Fréttablaðið - 26.02.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 34
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 31
Sjónvarp 36
FIMMTUDAGUR
KR MÆTIR KEFLAVÍK Fimm leikir
verða í Intersport-deildinni klukkan
19.15. KR tekur á móti Keflavík, Snæfell á
móti Njarðvík, Þór Þ. sækir Hauka heim,
KFÍ mætir Breiðabliki og Tindastóll tekur
á móti ÍR.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HÆGVIÐRI OG BJART YFIR Þannig
verður það um nánast allt land. Hreyfir þó
eitthvað vind allra austast og stöku él norð-
austantil. Ekki síður gott veður um helgina.
Sjá síðu 6.
26. febrúar 2004 – 56. tölublað – 4. árgangur
● prada ● íslensk tíska
Kjóll í
uppáhaldi
tíska o.fl.
Hugrún Árnadóttir:
▲
SÍÐUR 18–19
● andalúsía ● ferðapistillinn
Líður vel
í Bern
ferðir o.fl.
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir:
▲
SÍÐUR 22–23
KOMIN TIL MAROKKÓ Alþjóðabjörg-
unarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar
kom seint í gærkvöldi til bæjarins Im
Zourem í Marokkó. Sveitin mun taka þátt í
björgunarstarfi. Sjá síðu 4
SÝKING Á LEIKSKÓLA Tvö börn á
leikskólanum Álfasteini í Hafnarfirði hafa
sýkst af heilahimnubólgubakteríu. Börnun-
um heilsast ágætlega og eru ekki talin í
lífshættu. Sjá síðu 2
HAFNA LÆKNI Læknafélag Íslands
hefur hafnað beiðni um að skrifa upp á at-
vinnuleyfi fyrir indverskan lækni, sem heil-
brigðisráðuneytið hafði veitt tímabundið
lækningaleyfi. Sjá síðu 2
GAGNRÝNIR NORÐMENN Árni
Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir Norð-
menn ekki sýna neinn vilja til að ná niður-
stöðu í samningi um norsk-íslenska síldar-
stofninn. Sjá síðu 6
ÖSKUDAGURINN SETTI SVIP Á BORGARLÍFIÐ Frí var í grunnskólum landsins á öskudaginn og mátti sjá grímuklædd börn hlaupa á
milli verslana úti um alla borg með fullt af sælgæti. Stúlkurnar á myndinni fóru á milli búða í Kringlunni þar sem þær sungu fyrir verslun-
arfólk í von um að fá góðgæti að launum.
VIÐSKIPTI Óstofnað eignarhaldsfélag
Helga Magnússonar, bankaráðs-
manns í Íslandsbanka keypti 8,8
prósenta hlut í Íslandsbanka í gær.
Þar með er hann
orðinn stærsti ein-
staki hluthafi
bankans. Seljandi
bréfanna var
Landsbanki Ís-
lands. Þá keypti
Urriði ehf., sem er
í eigu Orra Vigfús-
sonar, ríflega fimm
prósenta hlut Burðaráss í Íslands-
banka. Helgi er bankaráðsmaður í
Íslandsbanka og naut til þess stuðn-
ings Samtaka iðnaðarins. Helgi tók
við af Orra í bankaráðinu sem notið
hafði stuðnings sömu aðila. Samtals
ráða þeir um fjórtán prósentum í
bankanum. Samanlagt kaupverð er
um þrettán milljarðar. Með sölunni
innleysa Landsbankinn og Burðarás
gengishagnað af eign sinni, Burða-
rás um hálfan milljarð og Lands-
bankinn af eigin eign um 300 millj-
ónir. Kaupin eru gerð með fram-
virkjum samningum með gjalddaga
1. júní. Hvorugur fjárfestanna er
talinn til milljarðamæringa.
Helgi Magnússon segir fjárfest-
inguna til langs tíma og að fleiri
fjárfestar muni koma að kaupunum.
„Ég stend einn að kaupunum, en
hyggst fá öfluga fjárfesta til liðs
við mig.“ Hann segir að það muni
koma í ljós hverjir þeir verði.
Helgi er gamall samstarfsmaður
Björgólfs Guðmundssonar frá
Hafskipsárunum. Hann segir þá
hafa þekkst í mörg ár. Það hafi
ekkert með þessa fjárfestingu að
gera. „Ég þekki vel innviði bank-
ans og þarna er frábært starfsfólk
með mikla reynslu. Ég sé þarna
bjarta framtíð og það stýrir fjár-
festingunni.“ Hann segist vilja ró
um starfsemi bankans og kaup
bréfanna af keppinaut bankans
stuðli að því.
Orri segir áhuga sinn á útrás
sjávarútvegs ráða mestu um áhuga
sinn á bankanum. Hann segir eng-
in tengsl milli sín og Helga. Helgi
hefur unnið með Víglundi Þor-
steinssyni innan bankaráðs Ís-
landsbanka. Flokkadrættir hafa
verið í bankaráðinu. Talið er líkleg-
ast að Einar Sveinsson, forstjóri
Sjóvár-Almennra, verði formaður
bankaráðs á aðalfundi 8. mars og
taki við af Kristjáni Ragnarssyni.
Áhugi Landsbankans á samein-
ingu bankanna er samkvæmt heim-
ildum óbreyttur, en því er neitað að
kaupin tengist þeim vilja.
haflidi@frettabladid.is
46%62%
Breytt valdahlutföll
í Íslandsbanka
Kaup Orra Vigfússonar og Helga Magnússonar á um fjórtán prósenta hlut í Íslandsbanka eru
talin vekja stöðu núverandi formanns bankaráðs. Bréfin voru keypt af Burðarási og
Landsbankanum. Hvorugur kaupenda er talinn milljarðamæringur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Matur 2004 hafin:
Stórsýning
í Fífunni
STÓRSÝNING Allt snýst um mat,
vín og veislur á stórsýningunni
Matur 2004 sem hefst í
íþróttahúsinu Fífunni í Kópavogi
í dag og stendur fram á sunnu-
dag. Þar kynna yfir 300 einstak-
lingar og fyrirtæki vöru sína og
þjónustu. Fyrstu tvo dagana er
um kaupstefnu að ræða sem opin
er fagfólki og boðsgestum. Þá
verður keppt í ýmsum greinum
matvælaiðnaðar og skreytinga.
Á laugardag og sunnudag er sýn-
ingin opin almenningi. Þá er
keppt áfram, verðlaun verða
veitt og meðal annars krýndur
matreiðslumaður ársins. Tísku-
sýningar með brúðkaups-og
veislufatnaði verða á dagskrá og
margt verður í boði sem kitlar
bragðlauka gesta. ■
„Ég sé
þarna bjarta
framtíð og
það stýrir
fjárfesting-
unni.
Vopnaður ræningi:
Náðist á
hlaupum
RÁN 25 ára gamall maður framdi
vopnað rán í verslun 10-11 við
Arnarbakka í Breiðholti rétt
fyrir klukkan átta í gærkvöldi.
Ræninginn ógnaði starfsfólki
með hnífi og hafði með sér um
tíu þúsund krónur í peningum
og hljóp út í myrkrið. Um tutt-
ugu mínútum síðar náði lögregl-
an ræningjanum á hlaupum í
Bakkahverfi og handtók hann
með ránsfenginn.
Tæplega tvítugur maður
framdi vopnað rán í sömu verslun
í Breiðholti í byrjun desember, en
það upplýstist í janúar. Hann stal
þá 100 þúsund krónum. ■
RANNSÓKN „Það hefur fengist stað-
fest að Tomas Malakauskas er
ekki á sakaskrá. Íslendingarnir
eru ekki á sakaskrá fyrir nein
mál í líkingu við það sem þeir eru
sakaðir um núna, hvorki fíkni-
efnabrot né ofbeldisbrot,“ segir
Arnar Jensson hjá Ríkislögreglu-
stjóra.
Arnar segir ekki liggja endan-
lega fyrir hvað verði gert með
þau sýni sem tekin hafa verið í
bíla- og húsrannsóknum. „Við
erum enn með bílana og verðum
áfram með þá.“ Ekki liggja held-
ur fyrir niðurstöður varðandi
þau gögn sem tekin hafa verið í
rannsókninni. Hann segir að búið
sé að taka skýrslur og ræða við á
annað hundrað manns.
„Við viljum ekkert segja frá
því hvernig það stendur. Þeir eru
frá sama bæ, sem er þó ekki svo
lítill að þeir ættu að þekkjast þess
vegna,“ segir Arnar aðspurður
um hvort tekist hafi að finna
tengsl á milli Jucevicius og Mala-
kauskas.
Aðspurður hvort einhverjir
séu búnir að játa segir Arnar:
„Ég vil ekkert segja um það held-
ur. Við höfum ekkert tjáð okkur
um hvað er að gerast í yfir-
heyrslunum.“
Björn Bjarnason hélt til Aust-
fjarða í gær þar sem hann hélt
fund með sýslumanninum á Eski-
firði og þeim lögreglumönnum
sem unnið hafa að rannsókn lík-
fundarins í Neskaupstað og fór
yfir stöðu mála. Björn lýsti yfir
ánægju sinni með störf þeirra.
Hæstiréttur staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir Tomas
Malakauskas. Bæði Grétar Sig-
urðarson og Jónas Ingi Ragnars-
son ákváðu að una úrskurðinum. ■
Líkfundurinn í Neskaupstað:
Ráðherra kynnir sér rannsókn