Tíminn - 07.09.1972, Síða 16

Tíminn - 07.09.1972, Síða 16
I Samband isl. samvinnufélaga , INNFLUTNINGSDEILD Fánar israels og tslands blöktu I liálfa stöng við Laugardalshöllina i gær. (Timamynd Gunnar) Blóðbaðið kostaði 17 mannslíf - en Olympíuleikarnir halda áfram í skugga sorgar SH—Iteykjavik, NTB Óiympiulcikunum verður liald- ið áfrain, þrátt fyrir blóðbaðið, sem kostað hcfur 17 manns lifið. i gærmorgun var haldin minning- arathöfn á lcikvanginum i Mlfnclicn. Kyrir sumum ,scm þar voru viðstaddir, var þctta cinnig lokaalliöfn. israclsku þátttakend- urnir cru á förum lieim, Iígypt- arnir eru þcgar farnir og Filipps- cyingar cru að pakka saman. I>á liafa margir frcttamcnn panlað farmiða hcim. Ólympiufáninn og l'ánar allra þátttökulandanna, einnig hinna arabisku, blöktu i háli'a stöng i Míínchen i gær. H() þúsund manns voru viðstaddir athöfnina á leik- vanginum, sem var mjög hátið- leg. Hlóðbaöið Það var ekki fyrr en seint i fyrrinótt að heimurinn komst að raun um, hvað gerzt hafði á Furstenfeldbruck-flugvelli klukkustundirnar áður. A flug- vellinum beið Lufthansa-flugvél, Boeing 727, eftir gislunum og skæruliðunum, sem komu þangað i tveimur þyrlum. Þýzka nefndin, sem unnið hafði að samningum við skæruliðana, var i þriöju þyrl- unni. Er þyrlurnar voru lentar, fóru alvopnaðir skæruliðarnir út að Lufthansa-vélinni lil að skoða hana. Töldu þá þýzku lögreglu- mennirnir timabært að hefjast handa og skutu. Skæruliðarnir brugðust við þvi með aö kasta handsprengjum að þyrlunni með Konan á myndinni, er ein af þeim sem eiga uni sárt að binda vegna morðanna I Mílnchen í fyrrinótt. Ilún er rnóðir israelska glimuþjálfar- ans Moshe Weinberg, sem var annar þeirra sem féllu fyrir kúlum hryðjuverkamaniia i Olympiuþorpinu að morgni þriðjudags. Myndin var tckin cr niinningarathöfn um hina látnu var lialdin á aðaliþrótta- vcliiiiniii i Mtlnclicn i gær. (Slmamynd UPI) gislunum og skjóta siðan á brenn- andi flakið. Þá tókst skæruliðun- um einnig að kveikja i flugturnin- um, þannig að engar fréttir bár- ust af atburðunum lengi vel. Lögreglumennirnir héldu áfram að skjóta, og fjórir skæruliðanna féllu, en sá fimmti var tekinn höndum eftir skamman eltingar- leik. Alls létu lifið þarna á flug- vellinum niu gislar, fjórir skæru- liðar, einn flugmaður og einn lög- regluþjónn. Allur hcimurinn fordæmir Fréttin um örlög gislanna niu var ekki gerð heyrinkunn i ísrael fyrr en i gærmorgun. titvarpið sem sent hafði út alla nóttina, þagði yfir þessu i klukkustund. Siðan var sagt, að gislarnir hefðu verið frelsaðir. En þegar sann- leikurinn kom i ljós, fylltust landsmenn heilagri reiði, slikri, að dæmi munu vart finnast til samanburðar i landinu. Nixon Bandarikjaforseti sagði morðin vera áfall fyrir allar þjóð- ir heims og fékk Rogers utanrik- isráðherra það verkefni að hafa samráð við aðrar rikisstjórnir um öryggisráðstafanir gegn slíkum hlutum. Sovézk blöð sögðu frá atburð- unum, og voru fréttir þeirra sam- hljóða, en sjónvarpið þar i landi var i gærkvöldi enn ekki búið að skýra frá fjölda hinna látnu. I ræðu i gær sagöi Páll páfi, að aðgerðir skæruliðanna væru miskunnarlaus slátrun. Páfi sendi samúðarskeyti til stjórna tsraels og Vestur-Þýzkalands. Schumann, utanrikisráðherra Frakklands, fordæmdi aðgerðirn- ar og kallaði þær miskunnarlaus- an glæp. Hann lét i ljós von um, að tsraelsmenn hygðu ekki á hefnd- ir. William, forsætisráðherra Astraliu, sendi Goldu Meir skeyti, þar sem hann Iét i ljós samúð allra Astraliubúa og samhryggð með aðstandendum hinna látnu. Of langt mál yrði að telja upp allar samúðarkveðjurnar, sem voru að berast allan daginn i gær bæði til Israel og Vestur-Þýzka- lands. Ásakanir Stjórn Sýrlands lýsti þvi yfir i gær, að það væru Vestur-Þjóð- verjar, sem bæru ábyrgð á blóð- baðinu, og að skæruliðarnir sem féllu, væri pislarvottar. Willy Brandt kanslari fór þess á leit við Sidky, forsætisráðherra Egyptalands, i fyrrakvöld, að Egyptar tækju á móti gislunum og skæruliðunum og sendu siðan gislana og flugvélina aftur til Miínchen. Sidky neitaði þessu, og sagði talsmaður Vestur-þýzku stjórnarinnar i gær, að svona framkoma bæri ekki vott um mikinn samstarfsvilja þegar um væri að ræða að bjarga mannslif- um. Avery Brundage, forseti albióðaólvmpiunefndarinnar, sagði i ræðu sinni við minningarat höfnina i gærmorgun, að leikun- um yrði haldið áfram. Nefndin lýsti daginn i gær sorgardag. Þessi ákvörðun kom satt að segja nokkuðá óvart, þvi að flestir voru komnir á þá skoðun, að blóðbaöið hefði bundið endi á leikana. Fyrir mörgum er þó leikunum lokið. Eins og áður er sagt eru þátttakendur nokkurra þjóða ým- ist farnir heim eða á förum, og i siðustu fréttum segir, að Norð- menn séu að tygja sig af stað. Parisarblaðið L’Aurore varpar i gær fram þeirri spurningu, hvort mönnum finnist óliklegt, að einhver fordæming hvili yfir Mlinchen. Blaðið minnir á, að borgin sé tengd kúgun nazista, hún hafi orðið tákn undanláts- semi fyrir miskunnarlausri vald- beitingu, hún hafi reynt að fjar- lægja brennimarkið með þvi að sýna heiminum sitt glæsilegasta, sem siðan hafi á einni nóttu breytzt i vanvirðu. Fimmtudagur 7. scptcmbcr lí)72 _________:_________________✓ Sumargestir í Öræfum — Það er ekki nein nýlunda. að hér bregði fyrir fáséðum fuglum, sagði Hálfdán Björnsson á Kvi- skerjum. er blaðið átti tal við hann. Svo hefur einnig verið i sumar. Stundum verpa þessir fuglar. en það er undir hælinn lagt. hvort hreiður þeirra finnast. í sumar kvaðst Hálfdán hafa orðið var við tvær hringdúfur og tvo seftittlinga og fugla af söngv- araætt. En varpstað þeirra fann hann ekki. þótt þeir kunni eigi aö siður að hafa átt sér hreiður. Samkomulag við Belgíumenn í dag KJ—Reykjavik Ég geri mér vonir um að Is- lendingar og Belgiumenn nái samkomulagi um heimild til handa Belgiumönnum að stundá veiðar innan 50 milna landhelginnar, sagði Einar Ágústsson utanrikisráðherra á fundi með erlendum frétta- mönnum i gærdag. Utanrikisráðherra sagði, að belgiska stjórnin hefði sent hingað til lands sendinefnd til viðræðna við islenzk stjórn- völd um veiðar innan 50 miln- anna, og myndi viðræðum ís- lendinga og Belgiumanna ljúka i dag. — Eftir þvi sem ég bezt veit, þá hafa belgiskir togarar ekki stundað veiðar innan nýju landhelginnar sagði utanrfkis- ráðherra, og virða Islendingar það. Belgiska samninganefndin er undir forystu Etienne Har- ford, sendiherra Belgiu á Is- landi með aðsetri i Osló. TIGHIS straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg- um mynztrum og litum. Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj- um sem hiýtur. Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og lífgið upp á litina í svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.