Fréttablaðið - 01.03.2004, Qupperneq 1
● flottasta skeggið
Daníel Einarsson:
▲
SÍÐA 18
Vann
Mottuna 2004
HEIMAHJÚKRUN Engir samninga-
fundir voru um helgina í deilu
starfsmanna Heimahjúkrunar við
Heilsugæsluna og því standa upp-
sagnir 40 starfsmanna, sem mæta
ekki til vinnu í dag.
Heilsugæslan hefur samið við
fyrirtækið Alhjúkrun, sem leigir út
starfsmenn, og munu þrír hjúkrun-
arfræðingar og einn sjúkraliði frá
fyrirtækinu hefja störf við Heima-
hjúkrun í dag. Dagmar Jónsdóttir,
forstöðukona Alhjúkrunar, og Þór-
unn Ólafsdóttir hjúkrunarforstjóri
staðfestu þetta í samtali við Frétta-
blaðið, en hvorug vildi tjá sig um
hvað viðkomandi starfsmenn
fengju í laun, þar sem ekki væri
búið að ganga endanlega frá samn-
ingum. Þá fékkst ekki staðfest
hvort von væri á fleiri starfsmönn-
um frá Alhjúkrun.
Kristjana Guðjónsdóttir, ein
þeirra sem hefur verið sagt upp hjá
starfi sínu hjá Heimahjúkrun, sagði
að mikil reiði væri ríkjandi meðal
starfsmanna, en fundur var haldinn
með starfsfólki í gær.
Elsa Friðfinnsdóttir, formaður
félags hjúkrunarfræðinga, segir
hjúkrunarfræðinga Alhjúkrunar
fara fram á talsvert hærri laun en
tíðkast meðal „kolleganna“.
„Við skiljum ekki af hverju
Heilsugæslan vill frekar kaupa
þeirra þjónustu, sem er mörgum
launaflokkum hærri en það sem
þeir eru að greiða sínum vönu og
reyndu starfsmönnum,“ sagði Elsa
Friðfinnsdóttir.
edda@frettabladid.is
Sjá bls. 2.
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MÁNUDAGUR
INTERSPORT-DEILDIN Einn leikur
verður í Intersport-deild karla í körfu-
bolta. Botnlið Þórs frá Þorlákshöfn sækir
Keflvíkinga heim. Leikurinn fer fram í
Keflavík og hefst klukkan 19.15
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ROFAR TIL OG LÆGIR SÍÐDEGIS Í
borginni og á vestanverðu landinu. Austan
til verður lengst af hægur vindur. Skil eru
að ganga yfir og í kjölfarið rofar heldur til.
Áfram milt. Sjá síðu 6.
1. mars 2004 – 60. tölublað – 4. árgangur
● hustler úr hillum
Konur gegn klámi:
▲
SÍÐA 30
Áfanga-
sigur
● breytti hugsunarhætti
Svava Jakobsdóttir:
▲
SÍÐA 18
Átrúnaðargoð
femínista
FRIÐARGÆSLULIÐ TIL HAITI Jean-
Bertrand Aristide, forseti Haiti, flúði land í
gærmorgun og naut til þess aðstoðar
Bandaríkjanna. Alþjóðlegt friðargæslulið
verður sent á vettvang til að tryggja frið
eftir blóðug átök. Sjá síðu 2
LAXNESSSTOFA Edda-útgáfa aðstoðar
Umba við frekari dreifingu á tveimur kvik-
myndum byggðum á sögum Laxness. 50
ára afmælis Nóbelsverðlauna skáldsins
verður minnst með veglegum hætti á
næsta ári. Sjá síðu 4
BARNAHÚS Héraðsdómur Reykjavíkur
er sá dómstóll sem minnst notar Barnahús
til yfirheyrslna. Dómstjóri segir aðstöðuna í
Dómhúsi ekki síðri en í Barnahúsi, og því
ástæðulaust að nýta það. Sjá síðu 6
MYNDIR ÁRSINS Mynd Pjeturs Sig-
urðssonar ljósmyndara Fréttablaðsins og DV,
„Norðurljósin seld“ var valin fréttaljósmynd
ársins og mynd ársins 2003 í samkeppni
Blaðaljósmyndarafélagsins. Sjá síðu 14
LÍKFUNDUR Rannsókn vegna lík-
fundarins hefur gengið hratt allt
frá því kafari rambaði á lík Vaidas
Jucevicius fyrir algjöra tilviljun
þann 11. febrúar síðastliðinn.
Nokkra daga tók að komast að
niðurstöðu um hver hinn látni
væri en skömmu eftir að það lá
ljóst fyrir tóku hjól rannsóknar-
innar að snúast.
Nú sitja þrír menn í gæsluvarð-
haldi vegna málsins og mun einn
þeirra, Grétar Sigurðarson frá
Neskaupstað, hafa játað aðild að
málinu. Hinir tveir, Jónas Ingi
Ragnarsson og Tomas Mala-
kauskas, munu ekki hafa játað
neina aðild.
Lögregla telur sig hafa góða
mynd af atburðarásinni í vikunni
fyrir líkfundinn og meintu ferða-
lagi Jónasar Inga og Tomas Mala-
kauskas með lík Vaidas, bundið
inn í blátt gólfteppi, austur til
Neskaupstaðar.
Stiklað er á stóru í rannsókn
málsins hingað til í Fréttablaðinu í
dag og rætt við Arnar Jensson, að-
stoðaryfirlögregluþjón hjá ríkis-
lögreglustjóra, um rannsóknarað-
ferðir sem beitt hefur verið. Í
samtali við Fréttablaðið segir
Arnar að líklegt sé að fleiri en
þremenningarnir í gæsluvarð-
haldinu tengist málinu.
Sjá síður 10 og 11.
Heilsugæslan kaupir
þjónustu Alhjúkrunar
Starfsmenn Heimahjúkrunar ævareiðir. Kauptaxtar Alhjúkrunar
mörgum launaflokkum hærri en gengur og gerist. Enginn samninga-
fundur um helgina og engar uppsagnir dregnar til baka.
Líkfundurinn í Neskaupstað 11. febrúar:
Málsatvik tekin að skýrast
SIGURKOSSINN Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfells, smellir hér kossi á deildarmeistarabikarinn í körfuknattleik sem Snæfell fékk
afhentan í fyrsta sinn í gærkvöld eftir sigur á Haukum í Stykkishólmi. Sjá bls. 25
Háskólanemi handtekinn:
Stal rafmagni
BERLIN, AP Þýskur háskólanemi,
sem stakk fartölvunni sinni í sam-
band á lestarstöð í Kassel, hefur
verið sakaður um að stela raf-
magni að verðmæti sem svarar
innan við einni íslenskri krónu.
Mál mannsins er komið inn á borð
saksóknara.
Lögreglumenn sáu til háskóla-
nemans þegar hann var að stinga
tölvunni í samband á lestarstöð-
inni síðla kvölds í nóvember á síð-
asta ári. Hann var handtekinn
vegna gruns um að hann hefði
stolið fartölvunni en þegar í ljós
kom að hún var hans eign var
ákveðið að kanna hvort hann hefði
brotið lög með því að stela raf-
magni. ■
KEPPINAUTAR TALA SAMAN
Jafnaðarmaðurinn Thomas Mirow tapaði
fyrir kristilega demókratanum og borgar-
stjóranum Ole von Beust.
Þýskir jafnaðarmenn:
Sögulegur
ósigur
HAMBORG, AP Jafnaðarflokkur Ger-
hards Schröder beið sinn versta
kosningaósigur í Hamborg frá
stríðslokum í gær. Fyrstu tölur og
útgönguspár gáfu til kynna að
fylgi flokksins yrði innan við 30%
en jafnaðarmenn fóru áratugum
saman með völdin í borginni.
Kristilegir demókratar unnu
hreinan meirihluta.
Kosninganna var beðið með
óþreyju enda telja menn úrslitin
til marks um slaka stöðu
Schröder. ■
39%52%
góð ráð ● svart á veggina
▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Eins og Rauðhetta
í skóginum
Helgi Þorgils Friðjónsson:
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I