur veriö ræst fram en fyrir 5
árum var gerð tilraun meö aö
plægja upp mýrlendið og planta
lerki og greni i plógförin. Er þetta
aö skozkri fyrirmynd og hefur
gefiö mjög góða raun. Er áætlaö
að plægja allt mýrlendiö i fram-
tiöinni og planta þar greni og
sibiriulerki. Sagði Sigurður, aö
þetta svæöi i Mjóanesi væri alda-
gamalt beitland og mjög dæmi-
gert fyrir ofbeitt land. Einkennis-
planta þess er þursaskegg.
Er þaö orðiö mjög rýrt, og
hefur gefiö afarlitla uppskeru
siöustu ár. Lerkiö, sem gróður-
sett hefur verið rifur sig áfram og
sagðist Siguröur ekki þekkja
neina aöra plöntu en lerki, sem
skilar eins miklum vexti á svo
rýru landi án þess aö fá áburö.
„Þetta er útpint beitarland, sem
kemur til meö að verða afburöa
skóglendi á mjög skömmum
tima”, sagöi hann.
Um Fljótsdalsáætlunina sagöi
Sigurður, að nokkrir bændur
heföu settupp skógræktarreiti, og
væri lokiö við aö setja upp
giröingar á 5 bæjum og unnið aö
uppsetningu girðingar á þeim
sjötta. Búið er aö gróðursetja
70—80 þúsund plöntur af sibiru-
lerki i þessa reiti. Var byrjað á
þessu starfi i litlum mæli 1970, en
mest hefur verið plantað i ár, eða
45-50 þúsund plöntum. A aö vera
hægt að byrja aö grisja lerkið,
þegar þaö hefur náð 15 til 20 ára
aldri, og verður þaö þá notað i
giröingarstaura. En lerkiö hefur
náð 35 — 40 ára aldri, verður hægt
aö fá úr þvi borðvið.
Framtak þessara bænda er
mjög athyglisvert og mun geta
aflað þeim mikilla tekna i fram-
tiðinni. Er þess að vænta, aö fleiri
feti i þeirra spor á næstunni.
Glaðnað til
í Dölum
SÞ—Búöardal.
Hér um slóðir hefur verið þerrir
i þrjá daga eftir miklar og lang-
vinnar rigningar. Almennt náðu
menn heyjum upp þerrisdagana
framan af ágústmánuöi, en mjög
mikið af þeim stóð úti, þar eð ekki
hafði viðrað til þess að koma
heim i hlööu. Hætt er við, að sums
staðar hafi drepið i fúlgur, þvi aö
mjög góðan umbúnað hefur
þurft til þess að varna þvi.
Þessir þerrisdagar áorka þó
þvi, að heyskapnum lyktar þolan-
lega svo fáa daga sem þurrt hefur
verið i sumar. Það verður mikill
heyfengur viðast, en veltur á
ýmsu um gæðin.
Fóstrur
4 fóstrur óskast til starfa við skóla fyrir
fötluð börn. Upplýsingar gefur Bryndis
Viglundsdóttir forstöðukona i sima 43968
kl. 19 - 22 daglega.
(23. leikvika —leikir 2. sept. 1972)
Úrslitaröðin: Xl 1 — 1IX — 111 — XIX
1. vinningur: 11 réttir — kr. 14.500.00
6662 11872 28871 40521 47828 +
8808 13210 29353 42640+ 48882+
9007 17471 30002 43214
9801 17674 30481 45530
10807 20384 32290 45530 + nafnlaus
Greiðsla 2. vinnings fellur niður og leggst vinningsupp-
hæðin við vinningsupphæð 1. vinnings.
Kærufrestur er til 25. sept. Vinningsupphæðir geta lækk-
að, ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 23.
leikviku verða póstlagðir eftir 26. sept.
Handhafar nafniausra seöla verða að framvisa stofni
eöa senda stofninn og upplýsingar um nafn og heimilis-
fang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — iþróttamiðstöðin — REYKJAVIK
Saumakonur
Getum bætt við nokkrum saumakonum
strax.
Upplýsingar hjá verkstjóra.
Belgjagerðin
Bolholti 6.
ONSKOLI
SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR.
Innritun og greiðsla námsgjalda fyrir
haustönn 1972 fer fram i húsi skólans
Hellusundi 7, jarðhæð miðvikudaginn 6.,
fimmtudaginn 7., og föstudaginn 8.
september kl. 17-20 alla dagana.
Þeir nemendur sem innrituðust sl. vor,
eru sérstaklega beðnir að mæta sem fyrst,
til þess að staðfesta umsóknir sinar, þar
sem búast má við að skólinn verði brátt
fullskipaður fyrir þessa önn.
Skólastjóri
nær.
Fyrirlesarinn Kenneth Wright er nýkominn úr ferð
um Bibliulöndin og segir sögu margra athyglis-
verðra staða.
Sjáið myndir af miklum gersemum,
ókunnum þjóðum,
týndum ritum og eyðimerkurstöð-
um.
Næsta sunnudag —10. september — i Austurbæjar-
biói klukkan 5 og 9.
Sætapantanir i simum 36655, 14913 og 38646.
Húseigendur á hitaveitusvæðinu
Hitna sumir miðstöðvarofnarnir illa? Er hitaveitureikningurinn óeðli-
lega hár? Ef svo er, þá er hægt að lagfæra það. —Þið, sem ætlið að láta
mig hreinsa og lagfæra miðstöðvarkerfið i haust, hafið samband við
mig sem fyrst og ég mun segja yður hvað verkið muni kosta. Ef verkið
ber ekki árangur þurfið þér ekki að greiða fyrir vinnuna.
Baldur Kristiansen pipulagningameistari Njálsgötu 29.— Simi 19131.