Tíminn - 07.09.1972, Page 16
I Samband isl. samvinnufélaga ,
INNFLUTNINGSDEILD
Fánar israels og tslands blöktu I liálfa stöng við Laugardalshöllina i gær. (Timamynd Gunnar)
Blóðbaðið kostaði 17 mannslíf
- en Olympíuleikarnir halda áfram í skugga sorgar
SH—Iteykjavik, NTB
Óiympiulcikunum verður liald-
ið áfrain, þrátt fyrir blóðbaðið,
sem kostað hcfur 17 manns lifið. i
gærmorgun var haldin minning-
arathöfn á lcikvanginum i
Mlfnclicn. Kyrir sumum ,scm þar
voru viðstaddir, var þctta cinnig
lokaalliöfn. israclsku þátttakend-
urnir cru á förum lieim, Iígypt-
arnir eru þcgar farnir og Filipps-
cyingar cru að pakka saman. I>á
liafa margir frcttamcnn panlað
farmiða hcim.
Ólympiufáninn og l'ánar allra
þátttökulandanna, einnig hinna
arabisku, blöktu i háli'a stöng i
Míínchen i gær. H() þúsund manns
voru viðstaddir athöfnina á leik-
vanginum, sem var mjög hátið-
leg.
Hlóðbaöið
Það var ekki fyrr en seint i
fyrrinótt að heimurinn komst að
raun um, hvað gerzt hafði á
Furstenfeldbruck-flugvelli
klukkustundirnar áður. A flug-
vellinum beið Lufthansa-flugvél,
Boeing 727, eftir gislunum og
skæruliðunum, sem komu þangað
i tveimur þyrlum. Þýzka nefndin,
sem unnið hafði að samningum
við skæruliðana, var i þriöju þyrl-
unni. Er þyrlurnar voru lentar,
fóru alvopnaðir skæruliðarnir út
að Lufthansa-vélinni lil að skoða
hana. Töldu þá þýzku lögreglu-
mennirnir timabært að hefjast
handa og skutu. Skæruliðarnir
brugðust við þvi með aö kasta
handsprengjum að þyrlunni með
Konan á myndinni, er ein af þeim sem eiga uni sárt að binda vegna
morðanna I Mílnchen í fyrrinótt. Ilún er rnóðir israelska glimuþjálfar-
ans Moshe Weinberg, sem var annar þeirra sem féllu fyrir kúlum
hryðjuverkamaniia i Olympiuþorpinu að morgni þriðjudags. Myndin
var tckin cr niinningarathöfn um hina látnu var lialdin á aðaliþrótta-
vcliiiiniii i Mtlnclicn i gær. (Slmamynd UPI)
gislunum og skjóta siðan á brenn-
andi flakið. Þá tókst skæruliðun-
um einnig að kveikja i flugturnin-
um, þannig að engar fréttir bár-
ust af atburðunum lengi vel.
Lögreglumennirnir héldu áfram
að skjóta, og fjórir skæruliðanna
féllu, en sá fimmti var tekinn
höndum eftir skamman eltingar-
leik. Alls létu lifið þarna á flug-
vellinum niu gislar, fjórir skæru-
liðar, einn flugmaður og einn lög-
regluþjónn.
Allur hcimurinn
fordæmir
Fréttin um örlög gislanna niu
var ekki gerð heyrinkunn i ísrael
fyrr en i gærmorgun. titvarpið
sem sent hafði út alla nóttina,
þagði yfir þessu i klukkustund.
Siðan var sagt, að gislarnir hefðu
verið frelsaðir. En þegar sann-
leikurinn kom i ljós, fylltust
landsmenn heilagri reiði, slikri,
að dæmi munu vart finnast til
samanburðar i landinu.
Nixon Bandarikjaforseti sagði
morðin vera áfall fyrir allar þjóð-
ir heims og fékk Rogers utanrik-
isráðherra það verkefni að hafa
samráð við aðrar rikisstjórnir um
öryggisráðstafanir gegn slíkum
hlutum.
Sovézk blöð sögðu frá atburð-
unum, og voru fréttir þeirra sam-
hljóða, en sjónvarpið þar i landi
var i gærkvöldi enn ekki búið að
skýra frá fjölda hinna látnu.
I ræðu i gær sagöi Páll páfi, að
aðgerðir skæruliðanna væru
miskunnarlaus slátrun. Páfi
sendi samúðarskeyti til stjórna
tsraels og Vestur-Þýzkalands.
Schumann, utanrikisráðherra
Frakklands, fordæmdi aðgerðirn-
ar og kallaði þær miskunnarlaus-
an glæp. Hann lét i ljós von um, að
tsraelsmenn hygðu ekki á hefnd-
ir.
William, forsætisráðherra
Astraliu, sendi Goldu Meir skeyti,
þar sem hann Iét i ljós samúð
allra Astraliubúa og samhryggð
með aðstandendum hinna látnu.
Of langt mál yrði að telja upp
allar samúðarkveðjurnar, sem
voru að berast allan daginn i gær
bæði til Israel og Vestur-Þýzka-
lands.
Ásakanir
Stjórn Sýrlands lýsti þvi yfir i
gær, að það væru Vestur-Þjóð-
verjar, sem bæru ábyrgð á blóð-
baðinu, og að skæruliðarnir sem
féllu, væri pislarvottar.
Willy Brandt kanslari fór þess á
leit við Sidky, forsætisráðherra
Egyptalands, i fyrrakvöld, að
Egyptar tækju á móti gislunum
og skæruliðunum og sendu siðan
gislana og flugvélina aftur til
Miínchen. Sidky neitaði þessu, og
sagði talsmaður Vestur-þýzku
stjórnarinnar i gær, að svona
framkoma bæri ekki vott um
mikinn samstarfsvilja þegar um
væri að ræða að bjarga mannslif-
um.
Avery Brundage, forseti
albióðaólvmpiunefndarinnar,
sagði i ræðu sinni við minningarat
höfnina i gærmorgun, að leikun-
um yrði haldið áfram. Nefndin
lýsti daginn i gær sorgardag.
Þessi ákvörðun kom satt að segja
nokkuðá óvart, þvi að flestir voru
komnir á þá skoðun, að blóðbaöið
hefði bundið endi á leikana.
Fyrir mörgum er þó leikunum
lokið. Eins og áður er sagt eru
þátttakendur nokkurra þjóða ým-
ist farnir heim eða á förum, og i
siðustu fréttum segir, að Norð-
menn séu að tygja sig af stað.
Parisarblaðið L’Aurore varpar
i gær fram þeirri spurningu,
hvort mönnum finnist óliklegt, að
einhver fordæming hvili yfir
Mlinchen. Blaðið minnir á, að
borgin sé tengd kúgun nazista,
hún hafi orðið tákn undanláts-
semi fyrir miskunnarlausri vald-
beitingu, hún hafi reynt að fjar-
lægja brennimarkið með þvi að
sýna heiminum sitt glæsilegasta,
sem siðan hafi á einni nóttu
breytzt i vanvirðu.
Fimmtudagur 7.
scptcmbcr lí)72
_________:_________________✓
Sumargestir
í Öræfum
— Það er ekki nein nýlunda. að
hér bregði fyrir fáséðum fuglum,
sagði Hálfdán Björnsson á Kvi-
skerjum. er blaðið átti tal við
hann. Svo hefur einnig verið i
sumar. Stundum verpa þessir
fuglar. en það er undir hælinn
lagt. hvort hreiður þeirra finnast.
í sumar kvaðst Hálfdán hafa
orðið var við tvær hringdúfur og
tvo seftittlinga og fugla af söngv-
araætt. En varpstað þeirra fann
hann ekki. þótt þeir kunni eigi aö
siður að hafa átt sér hreiður.
Samkomulag við
Belgíumenn í dag
KJ—Reykjavik
Ég geri mér vonir um að Is-
lendingar og Belgiumenn nái
samkomulagi um heimild til
handa Belgiumönnum að
stundá veiðar innan 50 milna
landhelginnar, sagði Einar
Ágústsson utanrikisráðherra
á fundi með erlendum frétta-
mönnum i gærdag.
Utanrikisráðherra sagði, að
belgiska stjórnin hefði sent
hingað til lands sendinefnd til
viðræðna við islenzk stjórn-
völd um veiðar innan 50 miln-
anna, og myndi viðræðum ís-
lendinga og Belgiumanna
ljúka i dag.
— Eftir þvi sem ég bezt veit,
þá hafa belgiskir togarar ekki
stundað veiðar innan nýju
landhelginnar sagði utanrfkis-
ráðherra, og virða Islendingar
það.
Belgiska samninganefndin
er undir forystu Etienne Har-
ford, sendiherra Belgiu á Is-
landi með aðsetri i Osló.
TIGHIS
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hiýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.