Fréttablaðið - 02.03.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
ÞRIÐJUDAGUR
FRAMHALDSNÁMIÐ KYNNT
Kynningarfundur um nám við framhalds-
deild Kennaraháskólans verður haldinn í
dag klukkan 16.15 í nýbyggingu skólans,
Hamri við Stakkahlíð. Framhaldsnámið er
ætlað kennurum, þroskaþjálfum og öðr-
um uppeldisstéttum sem hafa áhuga á
að efla þekkingu sína og hæfni og taka
þátt í markvissum umræðum um skóla-
og uppeldismál.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
SLAGVIÐRI Í REYKJAVÍKINNI Og
við suður- og vesturströndina. Ekki sér fyrir
endann á hlýindunum. Talsverður vindur í
dag og á morgun. Sjá síðu 6.
2. mars 2004 – 61. tölublað – 4. árgangur
● fyrir nýja sjónvarpsþætti
Hugleikur Dagsson:
▲
SÍÐA 30
Teiknar Tvíhöfða
● hringurinn hirti 11 styttur
Óskarsverðlaunin:
▲
SÍÐA 27
Peter Jackson
● 40 ára í dag
Þorsteinn J:
▲
SÍÐA 16
Veisla með
eiginkonunni
kaupmálar ● dýrt að týna snyrtibuddu
Brynjar Emilsson:
▲
SÍÐUR 18-19
Best að drífa sig
í skattframtalið
UPPLÝSINGALEKI Pharmaco verður
á athugunarlista Kauphallarinnar þar til
meiri upplýsingar liggja fyrir um möguleg
kaup á öðru fyrirtæki. Erfitt að skýra við-
skipti föstudagsins nema með upplýsinga-
leka. Sjá síðu 2
LEITA EGGVOPNS Þrír kafarar Land-
helgisgæslunnar leituðu í gær í Norðfjarð-
arhöfn að eggvopni sem talið er að hafi
verið notað til að stinga göt á lík Litháans
sem fannst þar í febrúar. Sjá síðu 2
KOMNIR TIL HAÍTÍ Nokkur hundruð
bandarískir og franskir friðargæsluliðar eru
komnir til Port-au-Prince á Haítí til að verja
mikilvæga staði og gæta öryggis borgar-
búa. Sjá síðu 2
ENN Í HNÚT Hjúkrunarforstjóri Heilsu-
gæslunnar í Reykjavík segir stéttarfélögin
beita þrýstingi til að koma í veg fyrir að
hægt sé að veita heimahjúkrun. Barnaleg
ummæli, segja stéttarfélögin. Sjá síðu 4
FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn
Veigar Páll Gunnarsson er í þeirri
skrýtnu stöðu að á honum hvíla
veðbönd. Ástæðan er sú að þegar
hann gekk til liðs við KR í byrjun
árs 2002 þurfti að losa hann undan
samningi við norska liðið Ströms-
godset. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins greiddi KR ekki þá
upphæð, sem var rúm milljón, en
fékk fjárfestingafélag, Urania
Trade Ltd., til að kaupa Veigar
lausan og eignaðist Urania við það
leikmanninn.
KR-ingar gerðu samkomulag
við fjárfestingarfélagið um afnot
af Veigari, en í samkomulaginu,
sem var undirritað af fulltrúa
fjárfesta, fulltrúa stjórnar KR
Sports og Veigari Páli sjálfum,
kemur fram að Urania Trade Ltd.
hafi fullt og frjálst vald til að taka
hvaða tilboði sem berst í Veigar
Pál án þess að KR-ingar geti
nokkuð aðhafst. Fjárfestingar-
félagið á forgangskröfu á kaup-
verð þangað til það fer yfir þá
rúmu milljón sem það lagði til við
að losa Veigar Pál undan samn-
ingi. Norska liðið Stabæk sendi
bæði KR og Baldri Sigurðssyni,
einum hluthafa Urania Trade
Ltd., tilboð í gær sem hljóðaði upp
á nákvæmlega sömu tölu og það
kostaði að losa Veigar Pál frá
Strömsgodset og samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins hefur
fjárfestingafélagið þegar sam-
þykkt tilboðið. Heimildir blaðsins
herma að útlit sé fyrir að Veigar
Páll fari frá KR án þess að félag-
ið fái svo mikið sem krónu fyrir. ■
fjármál o.fl.
SKOKKAÐ VIÐ SÓLARLAG Þessi hópur skokkara naut sólarlagsins á ferð sinni um Ægisíðuna í gærkvöld.
STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson, ut-
anríkisráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, mun í fyrsta
lagi tilkynna að loknum störfum
Alþingis í vor hvaða ráðherra
flokksins verði settur af, þegar
breytingar verða á ríkisstjórninni
15. september og Halldór tekur við
forsætisráðuneytinu. Þetta segja
heimildarmenn innan Framsóknar-
flokksins. Stefnt er að þinglokum í
byrjun maí.
Ekki fer á milli mála að þetta
óútkljáða mál er erfitt fyrir
flokkinn, enda sögðu allir við-
mælendurnir svo vera. Það hefur
talsverð áhrif á starf ráðherr-
anna og þingflokksins. Mikil
spenna er milli einstakra ráð-
herra og þeirra helstu stuðnings-
manna, einkum fylgjenda Sivjar
Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra og stuðningsmanna
annarra. Vilji er til að ákvörðun
verði ekki tilkynnt fyrir en eftir
að þingið fer heim og tryggt
verði að boðaðar breytingar á
ráðherraliði hafi sem minnst
áhrif á starf þingmanna og ráð-
herra á Alþingi og í ríkisstjórn.
Viðmælendur Fréttablaðsins
innan Framsóknarflokksins eru
allir vissir um að Siv Friðleifs-
dóttir láti af ráðherraembætti.
Sátt er sögð vera um störf allra
ráðherra flokksins og þess vegna
er talið víst að hver haldi sínu
ráðuneyti, en þar sem ráðuneyti
Sivjar flyst yfir til Sjálfstæðis-
flokks sé ekki annað verjandi en
að hinir ráðherrarnir haldi áfram
en Siv hætti. Jón Kristjánsson
hefur einnig verið nefndur í
þessu sambandi en samflokks-
menn hans segja Jón hafa styrkst
mikið í starfi og þurfi ekki að ótt-
ast að missa embættið. Ekki náð-
ist í Halldór Ásgrímsson í gær. ■
Skrýtin staða hjá lykilmanni Íslandsmeistara KR sem vill komast til Noregs:
Veðbönd hvíla á Veigari
57%70%
Halldór bíður
þingfrestunar
Formaður Framsóknarflokksins mun ekki tilkynna hvaða ráðherra
hverfur úr ríkisstjórn 15. september fyrr en eftir að Alþingi lýkur
störfum í vor. Allt bendir til þess að Siv Friðleifsdóttir verði sett af.
Ný uppgötvun:
Fjarlægasta
stjörnu-
þokan
PARÍS, AP Franskir og svissneskir
vísindamenn segjast hafa fundið
stjörnuþoku sem er fjær jörðu en
nokkurt annað fyrirbæri sem vís-
indamenn hafa áður orðið varir
við. Stjörnuþokan, sem hefur ver-
ið nefnd Abell 1835 IR 1916, er í
13,23 milljón ljósára fjarlægð frá
jörðu.
Áður var stjörnuþoka í þrettán
milljón ljósára fjarlægð, mun
minni en sú sem jörðin er hluti af,
talin fjarlægasta þekkta fyrir-
bærið. Vísindamenn telja að
heimurinn hafi orðið til við svo-
kallaðan stóra hvell, sem er talið
að hafi átt sér stað í 13,7 milljón
ljósára fjarlægð. ■
Kjaraviðræður:
Frestað til
föstudags
KJARAVIÐRÆÐUR Samninganefndir
Samtaka atvinnulífins, Starfs-
greinasambandsins og Flóabanda-
lagsins komu sér saman um það í
gær eftir samningafund að fresta
frekari viðræðum, þar sem enn
væru engin svör komin frá stjórn-
völdum. Ætlunin er að ræða fram-
hald samningaviðræðna næst-
komandi föstudagsmorgun. Stíf
fundahöld hafa verið í húsakynn-
um ríkissáttasemjara síðustu
daga og er búið að ganga frá flest-
um sérkjarasamningum einstakra
hópa. Farið var að ræða launaliði
og lífeyrismál en ekki þótti
ástæða til að halda viðræðum
áfram í bili í ljósi þess hve mikið
ber í milli.
„Við ætlum að nota tímann til
að ræða við samninganefndirnar
og baklandið. Það eru ýmsar
ákvarðanir sem þarf að taka.,“
sagði Halldór Björnsson, formað-
ur Starfsgreinasambandsins, á
vef sambandsins.
Sigurður Bessason, formaður
Eflingar, segir að á þessari
stundu sé mikilvægt að gefa
stjórnvöldum tækifæri til að
leggja fram tillögur sínar varð-
andi lífeyrismál og atvinnuleys-
isbætur, en frá þeim hafi ekkert
heyrst um þau mál frá því rætt
var við ráðherra á laugardag. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
FRESTAÐ FYRIR LOKAHNYKKINN
Samkomulag varð um það í gær að
fresta kjaraviðræðum á almennum
markaði til föstudags. Mikið ber enn í
milli varðandi launalið nýrra samninga.