Fréttablaðið - 28.02.2004, Qupperneq 4
4 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
Hvaða ráðherra Framsóknar-
flokksins mun missa embætti sitt
í haust?
Spurning dagsins í dag:
Á að raflýsa Gullfoss?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
40,6%
18,5%
Siv Friðleifsdóttir
12,6%Valgerður Sverrisdóttir
Jón Kristjánsson
9,5%
18,8%
Guðni Ágústsson
Árni Magnússon
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Írak
Þremenningarnir í líkfundarmálinu:
Grunaðir strax í upphafi
RANNSÓKN Hluti af sýnum sem
tekin voru við húsleitir og við
rannsóknir á bílum í kjölfar
handtöku þeirra Grétars Sigurð-
arsonar, Jónasar Inga Ragnars-
sonar og Tomas Malakauskas í
tengslum við líkfundinn í Nes-
kaupstað var sendur í DNA
rannsókn í Noregi.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að skömmu eftir að líkið
fannst í höfninni hafi lögregla
athugað ferðir Grétars. Hann
kom til Neskaupstaðar þar sem
hann sagðist hafa fengið raflost
þegar hann var að vinna í íbúð-
inni sinni og kaus hann því að
fara til móður sinnar til að jafna
sig um tíma. Skýringar sem
hann gaf á heimsókninni þóttu
undarlegar. Við nánari athugun
kom í ljós að tveir ungir menn á
Pajero-jeppa hefðu heimsótt
Grétar. Þetta voru Jónas og
Thomas. Athygli vakti að þeir
voru á dýrum bílaleigubíl sem
kostar allt að átján þúsund krón-
um á sólarhring.
Fréttablaðið greindi frá því
fáum dögum eftir líkfundinn að
þrír menn væru grunaðir um að
tengjast málinu og að einn þeir-
ra væri frá Neskaupstað. Sam-
kvæmt þeim heimildum beindist
grunur lögreglunnar fyrir aust-
an að þremenningunum, sem nú
eru í gæsluvarðahaldi, strax á
frumstigi rannsóknarinnar. ■
Gates enn ríkastur
Bill Gates, stofnandi Microsoft, er ríkasti maður heims, samkvæmt lista
tímaritsins Forbes. J.K. Rowling, höfundur Harry Potter bókanna, og
stofnendur bandaríska netfyrirtækisins Google eru ný á listanum.
NEW YORK, AP J.K Rowling, höfund-
ur bókanna um Harry Potter, og
stofnendur bandaríska netfyrir-
tækisins Google, eru orðin millj-
arðamæringar, samkvæmt árleg-
um lista viðskiptatímaritsins For-
bes. Bill Gates, stofnandi
Microsoft trónir í efsta sæti list-
ans tíunda árið í röð og heldur því
titlinum „ríkasti maður heims“.
587 nöfn eru á listanum að
þessu sinni og eru eignir millj-
arðamæringanna samanlagt
metnar á sem svarar um 133.000
milljörðum íslenskra króna. 22 ný
nöfn eru á listanum, þar á meðal
Rowling og Sergey Brin og Larry
Page, forsvarsmenn Google. Öll
eru þau talin eiga um einn millj-
arð Bandaríkjadala eða sem svar-
ar um 70 milljörðum króna. Evr-
ópubúum fjölgaði á listanum og er
það rakið til sterkrar stöðu evr-
unnar gagnvart Bandaríkjadal.
Eignir Bill Gates eru að þessu
sinni metnar á hátt í 3.300 millj-
arða króna en til samanburðar má
geta þess að árið 1998 átti hann
hátt í 7.000 milljarða. Fjárfestir-
inn Warren Buffett fylgir fast á
hæla Gates en eignir hans jukust
úr um 2.100 milljörðum árið 2003
í rúmlega 3.000 milljarða árið
2004. Karl Albrecht, eigandi
þýskrar verslunarkeðju, sádí-
arabíski prinsinn Alwaleed Bin
Talal Alsaud, Paul Allen, einn
stofnenda Microsoft, og fjórir erf-
ingjar Wal-Mart verslunarkeðj-
unnar eru í hópi tíu ríkustu ein-
staklinga í heimi.
Bandaríkin eiga flesta fulltrúa
á lista Forbes, í öðru sæti er
Þýskaland og Rússland í því
þriðja. Mikill meirihluti millj-
arðamæringanna eru giftir karl-
menn yfir miðjum aldri. Aðeins 53
konur eru á listanum en þeirra á
meðal er spjallþáttastjórnandinn
Oprah Winfrey. Meðalaldurinn er
64 ár en aðeins 27 eru undir fer-
tugu. Þrír milljarðamæringar eru
á bak við lás og slá, þar á meðal
Mikhail Khodorkovsy, ríkasti
maður Rússlands. ■
Hass í fragtsendingu:
Laus úr
haldi
FÍKNIEFNI Gæsluvarðhald, yfir
manni um tvítugt sem handtekinn
var í tengslum við 10,2 kíló af
hassi sem tollgæslan á Keflavík-
urflugvelli fann í fragtsendingu
fyrir rúmri viku, rann út í gær.
Málið er enn í rannsókn en ekki
var talin ástæða til að halda mann-
inum lengur.
Haft var eftir Jóhanni R. Bene-
diktssyni, sýslumanni á Keflavík-
urflugvelli, að hasssendingin
væri sú stærsta sem tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli hefði tekið í
einu lagi. Hátt í fimmtán kíló af
hassi hafa verið tekin af tollgæsl-
unni það sem af er þessu ári. ■
UPPLÝSINGAFULLTRÚI OG VODAFONE
Pétur Pétursson segir að fyrirtækið fagni
samkeppni á símamarkaðnum. Verðskrá
og þjónusta fyrirtækisins sé sífellt til end-
urskoðunar og kunni að taka breytingum á
næstunni.
Og Vodafone:
Fagnar sam-
keppni
SÍMAÞJÓNUSTA „Það eru engin sér-
stök viðbrögð frá okkur þótt nýtt
símafyrirtæki sé komið á markað-
inn. Við fögnum auðvitað aukinni
samkeppni. Verðskrá og þjónusta
fyrirtækisins er sífellt til endur-
skoðunar og kann að taka breyt-
ingum á næstunni ekki endilega
út af þessu. Við viljum síður stan-
da í stað, en ég hvet fólk til að
gera verðsamanburð,“ segir Pétur
Pétursson, forstöðumaður upplýs-
inga- og kynningarmála hjá
Og Vodafone.
Margmiðlun býður nú upp á
hefðbundna símaþjónustu og er
þar með í fullri samkeppni við
Símann og Og Vodafone sem
þriðja aflið á markaðnum, en for-
svarsmenn Margmiðlunar ætla að
bjóða lægri gjöld en hin símafyr-
irtækin. ■
ÞJÓÐARSORG
Ung kona minnist Boris Trajkovski forseta.
Þjóðarsorg í Makedóníu:
Lík forsetans
fundið
BOSNÍA-HERSEGÓVÍNA, AP Björgunar-
menn hafa fundið lík Boris Tra-
jkovski, forseta Makedóníu, við flak
flugvélar hans sem fórst í slæmu
veðri í fjalllendi í Bosníu á fimmtu-
dagsmorgun. Sex aðrir makedónsk-
ir embættismenn fórust í slysinu
auk tveggja flugmanna.
Flak vélarinnar fannst rúmum
sólahring eftir að hún hrapaði á
svæði sem er þakið jarðsprengjum.
Sprengjusérfræðingar höfðu verið
kallaðir til til að fjarlægja sprengj-
urnar áður en björgunarmenn
kæmu á staðinn.
Þjóðarsorg var lýst yfir í
Makedóníu og Bosníu í gær. Samúð-
arkveðjur streymdu inn frá erlend-
um þjóðarleiðtogum og kveikt var á
kertum fyrir framan skrifstofu Tra-
jkovskis í Skopje. ■
SÍMINN
Forsvarsmenn Símans hafa boðið fyrirtæk-
ið Margmiðlun velkomið á símamarkaðinn.
Þeir segja að með aukinni samkeppni
muni Síminn halda áfram að efla sig og
styrkja.
Síminn um aukna
samkeppni:
Líflegri
markaður
SÍMAÞJÓNUSTA Eva Magnúsdóttir,
upplýsingafulltrúi Símans, segir
forsvarsmenn fyrirtækisins bjóða
nýjan keppinaut velkominn á
símamarkaðinn. Hún segir að með
tilkomu Margmiðlunar sé fjar-
skiptamarkaðurinn á Íslandi orð-
inn líflegri og í kjölfarið muni
Síminn efla sig og styrkja til þess
að verða fyrsta val viðskiptavin-
arins. Síminn sé eina fyrirtækið á
fjarskiptamarkaði sem hefur á
boðstólum alla vöru og þjónustu á
sviði fjarskipta.
„Síminn ætlar áfram að vera í
fararbroddi við að veita viðskipta-
vinum góða þjónustu,“ segir upp-
lýsingafulltrúi Símans. ■
FILIPPSEYJAR, AP Að minnsta kosti
tveir létust og tólf slösuðust þegar
eldur braust út um borð í ferju úti
fyrir ströndum Filippseyja. Á annað
hundrað farþega er enn saknað og
er óttast að þeir hafi drukknað eða
lokast inni í logandi ferjunni.
744 farþegar voru um borð auk
155 manna áhafnar. Flestir komust í
björgunarbáta eða stukku frá borði
og var bjargað úr sjónum.
Filippeyska strandgæslan segir að
eldurinn hafi átt upptök sín í vélar-
rými ferjunnar en farþegarnir
halda því fram að sprenging hafi
orðið í loftræstikerfi. ■
Eldur braust út í ferju:
Á annað
hundrað saknaðSeldist gjörsamlega
upp fyrir jólin.
Nú komin
aftur, enn
ódýrari!
Loksins!
www.edda.is
STJÓRNENDUR RANNSÓKNARINNAR
Sýslumaðurinn á Eskifirði boðaði til fyrsta
blaðamannafundar um líkfundinn réttri
viku eftir líkfundinn í Neskaupstað.
SÍMAKERFIÐ Í GANG Tólf nýjar
símstöðvar voru teknar í notkun í
Bagdad á dögunum í stað þeirra
sem voru eyðilagðar í loftárásum
Bandaríkjamanna síðasta vor. Með
stöðvunum komast 240.000 símalín-
ur í gagnið en álíka margar síma-
línur hafa annað hvort verið eyði-
lagðar eða eru gagnslausar vegna
þess að símstöðvar vantar.
ELDSVOÐI Á HAFI ÚTI
Eldur logaði í ferjunni þegar hún var dregin
til hafnar í bænum Mariveles á Bataan-skaga.
J.K ROWLING
Tímaritið Forbes metur eignir höfundar bókanna um Harry Potter á einn milljarð Banda-
ríkjadala.
BILL GATES
Stofnandi Microsoft trónir efstur á lista
Forbes yfir ríkustu menn heims tíunda árið í röð.
RÍKUSTU MENN HEIMS
1. Bill Gates 48 ára Bandaríkjamaður 46,6 milljarðar
2. Warren Buffett 73 ára Bandaríkjamaður 42,9 milljarðar
3. Karl Albrecht 83 ára Þjóðverji 23 milljarðar
4. Alwaleed Bin Talal Alsaud 47 ára Sádí-Arabi 21,5 milljarðar
5. Paul Allen 51 árs Bandaríkjamaður 21 milljarður
tölur í Bandaríkjadölum