Fréttablaðið - 05.03.2004, Síða 35
35FÖSTUDAGUR 5. mars 2004
Fyrir rúmum þremuráratugum stofnuðu eig-
endur Baron de Ley vín-
húsið El Coto og hafa
byggt upp eitt stærsta og
framsæknasta fyrirtæki
Rioja. Á undanförnum
árum hafa sömu aðilar lagt
í miklar fjárfestingar á
víngerðarsvæðinu Cigales
(svæði sem liggur næst
Ribera del Duero) í norður-
hluta Spánar en það er af
mörgum talið mest spenn-
andi svæði Spánar í dag.
Vínviðurinn er gamall og
kraftmikill frá því um aldamótin
1900 og hefur skilað frábæru rauð-
víni. Fyrirtækið framleiðir þar
vínið Museum sem er blanda
úr þrúgunum Tempranillo og
Cabernet Sauvignon. Hefur
vínið hlotið mikla athygli fyr-
ir gæði og hagstætt verð. Ný-
verið hlaut Museum Real Res-
erva 1999 gullverðlaun á
Vinalies International.
Museum Real Reserva er
kröftugt, stammt og kryddað
með þéttum ávexti. Það fæst í
Heiðrúnu og í Kringlunni og
kostar 1.690 kr.
Museum Crianza sem fæst
einnig þar er höfugt og krydd-
að en ekki eins eikað og kostar
1.390 kr. ■
Spennandi
Spánverji
Um síðustu helgi var Tea Lind-blom, fulltrúi Glenfiddich-
fyrirtækisins, með
„viskískóla“ fyrir
áhugamenn á sýning-
unni Vín 2004. Sérstaka
athygli „nema“ vakti
hversu fjölbreytt
viskí er. Finna mátti
klassískt viskí, viskí
í stíl stríðsáranna,
með spænskum keim
og kúbversku ívafi.
„Vískí er margslung-
ið og fyrir þá sem
hafa áhuga á að
kynna sér það eru
möguleikarnir óend-
anlegir. Ég veit til
dæmis um fátt betra
í salatdressingu eða til að grilla
fisk upp úr en viskí,“ segir Tea,
sem kenndi fólki að meta fimm
tegundir í viskískólanum.
Glenfiddich Special Reserve,
12 ára, er mest selda single malt
viskí í heimi og sjálfsagt það sem
Íslendingar þekkja hvað best.
Glenfiddich Solera er 15 ára
gamalt viskí sem látið er liggja í
samskonar tunnum og notaðar
eru undir amerískt búrbón og
spænskt sérrí. Gefur heitan og
ákafan lakkrískeim.
Ancient Reserve, 18
ára, er flókið en mjúkt
viskí sem hefur verið
þroskast hægt í tunn-
um sem áður voru
notaðar undir
Oloroso-sérrí og am-
erískt búrbon.
G l e n f i d d i c h
Havana Reserve, 21
árs, var þróað af
bruggmeistara Glen-
fiddich sem þroskaði
skoskt viskí í rommt-
unnum frá Sancti
Spiritus á Kúbu.
Caoran kemur úr gelísku og
þýðir mór en þegar skortur var á
kolum á stríðsárunum var mór
notaður við eiminguna sem gefur
sérstæðan keim. Þetta „stríðs-
áraviskí“ var endurvakið fyrir
nokkrum árum við miklar vin-
sældir. ■
Kúbversk og
spænsk viskísveifla
Glenfiddich
Vínþjónar frá Vínþjónasamtökunum munu
aðstoða við skipta vini í vínbúðunum Heiðrúnu, í
Kringlunni, Smára lind og á Akureyri
næstu þrjár helgar (frá 20. febrúar til 6. mars).
Á föstudögum verða vínþjónar
í Heiðrúnu og á Akureyri kl. 15-18.
Á laugardögum verða vínþjónar
í Smáralind og Kringlunni kl. 14 -17.
www.vinbud.is
VÍNÞJÓNAR
TIL RÁÐGJAFAR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
A
V
R
23
69
1
04
/2
00
4
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
5.
0
17
Lárus Gunnar Jónasson sigraði íkeppni matreiðslumeistara á sýn-
ingunni matur 2004 um síðustu helgi.
Þrátt fyrir ungan aldur, Lárus er 26
ára, hefur hann tíu ára starfsreynslu
í faginu, og fjögurra ára veru í lands-
liði matreiðslumeistara. „Ég var
alltaf eithvað að fikta í eldhúsinu og
vissi alltaf hvað ég vildi,“ segir Lár-
us sem atti kappi við fjóra aðra
kokka í úrslitakeppninni. „Við feng-
um fyrirmæli um hvaða hráefni við
áttum að nota að hluta til – en feng-
um frjálsar hendur við útfærsluna,“
segir Lárus og upplýsir að 10% for-
réttarins átti að vera gulrætur og
30% hrísgrjón. 40% aðalréttarins átti
að vera rauðspretta og laukur 5%.
20% prósent eftirréttarins átti að
vera skyr og 10% kaffibaunir.
Vinningsseðillinn verður á
boðstólum í Sjávarkjallaranum um
helgina, en þar er Lárus yfirkokkur.
■
Grænmetisbaka
Allt grænmeti er gott í þessaböku. Það má fylla hana með
einni tegund af grænmeti, eins og
til dæmis lauk eða gulrótum. Eins
má gera þemabökur til dæmis
með ítölsku ívafi og notast við
ferskt basil, sólþurrkaða tómata
og þistilhjörtu, eða þá að gera
kraftmikla böku úr blöndu af
grænmeti eftir uppskriftinni í
dag.
Bökudeig
2 bollar hveiti
2 tsk. lyftiduft
salt
1/4 bolli mjólk
1/4 bolli matarolía
Fylling
1 tsk. cumin-fræ
2 gulrætur (skornar í sneiðar)
1/2 rauður laukur (skorin í fleyga)
1 bolli niðurskorið spergilkál
5–6 sveppir (sneiddir)
1/2 rauð paprika (skorin í sneiðar)
4 egg
1 msk. sýrður rjómi
1/2 bolli rifinn ostur
salt og pipar
Blandið hveiti og lyftidufti sam-
an við mjólk og matarolíu þannig
að úr verði flott deig. Passið að
hræra ekki um of. Fletjið deigið í
hringlaga flatböku á milli tveggja
smjörpappírsarka og hvolfið svo
deiginu yfir á vel smurt bökuform.
Það deig sem nær fram yfir brúnir
formsins er brotið niður meðfram
brúninni svo hún verði þykkari.
Botn og brúnir bökuskeljarinnar
eru pikkaðar með gaffli, smjör-
pappír er settur yfir bökuskelina
og hún bökuð í 200 gráðu ofni í 10
mínútur. Til þess að bökuskelin
haldi formi sínu í bakstrinum er
nauðsynlegt að fylla hana með
einum til tveimur bollum ósoðnum
af baunum. (Fransmenn ku notast
við sérstaka steina fyrir bökufarg
en baunirnar duga vel og má nota
aftur og aftur). Þegar bökuskelin
er tilbúin er ekkert annað eftir en
að steikja grænmetið á pönnu í
ólífuolíu og með cum-
in-fræjum (athugið
ekki kúmen). Blanda
því næst steiktu
grænmetinu saman
við eggjahræru, ost og
krydd og hella öllu
saman að lokum í
bökuskelina og baka í
175 gráðu ofni í um
hálftíma. Setjið ál-
pappír yfir bökuna í
ofninum ef hún fer að
dökkna um of. Borðið
með góðu salati.
Kostnaður undir
700 kr. ■
Til hnífsog skeiðar
GUÐRÚN
JÓHANNSDÓTTIR
■
Eldar handa minnst
fjórum fyrir 1000 kr.
eða minna.
LÁRUS GUNNAR JÓNASSON
Yfirkokkur í Sjávarkjallaranum. Vinnings-
seðillinn verður þar á boðstólum
um helgina.
Lárus Gunnar Jónasson:
Eldaði
til sigurs
Museum