Fréttablaðið - 29.02.2004, Blaðsíða 1
Bjór í fimmtán ár
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 42
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 40
Sjónvarp 44
SUNNUDAGUR
INTERSPORT-DEILDIN Fimm leikir
verða í Intersport-deildinni í körfubolta
karla í kvöld. Hamar og KR mætast í
Hveragerði, UMFN og KFÍ kljást í Njarðvík,
ÍR og UMFG eigast við í Seljaskóla og
Breiðablik og Tindastóll leika í Smáran-
um. Loks mætast Snæfell og Haukar í
Stykkishólmi en með sigri tryggir Snæfell
sér deildarmeistaratitilinn í ár. Allir leikirn-
ir hefjast klukkan 19.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA VÆTA OG ÁFRAM MILT Mest
verður úrkoman á Vestfjörðum en við
henni má búast víðast hvar, síst allra aust-
ast. Dálítill vindur vestan til á landinu
annars hægviðri. Sjá síðu 6.
29. febrúar 2004 – 59. tölublað – 4. árgangur
Í HÖRÐUM HNÚT Engin lausn er í
sjónmáli í heimahjúkrunardeilunni og fátt
sem getur komið í veg fyrir að 40 starfs-
menn af 83 hætti störfum frá og með
morgundeginum. Sjá síðu 2
JÁTNING Grétar Sigurðarson, einn þre-
menninganna sem eru í gæsluvarðhaldi
vegna líkfundarins í Neskaupstað, hefur ját-
að aðild sína að málinu, samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins. Sjá síðu 4
BJÖRGUNARSTÖRFUM LOKIÐ Al-
þjóðabjörgunarsveit Slysavarnarfélagsins
Landsbjargar kom aftur heim í gær eftir
björgunarstörf á jarðskjálftasvæðinu í
Marokkó. Ljósmyndari Fréttablaðsins var í
för með björgunarmönnum. Sjá síðu 4
LAXNESSSTOFA
Vaka-Helgafell og fjölskylda Halldórs Lax-
ness hafa skrifað undir viðbótarsamning
um útgáfu og kynningu á öllum verkum
skáldsins. Sjá síðu 6
UPPRENNANDI SKÁKDROTTNING EINBEITT Á SVIP Þessi unga skákdrottning velti fyrir sér stöðunni á skákborðinu á fjölskyldu-
hátíð Hróksins á Broadway í gær. Mikill fjöldi skemmtikrafta og skákmeistara tók þátt í hátíðinni.
ATHAFNALÍF „Þó okkur yrði boðin
hún í dag þá hef ég ekki hugmynd
um hvort við tækjum henni vegna
þess að svona ábyrgð er í sjálfu
sér ekki æskileg,“ segir Kári
Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, í viðtali við
Fréttablaðið í dag, um tvö hund-
ruð milljóna dala ríkisábyrgð
vegna uppbyggingar í lyfjaþróun.
„Þetta er sértæk aðgerð sem þú
vilt helst forðast. Það sem meira
er þá kemur svona ábyrgð ekki
ókeypis. Það fylgja skuldbinding-
ar til þessa samfélags um þróun
fyrirtækisins sem er ekki endi-
lega auðvelt fyrir okkur að axla
þannig að ég er ekki viss um hvar
þetta myndi enda,“ segir Kári.
Í viðtalinu fjallar hann um
nýjan samning við lyfjafyrirtæk-
ið Merck um lyfjaprófanir en að-
ferðir sem Íslensk erfðagreining
hefur þróað hafa vakið mikla
athygli. Hann segir að samstarfið
við Merck feli í sér mun minni
áhættu en flest önnur starfsemi
Íslenskrar erfðagreiningar þar
sem mjög hátt hlutfall lyfja sem
komist á síðari stig prófunar kom-
ist á markað. Hann segir einnig að
betur hafi gengið að hemja rekst-
ur Íslenskrar erfðagreiningar en
flestra annarra fyrirtækja í sam-
bærilegum rekstri.
Prófanir á hjartalyfi sem félag-
ið hefur þróað hefjast á næstu
vikum og stutt er í klínískar próf-
anir á lyfi við æðakölkun í fótum.
Sjá síður 14-15
Nú eru fimmtán ár liðin frá því að sala bjórs var leyfð á Íslandi. Bjórbannið markar í hugum
margra eitt undarlegasta skeið Íslandssögunnar, en bjór var bannaður í 77 ár. En hverju hefur
bjórinn breytt og hafa svartsýnisspárnar ræst? SÍÐA 24–25
▲
Afhuga ríkisábyrgð
Ekki er víst að Íslensk erfðagreining taki við ríkisábyrgð þótt hún bjóðist. Samstarf um lyfja-
prófanir við Merck þykir mikil viðurkenning. Stutt er í að tvö lyf frá ÍE fari í klínískar prófanir.
Sveinn Andri Sveinsson
Brotalamir á
réttarkerfinu
SUNNUDAGSVIÐTAL „Erfiðasta málið
sem ég hef tekist á við var hið svo-
kallaða barna-
hristingsmál sem
ég var með í
Hæstarétti. Þar
var saklaus maður
dæmdur. Það er
ekkert flóknara en
það,“ segir Sveinn
Andri Sveinsson
lögmaður í viðtali
um lögmannsstörf, dómkerfið og
pólitík. Nánar á síðum 22 - 23.
Íslandsbankaorrustan:
Víglundur
arkitektinn
VIÐSKIPTI Sú kenning er hávær í
viðskiptalífinu að Víglundur Þor-
steinsson, fulltrúi Lífeyrissjóðs
VR í stjórn Íslandsbanka, sé arki-
tektinn að kaupum Helga Magn-
ússonar og Orra Vigfússonar í
Íslandsbanka, og að fléttan sé með
vitund og vilja Björólfs Guð-
mundssonar. Með þessu hafi sam-
eining Íslandsbanka og Lands-
banka einungis verið sett í bið, en
þess verði ekki langt að bíða að
þreifingar hefjist að nýju.
Sjá nánar á síðum 16–17.
Nýtt
leikskáld
Óhætt er að segja að Jón Atli
Jónasson hafi ruðst fram á sjónar-
sviðið sem leikskáld. Tvö verk eru
komin á fjalirnar eftir hann og það
þriðja er á leiðinni. Hann vill leik-
hús með geðveiki.
▲
SÍÐUR 18–19
Hið feikivinsæla stúlkna-
band Sugababes er á leið
til landsins. Blaðamaður
Fréttablaðsins sló á þráðinn
til hinnar sykursætu Heidi.
Samtal við
sykurskvísu
▲
SÍÐUR 20–21
SVEINN ANDRI
Hefur varið marga
afbrotamenn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
LF
U
R