Fréttablaðið - 28.02.2004, Page 32
■ ■ KVIKMYNDIR
16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýn-
ir kvikmyndina Jón Oddur og Jón Bjarni
eftir Þráin Bertelsson í Bæjarbíói,
Strandgötu 6, Hafnarfirði.
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Sænski orgelleikarinn
Matthias Wager leíkur á Klais-orgelið í
Hallgrímskirkju. Hádegishressing verður
í suðursal kirkjunnar að tónleikunum
loknum.
22.30 Jazzkvartettinn Kompa leikur
á Kaffi List. Kvartettinn skipa gítarleikar-
inn Sigurður Þór Rögnvaldsson, saxófón-
leikarinn Steinar Sigurðarson, bassaleik-
arinn Pétur Sigurðsson og trommuleik-
arinn Kristmundur Guðmundsson.
23.00 Hljómsveitin Singapore
Sling spilar á Grand Rokk. Á undan
spilar hljómsveitin Úlpa. Báðar hljóm-
sveitirnar eru að vinna að nýjum plöt-
um.
Á móti sól á Gauknum.
Í gær voru liðin 90 ár frá fæðingu
Ása í Bæ. Af því tilefni verður efnt til
veglegs skemmtikvölds í Höllinni í Eyj-
um, þar sem Bæjarabandið, sem skip-
að er góðvinum Ása, mun leiða söng og
flytja ljóð hans við lög Oddgeirs og fleiri.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Leikbrúðuland sýnir í Iðnó
brúðuleikritin „Pápi veit hvað hann
syngur” og „Flibbann”, bæði byggð á
sögum H.C. Andersen.
14.00 Lína Langsokkur eftir Astrid
Lindgren á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
19.00 Einleikurinn Sellófon eftir
Björk Jakobsdóttur í Iðnó.
20.00 Nemendafélag Verslunar-
skóla Íslands sýnir Sólsting í Loftkastal-
anum.
20.00 100% „hitt” með Helgu
Brögu í tónlistarhúsinu Ými, Skógarhlíð
20.
20.00 Meistarinn og Margaríta í
leikgerð Hilmars Jónssonar í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu.
20.00 Þetta er allt að koma eftir
Hallgrím Helgason í leikgerð Baltasars
Kormáks verður sýnt á stóra sviði Þjóð-
leikhússins.
20.00 Chicago eftir Kander, Ebb og
Fosse á stóra sviði Borgarleikhússins.
21.00 5stelpur.com með uppi-
standi, teiknimyndum og sjónvarps-
þáttastemmningu í Austurbæ.
■ ■ LISTOPNANIR
14.00 Kjartan Guðjónsson mynd-
listarmaður opnar sýningu í Listhúsi
Ófeigs, Skólavörðustíg 5.
14.00 Myndlistarkonurnar Inga Elín
og Ragnheiður Ingunn opna sýningu í
Galleríi Sævars Karls í Bankastræti
undir heitinu Ljósabiða.
15.00 Kjartan Guðjónsson mynd-
listarmaður opnar sýningu í Gallerí Fold
við Rauðarárstíg.
17.00 Höskuldur Harri Gylfason
opnar málverkasýningu í Gallerí íslensk
grafík í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17.
Gengið er inn Hafnarbakkamegin.
20.00 Tvær ljósmyndasýningar
verða opnaðar í Listasafni Kópavogs,
Gerðarsafni. Önnur er hin árlega ljós-
myndasýning Blaðaljósmyndarafélags
Íslands, þar sem mynd ársins verður
valin. Á neðri hæð verður síðan sýning á
ljósmyndum Magnúsar Ólafssonar úr
eigu Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Sýn-
ingarnar standa til 21. mars.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Skemmtikvöld Karlakórs
Eyjafjarðar verður í Vélsmiðjunni. Auk
kórsöngs, einsöngs og tvísöngs koma
fram hagyrðingar og gítartríó ásamt hin-
um víðfræðu Boris Harloff og Gunde
Gonzales.
23.00 Rúnar Júlíuson verður með
stórdansleik á Kringlukránni ásamt
rokksveit sinni.
Biggi og Palli í Maus verða á af-
mælisveislu 22.
Soulsveitin Straumar og Stefán
skemmtir á NASA við Austurvöll.
Blátt áfram spilar stuðmúsík á
Rauða ljóninu.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
32 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
25 26 27 28 29 1 2
FEBRÚAR
Laugardagur
Við svífumst einskis,“ segir Þor-geir Tryggvason, einn fjögurra
höfunda leiksýningarinnar Sirkus,
sem áhugaleikfélagið Hugleikur
frumsýnir í kvöld.
Sirkus gerist árið 1949, þegar
kalda stríðið og haftastefna í utan-
ríkisviðskiptum eru í algleymingi.
Ákveðið var að hafa leikmynd,
búninga og alla umgjörð sýningar-
innar í svarthvítu, enda þótti það
hæfa andrúmslofti þessara tíma.
„Við komum samt með svolítið
aðra sýn á þessi mál, veltum upp
annarri mögulegri atburðarás í
kringum varnarsamninginn og
skoðum hvernig það gæti hugsan-
lega allt saman hafa gerst ef heim-
urinn hefði verið pínulítið öðruvísi.
Hingað til lands kemur síberískur
sirkus sem setur nýstofnaða ís-
lenska leyniþjónustu algerlega í
uppnám.“
Ungur maður, Björn að nafni,
kemur nýútskrifaður úr leyniþjón-
ustunámi í Bandaríkjunum til að
stýra leyniþjónustunni, sem fær
það verkefni að fylgjast með sirku-
snum.
„Hann fær til liðs við sig tvo ís-
lenska lögreglumenn, þykkhöfðaða
mjög, og þeir telja að þarna sé
stórhættulegt lið á ferðinni.“
Ásamt Þorgeiri eru höfundar
sýningarinnar þau Ármann Guð-
mundsson, Hjördís Heiðrún Hjart-
ardóttir og Sævar Sigurgeirsson.
Tvær af vinsælustu leiksýningum
Hugleiks fyrr og síðar, Stútunga-
saga og Fáfnismenn, eru einmitt
eftir þessa sömu fjórmenninga.
Stútungasaga, sem var frum-
sýnd árið 1993, fjallaði um enda-
lok þjóðveldisins og var eins kon-
ar tilbrigði við Sturlungasögu.
Fáfnismenn, sem var frum-
sýnd árið 1996, fjallaði síðan um
„hina skáldaklíkuna“ í Kaup-
mannahöfn, sem var samtíða
Fjölnismönnum. „Við endur-
heimtum sjálfstæðið algerlega
fyrir slysni í lokin á því leikriti,“
segir Þorgeir. „Þegar við fórum
að huga að nýju verki fannst okk-
ur því ekki hægt annað en að taka
líka fyrir þennan tíma, þegar við
töpuðum sjálfstæðinu öðru sinni
eins og róttæka vinstrið myndi
orða það.“ ■
■ LEIKSÝNING
■ TÓNLEIKAR
föstudagur 27. mars - örfá sæti laus
laugardagur 28. mars -nokkur sæti laus
fimmtudagur 4. mars - nokkur sæti laus ath.
Leikhúsumræður eftir sýningu
föstudagur 5. mars -
föstudagur 12. mars
laugardagur 13. mars
föstudagur 19. mars
HARMONIKUBALL
Fjörið verður í Ásgarði, Glæsibæ við Álfheima
í kvöld frá kl. 22:00. Aðgangseyrir kr. 1.200.
Harmonikufélag Reykjavíkur.
TÓNLEIKAR
Kór Glerárkirkju Akureyri,
ásamt einsöngvurum og
hljómsveit, heldur tónleika í
Langholtskirkju í dag kl. 15:00.
Á efnisskrá eru íslensk þjóðlög
og sönglög, afrísk-amerísk
trúartónlist, madrigalar og
suður-ameríska messan, Misa
Criolla e. Ariel Ramírez
Flytjendur auk Kórs Glerárkirkju:
Óskar Pétursson tenór,
Haukur Steinbergsson bariton,
Daníel Þorsteinsson píanó,
Halldór G. Hauksson slagverk,
Karl Petersen slagverk,
Kristján Edelstein gítar,
Pétur Ingólfsson kontrabassi,
Valgarður Óli Ómarsson slagverk.
Stjórnandi: Hjörtur Steinbergsson.
Miðasala við innganginn.
Miðaverð kr. 1500.
Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Nánari uppl. á
www.glerarkirkja.is
Hefði heimurinn verið
pínulítið öðruvísi
SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR OG JÚLÍA HANNAM Í HLUTVERKUM SÍNUM
Hugleikur frumsýnir í Tjarnarbíói í kvöld sýninguna Sirkus, kostulega sögu úr kalda stríð-
inu sem sýnd verður í svarthvítu eins og hæfa þótti tíðarandanum. Leikstjóri er Viðar Egg-
ertsson.
Tónleikaröðin 15.15 á nýja svið-inu í Borgarleikhúsinu hefur
haft töluverða sérstöðu í tón-
leikaflórunni undanfarið. Í dag
koma þar fram fjórir tónlistar-
menn sem nefna sig Tímahrak.
„Við ætlum að flytja eitt eða
tvö löng verk eftir okkur sjálfa,
þar sem við erum að gera tilraun-
ir út frá spuna. Þetta verður
ábyggilega svolítil uppákoma,“
segir Sigurður Halldórsson selló-
leikari. Ásamt honum eru í Tíma-
hraki rafgítarleikarinn Hilmar
Jensson og slagverksleikararnir
Matthías Hemstock og Pétur
Grétarsson.
Sigurður segir þessa samsetn-
ingu, selló, rafgítar og tvo slag-
verksleikara, gefa mikla mögu-
leika á því að búa til hljóðheim.
„Við erum til dæmis ekki með
bassaleikara. Það hefur skapað
svolítið skemmtilega möguleika
fyrir elektróníkina, án þess að ég
vilji tala neitt illa um bassaleik-
ara. En elektróníkin getur notað
djúpu sviðin sem bassinn yfirtek-
ur oft.“
Tímahrak varð til í kringum
minningarhátíð um Vilberg
Júlíusson skólastjóra í Garðabæ
árið 2001.
„Hann var merkilegur maður
sem þýddi þessar skemmtilegu
litlu barnabækur um Bláu könn-
una og Græna hattinn, og líka
Palli var einn í heiminum. Hann
hafði mikinn áhuga á músík og
sviðslistum og beitti sér meðal
annars fyrir stofnun Tónlistar-
skólans í Garðabæ. Fólk gerir sér
ekki grein fyrir því hvað hann var
afkastamikill, enda var hann mik-
ill sérvitringur og fór sínar eigin
leiðir í öllu sem hann tók sér fyrir
hendur. Í barnaskólanum sem
hann stýrði hafa alist upp fjöl-
margir listamenn. Hann skipu-
lagði til dæmis tónlistarferðir til
Bandaríkjanna og tók okkur oft
með.“
Síðan hafa þeir komið nokkrum
sinnum fram, meðal annars á opn-
unarhátíð menningarmiðstöðvar-
innar á Íslandsbryggju í Kaup-
mannahöfn í haust. Þeir hafa með-
al annars flutt tónverk eftir Lárus
H. Grímsson og danska tónskáldið
Lars Graugaard, sem hyggur
reyndar á frekara samstarf með
þeim á næstunni. ■
TÍMAHRAK
Tónlistarmennirnir Matthías Hemstock, Sigurður Halldórsson, Pétur Grétarsson og Hilmar
Jensson spila á nýja sviði Borgarleikhússins klukkan kortér yfir þrjú í dag.
Tímahrak á nýja sviðinu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
R
Ó
B
ER
T