Fréttablaðið - 08.03.2004, Qupperneq 1
● ber uppi lágmenningarkvöld
Russ Meyer:
▲
SÍÐA 26
Meistari ljós-
bláu myndanna
KJARASAMNINGAR „Ég er sáttur og
held að þegar menn fara að skoða
þetta í rólegheitum þá sé þetta
mjög merkilegur samningur. Í
fyrsta sinn er tekið á samtrygging-
arhluta lífeyrissjóðanna, við erum
að koma með nýja launatöflu sem
er mikil framtíð í og við fáum festu
í starfsmenntamálum og síðan er
búið að endurraða hverju einasta
starfi inn í nýja launatöflu,“ sagði
Halldór Björnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins á mið-
nætti þegar skrifað hafði verið und-
ir nýjan kjarasamning milli Starfs-
greinasambandsins og Samtaka at-
vinnulífsins sem gildir til næstu
fjögurra ára.
Í sama streng tók Sigurður
Bessason, formaður Eflingar stétt-
arfélags, eftir að Flóabandalagið
hafði undirritað nýjan kjarasamn-
ing við Samtök atvinnulífsins.
„Að vísu er það þannig að þegar
við komum að svona samningsgerð,
þá er það þannig á endanum að við
verðum að meta heildina, bæði
smátt og stórt. Víst hefði ég viljað
sjá launatölurnar hærri en við erum
að semja hér til langs tíma og til
stöðugleika. Síðan er ég sannfærður
um að það er mikið verðmæti fólgið
í nýju launatöflunni. Þegar sá hluti
er skoðaður með þá held ég að við
munum sjá hér verulegar breyting-
ar á launatölum almennt inni í
samningunum. Í heildina tekið þá er
þetta nokkuð góður samningur,“
sagði Sigurður Bessason.
Ari Edwald segir að Samtök at-
vinnulífsins geti þokkalega vel við
unað þótt sú launa- og kostnaðar-
hækkun sem í samningunum felist
sé nokkru meiri en atvinnulíf ná-
grannalandanna búi við.
Samningarnir fela í sér ríflega
15% kostnaðarhækkun fyrir at-
vinnurekendur á samningstíman-
um. Almenn laun hækka strax um
3,25% og að auki um 1% samkvæmt
nýrri launatöflu. Á næsta ári hækka
laun um 3%, 2006 um 2,5% en þá
bætist einnig við 1% vegna nýrrar
launatöflu. Árið 2007 hækka laun
um 2,25%.
Þá hækkar framlag atvinnurek-
enda í lífeyrissjóði í 8% á samnings-
tímanum. Orlofs- og desemberupp-
bætur hækka í samræmi við al-
mennar launabreytingar. Þá hækka
lágmarkslaun strax úr 93.000 krón-
um í 100.000 krónur. Sjá nánar bls. 4
the@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MÁNUDAGUR
BARÁTTUDAGUR KVENNA Al-
þjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag.
Af því tilefni verður haldinn opinn fundur
í BSRB-salnum að Grettisgötu 89 klukkan
17. Þar verður meðal annars flutt erindi
um konur í friðarferli og uppbyggingu.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VINDASÖM VIKA FRAMUNDAN
Og blaut en ákaflega hlý. Í dag verður víða
allhvasst eða hvasst og eins og spárnar
líta út þennan daginn lægir ekki að neinu
gagni fyrr en á föstudaginn. Sjá síðu 6.
8. mars 2004 – 67. tölublað – 4. árgangur
● fíknin getur drepið hvern sem er
Þorsteinn Jónsson:
▲
SÍÐA 30
Kvikmyndaði
sorgarsögur í Byrginu
Guðbjartur ÍS 16:
▲
SÍÐA 18
Áhöfnin sem
skoraði á Vigdísi
DEILAN LEYST Nýr aksturssamningur
Heilsugæslunnar og starfsmanna í heima-
hjúkrun var undirritaður í gær. Formaður
BSRB segir mikinn létti að deilan skuli vera
leyst. Sjá síðu 2
ÓTTAST NIÐURSKURÐ Skólastjórn-
endur framhaldsskólanna óttast niðurskurð
á fjárveitingum í kjölfar bréfs frá Mennta-
málaráðuneytinu. Menntamálaráðherra vís-
ar á bug ásökunum um niðurskurð.
Sjá síðu 6
ÁTTU EKKI PENING Væntanlegir
kaupendur Hótels Arkar gátu ekki greitt
umsamda útborgun, að sögn Jóns Ragnars-
sonar seljanda hótelsins. Kaupendurnir
íhuga málsókn. Sjá síðu 8
HÖFNUÐU RANNSÓKN Tillögu sjálf-
stæðismanna um óháða rannsókn í tengsl-
um við mál Tetra Íslands var hafnað í stjórn
Orkuveitunnar. Guðlaugur Þór Þórðarson
telur kaup á Irju hafa verið fáránleg.
Sjá síðu 10
BAGDAD, AP Fulltrúar sjía-múslima í
framkvæmdaráðinu í Írak segjast
munu undirrita bráðabirgðastjórn-
arskrána í dag, óbreytta. Fimm sjía-
múslimar í ráðinu höfðu neitað að
undirrita stjórnarskrána á föstudag
vegna andstöðu trúarleiðtogans
Ayatollah Ali al-Husseini al-Sistani.
Fimmmenningarnir fóru á fund
al-Sistanis í helgu borginni Najaf í
gær til að reyna að finna lausn á
deilunni um innihald stjórnarskrár-
innar. Al-Sistani hafði gert athuga-
semdir við ákvæði sem gefur kúrd-
um í Norður-Írak neitunarvald þeg-
ar efnt verður til þjóðaratkvæða-
greiðslu um varanlega stjórnarskrá
í lok ársins 2005. Fulltrúar kúrda í
framkvæmdaráðinu sögðu að það
kæmi ekki til greina að breyta
þessu ákvæði og því varð að fresta
undirritun stjórnarskrárinnar.
Eftir fundinn í Najaf lýsti forseti
framkvæmdaráðsins því yfir að
samkomulag hefði náðst við sjía-
múslima og engar breytingar yrðu
gerðar á stjórnarskránni. ■
Búið að semja
Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið undirrituðu á miðnætti nýj-
an kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Samið um 15% launahækk-
un næstu fjögur ár. Framlag í lífeyrissjóði hækkar í 8%.
Samkomulag náðist við fulltrúa sjía-múslima:
Stjórnarskráin undirrituð í dag
SAMNINGAR UNDIRRITAÐIR Eftir
nokkuð langa og stranga lokalotu kjaravið-
ræðna á almennum markaði voru nýir
kjarasamningar undirritaðir á miðnætti.
Einstök aðildarfélög Starfsgreinasam-
bandsins og Flóabandalagsins afgreiða
samningana á næstu þremur vikum.
SÍF og SH:
SÍF kaupir
23% í SH
VIÐSKIPTI SÍF hefur keypt 23,16% Ís-
landsbanka í Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna. Keypt var á genginu 5,85
og kaupverðið því ríflega tveir millj-
arðar króna.
Markmið kaupanna er að auka og
efla samstarf félaganna, sérstaklega
á erlendri grund, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu vegna við-
skiptanna.
Landsbanki og Burðarás eru
stærstu hluthafarnir í SH, með yfir
helmingshlut. Síðasta sumar lýsti
bankastjóri Landsbankans því yfir
að hann teldi sameiningu félaganna
óhjákvæmilega. Líkur eru á því að
skriður komist á þau mál í kjölfar
kaupa SÍF á þessum hlut.
Árni Tómasson og Hjörleifur
Jakobsson verða tilnefndir í stjórn
SH fyrir hönd nýrra hluthafa en
aðalfundur félagsins verður á föstu-
daginn. ■
innlit ● fasteignasali vikunnar
▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Bláber og rjóma
utan á húsið
Kolbeinn Sigurjónsson:
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FORSETI FRAMKVÆMDARÁÐSINS
Mohammed Hussein Bahr al-Ulloum, forseti íraska framkvæmdaráðsins, segir að sam-
komulag hafi náðst um nýju bráðabirgðastjórnarskrána.
● rennir hýru auga til rannveigar rist
Kröfuganga á Haítí:
Skotið á fólk
á götum úti
HAÍTÍ, AP Þúsundir manna söfnuðust
saman í Port-au-Prince, höfuðborg
Haítí, til að krefjast þess að Jean-
Bertrand Aristide, fyrrverandi for-
seti landsins, yrði ákærður fyrir
spillingu og morð og dreginn fyrir
rétt. Að minnsta kosti einn maður
lést og fjöldi særðist þegar vopnaðir
menn tóku að skjóta á mannfjöldann.
Að sögn sjónarvotta voru það her-
skáir stuðningsmenn Aristides sem
skutu á fólkið. Bandarískir og
franskir friðargæsluliðar sem höfðu
fylgst með göngunni reyndu að koma
særðum til hjálpar. ■
ARISTIDE BRENNUR
Kveikt var í skilti með mynd af Jean-
Bertrand Aristide, fyrrverandi forseta Haítí,
í höfuðborginni Port-au-Prince.