Tíminn - 09.09.1972, Blaðsíða 11
Laugardagur 9. september 1972
TÍMINN
11
Umsjon;Alfreð Þorsteinsson :
Hér stjást Uwe Beyer og hinn snöggi og iíflegi Bondartjuk fylgjast meö kastkeppninni.
Bondartjuk þeytti sleggjunni
75,50 m og tryggði sér gullið
Kast hans er nýtt OL-met
Rússinn Anatolij Bondartjuk
setti nýtt OL-met i sleggjukasti,
er hann þeytti sleggjunni 75,05 m,
sem er tveimur metrum betra
kast en gamla Ól-metið. Uwe
Beyer, sem var helzta von
Vestur-Þjóðverja, varð að bita i
það súra epli að verða fjórði i
sleggjukastinu, en hann kastaði
sleggjunni 14 sentimetrum lengra
en Olympiumeistarinn frá
Mexikó, Ungverjinn Gyula Zsi-
votzky. Keppnin stóö milli Rúss-
anna Bondartjuk og Chme-
levski, og Jochen Sachse frá
Austur-Þýzkalandi. Eins og fyrr
segir, bar hinn geysisterki og
snöggi Bondartjuk sigur úr být-
um. Annars varð röð efstu manna
þessi:
1. A. Bondartjuk, Sovét. 75.50
2. Jochen Sachse, A-Þ. 74.96
3. V. Chemelevski, Sovét 74.04
4. Uwe Beyer, V-Þ. 71.52
5. G. Zsivotzky, Ungv. 71.38
Yfirburðasigur í 100 m
grindahlaupi kvenna
A-þýzkar stúlkur í 1. og 3. sæti
ENN einu sinni röð-
uðu a-þýzkar frjáls-
iþróttakonur sér á
verðlaunapallinn á
Ólympiuleikunum i
Miinchen.
i gær vann Annelie Ehr-
hardt glæsilegan sigur i 100 m
grindahlaupi og hlaut þar með
gullverölaunin. Silfurverö-
lautiin hlaut stúlka frá
Rúmenfu, Valeria Bufanu, og
bronsið fékk Karin Balezer frá
A-Þýzkalandi. Þriðja stúlkan
frá A-Þýzkalandi hljóp einnig I
úrslitahlaupinu, en hún varö
að láta sér nægja sjöunda sæti.
Úrslit í 100 m grindahlaupi
urðu þessi:
1. Aunelie Khrhardt A-Þ 12.59
2. Valería Bufanu, Rúm. 12.84
3. Karin Balezer, A-Þ. 12.90
I. Pamela Kyan, Póll. 12.98
Nýjusfu OL-fréttir
í stuttu máli
JIM RYUN, 1500 m hlauparinn
frá Bandarikjunum, varð fyrir
miklu óhappi i 4. milliriðli 1500 m
hlaupsins i gærdag; hann datt i
hlaupinu og komst þvi ekki í úr-
slit. Ryun var algjörlega niður-
brotinn maður, þegar hann kom i
markið, niundi af tiu keppendum,
á 3.51.5. Fyrstur I riðlinum varð
hlaupakóngurinn Keino frá
Kenya, en hann hljóp á 3.40,0 —
samhliöa honum kom i mark Rod
Dixon frá Nýja-Sjálandi, á sama
tima. í fyrsta rnilliriöli sigraði
Thomas Wessinghage frá V-
Þýzkalandi (3.40,6), eftir harða
keppni viö hlauparann með der-
húfuna , Bandarikjamanninn
David Wottle (3.40,0), en hann er
nú eina von Bandarikjamanna i
1500 m.
BANDARISKU 400 m hlaupar-
arnir Matthews og Collett hafa
verið útilokaðir frá keppni i 4x400
m hlaupinu. Astæðan er sú, aö
þeir höguðu sér eins og kjánar á
verölaunapallinum eftir 400 m
hlaupið — stóðu þeir báðir á efsta
þrepinu og bentu út i loftið og
voru að tala saman, þegar banda-
riski þjóðsöngurinn var leikinn.
PÓLLAND er komið i úrslit i
knattspyrnukeppninni og mætir
Ungverjalandi, sem sigraði i
Mexikó 2:0 i gær. Pólland vann
Marokko 5:0 I gær og Sovétmenn
sigruðu Dani 4:0.
Handknattleikur:
Sovétrikin—A-Þýzkaland 11:8
Rúmenía—Júgóslavfa 13:14
Dantnörk—Túnis 29:21
USA—Spánn 22:20
Sviþjóð—Sovétrikin 11:11
Verður það KR eða
Víkingur sem fellur
Þrír leikir í 1. deild um helgina
Nú um helgina fara fram tveir þýðingarmiklir
leikir i 1. deildar keppninni, og ráða þeir úrslitum
um, hvaða lið fellur i ár og hvaða lið kemst i
Evrópukeppni borgarliða næsta ár.
I dag kl. 16.00 verður leikinn
einn leikur á Skaganum og sker
hann úr um, hvaða lið kemst i
Evrópukeppni borgaliða — liðin
sem leika á Skaganum i dag eru
heimamenn og Eyjamenn, og
ljúka bæði liöin þar með leikjum
sinum i 1. deildinni i ár. Það verö-
ur örugglega hart barizt uppi á
Skaga, þvi að mikið er i húfi —
möguleiki fyrir það lið, sem vinn-
ur leikinn, að dragast gegn ensku
liði i Evrópukeppninni, þvi að
fimm liö frá Englandi taka þátt I
borgakeppninni.
Þá fer fram einn leikur i dag á
Melavellinum, þar mætast lið
Valsmanna og Keflvikinga kl.
16,00, en sá leikur hefur enga þýð-
ingu i 1. deild. Þessi leikur átti
upphaflega að fara fram á morg-
un, en honum var flýtt fram um
einn dag, þvi að Keflvikingarhalda
til Spánar á morgun en eins og
menn vita þá leika þeir þar i
Evrópukeppni meistaraliða gegn
Real Madrid.
Sá leikur, sem á eftir að draga
hvaö mest að af áhorfendum, er
leikur botnliðanna KR og Víkings,
en liðin mætast á morgun á Mela-
vellinum, og hefst leikurinn kl.
16.00. Vikingsliöið þarf að vinna
leikinn til að foröast fall að sinni
— cf liðið sigrar, þá er það komið
með jafnniörg stig og KR (8 stig),
og verða þvi liðin að leika auka-
úrslitaieik. En ef KR-liðið sigrar
á morgun, þá er Vikingsliðið fall-
ið.
A þessu sést, að það verður
geysilegur baráttuleikur, sem
fram fer á Melavellinum á morg-
un, og það er ómögulegt aö spá
um úrslit, þó aö flestir, sem hafa
séð liðin leika að undanförnu,
hallist frekar að Vikingssigri.
Að gefa hornauga:
íslenzkurhand-
knattleikur
á villigötum
Þröngsýni nokkurra manna á góðri
leið með að skemma hann
llvað er að gerast i islenzkum
handknattleik? Þvi velta margir
fyrir sér þessa dagana, sérstak-
lega eftir að islenzka Ól-liðið
tapaöi fyrir Pólverjum. Og leik-
menn liðsins sögðust vera orðnir
svo leiðir á handknattleik, að
þeir mættu varla sjá handbolta
lengur. Af hverju eru landsliðs-
menn okkar orðnir leiðir á hand-
knattleik? Getur það verið, að
undirbúningur þeirra fyrir
leikana i Miinchen hafi verið
rangur og lcikmennirnir
blekktir? Eru leikmennirnir
kannski reiðir sjálfum sér fyrir
að glopra unnum leik gegn
Tékkum niöur i jafntefii á siðustu
minútunum fyrir eintóman
kiaufaskap?
Það eru margar spurningar,
sem handknattleiksunnendur
velta fyrir sér þessa dagana, og
flestir eru á þvi, að eitthvað
meira en litið sé að hjá islenzka
landsliðinu þessa dagana. Liðið
virðist vera óánægt og leikmenn-
irnir leiðir og sárir, hverju sem
þessi leiði er að kenna. Þaö má
skrifa hann á reikning leik-
mannanna sjálfra og liðs-
stjórnarinnar. Hvað sem lið-
stjórnin gerir og hve vitlaust sem
það er, fara leikmennirnir eftir
þvi, þó að þeir viti að rangt sé að
farið. Þeir þora hreinlega ekki aö
segja meiningu sina við liös-
stjórnina, heldur kvarta þeir,
eingöngu sin á milli, og með þessu
móti rikir alltaf óánægja i liðinu.
Tökum hér eitt litið dæmi um
það hvað landsliðsmenn okkar
láta bjóða sér: Nú siöustu árin
hefur mikið veriö kvartað undan
þvi meðal landsliðsmanna, að
landsliðiö hefði aldrei lækni eöa
A myndinni sést Einar Magnússon brjótast inn á llnu I landsleik gegn Bandarikjamönnum, og það var
ekki að sökum aðspyrja —knötturinn söng i netinu.
nuddara með sér i keppni er-
lendis. Leikmenn og þjálfari vita
að það er nauðsynlegt að hafa
lækni eða nuddara með sér, en
þeir er sagt, að það sér alltof dýrt.
Loksins þegar þeir gátu komið
þvi til leiðar að nuddari færi út
meö liðinu, slepptu þeir hinu
gullna tækifæri af hræðslu við
liðsstjórnina.
Nú spyrja örugglega margir:
Hvernig heföu þeir komiö þvi til
leiðar, að nuddari færi með þeim
tilMiinchen? Svarið er ósköp ein-
falt: landsliðsmennirnir okkar
gátu einfaldlega neitað aö taka
þátt i Ólympiuleikunum. Ef leik-
menn liðsins hefðu verið ákveðnir
og samhentir, hefðu þeir hrein-
lega neitað að fara til Miinchen
nema aö nuddari færi meö þeim.
Hvaö hefði stjórn HSÍ og
islenzka ólympiunefndin getað
gert? Hún hefði orðið að senda
nuddara með liðinu. Ekki var
hægt að draga liðið út úr keppn-
inni, þvi að það hefði ekki verið
gott til afspurnar erlendis, að
lcikmenn islenzka landsliðsins i
handknattleik neituðu að fara á
Ólympiuleikana, vegna þess að
þeir fengju ekki að hafa nuddara
með sér og þess vcgna yrði
ekkert úr förinni.
|Frh. á bls. 15