Fréttablaðið - 28.02.2004, Page 39

Fréttablaðið - 28.02.2004, Page 39
■ Molar 39LAUGARDAGUR 28. febrúar 2004 www.urvalutsyn.is Traust fer›askrifsto fa - framúrskarandi flj ónusta! Lágmúla 4 • sími 585 4005 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 38 64 02 /2 00 4 Úrslitaleikur SS-bikarkeppni karla: Tiltölulega jöfn handboltalið HANDBOLTI „Miðað við veturinn í heild held ég að þetta séu tiltölu- lega jöfn handboltalið að getu en þau eru frekar ólík handboltalega séð,“ sagði Jóhannes Bjarnason, þjálfari KA. „Þau leggja kannski megináherslu á ólíka þætti. Þegar allt er tekið saman þá held ég að getan sé frekar jöfn.“ „Auðvitað er þessi leikur frá- brugðinn öllum hinum,“ sagði Jó- hannes. „Það verður allt lagt und- ir og allt aðrir þættir sem maður reynir að hafa áhrif á eins og hug- arfar, spenna og fleira. Við ætlum bara að koma inn í leikinn eins og inn í alla okkar leiki. Við spilum svolítið óheflaðan handbolta á köflum. Kylfan er látin ráða svo- lítið. Við spilum af miklum krafti og við ætlum ekki að lækka tempóið á okkar leik. Ef við spil- um eins líkt og við gerum vana- lega og ef við gerum það þá eigum við góða sigurmöguleika.“ „Við höfum átt tiltölulega auð- velt með að skora í vetur. Það er mikill sóknarslagkraftur í liðinu þegar við spilum vel. Okkur hefur hins vegar gengið heldur lakar að verjast og fengið töluvert mikið af mörkum á okkur,“ sagði Jó- hannes. „Ég var alls ekki að meina að Framararnir væru slakt sókn- arlið þó þeir væru sterkt varnar- lið. Það eru þeir alls ekki. En ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvernig þessi lögmál blandast í súpu á laugardaginn. Lykilatrið- ið er bara þetta að ef við spilum okkar hefðbundna leik þá eigum við að geta unnið þá.“ „Burtséð frá bikarnum sjálfum og úrslitunum þá er þetta ákveðin rós í hnappagatið hjá þessum ungu strákum. Þeir hafa staðið sig frábærlega í vetur og það er lögð á þá mikil ábyrgð. Það gleymist oft að þeir eru kornungir sem bera lykilhlutverk í liðinu og hafa staðið afskaplega vel undir því. Þeir hafa verið gagnrýndir mjög harkalega ef þeir misstíga sig eitthvað en þetta eru strákar sem eru að byrja sinn feril og ég er bara glaður fyrir þeirra hönd að þeir fái að taka þátt í þessum leik.“ ■ FYRIRLIÐARNIR Guðlaugur Arnarsson, fyrirliði Fram, og Jónatan Magnússon, fyrirliði KA. Dagsformið skipt- ir verulegu máli Mikil bikarhelgi hjá Fram. Meistaraflokkur karla og þrír yngri flokkar leika bikar- úrslitaleiki um helgina. HANDBOLTI „Við höfum komist þrisvar í bikarúrslit á síðustu sex árum og unnum árið 2000,“ sagði Guðlaugur Arnarsson, fyrirliði Fram, sem leikur í dag til úrslita við KA í SS-bikar karla í hand- bolta. „Við vitum það að dags- formið þennan dag skiptir veru- legu máli.“ Framarar urðu bikarmeistar- ar fyrir fjórum árum eftir 27-23 sigur á Stjörnunni í úrslitaleik. Þeir léku einnig við Val árið 1998 og Hauka árið 2002 en töp- uðu í bæði skiptin. Þjálfari KA sagði að einn helsti styrkleiki Framara væri sterk vörn og góð markvarsla. „Til að vinna þennan leik þurf- um við að spila mjög sterka vörn. Við höfum náð að halda þeim dampi í vetur og að sjálf- sögðu leggjum við upp með að spila sterka vörn og skynsaman sóknarleik í framhaldi af því.“ KA vann Fram 31-28 á Akur- eyri fyrir þremur vikum. „Það var leikur lærdómanna,“ sagði Guðlaugur. „Þetta lá mjög vel fyrir KA-mönnum en við töp- uðum aðallega á okkar eigin mistökum. Ég vil ekki meina að KA-menn hafi verið að spila það vel. Það vorum við sem vorum að spila illa. Leikir milli þessara liða hafa í gegnum árin verið mjög spennandi og jafnir.“ „Við höfum verið mjög vax- andi sóknarlið. Við höfum dottið niður á köflum en við erum með mjög frambærilega sóknar- menn,“ sagði Guðlaugur. Héðinn Gilsson hefur að undanförnu átt við meiðsli að stríða en skiptir Framara miklu máli að hann verði leikfær á morgun. „Héð- inn verður heill,“ segir Guðlaug- ur. „Hann er sjálfur þannig þenkjandi og hann mun klárlega koma sterkur inn í þennan leik. Hann er sterkur karakter og það er nauðsynlegt fyrir strákana að hafa svona reynslubolta.“ Heimir Ríkarðsson, þjálfari Fram, lýsti eftir stuðnings- mönnum félagsins eftir bikar- leikinn við HK. „Þeir létu sig vanta á leikinn við HK en við fengum þá til baka í leiknum við Val. Þeir komu í Hlíðarenda og studdu okkur vel og ég veit að Framar- ar munu fjölmenna í Höllina og styðja vel við bakið á okkur. Stuðningurinn skiptir öllu máli,“ sagði Guðlaugur. Bikarúrslitaleikur karlanna verður ekki eini stórleikur Framara. „Þetta verður mikil bikarhelgi hjá Fram. Fyrir utan meistaraflokkinn þá eru þrír aðrir flokkar í bikarúrslitum þessa helgi og tvö lið í grunn- skólamótinu morguninn eftir,“ sagði Guðlaugur Arnarsson, fyr- irliði Fram. ■ 15 ÍSLENDINGAR Á DANSKA MEISTARAMÓTINU Fimmtán ís- lenskir keppendur taka þátt í opna danska meistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í Malmö í Svíþjóð um helgina. Þar af eru sjö landliðsmenn frá síð- asta ári. Á meðal keppenda verða Vala Flosadóttir stangastökkvari, Fríða Rún Þórðardóttir hlaupari, og Sunna Gestsdóttir sem keppir í hlaupi og langstökki. LEYFISKERFI SEINKAÐ Vegna úr- bæta sem þarf að gera á leyfis- kerfi KSÍ hefur verið ákveðið að seinka ferlinu varðandi þátttöku- leyfi félaga í Landsbankadeild karla um eina viku, eða til 16. mars næstkomandi. ÍSLAND MÆTIR NORÐUR-ÍRUM U-19 ára karlalið Norður-Íra og Íslendinga í knattspyrnu mæt- ast í tveimur vináttulandsleikj- um ytra dagana 26. og 28. apríl næstkomandi. Íslenska liðið tekur þátt í undankeppni EM í október, en Norður-Írar halda úrslitakeppni Evrópumótsins fyrir þennan aldursflokk sum- arið 2005. JÓHANNES BJARNASON Ef við spilum okkar hefðbundna leik þá eigum við að geta unnið þá.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.