Fréttablaðið - 28.02.2004, Page 45
LAUGARDAGUR 28. febrúar 2004 45
Dýrt spaug
FÓLK Ákvörðun Janet Jackson að
sýna brjóst sitt á söngatriði sínu í
úrslitaleik bandaríska ruðnings-
boltans mun reyn-
ast henni dýrkeypt.
Hún missti í kjöl-
farið hlutverk sitt
sem Lena Horne í
væntanlegri sjón-
varpsmynd um ævi
hennar. Fyrir það
átti að greiða henni
um 1.300 milljónir
íslenskra króna.
Jackson var
rekin úr hlutverk-
inu eftir að yfirmönnum ABC bárust
kvartanir frá Horne sjálfri sem vildi
alls ekki sjá Jackson leika sig.
Þetta er mikið áfall fyrir Janet
sem er einlægur aðdáandi Lenu
Horne og dreymdi um að fá að leika
hana í myndinni. Það er greinilega
rándýrt að sýna brjóstin á röngum
stöðum. ■
Batman á byrjunarreit
KVIKMYNDIR Fimmta Batman-mynd-
in, sem tekin verður að hluta til á Ís-
landi í mars, er heitt umræðuefni
þessa dagana og það er ekki síst tit-
ill myndarinnar sem hefur verið á
milli tannanna á fólki. Síðast þegar
fréttist átti myndin að heita Bat-
man: Intimidation eða jafnvel Bat-
man: The Intimidation Game.
Þessar tillögur eru nú foknar út í
veður og vind og framleiðandinn
Warner Brother’s hefur nú látið þau
boð út ganga að nýja myndin muni
heita Batman Begins, sem er vita-
skuld rökrétt þar sem myndin mun
fjalla um uppruna Leðurblöku-
mannsins og ástæðurnar að baki því
að Bruce Wayne fór að spranga um
skikkjuklæddur með grímu. Þá er
þetta nafn líka í anda fyrri mynd-
anna Batman, Batman Returns og
Batman Forever. Síðustu mynd,
Batman&Robin, reyna svo flestir að
gleyma. ■
JANET JACKSON
Hefði betur sleppt
brjóstaflassinu
fræga.
BATMAN
Christopher Nolan, sem á að baki mynd-
irnar Memento og Insomnia, leikstýrir
fimmtu Batman-myndinni sem ákveðið
hefur verið að beri titilinn Batman Begins.