Fréttablaðið - 06.03.2004, Blaðsíða 20
20 6. mars 2004 LAUGARDAGUR
■ Nafnið mitt
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON
„Æskuvinir mínir kölluðu mig hins vegar
Óla Magg,“ segir Ólafur F. borgarfulltrúi og
læknir.
Ólafur F. –
kallaður
Óli Magg
Ég heiti fullu nafni Ólafur Frið-rik Magnússon. Ég er alnafni
afa míns í föðurætt, Ólafs Magn-
ússonar, sem fæddist og ólst upp á
heimili afa síns, Ólafs Pétursson-
ar, útvegsbónda á Landamótum í
Seyðisfirði. Nafnið mitt er þannig
að austan en ýmsum hefur þótt
gaman að tengja það við baráttu
mína gegn stórvirkjanafram-
kvæmdum þar,“ segir Ólafur F.
Magnússon borgarfulltrúi.
„Ólafur afi minn dó ungur en
hafði áður lagt stund á læknis-
fræði og stofnað blaðið Víði, sem
var í aldarfjórðung málgagn sjálf-
stæðismanna í Vestmannaeyjum,“
segir Ólafur.
Þar sem Ólafur Magnússon er
algengt nafn ákváðu foreldrar
hans að gefa honum millinafn.
„Friðriksnafnið varð fyrir valinu
og var sótt í móðurættina til lang-
afa míns úr Eyjafirðinum, Frið-
riks Daníels Guðmundssonar. Öll
mín móðurætt kemur úr Eyja-
firðinum. Synir mínir þrír bera
millinafnið Friðrik eins og ég, en
það er að frumkvæði eiginkonu
minnar.“
Nafnið Ólafur er víxlmynd við
fornnorræna nafnið „Áleifur“
sem er samsett af forliðnum
„Anu“ sem merkir forfaðir og við-
liðnum „laibar“ sem merkir af-
komandi – erfingi. Friðrik er töku-
nafn úr þýsku og er sett saman af
forliðnum „Friede“ sem merkir
friður og fornháþýska lýsingar-
orðinu „rikki“ sem merkir ríkur –
voldugur.
Ólafur er vinsælt nafn á Ís-
landi og bera 2.906 það sem fyrsta
nafn. Um 340 manns bera nafnið
Friðrik sem annað eiginnafn.
Ólafur var oft kallaður Ólafur
Friðrik af kennurum til aðgrein-
ingar frá bekkjarbræðrum hans.
„Æskuvinir mínir kölluðu mig
hins vegar Óla Magg. Ég hef alltaf
notað millinafn mitt í rituðu máli
en skammstafað það. Það hefur
orðið æ algengara að ég sé kallað-
ur Ólafur F. í fjölmiðlum og finnst
mér bara gaman að því, sem odd-
viti F-listans í borgarstjórn
Reykjavíkur,“ segir Ólafur F. að
lokum. ■
Það vakti athygli þegar Lands-bankinn gerði dágóðum hópi
listamanna fært að hreiðra um sig
í gamla Hampiðjuhúsinu með
samstarfssamningi við galleríið
Kling og Bang og til varð vinnu-
staðurinn Klink og Bank. Rúmur
mánuður er liðinn síðan samning-
ar voru undirritaðir og nú er kom-
ið að því að listamennirnir opni
vinnustofur sínar og bjóði fólki
inn.
Hampiðjuhúsið við Brautar-
holt er engin smásmíði, það er um
5.000 fermetrar og hýsir sköpun
126 listamanna sem starfa á flest-
um sviðum listarinnar. Markmið-
in eru háleit, aðstandendur segja
sjálfir að um tímamót sé að ræða
sem geti boðað nýtt upphaf og ný
sóknarfæri fyrir listina í landinu.
Og í dag gefst fólki færi á að
kynna sér hvað þetta stórhuga
fólk aðhefst, sjá hvað það hefur
fram að færa.
Hugmyndaþjófnaður úrelt
fyrirbæri
Nína Magnúsdóttir er listakona
og gegnir að auki óformlegu emb-
ætti hússtýru í Klink og Bank.
Hún er á þönum hæða og her-
bergja á milli þegar Fréttablaðið
ber að garði enda í mörg horn að
líta þegar dyr að 5.000 fermetrum
eru opnaðar. Húsnæðið er hrátt að
innan, sums staðar blasir grá
steinsteypan við augum, hurðir
hanga á hjörum og gamlar inn-
réttingar láta á sjá. Það er ekkert
verið að lappa sérstaklega upp á
þetta fyrir opna húsið í dag. „Við
erum ekki í einhverjum þykjustu-
leik heldur sýnum okkur eins og
við erum í dag,“ segir Nína.
Þó að stutt sé síðan listamenn-
irnir fengu húsið til umráða hafa
þeir flestir komið sér ágætlega
fyrir, þó ekki hver í sínu horni.
„Þetta á að vera fljótandi hús,“
segir Nína, „allir taka þátt, enginn
lokar sig af“. En er ekki hætt við
að stórfelldur hugmyndaþjófnað-
ur sé stundaður þegar svona
margir listamenn eru með nefið í
hvers annars koppi? „Nei, nei, nei.
Þegar fólk deilir hugmyndum
stækka þær bara. Hugmynda-
þjófnaður er líka löngu úrelt fyr-
irbrigði. Það eru allir í því að lána
og fá lánað. Við lifum jú á póst-
módernískum tíma.“ Fjörlegast er
í Klink og Bank á kvöldin því
listamennirnir þurfa flestir að
vinna almenna launavinnu á dag-
inn til að geta sinnt list sinni.
Æðislegt hús
Nína segir gott að vinna í
gamla Hampiðjuhúsinu: „Þetta er
æðislegt. Ég hef verið hér ein á
nóttunni og aldrei orðið vör við
drauga. Og ef þeir eru hérna þá
eru þeir ofsalega vinveittir. Það
er gott að fá hugmyndir hérna,
sem er bæði húsinu og öllu þessu
skapandi fólki að þakka.“ Þar sem
húsreksturinn er á hennar herð-
um hefur Nína ekki sinnt eigin list
eins og hún helst vildi en vonast
til að það breytist brátt.
Hún útskrifaðist úr Myndlista-
og handíðaskólanum 1995 og
lærði meira í London eftir það. Og
þó að hún hafi útskrifast úr mál-
aradeild eru efnin og efnistökin af
ýmsu tagi: „Ég hef fengist við inn-
setningar, vídeólist og ljósmynd-
un svo eitthvað sé nefnt. Ég geri
bara það sem hentar hugmynd-
inni,“ segir hún hlæjandi.
Samstarfssamningurinn um
starfsemi Klink og Bank var und-
irritaður með mikilli viðhöfn og
Landsbankinn tefldi fram sínum
helstu mönnum. Bankaráðsfor-
maðurinn Björgólfur skrifaði
undir og báðir bankastjórarnir
horfðu á. En kemur Björgólfur í
dag? „Jájá, hann kemur og er
spenntur,“ segir Nína, sem sjálf
er spennt eins og vonlegt er. „Að
sjálfsögðu er ég spennt. Við vitum
ekkert almennilega hvernig þetta
verður, hversu margir koma og
svona en við viljum sjá sem flesta.
Það væri mjög gaman ef margir
kæmu og verðu deginum með
okkur.“
Margt að sjá og heyra
Dyrnar að Hampiðjuhúsinu
verða opnaðar klukkan tvö í dag
og auk fjölmennrar sýningar í
„Græna salnum“ verður boðið
upp á Barnaleikritið Baulaðu nú,
gjörninginn Goethe og Puddle,
leiklistargjörning, kynningu á
Sjónlistastofnuninni og rokktón-
leika þar sem meðal annars leika
Apparat, Trabant, Singapore Sling
og Ghostigital.
bjorn@frettabladid.is
HÚSSTÝRAN
Nína Magnúsdóttir myndlistarmaður er óformleg hússtýra í Klink og Bank. Á efstu hæð hússins sést yfir sundin blá.
MANIFESTÓ KLINK OG BANK
❂ Klink og Bank skapar lifandi vett-
vang fyrir framsækna liststarfsemi
yngri kynslóða.
❂ Klink og Bank brúar bil á milli
listgreina sem opnar möguleika á
frjóu samstarfi.
❂ Klink og Bank ætlar að stuðla að
veglegri útgáfu og öðru kynningar-
efni sem nauðsynlegt er til skrá-
setningar heimilda.
❂ Klink og Bank sinnir vaxandi
áhuga á samtímalist á Íslandi og
nýtir vettvang sinn til kynningar á
henni og sækir um þá styrki sem
eru í boði.
❂ Klink og Bank er einnig vettvang-
ur til samskipta og samstarfs við er-
lenda listamenn og listastofnanir
sem geta opnað gáttir inn í landið
og út í heim.
❂ Ef starfsgrundvöllur er hér á landi
mun Klink og Bank sækja um nor-
ræna og evrópska samstarfsstyrki.
❂ Vinnuumhverfi listamannanna
sem starfa innan Klink og Bank
verður reglulega opnað fyrir al-
menning. Þannig skapast samskipti
með hugsanlegri fræðslu og skiln-
ingi á nútíma listsköpun.
❂ Klink og Bank vill efla miðborg-
ina með sérverkefnum og regluleg-
um uppákomum með iðandi lífi og
opinni umræðu.
❂ Þeir listamenn sem starfa í Klink
og Bank eru virkir í mótun og fram-
gangi starfseminnar.
Fyrir tilstuðlan Landsbankans varð dágóðum hópi listamanna fært að hreiðra um
sig með vinnustofur í gamla Hampiðjuhúsinu. Þar hefur núna myndast iðandi líf
og húsið verður opið almenningi í dag. Ýmislegt skemmtilegt verður á boðstólum.
Klink og Bank
býður heim
ÞINGIÐ
Þessi mynd eftir Þorgeir Frímann er meðal þess sem verður til sýnis á opnum degi í Klink
og Bank í dag.
FÖTUR OG BRÚSAR
Huginn Þór Arason á þetta listaverk, en
hann er einn af þeim sem hafa vinnuað-
stöðu hjá Klink og Bank í Hampiðjuhúsinu.
RÚSSLAND
Í þessu rými verður rokkað í dag. Meðal
þeirra sem koma munu fram eru Trabant,
Apparat, Singapore Sling og Ghostigital.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
V
IL
H
EL
M